Tíminn - 06.04.1972, Síða 20
Færeyingar vilja
viöræður
SB—Reykjavik
Markaösmálanefnd Fær-
eyska lögþingsins fór þess á
leit i gær viö landsstjórnina,
aö hún heföi samband viö is-
ienzku rfkisstjórnina, varö-
andi fyrirhugaöa útfærslu is-
ienzku fiskveiöilögsögunnar.
Nefndin fer þess einnig á leit
viö stjórn og þing Færeyja, að
hafnar veröi samningaviöræð-
ur viö islenzku stjórnina um
hin breyttu fiskveiöitakmörk,
þegar þar að kemur. Nefndar-
menn benda á, að i ljósi sam-
þykktar alþingis og færeyska
landsþingsins um aukna sam-
vinnu Færeyinga og Islend-
inga, sé ástæða til að búast við
þvi, aö Islendingar viðurkenni
sérstöðu Færeyinga gagnvart
útfærslu fiskveiöilögsögunnar.
„Úlfmaður i
menninguna eftir 50 ár
NTB—Alieante
Iiann er dauöhræddur viö
hnifapör, foröast mjúkt og
þægilegt rúm. Sigarcttan cr
hið eina, sem honum finnst
þe ss viröi að nota þaö, af þeim
hiutum, sem hann hcfur
kynnzt í menningunni.
„Úlfmaðurinn" hefur verið
á vörum fólksins, sem býr við
Sierra del Aquila-f jallið á
Spáni, i ein 50 ár. Nýlega var
hann handsamaður og fluttur
niður i menninguna, þar sem
rómversk-kaþólskar nunnur
tóku að sér að hugsa um hann.
„Úlfmaðurinn” var með hár
langt niður á bak, húð hans
var nær svört af sólskini og 50
ára baðvatnsleysi. Neglurnar
voru langar og beittar. Nunn-
urnar eru þeirrar skoðunar, að
hann hafi alizt einn upp i fjöll-
unum frá fæðingu. Hafi e.t.v.
verið borinn út.
Aö tileinka sér menninguna,
hefur ekki reynzt honum auð-
velt. Hann rýtir i stað þess að
tala og harðneitar að sofa inn-
an dyra, vill heldur garðinn
eða trjákrónu. Hann borðar
með höndunum og snertir ekki
hnifapör. Hið eina, sem hon-
um likar vel i hinu nýja lifi
sinu, eru sigarettur og hann
reykir allmikið
Castro reiöur vegna
sprengjunnar
i Kanada
NTB—Havana
Fidel Castro, forsætisráð-
herra Kúbu réðst i gær harka-
lega á lögregluna i Montreal
og ásakaði hana hana fyrir að
hafa komið fram eins og ófor-
skammaða fasista eftir
sprenginguna, sem varð á
þriðjudaginn i skrifstofum kú-
bönsku verzlunarsendinefnd-
arinnar þar, en einn maður
beið bana og annar særðist.
Castro, sem talaði i útvarp-
ið, ásakaði andbyltingaröfl
undir stjórn bandarisku leyni-
þjónustunnar (CIA) fyrir að
standa að baki sprengjutil-
ræðinu. Hann bætti þvi við, aö
kanadiska lögreglan myndi
greinilega ekki eftir þvi, að
bandariskt seridiráð er á
Kúbu. Ekki sagðist Castro þó
ætla að hefna sin á varnar-
lausu fólki.
Lögreglan i Montreal hefur
handtekið s jö Kúbumenn, sem
grunaðir eru um sprenging-
una.
IRA klofinn
í afstöðunni
til friðar
NTB—Bclfast
Allt úrslit var fyrir það i
gær, aö irski lýðveldisherinn
væri klofinn i tvennt um skoö-
un sina á framtiðarhlutverk-
inu á N-írlandi. IRA-menn i
Dublin segja, aö áfram veröi
lialdiö hryðjuvcrkastarfscm-
inni eins og áöur, en IRA i
Londonderry kveðst vilja
ræöa kröfur ibúanna um
vopnahlé.
