Tíminn - 12.01.1972, Side 6
TIMINN
MIÐVIKUDAGUR 1S. janúar 1972
HIN VIÐURKENNDU
AC-RAFKERTI
FYRIRLIGGJANDI I ALLA BlLA.
Athugið hlð hagkvæma verð á AC-RAFKERTUM.
Í<S5>''
riLABUÐIN
AKMtTLA 3 SlMJ 38900
Fulltrúastarf í Kópavogi
Starf fulltrúa við væntanlega félagsmálastofnun
í Kópavogi er laust til umsóknar.
Aðalstarf fulltrúans verður á sviði æskulýðs- og
íþróttamála.
Umsóknir tilgreini menntun, aldur og fyrri störf.
Upplýsingar um starfið gefur félagsmálastjóri
Kópavogskaupstaðar í síma 41570.
Umsóknir skulu sendar bæjarskrifstofunum í Kópa
vogi, Neðstutröð, merktar félagsmálastjóra, fyrir
10. febrúar næstk.
Félagsmálastjóri.
Gróðrarstöð til sölu
Miðsvæðis í Borgarfirði er vel rekin gróðrarstöð
til sölu. Stærð: 5 ha. ræktað erfðafestuland, 4
sekúndulítrar af heitu vatni, ásamt 1125 ferm.
gróðurhúsum í góðu ástandi og vinnuskúr. —
íbúðarhús um 100 ferm., hæð og ris.
Umrædd gróðrarstöð yrði fyrst tilbúin til afhend-
ingar í lok nóvember á þessu ári.
Tilboð merkt „1216“ leggist inn á afgreiðslu blaðs
ms fyrir 19. janúar n.k. Áskilinn ér réttur til þess
að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Stiórn Ö.Í.: Frá vinstri í ne8ri röS eru Friðbert P. N jálsson ritari, Ólafur GuSmundsson, form., Halldór
Auðunsson gjaldkeri. í efri röð frá vinstri eru Haukur Bogason, Kjartan Jónsson varaform., Jóhann GuS-
mundsson, Trausti Eyjólfsson og Jón Sævaldsson.
Okukennarafélag Islánds
- fuffugu og flmm ára
Ökukennarafélag íslands varð
tuttugu og fimm ára þann 22. nóv.
s.l., en félagiS var stofnað 22.
nóv. 1946. Var af þessu tilefni
haldinn sérstakur hátíðarfundur
í Átthagasal Hótel Sögu og voru
þar mættir ,sem sérstakir gestir
-Ökukennai'afélags íslands, þeir hr.
Guðni Karlsson frá Bifreiðaeftir-
•iiti ríkisins, hr. Pétur Sveinbjarn
arson frá Umferðarráði og Sig-
urður Ágústsson frá Slysavarnar-
félagi íslands.
Á stofnfundi félagsins fyrir
tuttugu og fimm árum komu sam
an að Skálholtsstíg 7 í Reykja-
vík, tíu menn, sem höfðu haft
ökukennslu að aðalstarfi þá und
anfarið. Auk þessara tíu manna
voru mættir þeir hr. Jón Oddgeir
Jónsson þá fulltrúi Slysavarnar-
félags íslands og hr. Viggó Eyj-
ólfsson, bifreiðaeftirlitsmaður en
þessir tveir menn voru sérstakir
hvatamenn að stofnun félagsins.
Félagið hefur alltfrá stofnun
þess viljað stuðla sem bezt að
auknu umferðaröryggi og umferð
armenningu hér á landi. Kemur
þetta glöggt fram í fyrstu lögum
félagsins sem hér fara á eftir.
1. gr. Félagið heitir Bifreiða-
kennarafélag Reykjavíkur. Heim-
ili þess og varnarþing er í Reykja
vik.
2. gr. Tilgangur félagsins er:
A. Að vinna að aukinni umferð
armenningu allra þeirra er
ökutækjum stjórna.
B. Að koma á fót bifreiðakenn
araskóla á svo víðtækum
grundvelli sem frekast er
kostur.
