Tíminn - 25.02.1972, Side 15
Föstudagur 25. febrúar 1972
TÍMINN
15
/#
er föstudagurinn 25. febrúar 1972
HEILSXJGÆZLA
Slysavarðstofan í Borgarspít-
alanum er opin allan sólar-
hringinn. Sími 81212.
Slökkviliðið og sjúkrabifreið-
ar fyrir Reykjavík og Kópa-
vog. Sími 11100.
Sjúkrabifreið í Hafnarfirði.
Sími 51336.
Tannlæknavakt er í Heilsu-
verndarstöðinni, þar sem
Slysavarðstofan var, og er
opin laugardaga og sunnu-
daga kl. 5—6 e.h. Sími 22411
Apótek Hafnarfjarðar er opið
alla virka daga frá kl. 9—7,
á laugardögum kl. 9—2 og á
sunnudögum og öðrum helgi-
dögum er opið frá kl. 2—4.
Nætur- og helgidagavarzla
lækna. Neyðarvakt: Mánu-
daga—föstudaga kl. 08,00—
17,00, eingöngu í neyðartil-
fellum, sími 11510.
Kvöld-, nætur- og helgarvakt:
Mánudaga—fimmtudaga kl.
17,00—08,00. Frá kl. 17,00
föstudaga til kl. 08,00 mánu-
daga. Sími 21230.
Almennar upplýsingar um
læknisþjónustu í Reykjavik
eru gefnar í síma 18888.
Lækningastofur eru lokaðar
á laugardögum, nema stofur
á Klapparstíg 27 frá kl. 9—11
f.h. Sími 11360 og 11680. —
Um vitjanabeiðni vísast til
helgidagavaktar. Sími 21230.
Ónæmisaðgerðir gegn mænu-
sótt fyrir fullorðna fara fram
í Heilsuverndarstöð Reykja-
víkur á mánudögum frá kl.
17—18.
Kvöld og heldidagavörzlu
apóteka vikuna 19. til 25. Apótek
Austurbæjar, Lyfjabúð Breið-
holts og Holts Apótek.
Næturvörzlu iækna i Keflavik
25. febr. annast Guðjón
Klemenzson.
FLU GÁÆTLANIR
Flugfélag islands h.f. Milli
landaflug. Gullfaxi fór frá
Keflavik kl. 08.45 i morgun til
Glasgow, Kaupmannahafnar,
Glasgow og væntanlegur aftur
til Keflavikur kl. 18.45 i kvöld.
Sólfaxi fer frá Reykjavik kl.
09.00 i fyrramálið til Kaup-
mannahafnar, Osló og vænt-
anlegur aftur til Keflavikur kl.
18.30 annað kvöld. Innan-
landsflug. 1 dag er áætlað að
fljúga til Húsavikur, Akur-
eyrar (2 ferðir) til Vest-
mannaeyja (2 ferðir) til Pat-
reksfjarðar, Isafjarðar, Egils
staða og til Sauðárkróks. Á
morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar ( 2 ferðir) til Vest-
mannaeyja (2 ferðir) til
Hornafjarðar, Isafjarðar og
Egilsstaða.
Loftleiðir. Snorri Þorfinnsson
kemur frá New York kl. 07.00.
Fer til Luxemborgar kl. 07.45.
Er væntanlegur til baka frá
Luxemborg kl. 16.45. Fer til
New York kl. 17.30. Leifur
Eiriksson fer til Kaupmanna-
hafnar og Stokkhólms kl.
07.30. Er væntanlegur til baka
frá Stokkhólmi og Kaup-
mannahöfn kl. 17.40.
SIGLLNGAR
Skipadeiid S.Í.S. Arnarfell fór
22. þ.m. frá Hull til Þorláks-
hafnarog Reykjavik. Jökulfell
fór frá Cloucester 18. þ.m. til
Reykjavikur. Disarfeli fór 22.
þ.m. frá Húsavik til Malmö,
Ventpils og Ltibeck. Helgafell
er i Reykjavik. Mælifell er i
Þorlákshöfn. Skaftafell fór i
gær frá Gautaborg til Ham-
borgar. Hvassafell losar á
Húnafióahöfnum. Stapafell fór
22. þ.m. frá Vestmannaeyjum
til Rotterdam og Birkenhead.
Litlafell er i oliuflutningum á
Faxaflóa. Susanne Dania er
á Hornafirði, fer þaðan á
morgun til Piraeus.
