Tíminn - 09.03.1972, Page 15
Fimmtudagur 9.marz 1972.
TÍMINN
15
Tvifari Róberts i Ameríku —
Fiðlarinn á þakinu, sem Bock
samdi tónlist við.
Bock á Sinfóníuballið
SB-Reykjavik.
Sinfóniuballið '72 verður haldið
i Súlnasal Hótel Sögu sunnudags-
kvöldið 19.marz. Heiðursgestur á
ballinu verður bandariska tón-
skáldið Jerry Bock, sem hefur
unnið það sér til frægðar m.a. að
semja tónlistina við „Fiðlarann á
þakinu”.
Bock er fæddur 1928 og hóf tón-
skáldsferil sinn ungur að árum. t
allmörg ár hefur hann unnið með
Sheldon Harnick, sem samið
hefur textana við lög Bocks. Þeir
tvimenningar hafa ma.a samið
„Fiorello” „Tender = loin”, „She
loves me” og Fiðlarann, og hafa
allir þessir söngleikir hlotið f jölda
verðlauna. Eitt af nýjustu
verkum Bocks er „The Apple
Tree”, sem hlotið hefur mjög
góðar viðtökur á Broadway.
SVEFNBEKKIR
Ódýrir vandaðir
svefnbekkir til sölu
að öldugötu 33.
Upplýsingar i sima
19407.
Læknisfræðin
og tölvutæknin
Nýlokið er á vegum Lækna-
fe'lags Reykjavikur og IBM á
Islandi námskeiði fyrir lækna og
læknanema til kynningar á mögu-
leikum tölvutækninnar fyrir
nútima læknisfræði og heil-
brigðisþjónustu. Námskeið þetta
var haldið i Domus Medica og i
húsakynnum IBM, og tóku þátt i
þvi 40 læknar og 14 læknanemar.
A námskeiðinu var fjallað um
ýmsar greinar tölvutækninnar:
Hlutverk datatækni i framkvæmd
og þróun læknisfræðinnar, um
grundvallartækni datavéla, um
forritun og hugverk, um skipulag
og meðhöndlun upplýsinga. Þá
var einnig rætt sérstaklega um
grundvallarnotkun tölvu i sjúkra-
húsum, um databanka og um
framtiðarmöguleika tölvutækn-
innar fyrir heilbrigðisþjónustuna.
Þátttakendum var einnig sýnd
tölva við vinnu i húsakynnum
IBM.
Auk forstjóra IBM á tslandi,
Otto A Michelsen, voru kennarar
námskeiðsins Jóhann Gun-
narsson, deildarstj., Jón Vignir
Karlsson, deildarstj., dr. Oddur
Benediktsson, fulltrúi, og Elias
Daviðsson, kerfisfræðingur, sem
stjórnaði námskeiðinu.
Læknafélag Reykjavikur telur,
að kynning þessi hafi verið mjög
gagnleg fyrir lækna, og er þakk-
lát IBM á tslandi fyrir að hafa
boðið læknum upp á og innt af
hendi merkilegt fræðslustarf.
7% hækkun
Framhald
af bls. 1.
bæði gangandi og hjólandi.
Þessvegna vantar strangara
umferðareftirlit. Og þeir,
sem eru i þvi starfi, eiga að
fá heimild til þess m.a. að
taka úr umferð þá ökumenn,
sem fara á óhóflegum hraða,
eða sýna gáleysi og ógæti-
lega meðferð ök utækja á
annan hátt. Ég tel, að það
mundi reynast áhrifarikara
að taka bilana af þeim 1-2
daga, sem fremja gróf brot,
sé það gert strax, heldur en
nokkur hundruð króna sekt.
Með vinsamlegri kveðju.
Daniel S. Palsson.
Opið bréf Framhald af bls. 8..
en 1. marz 1973, eða eftir eitt ár.
