Tíminn - 09.03.1972, Blaðsíða 1
BÍLSTJÓRARNIR
AÐSTOÐA
SESIDIBILASTOÐIN HF
EINGÖNGU GÓÐIR BlLAR
HBB
57. tölublað-Fimmtudagur 9. marz 1972—56. árgangur.
Guðmundur Skaftason formaður Kjaradóms (t.v.) og Kristján
Thorlacius við dómsuppkvaðninguna i gærdag.
Kjaradómur féll í gær:
Allir opinberir
starfsmenn fá 7%
hækkun eftir ár
OÓ—Reykjavik.
Kjaradómurkvað upp i gær dóm i máli Kjararáös, fyrir hönd starfs
manna rkisins og fjármalaráöherra fyrir hönd rikissjóös. Féil dómur
á þann veg, að hinir iægstlaunuðustu meðal opinberra starfsmanna
fengu launahækkun^eða 50 — 100 manns.að sögn Kristjáns Thorlacius.
Laun opinberra starfsmanna hækka um 7% 1. marz 1973 og starfs-
aidursákvæði breytast. Einn dómenda, Karl Guðjónsson, skiiaöi sérat-
kvæði.
Gunnlaun þeirra opinberu
starfsmanna, sem fá lægri laun
en kr. 18.018.00 á mánuði skulu
umreiknuð til hækkunar frá 1.
des. 1971 til samræmis við
samning Alþýðusambandsins og
atvinnurekenda sem undirritaður
var 4. des s.l. Lægstu grunnlaunn
hækka þvi frá 1. des s.l. sem hér
segir: 15.000,00 verða 15,600.00
15,780,00 verða 16,250.00 , 16.780,00
verða kr. 17,057,00, 17,780.00
verða kr. 17,837,00.
Hlaðafli í
Grundarfirði
MG—Reykjavik.
Óvenjuiegur hiaðafli er nú
á Grundarfjarðarbáta, svo
aö annar eins landburður af
fiski hefur ekki verið þar um
slóðir til margra ára, aö þvi
er Guðmundur Runólfsson,
útgerðarmaður i Grundar-
firði tjáði Timanum i dag.
Einkum hefur aflinn verið
með ágætum siöan nokkru
fyrir næstliðna helgi.
Frá Grundarfirði róa nú 6
bátar, 28—100 smál. að
stærð. Hefur afli þeirra und-
anfarna daga leikið á 15 til 42
smál. i róðri á dag. í gær t.d.,
þriðjudag, báru bátarnir að
landi 152 smál.
Fátt aðkomumanna er á
Grundarfirði og sýnist aö þvi
muni reka, ef svo fer fram
um aflabrögð enn um sinn
sem að undanförnu, að ekki
hafist undan að vinna fisk-
inn. Þá vantar og menn á
bátana, til þess að þar geti
hvert rúm talizt skipað.
Afangahækkunin, sem koma
átti 1. júli 1972, kemur 1. júni 1972.
Laun rlkisstarfsmanna hækka
um 7% 1. marz 1973.
Starfsaldursákvæði breytast
þannig frá 1. júni 1972, að í stað 6
ára starfsaldurs kemur 1 árs
starfsaldur og i stað 12 ára starfs
aldurs kemur 6 ára starfsaldur.
1 Kjaradómi eiga sæti
Guðmundur Skaftason, sem er
formaður dómsins, Jónas H.
Haralz, Benedikt Blöndal, Jón
Sigurðsson og Karl Guðjónsson.
Hinn siðastnefndi skilaði sér-
atkvæði. Er það þannig: A grund
velli þeirra gagna, sem aðilar
hafa lagt fram fyrir dóminn,
hefur Kjaradómur á eigin vegum
borið saman laun á almennum
vinnumarkaði óg laun starfs-
manna i þjónustu rikisins á sam
bærilegu sviði.
Ég tel,að þessi samanburður
sýni, aðvlaun rikisstarfsmanna
liggi það mikið undir launum
almenna vinnumarkaðarins, að
allur grundvöllur sé til að taka
kröfur sóknaraðila málsins um
14% kauphækkun i sömu áföngum
og ákveðnir voru i samningi ASI
og Vinnuveitendasambandsins
frá desember 1971 til greina, og
að þvi hnigur mitt atkvæði i
dómnum.
Of lítið og seint
Timinn leitaði I gær til Krist-
jáns Thorlacius formanns BSRB,
og bað hann að segja álit sitt á
hinum nýuppkveðna dómi Kjara-
dóms. Kristján sagði: Þessi
dómur sannfærir mann enn einu
sinni um, að lögskipaðir
gerðardómar leysa ekki kjara-
mál á viðunandi hátt.
Samkvæmt þessum úrskurði
kemur svo til engin hækkun á
laun opinberra starfsmanna fyrr
Framhald á bls. 15
|llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllinilllllllllllllllllllll|||||||||l|||iliiiiiiitlllllli|||||imilllllllllllll||||||||||||||||||íi|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
| Fimm skipsflök slysa- |
| gildrur við Elliðaárvog |
Verða eigendur flakanna sóttir til ábyrgðar?
Klp—Reykjavlk.