Hekla fór frá Reykjavik kl.
22.00 i gærkvöld austur um
land i hringferð.
Esja er i Reykjavik.
Herjólfurfer frá Reykjavik kl.
20.00 i kvöld til Vestmanna-
eyja.
FÉLAGSLÍF
Frá Guðspekifélaginu.Kl. 21. i
kvöld flytur Helgi P. Briem
erindi i húsi félagsins, Ingólfs-
stræti 22, um þróun krossins i
kristninni. Ollum heimill að-
gangur. Stúkan Mörk.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við and-
lát og útför
INGIBJARGAR GUNNLAUGSDÓTTUR
frá Kolugili
Aðstandendur
Móðir okkar og tengdamóðir
SIGRÚN BJÖRNSDÓTTIR LAXDAL
verður jarðsungin frá Þingeyrakirkju, Austur-Húna-
vatnssýslu, laugardaginn 26. febrúar, kl. 14.00.
Eggert E. Laxdai
Sigrún Laxdal Sturla Friðriksson
Útför eiginmanns mins
KNÚTS KRISTINSSONAR
fyrrverandi héraðslæknis
fer fram frá Dómkirkjunni, mánudaginn 28. febrúar kl.
1.30. Blóm afþökkuð, en þeim er vildu minnast hins látna
er bent á liknarstofnanir.
Fyrir mina hönd og annarra vandamanna.
Hulda Þórhallsdóttir
Boris Schapiro þreytist seint á þvi
að segja frá spili, sem kom fyrir i
leik Islands og Bretlands á EM i
Austurriki 1957. Hann var nýlega
beðinn að skrifa um spil i timarit
og valdi spilið, og segir jafnframt
söguna I þætti sinum i Sunday
Times.
▲ S K106
y HA2
4 T K86 54
7 L AK3
A S A87 4 S G5432
V H 975 V H 63
4 T AD92 4 T 1073
jf, L 1095 a L G42
♦ S D9
V H KDG1084
4 T G
^ L D876
Boris var með spil S og félagi
hans Reese opnaði á 1. gr. ,,Ég
sagði nú 4 hj., en gleymdi að þaö
var yfirfærslusögn i Sp. Við höfð-
um áöur samþykkt, að sá, sem
gleymdi slikri sögn, borgaði hin-
um 100 aust. shillinga. Þegar N
sagði 4sp. áttaði ég mig á mistök-
unum og stökk beint i 6 Hj., sem
voru pössuð i hringinn. Ég
foraðaðist augu félaga mins, þeg-
ar V spilaði út Sp-Ás og spil blinds
komu á borðið. En kraftaverk
skeði. V spilaði áfram Sp. T-tap-
slagur hvarf i Sp. og þegar L féll
stóð spilið og ég rétti 100 shillinga
yfir borðið með kaldhæðnislegu
brosi".
A meistaramóti Hamborgar
1958 kom þessi staða upp á milli
Henning og Waltemathe, sem
hefur svart og á leik.
17. — Bh5 18. Rd6+ — Kd7 19.
Rxb7 — Db6 20. Rc5H--Ke7 21.
Hel — Bg6 22. De5 — Db8 23.
Bg5+ og svartur gafst upp.
Erlent yfirlit
Frh af bls. 9
Siðan fasistastjórnin kom til
valda i Grikklandi, hefur hún
reynt að semja við tyrknesku
stjórnina um stöðu tyrkneska
minnihlutans á Kýpur með til-
liti til þess, að Kýpur sam-
einaðist Grikklandi eða þar
kæmi stjórn, sem væri eftir-
látari henni. Talið er, að henni
hafi orðið nokkuð ágengt i
þessum efnum, m.a. vegna
þess,að Tyrkir hafa heldur
horn i siðu Makariosar.
MAKARIOS forseti, sem
heitir Michael Mouskos réttu
nafni, er fæddur 13. ágúst 1913,
kominn af bændaættum. Hann
gekk 12 ára gamall i þjónustu
kirkjunnar. Nafnið Makarios
tók hann sér, er hann stundaði
guðfræðinám við háskólann i
Aþenu. Hann hlaut styrk til
framhaldsnáms við háskólann
i Boston. Hann varð biskup 35
ára gamall og erkibiskuþ
tveimur árum siðar. Kirkjan
var á þeim tima helzta þjóð-
félagsaflið á Kýpur, og þvi féll
það á herðar Makariosar að
stjórna sjálfstæðisbaráttunni.
