Fréttablaðið - 17.02.2004, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 17. febrúar 2004
flugfelag.is
EGILSSTAÐA
6.200kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
ÍSAFJARÐAR
5.300kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
AKUREYRAR
5.300 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Reykjavíkur og
flugfelag.is
18.-24. febrúar
VOPNAFJARÐAR/
ÞÓRSHAFNAR
2.600kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
GRÍMSEYJAR
2.600 kr.
Flug aðra leiðina.
Bara á www.flugfelag.is
Takmarkað sætaframboð!
Milli Akureyrar og
Krónufargjald fyrir börnin 14. feb.-14. mars
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
F
LU
2
37
13
02
/2
00
4
Jákvæðari hugsun í mótbyr
Patrick Head, tæknistjóri Williams, segir að Ralf Schumacher verði að
temja sér jákvæðari hugsun þegar illa gengur.
FORMÚLA 1 „Ralf verður að breyta
hugarfari sínu og láta það ekki
bitna á árangri sínum ef bíllinn
lætur erfiðlega,“ sagði Patrick
Head, tæknistjóri Williams-liðs-
ins. „Hann getur átt erfitt með að
komast yfir það að bíllinn láti erf-
iðlega í byrjun keppni. Ralf veit
að hann á möguleika á að verða
meistari í ár og hann mun reyna
allt til að það gangi eftir.“
Patrick Head og Frank Willi-
ams, eigandi Williams-liðsins,
segjast ekki skilja óstöðugleika
Ralfs Schumacher. Hann geti ekið
eins og heimsmeistari en keyri of
oft eins og miðlungsökumaður.
„Ralf er sérkennilegur náungi,“
sagði Williams. „Í nokkrum
keppnanna í fyrra, sérstaklega í
Japan og Ungverjalandi, fór hann
fram úr öðrum eins og þeir væru
ekki þarna. Hann er ekki vanur
því. Ég held að hann hafi ekki ver-
ið nógu grimmur í hinum keppn-
unum.“
Williams er sammála Head í
því að Ralf Schumacher sé bestur
þegar bíllinn lætur vel frá byrjun.
Þeir minna á sigra hans í San Mar-
ínó árið 2001 og á Nurburgring og
í Magny-Cours í fyrra. Bíllinn
hentaði frábærlega fyrir þessar
keppnir og Schumacher ók næst-
um óaðfinnanlega.
Head segir að liðið reyni alltaf
sitt besta til að finna út hvað hent-
ar best fyrir brautina sem keppt er
á og hafi ökumaðurinn bein áhrif
þegar ákvarðarnir eru teknar. Það
getur komið fyrir að liðið taki
rangar ákvarðanir og að bíllinn
henti ekki sem best við tilteknar
aðstæður. Þá verði ökumaðurinn
strax að hugsa: „Hvernig get ég
látið þetta bitna sem minnst á bar-
áttu minni í keppninni um heims-
meistaratitilinn?“
Head segir að Ralf verði að
breyta hugarfari sínu. „Hann verð-
ur að taka jákvæða afstöðu. Þegar
bíllinn er ekki góður og hann lend-
ir í öðru sæti verður hann að segja
að þetta hafi verið góð helgi því ár-
angurinn skemmi ekki fyrir sér.
Það skiptir máli að Ralf breyti
hugarfari sínu,“ sagði Head. ■
RALF SCHUMACHER
Bíll Ralfs Schumacher bilaði á æfingu á Spáni í síðustu viku.
1. deild kvenna:
ÍS vann KR
KÖRFUBOLTI ÍS vann KR 82-65 í
17. umferð 1. deildar Íslands-
móts kvenna í körfubolta. Stað-
an var jöfn eftir fyrsta leik-
hluta, 18-18, en KR-ingar leiddu
30-28 í leikhléi. Casie Lowman,
nýr leikmaður ÍS, tók af skarið í
þriðja leikhluta og skoraði
fimmtán stig og leiddi ÍS 57-45
að honum loknum. ÍS hafði enn
frumkvæði í fjórða leikhluta og
jók forskotið um fimm stig.
Casie Lowman skoraði 28
stig fyrir ÍS, þar af fimmtán
með þriggja stiga skotum. Alda
Leif Jónsdóttir skoraði sextán
stig fyrir ÍS og átti tíu stoðsend-
ingar en Lovísa A. Guðmunds-
dóttir og Guðrún S. Baldurs-
dóttir skoruðu níu stig hvor.