Hver ber ábyrgö á þeim
slysum.sem verða I skipsflök-
unum mörgu. sein er að finna
inn við sundin blá, eða i
Kleppsvikinni og Vatnagörð-
unum?.. A þessum stöðum er
aö finna a.m.k. 5 skipsflök og
gömul hræ, sem hafa verið
leikvöilur barna úr ibúðar-
hverfunum þar i nágrenninu
undanfarin ár. Foreldrar
þessara barna hafa löngum
haft illan bifur á þessum flök-
um, enda oft þurft að sækja
börn sin, ailt niöur i 3ja ára
aidur þangað. Hafa þeir marg-
oft farið þess á leit við yfir-
völdin, að þau fjarlægðu fiökin
frá þessum stöðum, en þeirri
ósk hefur aidrei verið sinnt.
1 vikunni varð slys i einu af
þessum gömlu skipsflökum.
Sjö ára gamall drengur, Jón
Smári Einarsson,féll niður um
gat á þilfari Særúnar frá Bol-
ungarvik og niður i lest, sem i
er grjót,járn og sjór.
Drengurinn skarst illa á
andliti og mun hann bera þess
merki alla ævi. Það varð hon-
um til bjargar,að stærri strák-
ar voru þarna á gangi og náðu
þeir honum upp úr lestinni, en
þaðan er ógjörningur að kom-
ast af sjálfsdáðum fyrir litil
börn. Piltarnir báru litla
drenginn i land, en þar tók
fullorðinn maður við honum
og bar hann heim.
Mjög auðvelt er að komast
um borð i Særúnu, eins og i
flest önnur skipsflökin, sem
þarna eru. Særún hefur legið
þarna i mörg ár, og hefur auk
þess að vera leikvöllur barn-
anna, verið æfingarsvæði fyrir
nemendur i Stýrimannaskól-
anunum og Björgunarsveitar-
innar Ingólfs, sem hafa notað
flakið til að æfa björgun i
sjávarháska. Þetta hafa börn-
in séð, og tekið að herma eftir
þeim fullorðnu.
Særún er i eigu Einars Guð-
finnssonar frá Bolungarvik.
Rétt hjá henni er flak af skipi,
sem eitt sinn hét íslendingur,
og er i eigu Baldurs Guð-
mundssonar útgerðarmanns.
Þá má þar einnig sjá kjölinn
af gamla Laxfoss — en við
hann vill enginn kannast .
önnur skipsflök,sem þarna
er að finna, eru Bliðfari, sem
nú er i eigu Einars i Sindra, en
það átti að fara i brotajárn
fyrir tveim árum, og svo
„spiraskipið” sem notað var
tii að geyma j smyglvarning-
inn úr hinu fræga Asmundar-
smygli.
Að þessum flökum öllum er
hinn mesti óþrifnaður, og ekki
frikka þau upp á útsýnið yfir
sundin, enda öll ryðguð,brotin
og ljót eftir margra ára veru i
þessum „skipakirkjugarði.”
Borgaryfirvöldin hafa
margitrekað við eigendur
þessara skipsflaka, að þeir
fjarlægðu þau, en þvi hefur
aldrei verið gengt.
Samkvæmt upplýsingum,
sem við fengum i gær frá
tryggingaraðilum og fleiri,
bera eigendur skipsflakanna
ábyrgð á þeim, og þeir geta
orðið skaðabótaskyldir ef slys
ber að höndum i þeim.
Sumir vilja þó halda þvi
fram, að borgaryfirvöldin beri
einhverja ábyrgö á þeim. Þau
séu á þeirra yfirráðasvæði —
a.m.k. hafi þau varla verið
sett þarna án þeirra vitundar.
Aðrir hafa bent á,að yfirvöldin
iáti hreinsa lóðir gegn ák-
veðnu gjaldi ef það hafi ekki
verið gert af eigendum, og
þess vegna sé það einkenni-
legt, að hún láti ekki hreinsa
sina eigin lóð!
—
^lysagildrurnar tværi Kieppsvikinni. Fjær má sjá fiakiö af skipi,scni eitt sinn hét lslendingur,en þaö j=
^em er nær er af Særúnu frá Boiungarvik. (Timamynd Gunnar)
íTiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiii^iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiifi
••
SKATTAFRUMVORPIN AFGREIDD
MILLI ÞINGDEILDA í DAG
EB—Reykjavík.
Annarri umræðu um skat-
tafrumvörpin lauk á Alþingi i
fyrrinótt. í dag verða svo frum-
vörpin til þriðju umræðu.
Atkvæðagreiðslum um tekju-
stofnafrumvarpið lauk i fyrra-
kvöld, en i gær voru atkvæða-
greiðslur um tekju- og eignar-
skattsfrumvarpið. Allar breyt-
ingartillögur meitihluta heil-
brigöis- og félagsmálanefndar
eíri deildar við tekjustofnafrum-
varpið voru samþykktar, en aðr-
ar breytingatillögur við það voru
fqlldar.
Breytingartillögur meirihluta
fjárhagsnefndar við tekju- og
eignarskattsfrumvarpið voru all-
ar samþykktar, en aðrar breyt-
ingartillögur viö það felldar,
nema tillaga frá Bjarna Guðna-
syni um.að rikisskattanefnd skuli
fela rikisskattstjóra að annast út-
gáfu úrskurðar nefndarinnar ár-
lega.'Var þessi tillaga samþykkt
að viðhöfðu nafnakalli með 12 at-
kvæðum gegn 11.
Nokkrar breytingartillögur ein-
stakra þingmanna voru dregnar
til baka til 3 ju umræöu, sem fram
fer i dag, eins og áður sagði.