Tíminn - 25.02.1972, Side 17
Föstudagur 25. febrúar 1972
TÍMINN
17
ÍSLANDSMEISTARARNIR 1972.Framarar hafa tekið við sigurlaununum fyrir sigurinn i l.deildinni. A myndinni eru talið frá vinstri: Karl Benediktsson, þjálfari, Páll Jón-
sson, liðsstjóri, Sigurður Einarssoi: Pálmi Pálmason , Arnar Guðlaugsson, Pétur Jóliannesson, Axel Axelsson, Jón Sigurðsson,.Björgvin Björgvinssón, Þorsteinn Björnsson,
Stefán Þórðarson, Sigurbergur Sigsteinsson, Guðjón Erlendsson, Andrés Bridde og óiafurJónsson formaður handknattleiksdeildarinnar. A myndina vantar Ingólf Óskarsson, Gylfa
Jóhaunesson og Arna Sverrisson. # (Timamyndir Gunnar)
Valur færði Fram bikarinn
Tóku annað stigið af FH i siðasta
það varð til þess, að FH missti af i
— Framarar eru beztir — Framarar eru
Þessi texti við taktfast lag, hljómaði um alla
Laugardalshöllina á miðvikudagskvöldið að leik FH
og Vals loknum. Þá biðu hundruð áhorfenda eftir
þvi að Framarar kæmu inn á leikvöllinn til að taka
við bikarnum og verðlaunapeningunum, sem það lið
fær, er verður íslandsmeistari. Framarar hrepptu
þann titil eftir að Valsmenn höfðu gert jafntefli við
FH, en með þvi að tapa stigi i þeim leik missti FH af
möguleikanum á þvi að hljóta íslandsmeistaratitil-
inn i ár. Fram hafði fyrr um kvöldið sigrað Hauka
26:15, og fékk því 20 stig, en FH fékk 19 stig af 24
mögulegum.
leik Islandsmótsins, en
Islandsmeistaratitlinum.
beztir.
Þegar Framarar komu inn á
leikvöllinn og gengu milli
Valsmanna, sem höfðu raðað sér
upp og gáfu þeim gott klapp,
ætlaði allt um koll að keyra i
Laugardalshöllinni, sem þó hefur
orðið að þola mikinn hávaða i
leikjunum i vetur.
A fjölum hallarinnar, þar sem
svo grimmilega hefur verið barizt
um titilinn frá þvi i október, tóku
svo Framarar við bikarnum og
verðlaunapeningunum úr hendi
Valgeirs Arsælssonar, sem um
leið afhenti leikmönnum FH
önnur verðlaunin.
Framarar höfðu sagt fyrir
leikinn milli FH og Vals, að þeir
kærðu sig litið um að Valur færi
með sigur af hólmi fyrir þá. Þeir
vildu sjálfir fá að leika aukaleik
við FH um efsta sætið. Ekki var
þó að sjá að þeir hefðu neitt á
móti þvi að Vaiur hefði náð öðru
stiginu af FH, þvi um leið og
flauta dómaranna gaf til kynna
að leiknum væri lokið, þustu þeir
inn á leikvöllinn til að faðma
Valsmennina að sér. Þar var vel
tekið á móti þeim af Vals-
mönnum, sem glöddust innilega
yfir þvi að hafa gert vonir FH að
engu, og hefnt þar með fyrir tapið
gegn FH i úrslitaleiknum i fyrra.
Leikur FH og Vals var sann-
kallaður hasarleikur. Oft á tiðum
bráðvel leikinn og æsispennandi.
Það skemmdi heldur ekki fyrir,
að á áhorfendapöllunum var
Það mátti ekki á milli sjá, hvorir voru ánægðari, Valsmenn eða
Framarar, að loknum leik FH og Vals. Hér faðmast þeir félagarnir
Björgvin Björgvinsson Fram og Ólafur H. Jónsson Val eftir leikinn, en
þeir voru leikfélagar i æsku og eru enn miklir vinir.
stemningin i hámarki, þar bland-
aðist saman hinn kröftugi kór
Vals og Fram, og báðir sungu og
klöppuðú til að hvetja Valsmenn.
Leikurinn var skemmtilegur
þegar i upphafi. Valsmenn
skoruðu fyrsta markið,en FH náði
að jafna og komast 2 mörkum yfir,
4:2, og siðan 6:3, en Valsmenn
gáfust ekki upp og með miklum
krafti náðu þeir að jafna og
komast einu marki yfir fyrir leik-
hlé, 8:7.
t siðari hálfleik náði FH að
jafna 9:9 — 10:10 og 11:11, en
höfðu það ekki af að komast yfir.
Það gerðu Valsmenn, sem
komust úr 11:11 i 13:11. Þeir áttu
hvað eftir annað tækifæri á að
komast 3 mörkum yfir eftir mis-
heppnuð upphlaup FH-inga. FH
náði að minnka i 13:12,en Her-
mann Gunnarsson skoraði þá 14.
mark Vals. Viðar Simonarson
náði að minnka bilið aftur i eitt
mark, 14:13,er 5 min. voru eftir.og
siðan náði Geir Hallsteinsson að
jafna,14:14,er 1 min. og 12 sek.
voru til leiksloka. Þar á undan
hafði Hjalti Einarsson varið vita-
kast frá Berg Guðnasyni.