Þá kemur 7% hækkun. Samk-
væmt samanburði, sem
Kjaradómur hefur sjálfur látið
gera, liggja laun opinberra
starfsmanna að meðaltali meira
en 14% undir launum annarra
launþega en að dómi meirihluta
Kjaradóms, þolir þjóðarhagur
ekki.að hið opinbera greiði opin-
berum starfsmönnum réttmæt
laun, og svo til ekkert fyrr en eftir
eitt ár. Heildarniðurstaða sam-
kvæmt dómnum, er of litið of
seint.
Næst komandi laugardag
verður haldinn sameiginlegur
fundur stjórnar BSRB og kjara-
ráðs og fulltrúa frá hinum 28
bandalagsfélögum. Sá fundur
mun ræða dómsniðurstöðuna og
afstöðu samtakanna til dómsins.
—■ Hvað eru það margir,
Kristján, sem fá minna en 18.018
krónur i laun, og sem hækkunin
nær til?
— Að minum dómi þá eru það
50 — 100 manns af 6000 — 7000
manns, sem vinna hjá rikinu, sem
fá hækkinuna núna.
Veiði - Tilboð óskast
i stangaveiði á vatnasvæði Varmár og
Þorleifslækjar. Bjóða skal i veiðina, i
fyrsta lagi: Allt veiðitimabilið 1972, i öðru
lagi: 1 veiði á einstökum hlutum árinnar.
Réttur áskilinn að taka hvaða tilboði sem
er, eða hafna öllum.
Tilboðum sé skilað til formanns félagsins
Þorláks Kolbeinssonar, Þurá, Olfusi, fyrir
20. marz n.k. Nánari upplýsingar hjá for-
manni. Simi um Hveragerði.
Ford
býður
betur
FORD ER LAUSNIN- viljir þú fá það bezta á sanngjörnu
verði. FORD býður einnig traktora I fleiri stærðarflokkum en
nokkur annar. Felið FORD allt.sem þér þurfiö að moka,
draga, grafa, slá, og snúa. FORD hefur fullkomnasta tækni-
útbúnað, sem völ er á. Gæðin tryggja lágan viðhaldskostnað
og hátt endursöluverð. Þeir, sem kaupa FORD traktor njóta
forréttinda.
PANTIÐ FORD TRAKTOR FYRIR 20. MARZ
V1ÐARÞ1LJUR í mildu úrvuH
Viðartegundir: EIK—ÁLMUR HARÐVIÐUR og SPONN, ýmsar
RAMIN—FURA—VALHNOTA — tegundir.
TEAK — ASKUR — CAVIANA — PLASTPLÖTUR, ýmsir litir.
TAMO—KEYAKI —CAVIANA —’ PLASTHUDAÐAR SPÓNAPLOTUR
CEDRUS — BRENNI — PALISAND- SPÓNLAGDAR SPÓNAPLOTUR I
ER — KOTO — og fleira. BRENNI — EIK — TEAK —
ALAAUR
HnrðviðnrsnlnD sf. Þórsgötu 14 — Símar 11931 og 13670
Fyrirlestur fellur niður
Bókmenntafyrirlestur Guðmund-
ar G. Hagalin f Háskóla íslands,
fellur niður á morgun, vegna
veikinda fyrirlesarans.
Græðuni Iaudið
{fcjniuni fc
[BljNAÐARBANKI
ÍSLANDS
Gamlar góðar
bækur fyrir
gamlar góóar krónur
BÚKA
MARKAÐURINN
SILLA OG VALDA-
HÚSINU ÁLFHEIMUM
Fulltrúastarf
Opinber stofnun óskar að ráða ungan
mann til starfa að sjálfstæðum reiknings-
legum verkefnum. Nauðsynlegt er að við-
komandi hafi próf i viðskiptafræði eða
staðgóða verzlunarmenntun.
Þeir sem vildu kynna sér umrætt starf
leggi vinsamlega nöfn sin, ásamt upp-
lýsingum um náms- og starfsferil, til af-
greiðslu blaðsins fyrir 25. marz, merkt
„Fulltrúastarf 1231”,