Tíminn - 06.04.1972, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Fimmtudagur 6. april 1972.
Slíkar æfingar
þekkjast ekki
heima á íslandi
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Jóhannes Eðvaldsson,
knattspyrnumaður úr Val,
sem nú dvelur við æfingar og
keppni i Suður-Afriku, sendi
okkur lfnu um páskana, og
lætur vel af dvöl sinni syöra.
I bréfi sinu segist Jóhannes
óðum vera að komast i þjálf-
un. „Meö þessum æfingum
kemst maður i topp-form áður
en langt um liður. Æfingarnar
eru mjög frábrugðnar þvi,
sem maður á að venjast heima
á tslandi. Við tslendingar er-
um langt á eftir, hvað knatt-
spyrnuþjálfun snertir”, segir
Jóhannes i bréfi sinu.
Eins og fram kom i frétt á
iþróttasiðu Timans nýlega,
fæst fljótlega úr þvi skorið,
hvort Jóhannes undirritar at-
vinnumannasamning eða
ekki. Fer það eftir ýmsu, m.a.,
hvort honum tekst að aðlaga
Jóhannes Kðvaldsson.
sig breyttum aðstæðum ytra,
en af eðlilegum ástæðum háir
ýmislegt honum i Suður-
Afriku, ekki sizt hinn mikli
hiti, sem þar er.
Nýjung í íslenzkri knattspyrnu:
NÚ KEPPA VARA
LIDIN EINNIG!
Alf—Reykjavik.
— Litla bikarkeppnin hefst n.k.
laugardag. Sú nýbreytni verður
viðhöfð, að strax á eftir leikjum
aðalliðanna, munu varalið sömu
aðila leika. Hefur þetta fyrir-
komulag ekki tiðkazt hér á landi,
en er velþekkt annars staðar, t.d.
á Bretlandseyjum, þó að með
nokkrum öðrum hætti sé.
Eins og fyrr segir, hefst keppn-
in n.k. laugardag. Þá leika Kefl-
vikingar og Breiðabliksmenn i
Keflavik og hefst leikurinn kl. 15.
Á sama tima leika á Akranesi
heimamenn og Hafnfirðingar.
* *
#
Þau leiöu mistök urðu i sam-
bandi við siðasta getraunaseðil,
að þá birtist rangur getrauna-
seðill, þ.e.a.s. seðillinn, sem gilda
á fyrir þessa viku.
Vonum við, að þetta hafi ekki
komið að sök, og lesendur hafi
áttað sig á mistökunum. En nú
birtum við aftur spá Stefáns
Traustasonar, yfirverkstjóra
Eddunnar, og nú er að sjá, hversu
getspakur hann er:
Lalklr 8. april 1972 y í?
Arsenal — Wolves /
Chelsea — C. Palace /
Huddersfield — Ipswlch X
Leicester — Manch. Utd. X
Manch. City — West Ham 1
Nott’m For. — Newcastle X
Shelfield Utd. — Derby z
Southampton — Everton 1
Stoke — Leeds X
W.B.A. — Tottenham X
Hull — Q.P.R. l
Oxford — Portsmouth 1
■
Handknattleiks-
deild Þróttar
Aðalfundur deildarinnar verður
haldinn fimmtudaginn 6. april og
hefst kl. 20.
Stjórnin.
1*30*00««
ENSKAR
FÉLAGSHÚFUR
Þessi mynd var tekin i Sundlaugunum i Laugardal fyrsta dag norrænu sundkeppninnar. Og eins og sjá
má, er margt um manninn. (Timamynd GE.)
Asgeir Asgeirsson hefur
synt 200 metrana daglega
^ftunnto
“tviis'
Hátt á sjöunda
þúsund Reykvíkingar
hafa nú synt 200
metrana
Alf—Ueykjavik.
— Það var lif og fjör á öllum
sundstöðum Ueykjavikur i gær,
og syntu fjölmargir 200 metrana,
en samkvæmt upplýsingum, scm
iþróttasiðan aflaði sér i gær,
munu nú hátt á sjöunda þúsuiul
Reykvikinga hafa svnt 200 metr-
ana á þessum fyrstu dögum nor-
rænu sundkeppninnar.
Flestir hafa synt i Sundlaugun-
um i Laugardal, en þar höfðu
synt, um miðjan dag i gær, milli
3700-3800. t Sundlaug Vesturbæjar
höfðu synt 1710 og i Sundhöll
Reykjavikur rúmlega 1100
manns.
Að sjálfsögðu hafa margir fært
sér hinar nýju keppnisreglur,
sem kveða á um, að nú megi ein-
staklingur synda 200 metrana
einu sinni á dag, i nyt. M.a. hefur
fyrrverandi forseti Islands,
Asgeir Ásgeirsson, synt 200 metr-
ana á hverjum morgni i Sundlaug
Vesturbæjar siðan keppnin hófst,
en eins og kunnugt er, þá hefur
Ásgeir Ásgeirsson verið mikill
áhugamaður um sund.
