Tíminn - 06.04.1972, Qupperneq 5
Fimmtudagur 6. april 1972.
TÍMINN
5
Gnúpverjar mótmæla
röskun á Þjórsárverum
Landgraeðslunefnd Ung-
mennafélags Gnúpverja
boðaði fyrir nokkru til al-
menns sveitarfundar um þær
hugmyndir að gera miðlunar-
lón i Þjórsárverum, en megin-
hluti þeirra eru á afrétti
Gnúpverjahrepps.
Gestir fundarins voru nátt-
úrufræðingarnir dr. Finnur
Guðmundsson og Arnþór
Garðarsson. Sýndu þeir kvik-
myndir og skuggamyndir úr
Þjórsárverum. Fjölmenni var
mikið á fundinum og þátttaka
i umræðum slik, að tuttugu og
þrjár ræður voru haldnar, og
stóð fundurinn langt fram á
nótt.
1 fundarlok var eftirfarandi
ályktun samþykkt:
„Fjölmennur sveitarfundur,
haldinn að tilhlutan land-
græðslunefndar Ungmenna-
félags Gnúpverja i félags-
heimilinu Arnesi 17. marz
1972, lýsir yfir eindreginni
andstöðu við rafvæðingar-
áætlanir, þar sem gert er ráð
fyrir myndun uppistöðulóns i
Þjórsárverum. Fundurinn
vekur athygli á nokkrum
mikilvægum atriðum varð-
andi Þjórsárver:
A.
Þjórsárver eru geysistór og
einstæð vin á miðhálendi
tslands. Þau eru umlukin
auðnum á alla vegu og eiga
ekki sinn lika hvað varðar
fjölbreytilegan gróður og
fuglalif.
B.
Gróðureyðing i aldaraðir er
alvarlegasta vandamál
náttúrverndar á Islandi. —
Verði Þjórsárver sett undir
vatn, er gróðri og gróðurfari
landsins unnið óbætanlegt
tjón. — Miklar likur eru og á
þvi, að mismunandi hæð á
yfirborði vatnsins i fyrir-
huguðu lóni i Þjórsárverum
orsaki uppblástur.
C.
Þjórsárver eru verðmætt
beitiland.
D.
Talið er, að 3/4 hlutar alls
heiðagæsastofnsins i heim-
inum verpi i Þjósárverum. —
Margir fuglategundir i heim-
inum eiga nú á hættu að
verða útrýmt. Röskun i
Þjórsárverum stofnar varp-
löndum heiðagæsarinnar i
hættu.
Af ofangreindum ástæðum
andmælir fundurinn hvers
konar röskun i náttúru
Þjórsárvera og skorar á al-
menning i landinu að samein-
ast um að varðveita þessa ein-
stæðu perlu islenzkra öræfa.
A fundinum var einnig
samþykkt tillaga til hrepps-
nefndar um að beita sér fyrir
þvi, að Gnúpverjar fái nú
þegar mann i nefnd þá, sem
kölluð hefur verið Þjórs-
arnefnd, og hefur það hlutverk
að fylgjast með rannsóknum i
Þjórsárverum.
AAdlmiðnaðarmenn c
Gerum
brezka
A aðalfundi Sveinafélags
Málmiðnaðarmanna á Akranesi,
sem haldinn var um miðjan
marz, var m.a. samþykkt
ályktun, þar sem þvi var lýst yfir,
að málmiðnaðarmenn á Akranesi
muni ekki gera við brezka togara,
verði sett löndunarbann á
islenzka togara i brezkum höf-
num vegna stækkunar fiskveiði-
lögsögunnar.
Hér á eftir fara ályktanir, sem
samþykktar voru á fundinum:
Aðalfundur S.M.A. lýsir yfir
stuðningi sinum við yfirlýsta
stefnu rikisstjórnarinnar i land-
helgismálinu.
Jafnframt lýsir S.M.A. yfir
fullum stuðningi við yfirlýsingu
Sveinafélags málmiðnaöar-
manna á Seyðisfirði i sambandi
við landhelgismálið og mun
bregðast við á sama hátt.
Aðalfundur S.M.A. skorar á
rikisstjórn og Alþingi að leggja
niður svo fljótt, sem hægt er, hiö
löngu úrelta meistarakerfi i iðn-
fræðslu og koma á raunhæfri
i Akranesi:
ekki við
togara
verknámskennslu i formi verk-
námsskóla. Ennfremur er brýn
nauðsyn að koma á frekari starfs-
kynningu i skyldunámi.