Svandís A. Sigurðardóttir tók
tólf fráköst.
Hildur Sigurðardóttir var
stigashæst KR-inga. Hún skor-
aði sautján stig en lenti í
nokkrum villuvandræðum og
lék minna en vanalega. Katie
Wolfe skoraði fjórtán stig fyrir
KR, Halla M. Jóhannesdóttir
tólf og Sigrún Skarphéðinsdótt-
ir tíu.
Með sigrinum treysti ÍS
stöðu sína í öðru sæti deildar-
innar. ÍS á eftir að leika við
Grindavík og ÍR á útivelli og
Keflavík á heimavelli en KR á
eftir að leika við Keflavík og
Njarðvík á útivelli og Grinda-
vík á heimavelli. Fari svo að ÍS
og KR verði jöfn að stigum ráða
úrslit í innbyrðis viðureignum
félganna. Bæði félög hafa sigr-
að tvisvar en KR leiðir saman-
lagt með einu stigi. ■
Intersport-deildin:
Grindavík vann Þór
KÖRFUBOLTI Grindavík sigraði
Þór Þorlákshöfn 88-81 í Inter-
sport-deildinni í gærkvöldi.
Leikurinn var jafn og spennandi
allan tímann en Grindavík hafði
betur með einu stigi í þremur
leikhlutanna og með þremur
stigum í einum þeirra.
Páll Axel Vilbergsson skoraði
26 stig fyrir Grindavík og
Darrell Lewis 25. Jackie Rogers
skoraði fimmtán stig. Lewis
náði fjórtán fráköstum og átti
fimm stoðsendingar. Jóhann Þ.
Ólafsson og Þorleifur Ólafsson
skorðu sex stig hvor, Guðmund-
ur Bragason fjögur og Steinar
Arason og Pétur Guðmundsson
þrjú hvor.
Erlendu leikmenn Þórs skor-
uðu 67 af stigum þeirra. Leon
Brisport skoraði 24, Robert
Hodgson 23 og Nate Brown 20.
Brisport tók fimmtán fráköst.
Grétar Erlendsson skoraði átta
stig, Finnur Andrésson fjögur
og Ágúst Grétarsson tvö.
Grindvíkingar eiga í harðri
keppni við Snæfell um deildar-
meistaratitilinn. Þeir eiga eftir
að leika við Keflavík og ÍR á úti-
velli og Hamar og Breiðablik á
heimavelli.
Þórsarar eiga eftir að leika
við KR og Hamar á heimavelli
og Hauka og Keflavík á útivelli.
Þeir eru neðstir með sex stig,
tveimur stigum á eftir Breiða-
blik og KFÍ. Blikar og Ísfirðing-
ar mætast á Ísafirði í næstu
viku, sem þýðir að annað félag-
anna nær að minnsta kosti tíu
stigum. Þórsarar standa höllum
fæti í innbyrðis viðureignum við
bæði þessi félög. Þeir þurfa því
að sigra í þremur af síðustu fjór-
um leikjum sínum og treysta því
að KFÍ og Blikar tapi sínum
leikjum til að halda velli í Inter-
sport-deildinni. ■
ÚRSLIT LEIKJA Í GÆRKVÖLDI
ÍS - KR 82-65
ÍR - Keflavík 36-91
Keflavík 1714 3 1396:1038 28
ÍS 1712 5 1117:970 24
KR 1710 7 1145:1076 20
Grindavík 166 10 1003:1047 12
Njarðvík 166 10 943:1129 12
ÍR 172 15 943:1287 4
Snæfell 18 15 3 1543:1448 30
Grindavík 18 15 3 1616:1521 30
Keflavík 17 11 6 1647:1480 22
Njarðvík 18 11 7 1653:1553 22
Haukar 18 11 7 1454:1424 22
KR 18 10 8 1650:1585 20
Hamar 18 9 9 1502:1529 18
Tindastóll 18 9 9 1676:1606 18
ÍR 18 5 13 1553:1652 10
Breiðablik 18 4 14 1468:1586 8
KFÍ 17 4 13 1556:1737 8
Þór Þorl. 18 3 15 1497:1694 6
Keflavík og KFÍ leika í Keflavík í kvöld.