Ógurlegur æsingur varð i
höllinni þessar lokaminútur, og á
siðustu sekúndum ætlaði bókstaf-
lega allt vitlaust að verða.
Valsmenn reyndu skot er 30 sek.
voru eftir, en það var varið af
Hjalta, og FH-ingar brunuðu upp
til að skora markið, sem nægði
þeim til að fá aukaleik við Fram.
Geir Hallsteinsson reyndi skot
er 6 sek. voru eftir, en Valsvörnin
var vel á verði og náði að verjast
skotinu — þar með var jafnteflið
orðið staðreynd og Fram íslands-
meistari 1972.
Valsliðið var betra liðið i
þessari viðureign. Oft á tiðum lék
liðiö mjög vel bæði i vörn og sókn,
og ólafur Benediktsson varði
hvað eftir annað glæsilega. Það
var ekki seinna vænna fyrir Vals-
menn með alla sína landsliðs-
menn að sýna eitthvað jákvætt,
og það var gert. Fyrir utan Ólaf i
markinu, voru það samt þeir leik-
menn, sem ekki komust i lands-
liöið, sem voru beztir, þ.e.a.s.
Hermann Gunnarsson, Jón
Karlsson og Bergur Guðnason,
Hinir komu þar ekki langt á eftir,
eins og t.d. Gunnsteinn Skúlason
og Stefán Gunnarsson.
Hjá FH voru það sem fyrr
Viðar Simonarson og Geir Hall-
steinsson, sem stóðu sig bezt. Auk
þeirra áttu þeir Auðunn Óskars.
son, sem þarna lék sinn 200. leik
fyrir FH., og Hjalti Einarsson
góðan leik, sérstaklega þó Hjalti,
Sigurður Einarsson tók við bikarnum úr hendi Valgeirs Arsælssonar
fyrirliða Fram, sem varð að fara heim að loknum leik Fram og Ilauka
vegna veikinda.
sem varði hvað eftir annað
meistaralega vel, m.a. tvö vita
köst.
FH-liðið lék ekki illa i þetta
sinn, en enginn gerir betur en
mótherjinn leyfir. Það var heldur
þungt i FH-ingum eftir að hafa
tapað þarna einu dýrmætu stigi.
Það er i sjálfu sér skiljanlegt,
enda leiðinlegt að tapa móti á
þennan hátt.
Það hefði ekki verið amalegt að
fá einn aukaleik um titilinn milli
Fram og FH. Sá leikur hefði
Hví ekki
Eins og segir á öðrum stað hér
á iþróttasiðunni, hlaut Fram Is-
landsmeistaratitilinn i hand-
knattleik karla innanhúss á mið-
vikudagskvöldið. Þá fékk hver
leikmaður Fram verölaunapen-
ing, sem jafnan er kallað gullið,
þó ekki sé samt sá góðmálmur i
peningum. FH-ingar fengu önnur
verðlaun, eða silfrið, en i 1. deild
karla eru veitt tvenn verðlaun.
Ekkert lið fékk brons, sem er
jafnan veitt fyrir þriðju verðlaun,
þvi þau eru ekki höfð með. Er
þetta háif kauðalegt hjá HSl, sem
veitir verðlaunin, þvi að það
þekkist meðal annarra þjóða, að
veitt séu þrenn verðlaun i stór-
mótum. Er hér með skorað á HSl
að taka þetta upp. Kostnaðurinn
áreiðanlega orðið skemmtilegur.
En af þvi verður ekki, Valsmenn
sáu um þá hlið málsins, en þeir
verða þess i stað að verða af 25 til
30 þús. krónum, sem hefði orðið
hlutur hvers iiðs i 1. deild, ef til
aukaleiks hefði komið.
Leikurinn var dæmdur af þeim
Karli Jóhannssyni og Birni
Kristjánssyni, og var það starf
vel af hendi leyst. Þeir eru beztu
handknattleiksdómarar okkar.
—klp—
brons?
við það er litill, og myndi áreiðan-
lega borga sig, þvi að þá er að
einhverju að keppa fyrir fleiri
leikmennsem taka þátt i mótinu.
Einnig væri athugandi fyrir
HSl að fjölga liðunum i l.deild úr
7 i 8. Það þekkist hvergi að fjöldi
liða sem leika i l.deild standi á
stakri tölu. Það er af og frá hjá
HSt að með þvi að íjölgai deild-
inni, verði keppnin of umsvifa-
mikii. Það munar ekki svo miklu
um eitt lið, að ekki sé hægt að
koma leikjunum fyric. m.eð góðu
móti. Ef körfuknattleikurinn
getur haft 8 lið i sinni 1. deild, ætti
handknattleikurinn að geta það,
þvi að mikill munur er á aðsókn
að þessum tveim stærstu iþrótta-
mótum vetrarins. —klp—