Hann hefur jafnan þótt sýna
mikil hyggindi, hinsvegar ekki
ósjaldan verið grunaður um
græsku.
Austurland
Formenn framsóknarfélaganna i Austurlandskjördæmi, svo og
aðrir þeir trúnaðarmenn flokksins i kjördæminu, er fengið hafa
skýrslueyðublöð og ekki hafa enn svarað, eru vinsamlega beðnir
að útfylla þau og senda formanni kjördæmissambandsins
Kristjáni Ingólfssyni, HalIormsstað,fyrir 1. marz næstkomandi.
Umræðufundur ó Hellissandi
FUF og FUS á Snæfelisnesi halda umræðufund I Félags-
heimilinu Röst, Hellissandi , sunnudaginn 27. febrúar n.k. kl. 16.
Umræðuefni: Skattafrumvörpin og varnarmálin
Ræðumenn frá FUF: Jónas Gestsson og Stefán Jóhann
Sigurðsson.
Ræðumenn frá FUS: Arni Emilsson og Sigþór Sigurösson.
Fundarstjóri veröur Bjarni H. Ansnes.
Að loknum framsöguræðum gefst fundarmönnum kostur á að
bera fram fyrirspurnir til frummælenda. öllum heimill að-
gangur.
FUF ogFUS
Þingmannafundir í Strandasýslu
Þingmálafundir verða i Strandasýslu að Drangsnesi kl. 14,
laugardaginn 26. febrúar og að Hólmavlk, sunnudaginn 27.
febrúar kl. 14.
Steingrimur Hermannsson.
Félagsmólaskóli
Framsóknarflokksins
Fundur að Hringbraut 30 mánudaginn 28.febrúar n.k. kl. 20.30.
Umræöufundur um alþjóðasamskipti. Framsögumenn Arni
ómar Bentsson og Þorvaldur Hafberg.
Kópavogur
Framsóknarfélögin I Kópavogi halda bæjarmálafund I félags-
heimili Kópavogs, neðri sal, föstudaginn 25. febr. kl. 20.30.
Dagskrá: 1. Félagsmálastofnun Kópavogs. Frummælandi
Kristján Guömundsson félagsmálastjóri. 2. Hitaveitumálin.
Frummælandi Björgvin Sæmundsson bæjarstjóri. Allir
velkomnir.
Framsóknarfélögin I Kópavogi.
AAólefnahópur ó vegum SUF
hefur göngu sina með fundi að Hringbraut 30,mánudaginn 28.
febrúar kl. 20.30. Viöfangsefni: Skattalagafrumvarpið og frum-
varp um tekjustofna sveitarfélaga.
Ungir framsóknarmenn eru hvattir til að mæta og taka þátt í
umræðunum.
Viðtalstímar borgarfulltrúa
BorgarfulltrúarFramsóknarflokksins
inunu fyrst um sinn hafa fasta viðtalstima
á laugardögum milli kl. 10.30 og 12.00 á
skrifstofu flokksins Ilringbraut 30. Munu
þeir vera lil skiptis i viðtölunum. Næst-
komandi laugardag mun Kristján Bene-
diktsson borgarráðsmaður verða til við-
tals.
Fulltrúaráö Framsóknarfélaganna.
Kristján Benediktsson
Rangæingar — Rangæingar
Lokaumferðin I þriggja kvölda spilakeppni Framsóknar-
félagsins, fer fram I Félagsheimilinu Hvoli, Ilvolsvelli, sunnu-
daginn 27. febrúar n.k. og hefst kl. 21.00. Heildarverðlaunin eru
ferð til Kaupmannahafnar fyrir tvo með vikudvöl. Sérstök verð-
laun verða veitt fyrir bezta árangur kvöldsins.
Stjórnin
Gísli G. ísleifsson
hæstaréttarlögmaður
Skólavörðustig 3a, simi
14150.
LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA
Tómas Árnason, hrl. og
Vilhjálmur Árnason, hrl.
Lækjargötu 12.
(Iðnaðarbankahúsinu, 3. h.).
Símar 24635 — 16307.
min
SVEFNBEKKIR
Ódýrir vandaðir
svefnbekkir til sölu
að öldugötu 33.
Upplýsingar i sima
19407.
Þ.Þ.