Tíminn - 25.01.1972, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 25. janúar 1972
TÍMINN
5
Sjúkra-
flugvél
*
a
skíðum
OÓ—Reykjavflj.
Siúkraflugvél frá Flugþjón-
ustu Björns Pálssonar fór í
gær til Stykkishólms til að ná
f slasaða stúlku, sem leggja
þurfti inn á sjúkrahús í Reykja-
vík. Mikill snjór er á Snæfells-
nesi og flugvöllurinn við Stykk-
ishólm lokaður. En sett voru
skíði undir flugvélina og gekk
flugtak og lending vel. Skíða-
flugvélin er af gerðinni Cessna
180. Sagði Björn í gær, að skíða-
útbúnaðurinn hafi lítið verið
notaður undanfarin ár, en hann
€r nauðsynlegur þegar snjó-
þungt er, því ella er ekki lend-
andi nema á stærstu flugbraut-
um, þar sem umferð er mikil
og ruðningstæki tiltæk.
Stúlkan, sem sótt var, er frá
Ólafsvík. Hafði hún legið á spft-
alanum í Stykkishólmi með
slæmt lærbrot og þurfti nú að
komast sem fyrst til aðgerðar
hiá sérfræðingum.
LögreglubílUnn í Stykkis-
hólmi, sem éinnig er sjúkrabíll,
fór til Reykjavíkur í fyrradag.
Flutti hann veikan mann og var
sjúkrahúslæknirinn með í ferð-
inni.
Þessi ferð flugvélarinnar er
20. sjúkraflug Flugþjónustunn-
ar á þessu ári. í fyrra voru far-
in alls 153 sjúkraflug, sem er
nokkru minna en áður var, því
sjúkraflugin voru 200 til 220
á ári.
Lenti i vörzlu
lögreglunnar
í stað
þjónustu
flugfreyja
OÓ—Reyjkjavík.
Lögreglan á Keflavflairflug-
velli var s.l. sunnudag beðin
að taka í sína vörzlu mann, sem
ætlaði að fljúga utan með einni
af flugvélum Loftleiða. Maður
þessi, sem er íslendingur, var
drukkinn. Hann var kominn á
flugstöðina og beið þess að flug-
vélin, sem hann ætlaði með,
færi af stað.
Var náunginn allhávaðasam-
ur og heimtufrekur við starfs-
fólkið og fór svo að áhöfn flug-
vélarinnar, sem hann ætlaði
með. bað lögregluna að taka
manninn og geyma þar til flug-
vélin uæri komin á loft. Vildi
áhöfnin ekki eiga það á hættu,
að sá fulli og freki ylli vand-
ræðum meðan á flugi stæði. Því
fór svo, að í stað þess að njóta
bjónustu stimamjúkra flug-
freyja, lenti maðurinn í hönd-
um lögreglunnar.
Slasaða stúlkan borin úr skíðaflugvélinni í sjúkrabíl á Reykiavíkur flugvelli.
Tímamynd: GE.
Verst verður að ná
bátunum úr slippnum
i
ÞÓ—Reykjavík.
„Ég get ekkert sagt um hvað
tjónið er niikiö, a.m.k. ekki á
þessu stigi málsins, en eitt er
víst, að tjónið er mjög mikið,“
sagði Þorgeir Jósefsson, eig-
andi skipasmíðastöðvar Þor-
geirs og Ellerts á Akranesi, er
við ræddum við hann í dag. —
Við náðum Gissuri hvíta á flot
á flóðinu í nótt og liggur skip-
ið við bryggju á Akranesi. í
gær var iokið við að þétta og
dæla sjónum úr skipinu, og svo
réttum við skipið við eftir því
sem sjór féll að. Síðan var Giss
ur dreginn út úr rennunni og
gekk það mjög vel.
'Þongeir sagði, að skrokkur-
inn á Gissuri væri ekki mikið
skemmdur, a.m.k. læki hann
hvergij, en vissulega væri
skrokkurinn dólítið dældaður.
Mesta hættan á skemmdum
liggur í siglingatækjunum, en
ekki er búið að athuga um
skemmdir ó þeim.
Sjálf skipalyftan er mjög
mikið skemimd og enginn veit
irneð vissu, hve miklar þær eru.