C. Að tryggja það, að nemend-
ur fái sem bezta og fullkomn
asta kennslu í akstri bif-
reiða, og aukna þekkingu á
umferðarreglum.
D. Að koma á föstu formi um
kennsluaðferðir.
E. Að vinna að hagsmunamá!-
um félagsmanna eftir því
sem við verður komið.
Verkpfni félagsins hafa að sjálf
sögðu aukizt mjög á þeim árum
sem liðin eru frá stofnun þess.
Þjóðfélag okkar hefur tekið hrað
fara framförum og ekki má
gleyma því, hve stórkostleg aukn-
ing hefur orðið á bifreiðakosti
landsmanna á undanförnum árum.
Eins er, að nú þykir það sjálf
sagður hlutur að geta ekið bif-
reið og flestum nauðsynlegt at-
vinnu sinnar vegna. Þegar litið
er á liðna tíð er vissulega hægt
að gleðjast yfir því að sum upp-
hafleg stefnumál félagsins hafa
náð fram áð ganga, svo sem Öku
skólinn, sem nú er starfræktur og
heitir Fræðslumiðstöð Ökukenn-
arafélags íslands við Stigahlíð 45,
Reykjavík.
Námskeið Fræðslumiðstöðvar
Ökukennaraféalgsins hófust með
hægri umferðinni 1968 og hafa átt
vaxandi fylgi og vinsældum að
fagna. Lofar þessi starfsemi mjög
góðu og verður aukin og gerð fjöl
þættari í framtíðinni.
Það er markmið félagsins að
ökunemar fái sem bezta öku-
kennslu og félagið vinnur stöðugt
að þessu málefni eftir því sem til-
efni gefast til á hverjum tíma.
Nokkuð er nú liðið frá því að
aukin formfesta hefur verið tekin
upp í sambandi við ökukennsluna
og hefur félagið notið ágæts stuðn
ings og góðs samstarfs við núver-
andi lögreglustjóra og Bifreiða-
eftirlit ríkisins.
Það hlutverk, að vinna að auk-
inni umferðarmenningu allra
þeirra er ökutækjum stjórna, er
eitt af þeim verkefnum sem alltaf
verða efst á baugi á hverjum tíma.
Ökukennarafélagið hefur lagt sig
fram um að vinna vel a!S þessum
málum og yfirleitt mætt skilningi
og vinsemd hjá stjórnvöldum og
öðrum ráðandi aðilum í þessum
efnum, Þótt hinu sé því miður
ekki að neita að ökukennslan hef-
ur stundum orðið fyrir óraunhæfu
aðkasti einstaklinga sem oft á tíð-
um virðast ekki þekkja nógu vel
þau mál, sem þeir eru að deila á.
Ökukennarar víkja sér ekki und-
an réttmætum ábendingum er
fram kunna að koma, en hleypi-
dómar og óraunsæi stuðla ekki að
aukinni umferðarmenningu.
ökukennarafélag tslands mun
framvegis eins og hingað til leit-
ast við að vinna að bættri umferð
armenningu og auknu umferðar-
öryggi.
Núverandi stjórn Ökukennara-
félags íslands skipa þessir menrn
Ólafur Guðmundsson. formaoui,
Kjartan Jónsson, varaform., Hall-
dór Auðunsson, gjaldkeri, Joruinn
Guðmundsson, varagjaldkeri,
Friðbert Páll Niálsson, ritari,
Trausti Eyióifsson, vararitari og
Þóroddur Jóhannsson, Akureyri.
Varamenn í stjórn eru:
Jón Sævaldsson, Haukur Boga-
son og Guðmundur Pétursson.
KOPAVOGUR -
GARÐAHREPPUR
Getum bætt við okkur tveim verkamönnum.
Upplýsingar gefur verkstjóri í síma 40097 á
kvöldin.
RÖRSTEYPAN H.F., Kópavogi.
_
ADEINS VANDADIR OFNAR
"/fOFNASMIÐJAN
EINHOLTI 10 — SiMI 21220