Tíminn - 03.02.1972, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 3. febriiar 1972
TÍMINN
3
eiga allan rétt, og i utanrikis-
málum eru allir asnar og bjálfar,
sem ekki tilkynna friölýsingar út
ogsuður. Þeir.sem ekki taka þátt
i þessu sjónarspili, hvað þá and-
mæla þvi, eru varla af þessu
föðurlandi. Hins vegar er alveg
óþarfi að þegja. Og það eitt skorti
á þennan þátt, að „hinir hljóðu”
tækju til máls i meiri mæli
en þeir gerðu.
Auðvitað geta menn eins og
Einar, Jóhann og Magnús Torfi
svarað fyrir sig. Þeir þurfa enga
hjálp til þess. En menn sam-
þykkja of margt með þögninni,
einnig i dægurbaráttunni. Og það
hefði ekki skaðað, þótt spurning-
ar hefðu verið bornar fram, sem
leituðu eftir nýjum hliðum á stööu
lands og þjóðar i heimsfélag-
inu — i stað þess að þurfa að
hlusta á hið endalausa þras um
einhver sakhæf atriði, sem reynt
er að kalla menn til ábyrgðar
fyrir, þótt þau gerist i Viet-nam,
Grikklandi eða Belfast, og séu
ekki að neinu leyti i ábyrgö hér-
lendra manna. Það er sjálfsagt
gott að vera i söfnuði og krefja
aðra um ábyrgö, en staðreyndir
lifsins hafa ekki alltaf fallið að
kennisetningum. Fyrir þvi er
nokkur reynsla fengin i þvi riki,
sem lagt hefur Fylkingunni til
trúna.
Svarthöfði
Æsingurinn og þögnin
Framsóknarfélögin
bjóða páskaferð
til Mallorca á
aðeins 13.500. -
Framsóknarfélögin i Reykjavik
efna til ferðar til Mallorka um
páskana. Flogið verður frá
Keflavik með þotu beint til
Palma. Brottför er miðvikudags-
kvöld 29. marz fyrir páska kl. 7.
og komið heim frá Mallorka að
morgni þriðjudagsins 4. april.
Flugferð ásamt fullu fæði ( 3
máltiðir á dag > og hóteldvöl
kostar kr. l3.5oo. —■
Þar sem aðeins er um tak-
markaðan fjölda að ræða, eru
þeir, sem hafa hug á að notfæra
sér þetta einstaklega hagstæða
boð, beðnir að tilkynna þátttöku
nú þegar á skrifstofu félaganna á
Hringbraut 30 eða i sima 24480.
Þeir sem hafa pantað farseðla i
ferðina eru beðnir að greiða upp i
fargjaldið til að tryggja sér far-
seðla.
Sjónvarpsþættir Ólafs Ragnars
Grimssonar vekja athygli. Það
sem þar gerist, nálgast ósvifni á
stundum, og oft er ekki Ijóst hvort
heldur verið er að ræða um
heimsmeistaratign i hnefaleikum
eða stórveldapólitik. Mjög gætti
einhliða spurninga i upphafi
siðasta þáttar Olafs, þegar
Jóhann Hafstein, fyrrverandi for-
sætisráðherra, sat einn fyrir
svörum. Kom fljótt i Ijós að þeir,
sem helzt ruddu úr sér spurn-
ingum, tilheyröu þeim sér-
kennilega trúarsöfnuði, sem
hefur villzt inn i stjórnmálaum-
ræður og nefnir sig Fylkingu.
Þarna sýndist m.a. komin óboðin
persóna, sem hafði verið talin svo
heilsutæp fyrir skömmu, að ekki
varð neinu tauti við hana komið
út af miklu nærtækari atriðum en
Viet-Nam striði. önnur kona sat
þarna með Angelu Davisgreiðslu
— náttúrlegan Afrikukoll —
sýnilega snortin af baráttu svörtu
hlébarðanna. Allt var þetta
safnaðarfólk viö beztu heilsu.