Aðalfundur S.M.A. ályktar
eftirfarandi: Vegna óhapps þess,
sem varð hjá fyrirtækinu Þorgeir
& Ellert h/f þann 21/1 1972, er
skipalyfta þess hrundi með vél-
bátinn Gissur hvita frá Hornafirði
vili S.M.A skora á rétta aðila að
þeir beiti áhrifum sinum til þess
að skjót lausn fáist á þvi ástandi,
sem nú rikir hjá fyrirtækinu og
orsakar fyrirsjáanlegan sam-
drátt i atvinnulifi bæjarins.
Fischer
samþykkir að
tefla í Belgrad
og Reykjavík
/■
Byggingafræðingafélag Islands
Tónleikar
Svansins ó
laugardag
Laugardaginn 8. april n.k. heldur
Lúðrasveitin Svanur tónleika i
Háskólabiói, og hefjast þeir kl.
15.00.
Lúðrasveitin Svanur er skipuð
um 50 hljóðfæraleikurum, sem
allt er áhugafólk um tónlist. Að
þessu sinni verða á efnisskrá
hljómsveitarinnar öllu viðameiri
verk en áður hefur tiðkazt, og má
þar t.d. nefna Ballettmúsikina úr
,,Faust” eftir Gonoud og hinn
fræga „Marche Slave”
Tscaikowskys. Að öðru leyti
verður tónlist við allra hæfi.
Gunnar Þórðarson
Nýlega hélt Byggingafræðinga-
félag Islands aðalfund sinn að
Hótel Loftleiðum. Kom fram i
skýrslu formanns, að meðal þess
sem unnið var að á árinu var hóp
og liftrygging félagsmanna. Þá
voru haldnir fræðslu og umræðu-
fundir um byggingar og skipu
lagsmál. Byggingafræðifélagið
gerðist stofnaðili að Steinsteypu-
félaginu sem stofnað var á siðast-
liðnu ári. Félagar i BFl eru 26 tal-
sins og er núverandi stjórn þess
þannig skipuð:
Sigurður Guðmundsson, for-
maður
Leifur Blumenstein, varafor-
maður.
Leifur Gislason, ritari.
Björgvin R. Hjálmarsson, gjald-
keri.
Sveinn Þorvaldsson, spjaldskrár-
ritari,
og varamenn
Ásmundur Jóhannsson og
Þórhallur Aöalsteinsson.
Sérstæð og falleg af-
mælisdagabók kominút
AK, Rvik. A vegum Vikurút-
gáfunnar er komin út ný afmælis-
dagabók, vönduö vel að öllum
búningi i pappír, prentun og
bandi. llólar hafa annazt prentun
og band, en útlitsteikningar allar
eru frá Auglýsingastofu Glsla B.
Björnsáonar.
Hverjum degi fylgir visa eða
ljóðbrol að hefðbundinni venju
slikra bóka, og hefur Gunnar
Þórðarson frá Grænumýrartungu
séð um valið. Hann er ljóðelskur
maður og kunnugur vel i ljóðum
hinna eldri skálda. Um valið segir
Gunnar:
„Ljóðunum i þessari bók er
efnislega raðað eftir árstiðum,
þannig að efni þeirra er jafnan
sem i mestu samræmi við það
veðurfar og ástand umhverfisins,
sem rikjandi er hverju sinni.
Höfundum er einnig raðað eftir
fastri reglu, þannig að hver
mánuður hefst með ljóði eftir
elzta skáldið, og svo áfram allan
mánuðinn og lýkur með kvæði
yngsta skáldsins. Flytur þvi hver
mánaðardagur ljóð eftir sama
skáld allt árið. Vegna þessarar
bundnu reglu var ekki unnt að
birta kvæði eftir fleiri skáld en
dagar eru flestir i mánuði eða 31
talsins.”
Prófarkir virðast hafa verið
lesnar af umhyggju og vel farið
með visur.