Kröfur hinna kaþólsku ibúa
voru settar fram i fyrra mán-
uði, þegar n-irska þingið var
leyst upp og Bretar tóku við
stjórninni. Um páskahelgina
varð til hreyfing kvenna, sem
beita vill áhrifum sinum til að
koma á vopnahléi. Hreyfingin
er i sókn og sifellt fleiri styðja
hana.
IRA-menn i Londonderry
sendu i gær út tilkynningu, þar
sem sagt er að IRA vilji frið,
en ekki með hvaða skilyrðum
sem er og kæmi til mála að
ræða friðarskilyrði fólksins.
McGovern er
í fararbroddi
NTB—Milwaukee
George McGovern, öldunga-
deildarþingmaður, tók i gær
forustuna i kapphlaupinu um
að verða útnefndur forsetaefni
demókrata. Hann sigraði i for-
kosningunum i Wisconsin
ásamt George Wallace, en
John Lindsay, borgarstjóri i
New York, tapaði og hefur nú
tilkynnt, að hann sé hættur i
baráttunni.
Úrslitin voru annars á þessa
leið: McGovern fékk 30%
greiddra atkvæða demókrata,
Humphrey fékk 21%, Wallace
21%, Muskie 11%, Jackson
8%, Lindsay 7%. Næstu for-
kosningar verða 25. þessa
mánaðar i Massachusetts og
Pennsvlvaniu.
Fimmtu-iagur 6. april 1972.
Svart: Reykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guð-
mundsson.
ABCDEFGH
n
Hvitt: Akureyri: Sveinbjörn
Sigurðsson og Hólmgrimur
Heiðreksson.
7. ieikur Akureyrar: 0-0
Thieu segir sókn N-Víetnama stöðvaða
NTB-Saigon
Alls um 350 bandarískár
og S-Vietnamskar
sprengjuflugvélar réðust á
stöðvar N-Víetnama
sunnan hlutlausa beltisins i
gær og sögðu heimildir her-
sins, að gerðar hefðu verið
217 sprengjuárásir á 20
klukkustundum. Jafnframt
leit út fyrir, að herir
kommúnista undirbyggju
nýja stórsökn i mið-
hálendinu.
Thieu forseti S-Vietnam sagði i
gær, að herir sinir hefðu nú
stöðvað framgang Norður-Viet-
nama sunnan hlutlausa beltisins
og væru kommúnistar á undan-
haldi. Sagði Thieu, að Suður-Viet-
namar gætu bjargað þessu sjálfir
með aðstoð bandarisku flugvél-
anna og gaf með þvi i skyn, að
hann hefði enga þörf fyrir banda-
riskan herstyrk á jörðu niðri,
ennþá.
Forsetinn sagði, að kommúnis-
tar hefðu styrkt herlið sitt i
Quang-Tri héraði, er fjórar her-
deildir hafa verið á þvi svæði.
Thieu lagði áherzlu á, að stöðva
yrði fyrir hvern mun tilraun
kommúnista til að ná á sitt vald
hluta af S-Vietnam. Tilgangurinn
með þessari sókn þeirra væri að
sýna fram á, að stefna Nixons i
Vietnam væri röng, þar sem nú
væri kosningaár i Banda-
rikjunum. Thieu kvað ekki
nokkurn minnsta vafa á þvi, að
það væru hersveitir N-Vietnema,
sem nú sæktu fram, enda þótt fáni
þjóðfrelsishreyfingarinnar væri i
broddi hersveitanna.
MIÐJARÐARHAFK) i BRAÐRI HÆTTU
Vísindamenn telja því dauðan vísan innan 25 ára vegna mengunar
SB—Reykjavik
Visindamenn óttast nú, að Miðjarðarhafið, vagga
vestrænnar menningar, sé að deyja úr mengun,
bæði af völdum iðnaðar og mannfólksins. En þeir
eru þá einnig þeirrarskoðunar, að ekki sé of seint að
reyna að bjarga ,,hinu dimmbláa hafiV
Sjávarliffræðingurinn Peter
Dohrn.sem starfar i Napoli, segir,
að ástand Miðjarðarhafsins sé
mjög alvarlegt, baðströndum hafi
víða verið lokað áf heilsufars-
ástæöum, fiskistofnarnir fari
óðum minnkandi, oliuklumpar
berist á land, gróöurinn minnki
og hafnarsvæði séu hreinustu
drullupollar.
