Tíminn - 03.02.1972, Blaðsíða 8
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 3. febrúar 1972
FIMMTUDAGUR 3. febrúar 1972
TÍMINN
Mörg tár og svitadropar eiga eftir
að falla í snjóinn í Sapporo
Meðal milljóna Japana og hundruð þúsunda
iþróttaáhugamanna um allan heim, hefur um fátt
verið meira rætt undanfarna daga en Olympiu-
leikana i Sapporo, sem hefjast i dag. Raunar má
segja, að Japanir hafi byrjað að ræða um leikana
fyrir fjórum árum, þegar ákveðið var, að þeir héldu
næstu Vetrar-Olympíuleika, að loknum leikunum i
Grenoble i Frakklandi. Þeir hófu þegar að skipu-
leggja leikana á sinn alkunna hátt- og notuðu til
þess þá miklu reynslu.sem þeir fengu af sumar-
leíkunum i Tokio 1964, auk margháttaðrar tækniá
öllum sviðum iþrótta og i byggingu á mannvirkjum
fyrir íþróttakeppni.
•í*
Vetrar-Olympíuleikarnir
hefjast á eldfjalla-
eyjunni Hokkaido í dag
Allt eins og bezt
verður á kosið
Leikarmr fara fram i Sapporo,
sem er höfuðborg eyjunnar
Hokkaido. Hún er nyrzta eyja
Japans og oft nefnd Siberia
Japans. Eyjan er eldfjallaeyja,
og á hún margt likt með Islandi,
þó minni sé, þvi þar eru bæði eld-
fjöll og heitir hverir, auk fagurra
fjalla og mikillar náttúru-
fegurðar.
Japanir hafa unnið mikið afrek
við undirbúning leikanna. Þeir
hafa byggt skautahallir, sleða-
brautir, lagt göngubrautir og
lagðar hafa verið brun- og svig-
brautir i hliðum fjallsins, þar sem
keppt verður i Alpagreinunum.
Tvo stökkpalla hafa þeir gert,
annan 70 metra og hinn 90 metra
— báðir meistaraverk að áliti
allra, sem þá hafa séð og reynt.
Auk þess hafa Japanir svo byggt
margra hæða hús fyrir keppendur
til að búa i á meðan á leikunum
stendur, auk alls annars, sem til
þarf til að halda leika eins og
þessa.
Hvar sem á er litið, er allt eins
og bezt veröur á kosið-gestirnir,
sem þegar eru farnir að flykkjast
til Sapporo,hafa ekki orð til að
lýsa öllu, og hinir 1500 iþrótta-
fréttamenn frá öllum löndum
heims, sem mættir eru á leikana,
ná ekki úr penna sinum nógu
sterkum lýsingaroröum til að
lýsa öllu, sem fyrir augu þeirra
ber; skiplaginu, fram-
kvæmdunum og öllu þvi-og samt
eru leikarnir ekki hafnir- þeir
eiga eftir að láta umheiminn vita
hvaö þarna gerist-og má búast
við aö það verði ekkert litið.
Enginn Islendingur
meðal keppenda
Keppendur allra þjóða, sem
taka þátt i leikunum, eru mættir
og hafa æft sig á svellum og
brautum þeim, sem þeir á næstu
dögum koma svo til með að keppa
á til að hljóta þá miklu sæmd,
sem þvi fylgir að veröa Olympiu-
meistari.
Það eiga margir svitadropar og
tár eftir að falla i snjóinn i Sap-
poro á hverjum degi þar til
leikunum lýkur. Ekki munu Is-
lendingar þó eiga þar hlut að
máli, þvi að þeir eiga enga
keppendur á þessu móti — einir
allra Vestur-Evrópuþjóða. Aftur
á móti eiga Filipseyingar tvo
skiðamenn á leikunum, svo og
eiga nokkrar Afriku- og Suöur-
Amerikuþjóðir keppendur á
manna, sem skipta þúsundum,
blaðamanna, sem eru 1500, auk
2100 frá gestgjöfunum, en I Japan
eru mörg blöð og fréttastofur,
sem ætla að gera leikunum góð
skil. öll þjóðin mun fylgjast með
þeim af lifi og sál, enda er áhugi á
skiðaiþróttinni mikill i Japan.