í dag átti að byrja á að ná
henni upp, og sagði Þorgeir,
að ef bitarnir væru óréttanleg-
ir, þá yrði um nokkuð langa
stöðvun að ræða, þar sem það
þarf að panta alla prófíla utan-
lands frá og þeir eru ekki smíð
aðir á lager. Núna er beðið eft-
ir sérfræðingi frá verksmiðj-
unni, sem framleiddi lyftuna í
Ameríku og mun hann reyná
að komast að raun um hvað
það var, sem olli óhappinu.
Ekki er hægt að segja með
neinni vissu hvað bilaði, en
vitað er, að eitthvað lét und-
an á einu spilinu.
Að lokum sagði Þorgeir, að
fná því að skipalyftan tók til
starfa, væri búið að taka upp
354 skip og aldrei hefði hent
eitt einasta óhapp. Oft hafa
verið tekin upp stænri og
þyngri skip en Gissur hvffti,
og nægir að nefna, að Akra-
borgin hefur oft verið tekin
upp með farmi. Þorgeir taldi
líkur ó, að Gissur hvíti yrði
ekki lengi tepptur frá veiðum,
en núna væTÍ mesta vandamál-
ið, hvernig hægt væri að ná
þeim bátum niður, sem standa
á görðunuim, og er langverst
að ná Skinney niður, þar sem
hún er lang stærst. „En ég held
að það takist sagði Þorgeir, það
er nú yfirleitt svo, að ef vilj-
inn er fyrir hendi þá tekst
allt“.
ifliW'TOi
mttiiú
Vélskipið Gissur hviti náöist á flot á flóðinu i gærmorgun, eftir að búið var að rétta skipiö við. A myndinni sézt
vel hvernig möstrin hafa brotnað er skipið féll niður i lyftugryfjuna. (Timaynd — Lárus Pálsson)
Reyndi að bjarga sfúlku úr
sjónum og lét sjálfur lífið
OÓ-Reykjavík.
Sjómaður, sem ætlaði að
bjarga 16 ára gamalli stúlku,
sem féll milli skips og bryggju
f Njarðvíkurhöfn s.l. laugardag,
lét lífið þegar hann teygði slg
yfir borðstokkinn og ætlaði að
ná taki á stúlkunni í sjónum. í
sömu svifum valt báturinn að
bryggjunni og varð efri hluti
líkama mannsins á milli. Er
álitið, að hann hafi látizt sam-
stundis. Rétt á eftir var stúlk-
unni bjargað úr sjónum. Maður-
inn sem lézt, hét Jóhann Bertel
sen, 1. vélstjórl á ÞverfellL
Hann var 29 ára gamall, búsett-
ur að Sléttahrauni 15, Hafnar-
firði. Jóhann lætur eftir sig
barnshafandi konu og þrjú
börn.
Slysið varð síðari hluta laug-
ardags. Þá lá Stjaman RE-3 að
austanverðu við bryggjuna i
Ytri-Njarðvík. Skammt Þar frá
lá Þverfell. Tvær ungar stúlkur
— sú eldri 16 ára, voru að fara
um borð í Stjömuna, þegar sú
eldri datt í sjóinn milli skips
og bryggju. Hin var komin um
botfð. Hrópaði hún á hjálp.
Jóhann var að aka í bíl upp
bryggjuna þegar hann heyrði
hrópin. Hann stöðvaði bílinn og
hljóp um borð í Stjömuna.
Kastaði hann kaðalspotta til
stúlkunnar í sjónum og náði
hún í enda hans. Þá teygði Jó-
hann sig yfir borðstokkinn til
að ná í hendi stúlkunnar, en þó
valt báturinn að bryggjunni og
vanð Jóhann á milli, og fannst
ekkert lífsmark með honum
eftir það.
Mannskap dreif strax að.
Vom það bæði vélsmiðir, sem
vom við vinnu skammt frá og
skipverjar á Stjömunni. Héldu
þeir bátnum frá meðan krók-
stjaki var réttur til stúlkunnar
og gekk þá vel að ná henni upp.
Stúlkan var nokkuð meidd.
Var hún skrámuð á hnakka og
meidd á fæti. Einnig var hún
illa komin af vosbúð. Var stúlk-
an flutt á sjúkrahús.
Stúlkan, sem datt í sjóinn,
ætlaði að hitta bróður sinn, sem
er skipverji á Stjöraunni.
Jóhann Bertelsen