Fréttablaðið - 17.02.2004, Side 10
10 17. febrúar 2004 ÞRIÐJUDAGUR
GÓÐUR HVUTTI
Vladimir Pútín, forseti Rússlands, sýnir
gestum sínum Thomas Klestil, forseta
Austurríkis, og konu hans Margot Klestil-
Löffler hundinn sinn Conny. Á myndinni
er einnig Ljúdmila, eiginkona Pútíns.
Vísindamaður setur upp formúlu um endingu hjónabanda:
Reiknar út lífslíkur hjónabanda
SEATTLE, AP John M. Gottman, sem
hefur rannsakað meira en 600
hjónabönd á 20 ára tímabili, segist
geta reiknað út fyrir fram hversu
farsælt hjónaband fólks verður.
Þetta segir hann að sé hægt að
gera með því að skoða nákvæm-
lega samskipti fólks og setja þau
upp í formúlu sem segir fyrir um
hvort hjónabandið endist eða
ekki.
Á ráðstefnu í Seattle sagði
Gottman að það væri lykilþáttur í
hverju hjónabandi hvernig hjón
tækjust á við deilumál. Þessi sam-
skipti mætti setja upp í formúlu
þar sem stærðfræðin leysti ráð-
gátuna um ást og hjónaband.
Gottman skiptir hjónaböndum
upp í nokkrar týpur. Sú fyrsta er
hjónaband fólks sem rífst aldrei,
hlustar hvort á annað en reynir
ekki að sannfæra makann. Þetta
er fólk sem forðast að takast á við
vandann og þó það sé ekki tilfinn-
ingaþrungið endist hjónabandið.
Svo er fólkið sem rífst reglulega
og er gift til langframa. Loks er
fólkið sem ræðir vandamálin en
rífst sjaldan og lendir sjaldan í
skilnaði.
Vandamálin verða til þegar
ólíkar týpur giftast. Hjónaband
þess sem rífst mikið og þess sem
forðast rifrildi endist því ekki
lengi. ■
John Edwards ætlar
ekki að gefast upp
Forkosningar demókrata í Wisconsin fara fram í dag. Reiknað er með að Howard Dean hætti
tapi hann kosningunum. John Edwards er á öðru máli og segist ætla að halda áfram.
WISCONSIN, AP Bandarískir stjórn-
málaskýrendur eru margir á
þeirri skoðun að ef John Kerry
sigri í forkosningunum í Wis-
consin í dag dragi aðrir fram-
bjóðendur sig til baka. Þá verður
Kerry forsetaefni flokksins og
mun hann þá etja kappi við
George W. Bush í forsetakosning-
unum í lok ársins.
Í kappræðum, sem haldnar
voru í Marquette-háskólanum í
Milwaukee á sunnudaginn, virtist
John Edwards hins vegar ekki
vera á því að gefast upp. Þó að
Kerry hafi unnið í 14 af þeim 16
ríkjum sem kosið hefur verið í og
hafi forskot í Wisconsin sam-
kvæmt skoðanakönnunum sagð-
ist Edwards ætla að halda ótrauð-
ur áfram. Öðru máli gegnir um
Howard Dean, sem fyrir skömmu
virtist ósigrandi. Ráðgjafar hans
hafa sagt að ef hann tapi kosning-
unum í Wisconsin eigi hann að
draga sig út úr kosningabarátt-
unni.
Stjórnmálaskýrendur telja Ed-
wards eiga meiri möguleika en
Dean á að halda áfram þó að hann
tapi kosningunum í Wisconsin.
Hann hafi sigrað í Suður-Karó-
línu og njóti vaxandi hylli sumra
demókrata vegna fágaðrar og
glaðværrar framkomu. Þá verði
það Edwards í hag ef Dean heltist
úr lestinni eftir kosningarnar í
Wisconsin. Það auki möguleika
hans á að fjármagna eigin kosn-
ingabaráttu og þar með vera
áfram með. Möguleikar Edwards
teljast hins vegar aðeins fólgnir í
því að Kerry verði á í kappræð-
um eða að upp komi hneykslismál
sem dragi úr trúverðugleika
Kerrys.
Kappræðurnar á sunnudaginn
báru keim af yfirburðastöðu
Kerry. Fremur en að gagnrýna
mótframbjóðendur sína réðst
hann á Bush. Hann gagnrýndi
hann fyrir stríðið í Írak og endur-
tók þá afstöðu sína að Bandaríkin
hefðu átt að vera þolinmóðari og
bíða eftir niðurstöðu vopnaleitar-
manna Sameinuðu þjóðanna áður
en farið var í stríð.
Mótframbjóðendur Kerrys tóku
margir í sama streng. Dean, sem
fram að þessu hefur verið fremur
óvæginn í gagnrýni sinni á Kerry,
tók meira að segja upp hanskann
fyrir Kerry og varði hann fyrir
gagnrýni repúblíkana. Edwards
var heldur beinskeyttari og gagn-
rýndi Kerry fyrir að hafa stutt frí-
verslunarsamning Norður-Amer-
íku (NAFTA), sem hann sagði hafa
kostað Wisconsin-ríki 90 þúsund
störf á síðustu þremur árum.