Bókinni hefur verið valið þetta
snotra nafn — Dagperlur.
w
Alyktun
FUF í Rvík
um Vélskólann
A stjórnarfundi i Félagi ungra
Framsóknarmanna miðvikudag-
inn 22.marz, samþykkti stjórn
félagsins eftirfarandi:
Félag ungra Framsóknarmanna
i Reykjavik lýsir fyllsta stuöningi
við kröfur nemenda Vélstjóra-
skóla Islands, er þeir sækja um
aðild að lánasjóði islenzkra
námsmanna. Félag ungra Fram
sóknarmanna litur svo á, að
nemendur við Vélstjóraskólann
eigi rétt á að sitja við sama borð
og aðrir námsmenn, sem fá lán úr
umræddum sjóði.
Stjórn FUF
OÓ-Reykjavik.
Ameriska skáksambandið
tilkynnti i gær, að Fischer hefði
fallizt á að heyja skákeinvigiö við
Spassky á þeim stöðum og tima,
sem samið var um i Amsterdam i
siðasta mánuði. Mun ful!trúi
Ameriska skáksambandsins
skrifa undir samningana, sem
gerðir hafa verið.
FIDE hefur beðið skáksam-
band Belgrad að endurskoða þá
ákvörðun að hætta við að halda
fyrri hluta einvigisins, en það
vilja Júgóslavar ekki gera nema
FIDE setji tryggingu fyrir að ein-
vigið verði haldið, samkvæml
þeim skilmálum, sem um er
samið. FIDE hefur látið alla við-
komandi aðila vita um afstöðu
Fischers og knýr á við Skáksam-
band Belgrad að það haldi áfram
undirbúningi einvigisins, sem á
að hefjast 22.júni og verður siðari
hluti einvigisins siðan tefldur i
Reykjavik.
Sæmdir
gullmerki HÍP
Sagt var i frétt i blaðinu i gær, að
23 aldnir félajsmenn Hins is-
lenzka prentarafélags heföu i
fyrradag verið gerðir að heiðurs-
félögum HIP. Þetta er að sjálfs-
sögðu ekki rétt, þeir voru sæmdir
gullmerki félagsins. Eru við-
komendur beðnir velvirðingar á
þessum mistökum. -EB
Ráðstefna Landssambands
lífeyrissjóða
EB—Reykjavik.
Landsamband lifey rissjóða
heldur ráðstefnu að Hótel Esju 7.
og 8. april n.k., þar sem fjallað
verður um verðbólguna og áhrif
hennar á lifeyrisgreiðslur og
ávöxtun fjár lifeyrissjóða.
Á siðasta aðalfundi sam-
bandsins var ákveðið að koma á
fót fræðslustarfsemi fyrir for-
svarsmenn aðildarsjóða þess, og
er þessi ráðstefna fyrsti liðurinn i
slikri starfsemi. — Jafnframt
verða á ráðstefnunni rædd til-
mæli, sem sett voru fram af rikis-
stjórninni 4. april s.l., um kaup
sjóðanna á skuldabréfum
Byggingarsjóðs rikisins.
Á ráðstefnunni munu þessir
menn flytja erindi: Björn Matt-
hiasson hagfræðingur, Guðjón
Hansen tryggin^afræðingur,
Guðmundur Magnusson prófes-
sor, Hermann Þorsteinsson full-
trúi og Ottó Schopka viðskipta-
fræðingur.
Heilsuverndar-
póststimpill
Sérstakur póststimpill
verður i notkun á Póst-
stofunni i Reykjavik á
Alþjóðaheilsuverndar-
daginn, föstudaginn 7. april
1972, en dagurinn er að þessu
sinni helgaður hjartavernd.
Geta þeir, sem þess óska,
fengið sendingar sinar
stimplaðar með honum.
Nokkrir félagar I SOM opnuðu sýningu á verkum sfnum I Iðnó i Keflavfk fyrir páska. Vegna mikillar að-
sóknar ákváöu listamennirnir aö framlengja sýninguna, og stendur hún fram eftir’þessari viku. Margar
myndanna eru þegar seldar. Er þetta I fyrsta sinn, sem SÚM sýnir utan einkasýningarsals félagsins i Reyk-
javík, en í ráöi er aö halda fleiri sýningar úti á landi i framtfðinni, ekki sízt vegna þess, hve vel þessi Suður-
nesjasýning hefur tekizt. A myndinni eru þrfr listamannanna, sem sýna i Keflavík, og nokkur þeirra verka
sem þangað voru send. Gylfi Gfslason stendur til vinstri, Vilhjálmur Bergsson krýpur, og til hægri er Arnar
Herbertsson. (Tfmamynd Róbert.)