Fyrirgangur fyrrgreinds hóps
vakti enga sérstaka athygli. Hitt
var athyglisverðara, að þeir i
hópnum,sem fyígdu Fylkingunni,
sátu hljóðir að mestu. Kemur það
heim við daglega háttu. Ofga-
hóparnir beina athyglinni að sér.l
menningarmálum telja þeir sig
Á bílasalinn eða eigandinn
að greiða skemmdirnar?
OÓ—Reykjavik.
Hverá að borga skemmdir
á bilum, sem verða,er þeir
eru I vörzlu bilasala, og sá
sem skaðanum veldur er
ófinnanlegur? Mál af þessu
tagi er komið upp og veröur
það væntanlega dómstóia
að ákvaröa, hver greiðir
tjónið, eigandi bilsins eða
bilasalinn.
Aðfaranótt föstudags s.l.
var brotizt inn i bilasöluna að
Borgartúni 10. Þar inni voru
geymdir lyklar að bil, sem
var i umboðssölu hjá bila-
sölunni og stóð þar fyrir
utan. Sem sagt, billinn og
lyklarnir voru i vörzlu bila-
sölunnar. Bilþjófurinn ók á
brott, og fannst billinn næsta
dag við Laugarásveg og var
þá stórskemmdur. Þjófurinn
finnst ekki, en hann er nátt-
úrlega ábyrgur fyrir
skemmdunum.
Eigandi bilsins, Kristján
Guðbjartsson, kaupmaður,
telur sig hafa orðið fyrir tug-
þúsunda króna tjóni.
Bilasalinn segir sig enga
ábyrgð bera á þeim farar-
tækjum, sem hann hefur til
sölu og i sinni vörzlu. Þeir
séu ekki tryggðir fyrir þjófn-
aði eða skemmdum og verði
þvi eigandinn að bera tjónið,
nema bilþjófurinn finnist.
Kaupmaðurinn segir aftur
á móti, að það hljóti að gilda
i bilaviöskiptum, eins og
annarri verzlun, að sá, sem
hefur varning til sölu, hvort
sem hann hefur keypt hann
eða hafi i umboðssölu, hljóti
aö bera ábyrgð á vörunni,
eftir að hún er komin undir
hans umsjá.
Lögfræðingur hefur nú
málið til meðferðarjOg fæst
væntanlega skorið úr um
ábyrgð eða ábyrgöarleysi
bilasala i tilvikum sem
þessum.
Heimir
Hannes-
son á
Þjóð-
ræknis-
þing
IGÞ-Reykjavik.
Heimir Hannesson, ritstjóri, fer
á fimmtugasta og þriðja þing
Þjóðræknisfélags Vestur-tslend-
inga, sem haldið verður i Winni-
peg um miðjan næsta mánuð.
Heimir fer vestur i boði Þjóð-
ræknisfélags Vestur-Islendinga. I
lokahófi þingsins mun hann flytja
aðalræðuna, en i upphafi máls
sins flytur hann ávörp frá opin-
berum aðilum og Þjóðhátiðar-
nefnd 1974. Á þinginu mun hann
skýra frá undirbúningi hátiðar-
haldanna hér á landi 1974 i sam-
ráði við þjóðhátiðarnefndina, en
áherzla er lögð á það.að Vestur-
tslendingar fjölmenni á 1100 ára
afmæli Islandsbyggðar þaö ár.
Að þinginu loknu hefur Heimir
Heimir Hannesson.
Hannesson og kona hans þegið
boð um að heimsækja ýmsar
borgir i Kanada og Bandarikjun-
um. Þar verða einnig haldnir
fundir með Vestur-tslendingum
og fluttar kveðjur að heiman.
Nýtt bindi um
Sauðárkrók
IGÞ—Reykjavik.