Franski haffræðingurinn
Cousteau segir, að fyrst þegar
Þriðja leiðangri rannsóknaskips-
ins Bjarna Sæmundssonar á
þessu ári lauk laust fyrir páska.
Leiðangur þessi var eingöngu
helgaður veiðarfæratilraunum,
nánar tiltekið tilraunum :i með
botnvörpu og er fyrsti leiðangur
sinnar tegundar á skipinu.
I ferðinni voru gerðar ýmsar
mælingar á venjulegum togara-
botnvörpum og voru áhrif ýmissa
breytinga á veiðarfærinu könnúð
hann hóf að kafa i Miðjarðarhafið
fyrir 25 árum, hafi það verið
iðandi af lifi, en nú sé varla hægt
að finna þar fisk, sem sé lengri en
10 sm. Segir hann lifsorku hafsins
hafi minnkað um 30 — 50%
siðustu 20 árin.
Svissneski sjávarsérfræðingur-
inn Piccard segir, að hafið muni
verða dautt innan 25 ára, verði
ekkert að gert, til að stöðva
mengunina.
og mæld. Auk þess voru gerðar
veiðitilraunir með nýrri vörpu-
gerð, sem nokkuð hefur rutt sér
til rúms hjá öðrum þjóðum að
undanförnu. Eftir nokkra byr-
junarörðugleika tókst að ná at-
hyglisverðum árangri. Margir
hafa sýnt þessum tilraunum
mikinn áhuga, ekki hvað sizt
vegna yfirstandandi stækkunar
togaraflotans. Liklegt er, að
Framhald á bls. 19
Við strendur þessa fagra hafs
eru þéttbýlar iðnaðarborgir, sem
spúa frá sér ósköpum af mengun
og aðeins ein þröng leið er út úr
hafinu,: Gibraltarsundið. Það,
sem heldur Miðjarðarhafinu
lifandi, eru „lungu" þess, Kor-
sikuflóinn, Adriahafið og Eyja-
hafið, en þar verður súrefnið til
vegna áhrifa svalra meginlands-
vindanna. En fyrir kaldhæðni ör-
laganna eru þessi „lungu" ein-
mitt þar sem mengunin er verzt.
Fyrsta mengunin af manna-
völdum i Miðjarðarhafinu var frá
koparvinnslu á Kýpur, járn-
vinnslu i Litlu-Asiu og tinnámun-
um i Fönikiu. Seinna létu Róm-
verjar allan úrgang sinn fljóta til
sjávar eftir Tiber og skurðirnir i
Feneyjum hafa öldum saman
tekið á móti mannlegum úrgangi.
Nútima úrgangsefni eru mun
eitraðri, þannig að fiskur,
plöntur og meira að segja dýr á
landi verða eitruð af vatninu. A
siðasta ári mun hvorki meira né
minnaen 300 þúsund lestum af
oliu hafa verið dælt i Miðjarðar-
hafið, úr skipum, sem hreinsuðu
geyma sina. Landkönnuöurinn
Heyerdahl hefur rannsakað oliu-
mengunina við strendurnar og
segir hann að umhverfis Möltu, sé
svart belti og olia sé um allar
strandir Sýrlands og Libanon og
þar sé ekkert lif að finna.
Allir þessir sérfræðingar og
margir fleiri eru nú sammála um,
að vekja verði athygli stjórn-
málamanna og rikisstjórna á
ástandinu og fá þá aðila til að
gera eitthvað.
Reglur verði að setja og rikin
16, sem að hafinu liggja, verði að
undirrita einhverskonar sam-
komulag um að stöðva
mengunina.
En vandinn við slika fram-
kvæmd er sá, að að þótt þjóðirnar
norðan og vesian megin hafsins
séu allar af vilja gerðar til að
draga úr iðnaðarmengun, muni
þjóðirnar sunnan og austan við
vilja halda ótrauðar áfram iðn-
væðingu sinni og þróun, jafnvel
þótt afleiðingin verði meiri
mengun.
Miðjarðarhafið virðist ekki vera ýkja mengað þar sem þessi islenzka
stúlka svamlar um.
Tilraunir með nýja
vörpu lofar góðu