Það er takmark Japana að gera
þessa leika að mestu og beztu
Vetrar-Olympiuleikum, sem
haldnir hafa verið, og má segja
að kjörorð þeirra sé eitt, en það er
„ALLT FYRIR OLYMPIULEIK-
ANA OG JAPAN”.
Brundage -
óvinsœll i Japan
Eitt er það, sem skyggt hefur á
hrifningu Japana á þessum leik-
um, en það er sú hótun formanns
Alþjóða-Olympiunefndarinnar,
Avery Brundage, að útiloka þá
skiðamenn frá keppni, sem notað
hafa nafn sitt til að auglýsa vörur
og fyrirtæki. Þegar Brundage lét
þetta fyrst I ljós, reis upp mikil
mótmælaalda i Japan. Var
honum kennt um aö vilja eyði-
leggja leikana fyrir Japönum, þvi
að með þvi að útiloka nokkra
menn, var sú hætta fyrir hendi, að
einhverjar þjóðir hættu við þátt-
töku — sem hefur nú komið á
daginn. Þá höfðu nokkrar sjón-
varpsstöðvar hótað að sýna ekki
myndir frá leikunum, m.a.
Eurovision. Það getur þýtt, að Al-
ÍlÉfc::
Svona lita verðlaunapeningarnir, sem keppt verður
um á Olympiuleikunum i Sapporo, út. Á framhlið
peningsins er táknmynd frá leikunum, og á bakhlið
hans tákn hinna ýmsu greina, sem keppt er um á
þessum miklu leikum. Eins og vanalega eru veitt
þrenn verðlaun, gull, silfur og brons, og verður trú-
lega hörð keppni um hvern pening.
Þegar Olympíuleikar eru haldnir.mætast menn og konur af mörgum þjóöernum. Hér hafa tveir
erni tekið tal saman, Finninn Marjatta Kajosmaa og Formósu klnverjinn Lian Ren - Guey, sem
andi Iands sins I Sapporo.
af óliku þjóð-
er eini kepp-
þeim, þrátt fyrir, að þar séu ekki
lönd snjóa og frosts.
Enska „móðurmáV’
leikanna
Það verður Hirohito Japans-
keisari, sem setur leikana i dag á
Makomanai-leikvanginum. Þaö
gerir hann með stuttri ræðu á
japönsku. Eftir þá ræðu verður
allt þaö, sem fram fer á leikunuin,
skrifaö eða talað á ensku, sem
ákveíúð hefur verið aö verði
„móðurmál” leikanna. Ekki
verður hún þó töluð meðal áhorf-
endanna, sem verða viö setn
inguna. Þeir verða 50 þúsund
talsins, auk keppenda og starfs-
þjóða-Olympiunefndin verði af
dágóðri peningaupphæö, en hún
færir vissan hluta af sjónvarps-
tekjum. Er þvi Brundage milli
steins og sleggju i þessu mali, þvi
að nefndin er illa á vegi stödd
fjarhagslega. Samt er búizt við,
að Brundage og menn hans láti
sig ekki, og verði þvi allt i ólstri,
hvað þetta áhrærir, fram á sið-
ustu stundu.
Menn biða spenntir eftir þvi
hvað Brundage gerir i sambandi
við sumar-leikana i Munchen, en
þar er hægt að útiloka nær alla
keppendur fyrir að auglýsa vörur
og vörmerki - m.a. alla þá, sem
bera hina þriggjaranda skó frá
Adidas, en það gera flestir
iþróttamenn, eða þá að þeir bera
Avery Brundage, formaður Al-
þjóða Olympiunefndarinnar, er ó-
vinsæll maður I Japan þessa dag-
skó og annan útbúnað, sem hefur
einkennismerki eða annað frá ák-
veðnum fyrirtækjum. Hvað
verður t.d. um islenzka kepp-
endur, eins og t.d. handknatt-
leikmenn okkar — ef þeir komast
til Munchen?
Stúdentar hóta
að stela eldinum
Olympfueldurinn er nú á leið til
Sapporo noröur eftir strönd
Japans. Hann var tendraður á
hefðbundinn hátt i Grikklandi, en
kom til Japans með flugvél þann
2. janúar s.l. Hann hefur hvergi
tafizt á leiðinni.þrátt fyrir hótanir
um að slökkva hann eða stela, en
jafnan er mikill fjöldi fólks á
götum úti,þegar hann er borinn
fram hjá.