Sauðárkrókskaupstaður hefur
nú gefið út annað bindi hinnar
miklu Sögu Sauðárkróks, sem
Kristmundur Bjarnason, rit-
höfundur á Sjávarborg, hefur
tekið saman að tilhlutan bæjar-
félagsins. Hér er um fyrra bindi
siðara hluta að ræða, og nær þaö
anur ui arsins 1922. Siðari hluti
bindis númer tvö mun ekki langt
undan, en honum á að fylgja
nafnaskrá. Eins og fyrr prýða
margar myndir, sumar hverjar
sjaldgæfar, þessa bók, sem
prentuö er á vandaöan pappir i
Prentverki Odds Björnssonar,
h.f. á Akureyri.
Siðara bindi sögunnar á i heild
að ná yfir fjörutiu ár, eöa frá 1907,
þar sem fyrra bindið endaði, til
1947.
Inflúensa í Reykjavík
Oó—Revkiavik.
Undanfarið hefur borið nokkuð
á inflúensu i Reykjavik, en varla
er hægt að segja, að um faraldur
sé að ræða. Inflúensunni fylgir
hár hiti, en annars er hún talin
fremur væg' og gengur fljótt yfir.
Auk inflúensunnar er talsvert
um hálsbólgu i borginni og
margir leita læknis vegna kvefs.
Eins og i fyrra bindinu hefur
gifurlegum fróðleik verið safnað
saman um margþætt lif á Krókn-
um, frá þvi Sauðárkrókur varð
sérstakur hreppur( og fram að
efnahagslegum eftirmálum
heimsstyrjaldarinnar. Sem fyrr
gerir Kristmundur skemmtilega
sögu úr þeim efnivið, sem fyrir
liggur og lýsir þróun bæjarlifsins.
Liggur við að velflestir borgarar
á staðnum eigi núorðið mynd af
sér i verkinu, og er það eitt út af
fyrir sig góður fengur.
I þessu bindi er lýst verzlun og
viðskiptaháttum, landbúnaði,
sjósókn og aflabrögðum, iðnaði,
læknum og heilbrigðismálum.
Kafli nefnist Alþýðuhagir. Þá er
kafli um sveitarstjórnarmál,
samgöngumál, kirkju og klerk-
dóm, skólamál og iþróttamál,
bundið mál og blaðaskrif, leik og
söng, heimslist og heimsósóma,
en bindinu lýkur á kafla um
bæjarlifið. Þetta er hin fallegasta
bók, höfundi og útgefendum til
sóma, bæði að útliti og á; , inn-
viðum.
Stjórn
Dagsbrúnar j
er föst
i sessi
OÓ—Reykjavik.
Stjórnarkjör i Verkamanna-
félaginu Dagsbrún fór fram á
sunnudag. Ekki hefur verið kosiö
i stjórn félagsins siðan árið 1964.
Úrslit kosninganna eru þau, að A-
listi fékk 1566 atkvæði og B-listi
hlaut 212 atkvæði. Auðir seðlar
voru 17 og 4 ógildir.
A-listi var borinn fram af upp-
stillinganefnd og trúnaðarráði
Dagsbrúnar, en B-listi af Snorra
Sverrissyni og Arna Sveinssyni.
Núverandi stjórn skipa:
Eðvard Sigurðsson, formaður,
Guðmundur J. Guðmundsson,
varaformaður, Halldór Björns-
son, ritari, Pétur Lár
usson, fjármálaritari og með
stjórnendur Baldur Bjarnason og
Pétur Pétursson. Varastjórn
skipa Ólafur Torfason, Högni Sig-
urðsson og Guðmundur Svein-
bjarnarson.
200 sóttu
65 róðnar
200 stúlkur á aldrinum 20 til 26
ára sóttu um flugfreyjustörf hjá
Loftleiðum, er auglýst var eftir
flugfreyjum tilstarfa yfir sumar-
mánuðina. Voru 65 stúlkur
ráðnar.
Krislmumiur Bjarnason.