Margir hafa kvartað undan
þrengslum á sundstöðunum. Eins
og kunnugt er, á eftir að byggja
nýja búningsklefa við Sundlaug
Vesturbæjar, og verður væntan-
lega hafizt handa um það verk
siðar á þessu ár. Og nú er svo
komið, að mikil þrengsli eru i
Sundlaugunum i Laugardal
vegna sivaxandi aðsóknar. Eru
uppi ráðagerðir um að byggja
nýja búningsklefa þar. 1 dag
verða Sundlaugarnar i Laugardal
lokaðar vegna viðgerða.
V
PÓSTSENDUM
SPORTVÖRUVERZLUN
INGÓLFS
0SKARSS0NAR
Klapparstig 44 — simi 117X3
Itey kjavik
»D0#0G«f
Leiðbeiningar vegna
norrænu sundkeppninnar
Hver sem ætlar að synda 200
metrana fær þátttökuskirteini,
sem hann skrifar sjálfur á nafn
sitt og heimilisfang. Hann af-
hendir siðan efri hluta skirteinis-
ins i fyrsta sinn, sem hann syndir.
1 hvert sinn, sem þátttakandi
syndir, þá lætur hann skrá skir-
teinisnúmer sitt, — ef hann man
númerið þá er óþarfi að sýna
skirteinið.
Þá fær þátttakandinn litinn
miða með númeri sinu og dag-
setningu i hvert sinn og þarf hann
að halda þeim miðum til haga til
sönnunar ef hann ætlar að fá sér
silfur eða gullmerki.
Strax að þessum aðalleikjum
loknum, hefjast svo leikir vara-
liðanna.
Af öðrum knattspyrnuleikíum,
sem háðir verða um næstu heigi,
er vert að geta leiks Vestmanna-
eyinga og Vikinga, sem háður
verður i Vestmannaeyjum á
laugardag. Eins og kunnugt er,
hefur Keflavik forustu i
Meistarakeppni KSl, er með 3
stig. Vestmannaeyingar eru með
2 stig og Vikingar 1 stig.
1 sambandi við Litlu bikar-
keppnina, má geta þess, að Kefl-
vikingar hafa sigrað i þrjú siðustu
skipti. Keppt er um verðlauna-
gripi, sem þeir félagar Albert
Guðmundsson og Axel Kristjáns-
son (i Rafha) gáfu.
Staðan á
Bretlands-
eyjum
1 fyrrakvöld voru leiknir nokkr-
ir leikir i ensku deildunum og
urðu úrslit þessi:
1. deild:
Coventry-Everton 4-1
Leicester-Arsenal 0-0
Nott.For.-Wolves 1-1
Southampton-Man.City 2-0
Stoke-West Ham 0-0
2. deild:
Birmingham-Blackpool 3-1
Carlisle-Millwall 3-3
Norwich-Bristol C. 2-2
Preston-Sunderland 1-3
3. deild:
Barnsley-Brighton 0-1
Briston R.-Notts. C. 0-2
Staðan i deildunum fjórum og
Skotlandi er nú þessi:
1. deild: L U J T mörk St.
Derby 37 21 9 7 61-31 51
Liverp. 37 21 8 8 57-28 50
Man.City 37 20 10 7 67-40 50
Leeds 36 20 9 7 63-27 49
Southampt 36 11 5 20 47-73 27
C.Palace 37 7 11 19 34-60 25
Huddf. 36 6 12 18 25-48 24
Nottm.F. 38 6 8 24 43-78 20
2. deild: Norwich 37 18 14 5 55-33 50
Millwall 37 16 17 4 56-42 49
Birmingh. 36 15 16 5 53-29 46
QPR 36 16 12 8 47-27 44
Sunderl. 36 15 14 7 57-51 44
Charlton 36 12 7 17 51-63 31
Fulham 37 12 6 19 42-63 30
Cardiff 35 8 12 15 48-59 28
Watford 36 . 4 8 24 22-63 16
3. deild: Aston V. 38 26 5 7 70-28 57
Brighton 38 22 8 8 67-39 52
Bournt. 38 19 13 6 64-33 51
Notts County 37 20 11 6 60-33 51
4. deild:
Scunth. 38 21 10 7 50-25 52
Grimsby 38 23 5 10 72-47 51
Southend 38 22 7 9 66-45 51
Brentf. 39 19 10 10 67-39 48
Lincoln 38 1!) 10 9 66-51 48
1. deild, Skotland: Celtic 28 24 3 1 80-20 51
Aberdeen 30 20 6 4 73-24 46
Rangers 28 19 1 8 59-27 39
Leikir þeir sem topplið 1 . deildar
Asgeir Asgeirsson — hefur synt
200 metrana daglega!
eiga eftir að leika i deildakeppn-
inni eru þessir:
Derby gegn: Huddersfield og
Liverpool heima, en WBA,
Man.City og Sheff.Utd. að
heiman.
Liverpool gegn: Coventry og Ips-
wich heima, en West Ham, Arse-
nal og Derby að heiman.
Man.City gegn: West Ham og
Derby heima, en Man.Utd.,
Coventry og Ipswich að heiman.
Leeds gegn: Huddersfield og
Chelsea heima, en Stoke, WBA,
Newcastle og Wolves að heiman.
Þaö skal tekið fram að Leeds
lék við Huddersfield i gærkvöldi.