Eldberarnir
falla i yfirlið
Það eru hundruð ungmenna af
báðum kynjum, sem bera eldinn,
og fer hver ákveðinn hluta með
hann, en þá tekur næsti við. Þrir
hafa þegar fallið i yfirlið, þegar
þeir hafa átt að taka við honum.
Er þar um kennt taugaspennu
þeirra, en enginn vill verða fyrir
þvi óláni að detta og slökkva
eldinn - slikt er talið verða við-
komandi til ævarandi skammar.
Um 5000 lögregluþjónar verða
til staðar á leikunum. bæði til að
Af öllum þeim greinum, sem keppt verður I á OL I Sapporo, veröa Alpa-
greinarnar mest I sviösljósinu, en skautafþróttin og skiöastökk eru
samt vinsælustu greinarnar meöal Japana.
vernda keppendur og halda uppi
lögum og reglu. Stúdentar bæði til
hægri og vinstri hafa hótað að
gera allt til að skemma leikana,
eða koma I veg fyrir að þeir verða
haldnir. Þeir vinstrisinnuðu hata
hótað m.a. að „stela” Olympiu
eldinum áöur en hann kemst á
leiðarenda, en þeir mómæla þvi
að leikarnir séu haldnir, vegna
þess að þeir séu eyðsla á
almennafé. Þeir hægrisinnuðu
mótmæla aftur á móti þátttöku
keppenda frá kommúnista-
löndunum, og eru keppendur
þaðan þvi undir sérstakri gæzlu
lögreglunnar.
Vestur- og
Austur-Þjóðverjar
búa saman
Það sætti undrun, þegar stjórn-
endur keppninnar settu kepp-
endur frá Vestur- og Austur-
Þýzkalandi saman i herbergi.
Þessu vildu sumir mótmæla, en
stjórnendurnir sögðu.að hér væri
engin pólitik sem réði. Það væri
allt gert til að láta fara vel um
alla, og Þjóðverjarnir væru
hafðir saman vegna þess.að þeir
töluðu sama tungumálið-og ættu
þvi betur saman en t.d. Rússar og
Bandarikjamenn, sem ekki skildu
hver annan. Sumir Vestur-Þjóð-
verjarnir voru litið hrifnir af
þessari ráöstöfun, sérstaklega
þeir, sem „stungið hafa af” frá
Austur-Þýzkalandi og keppa fyrir
Vestur-Þýzkaland, en búa nú á
sömu hæð og gamlir félagar og
kennarar, sem ekki lita þá réttu
auga.
Leikar sem aldrei
skulu gleymast
Eitt mál hefur komið upp, sem
sett hefur leiðinlegan blæ á þess
leika— a.m.k. hvað Japani
áhrærir. Er það fjárdráttur einn
mikill, sem komst upp fyrir skö-
mmu. Tveir af forráðamönnum
japanska skiðasambandsins eru
blandaðir inn i þaö mál. Annar
þeirra var eiinn af formönnum
eins af sérsamböndum þess,
Jurao Kuji, og hinn var einn af
aðalþjálfurum sambandsins,
Kohroku Mada. Voru þeir
f undnir sekir um aö hafa dregið
til sin fé, sem nota átti til undir-
búnings leikanna. Var upphæðin
eitthvað á aðra milljón isl. króna,
og notuðu þeir peningana til að
kaupa sér bila og lifa finu lifi á
skemmtistöðunum i Sapporo. Út
af þessu varö hið mesta fjaðra-
fok, þegar upp komst um svindlið.
En dómstolarnir voru fijótir á
feröinni, og dæmdu þá i 3ja ára
fangelsi og tóku af þeim allar
eignir. Við þaö lægði öldurnar, og
er þetta mál nú óöum að
gleymast.
En varla gleyma þeir félagar
þvi, þar sem þeir sitja nú inni-
lokaðir og verða að fá fréttir
utanfrá af þeim miklu leikjum,
sem þeir hjálpuðu til að byggja
upp — leikjum, sem Japanir hafa
lofaö, að aldrei skuli gleymast i
sögu þjóöarinnar og meðan
minningin um Olympiuleika lifir
meöal þjóða heims. — klp—
Ilundruð þúsunda pappírslampa með merki olympiuleikanna á, eru
strengdir yfir allar helztu götur Sapporo. Er borgin öll uppljómuð og
hin feeursta á aö llta, en hana sækja nú heim þúsundir manna og
kvenna frá öllum heimshornum.
999 999 999 999 999 999 999