Fréttablaðið - 17.02.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 17.02.2004, Blaðsíða 18
fjármál heimilanna Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um f jármál heimilanna Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: fjarmal@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is Sparisjóður Reykjavíkur og ná-grennis kynnti í gær nýtt kredit- kort, e-kortið, sem gefur korthafa 0,5 prósent af innlendri veltu kortsins greidd til baka í desember ár hvert. Að sögn Kristjáns Þórs Harðar- sonar, framkvæmdastjóra markaðs- sviðs SPRON, geta notendur korts- ins sparað tugþúsundir á hverju ári með notkun kortsins. „Það sem er sérstakt við þetta kort er að viðskiptavinir fá endur- greitt með ávísun, þetta snýst ekki um punkta eins og oft hefur tíðkast með tryggðarkort.“ Tryggðarkort kallast kort sem umbuna viðskipta- vinum fyrir að beina viðskiptum sín- um til ákveðinna fyrirtækja. Auk þess að fá endurgreiðslu í desember fá notendur afslátt á bilinu 0,65% til 15% hjá á þriðja hundrað verslunum og þjónustufyrirtækjum, sem einnig er endurgreiddur í desember. Kortagjald verður ekkert fyrsta árið en 2.900 er því lýkur. Þeir sem eyða yfir 300.000 á ári fá niðurfellt kortagjald. Viðskiptavinir geta val- ið hvort þeir greiða allan reikning- inn um mánaðamót eða hvort þeir velta hluta reikningsins áfram. Ógreiddir reikningar bera vexti upp á 14,45 fyrir gullkorthafa og 15,95 fyrir almenna korthafa, sem svipar til vaxta fyrir yfirdráttarlán. Aðspurður hvort kortið sé ekki bara enn einn hættulegur möguleik- inn fyrir eyðsluóða Íslendinga sagði Kristján frekar verið að koma til móts við neysluvenjur Íslendinga eins og þær eru. „Kortið sameinar kosti debetkorta og kreditkorta og er þannig nýjung hér á landi,“ segir Kristján, sem bendir á að hægt sé að leggja inn á reikning kortsins ef fólk vill nota kortið eins og debetkort, jafnvel þó það sé kredit- kort. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu kortsins, www.ekort.is ■ SPRON kynnir e-kortið: Ávísun í desember KRISTJÁN ÞÓR HARÐARSON Kortið sameinar kosti debetkorta og kreditkorta. Margt smátt Ef keypt er eitt súkkulaðistykki á 80 kr. á hverjum degi í ár eru það alls 29.200 kr. Gerir eitt Hálfur lítri af kók kostar um 150 krónur úti í sjoppu. Ef drukkin er ein slík flaska á dag í ár er það alls 54.750 kr. Stórt Einn sígarettupakki kostar 520 kr. Ef maður reykir einn pakka á dag gera það 189.800 krónur á ári. Alls eru þetta 273.750 krónur á ári... spáið í það. Arnar Jón Agnarsson er ein-ungis 23 ára gamall en þekkir þó vel hvað það er að steypa sér í skuldir. „Ég var næstum því orð- inn gjaldþrota 21 árs gamall eftir að hafa steypt mér í alls konar skuldir. Ég var með yfirdrátt í öll- um bönkum og svo var ég með bíl á rekstrarleigu,“ segir Arnar Jón og tekur skýrt fram að hann hafi ekki verið í vímuefnaneyslu, bara lífsgæðakapphlaupi – sem að vísu hófst óvenju- snemma hjá honum. „Ég fékk mér yfir- drátt átján ára, keypti bíl, eyddi á fullu og vann eins og vitleys- ingur, átti samt aldrei pening,“ segir Arnar Jón, sem var með 75.000 krónur í afborganir á mánuði, unglingur í framhaldsskóla. „Svo kom að því að ég var við gjaldþrot 21 árs gamall,“ segir Arnar Jón, sem var þó svo hepp- inn að geta bjargað málum með hjálp góðra manna. „Ég er enn að greiða niður þessar skuldir og peninga- eyðslan varð til þess að ég frestaði há- s k ó l a n á m i , “ segir Arnar Jón, sem telur það ekki óalgengt að framhaldsskólanemendur safni svo miklum skuldum að það bitni á framtíðaráformum þeirra. Arnar Jón er að hefja funda- herferð í vikunni í framhaldsskól- unum á höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við KB banka. „Auðvit- að vilja bankarnir eiga góða við- skiptavini, sem standa í skilum. Og krakkarnir hlusta sennilega frekar á mig en jakkafataklædda menn,“ segir Arnar Jón. Arnar Jón segir erindin sem hann flytur í skólunum vera eins konar fjár- málaforvarnir. „Ég tala við ungt fólk um allar þær gildrur sem geta orðið á vegi þess og hvernig beri að var- ast þær. Ég legg líka mikla áherslu á ábyrgð einstak- linganna. Þegar ég var í eyðsluruglinu var ég fullkom- lega ábyrgðar- laus, ég bara eyddi.“ Trúnaður við foreldra er mjög mikilvægur að mati Arnars Jóns: „Foreldrar mínir höfðu ekki hugmynd um hversu illa ég stóð. Það er mjög mikilvægt að krakkar leyfi foreldrum sínum að fylgjast með f j á r m á l u n u m þeirra.“ sigridur@frettabladid.is ARNAR JÓN AGNARSSON Fræðir nemendur í fram- haldsskólum um allt sem getur farið úrskeiðis í fjár- málunum. Unglingur í vanskilum: Gjaldþrot blasti við + DÆMI Ársvelta: 500.000 Endurgreitt í desember: 2.500 kr* 0,5% af 500.000. Endurgreiðslan er hærri ef úttektirnar eru í verslunum sem eru í samstarfi við e-kortið. Bensín fyrir 15.000 á mánuði, 180.000 á ári Endurgreitt í desember: 3.600 kr.* 0,5% + 1,5% af 180.000 ef keypt er hjá Esso. + =

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.