Næstu forkosningar verða í
Kaliforníu 2. mars og í framhald-
inu í New York, Ohio og sjö öðrum
ríkjum. ■
FÖLSUÐU TUGI MILLJÓNA Tveir
menn hafa verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald í Danmörku grunað-
ir um umfangsmikið peningafals.
Lagt var hald á sem svarar rúmum
fjörutíu milljónum íslenskra króna
í fölsuðum seðlum þegar mennirnir
voru handteknir á eynni Møn. Um
var að ræða mjög góðar eftirlíking-
ar af dönskum þúsundkrónuseðlum.
KENNSLUDISKUR AFTURKALLAÐUR
Heilbrigðisráðherra Danmerkur
hefur afturkallað geisladisk sem
nota átti til kynfræðslu í grunn-
skólum landsins. Á diskinum var
meðal annars fjallað um kynlíf með
dýrum og afbrigðilega kynhegðun
af ýmsu tagi. 60.000 diskar höfðu
verið framleiddir og var kostnaður-
inn við gerð þeirra yfir 5,2 milljón-
um íslenskra króna.
Lýtaaðgerðir eru af ýmsu tagi:
Einn limur lengdur á ári
FEGRUNARAÐGERÐIR „Ég áætla að
ein slík aðgerð fari fram á hverju
ári,“ segir Guðmundur Vikar Ein-
arsson þvagskurðfæralæknir um
lýtalækningar á karlmönnum
vegna smávaxinna lima.
Guðmundur Vikar segir að
venjulega sé reynt að ráða bót á
vanda þeirra karla sem bera sig
eftir lengingu með því að benda
þeim á sálfræðing þar sem vand-
inn sé í flestum tilvikum sálrænn.
Hann segir að reynslan frá
útlöndum sé sú að aðgerðir til að
lengja limi skili sér ekki að því
marki sem menn eru að leita eftir.
Lengingin sé yfirleitt aðeins hálf-
ur til einn sentímetri, sem sé langt
undir væntingum þeirra sem vilja
bót. Japanir og Bandaríkjamenn
hafa verið hvað áhugasamastir
um þessar aðgerðir.
Guðmundur Vikar segir að að-
gerðirnar hérlendis séu fólgnar í
því að losa liminn frá lífbeininu
þannig að hann hangi meira niður.
Samkvæmt því er árangurinn
helst sjónrænn en snýst ekki um
getu.
Engin samræmd skráning er á
fjölda einstakra lýtalækninga
hérlendis. Hjá Landlækni fengust
þær upplýsingar að nokkurn veg-
inn væri vitað um fjölda brjósta-
stækkana kvenna, sem væru um
200 á ári. Þar á bæ er unnið að því
að koma upp gagnabanka um
margvíslegar gerðir lýtaaðgerða.
Díana Oddsdóttir, annar eig-
enda Húðfegrunarstofunnar, seg-
ir sprautumeðferðir í andlit, þar
sem fjölsykrum er beitt til að
fylla upp í hrukkur, vera á bilinu
20 til 25 á viku. Af þeim sem leita
hjálpar hjá Díönu er um fimmt-
ungur karlar. ■
Efnahagsráðgjafi forsetans:
Of opinskár
WASHINGTON, AP Það getur verið já-
kvætt þegar menn skrifa kennslu-
bækur um hagfræði að þeir noti
einfalt og auðskiljanlegt mál. Það
þarf hins vegar ekki að vera jafn
heppilegt þegar þeir eru orðnir
efnahagsráðgjafar Bandaríkja-
forseta.
Gregory Mankiw hefur verið
skammaður bæði af demókrötum
og repúblikönum fyrir að segja í
efnahagsskýrslu forsetans að það
gæti verið skynsamlegra að kaupa
þjónustu frá útlöndum heldur en af
Bandaríkjamönnum. Ummælin
þykja óheppileg vegna þess að með
þeim er nokkurn veginn hvatt til
þess að flytja störf til útlanda.
Frá því George W. Bush varð for-
seti hafa 2,2 milljónir starfa tapast. ■
GENGIÐ Í HJÓNABAND
Bandarískur vísindamaður segist geta
reiknað út hversu lengi hjónabönd endast.
LÝTAAÐGERÐ
Mikið hefur verið rætt um lýtaaðgerðir að
undanförnu. Konur hafa fram að þessu átt
sviðið en nú eru karlar að hasla sér völl.
Hér er Ríkey Ingimundardóttir myndlistar-
kona í andlitslyftingu undir sjónvarpstöku-
vélum.
KAPPRÆÐUR Í WISCONSIN
John Kerry og Dennis Kucinich hlusta John Edwards svara spurningum í kappræðum
demókrata í Marquette-háskólanum í Milwaukee á sunnudaginn.
■ Norðurlönd