Tíminn - 15.04.1972, Side 9
8
TÍMINN
Laugardagur 15. apríl 1972.
Laugardagur 15. apríl 1972.
TÍMINN
[ ^:M\ ~ I * 1
Höfundar aö annarri hugmyndinni um „Skipulag sjávarkauptúna”, sem hlaut verölaun. Taliö frá vinstri:
Ólafur Erlingsson, verkfræðingur, dr. ólafur Hagnar Grimsson, lektor, Ingimundur Sveinsson, arkitekt og
Garöar Halldórsson, arkitekt. — (Timamynd Gunnar).
Skipulag sjávarkauptúna:
Tvær hugmyndir fengu verðlaun
og ein var keypt á 100 þús. kr.
Verðlaunahugmyndirnar höfðu Isafjörð og Þorlákshöfn sem aðalkjarna
Klp—Reykjavík.
t gær voru kunngerð úrslit i
hugmyndasamkeppni Skipulags-
stjórnar rikisins um „Skipulag
sjávarkauptúna hér á landi á
þessum áratug”. Alls bárust sjö
úrlausnir, en að mati dómnefndar
var engin úrlausn nægilega góð til
að hægt væri að veita henni 1.
verölaun.
Dómnefndin var samt sam-
mála um að skipta samanlagðri
verðlaunaupphæð, kr. 600.000.00,
að jöfnu á milli tveggja, þ.e.a.s.
hugmyndar um skipulag Vest-
fjarðarkjálkans, með tsafjörð
sem aðalskipulagsstað, og hug-
myndar um skipulag vesturhluta
Suðurlandsundirlendis, meö
Þorlákshöfn sem aðalskipulags-
staö.
Höfundar aö fyrri hugmyndinni
voru þeir Garðar Halldórsson
arkitekt, Ingimundur Sveinsson
arkitekt, ólafur Erlingsson verk-
fræöingur og dr. Olafur Ragnar
Grimsson lektor. Höfundar að
þeirri siðari voru þeir Sigfinnur
Sigurðsson, hagfræðingur, Sigur-
laug Sæmundsdóttir arkitekt og
Gunnlaugur Baldursson arkitekt.
Þá var dómnefndin sammála
um að kaupa hugmynd, sem
fjallaði um svæðaskipulag
Reykjanesskagans og aðalskipu-
lag um Sandgerði, fyrir kr.
100.000.00, en höfundar þess voru
þeir Óli Jóhann Asmundsson
arkitekt og Róbert Pétursson
arkitekt.
Fyrirhugað er að halda sýningu
á öllum úrlausnunum i salar-
kynnum By ggingaþjónustu
Arkitektafélags Islands, Lauga-
vegi 26, frá og með 13. til 19. april
n.k.
90 manns í golf til Skotlands
Klp-Reykjavik.
Þann 26. april n.k. fer út á veg-
um Flugfélags Islands um 90
manna hópur og" er áætlunin á
Skotland. Erindið er all óvenju-
legt a.m.k. miðað viö fyrri hóp-
ferðir Islendinga þangað, þvi að i
þetta sinn verður ekkert um
búðaráp, en þess i stað rápað um
alla þá frægu golfvelli, sem eru
fyrir suð-austan Edinborg
I hópnum verða menn og konur,
sem gaman hafa af þvi að leika
golf, og mun hópurinn dvelja
þarna i viku tima og leika golf á
finum og frægum völlum.
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi
Flugfélagsins, sagði að upppant-
að hafi verið i ferðina fyrir löngu,
en vegna forfalla væru örfá sæti
laus. Þau yrðu samt liklega fljót
að fara, þvi margir hefðu áhuga á
þessari ferð, enda verðið gott.
Hann sagði, að þarna i North-
Berwick væri eitthvert bezta golf
svæði i öllum heiminum og þar
marga velli að finna. Þetta væri i
þriðja sinn, sem slik ferð væri
farin - og væri þetta sama fólkið,
sem færi ár eftir ár. Fararstjórar
i ferðinni, eins og i hinum tveim
fyrri, verða þeir Sigurður
Matthiasson og Birgir Þorgilsson,
sem báðir eru starfsmenn Flug-
félagsins og miklir golfáhuga-
menn.
ENGIN TÖK Á AÐ
RANNSAKA RÚSTIRN-
AR AÐ STÓRUBORG
— segir þjóðminjavörður, en í bígerð er að rannsaka næst
rústirnar austur á Mýrdalssandi
Klp- Reykjavík.
,,Hjá okkur er nú ekkert
sérstakt í bígerð í sumar",
sagði þjóðminjavörður, Þór
Magnússon, er við höfðum
tal af honum í gær. „Það
sem helzt kemur til greina
að rannsaka, eru rústirnar
austur á Mýrdalssandi, en
þær virðast vera forvitni-
legar7'.
Aðspurður um hvort eitthvað
yrði rannsakað i rústunum og
kirkjugarðinum að Stóruborg
undir Austur-Eyjafjöllum, sagði
þjóðminjavörður að það væri
óliklegt.
„Við höfum þvi miður engin tök
á þvi, þar sem skortur er á mann-
skap til þeirra starfa. Það hafa
fáir verið i námi á undanförnum
árum, en úr þvi hefur nú rætzt og
má þvi búast við breytingu á
komandi árum. Rannsóknir á
bæjarsvæðinu eru erfiðar, þar
sem þarna hefur verið byggt aft-
ur og aftur og er þetta þvi hálf-
gert „púsluspil” að finna út úr
þessu.
Þór sagði, að staðurinn væri
samt athyglisverður og skemmti-
legt væri að skoða hann, en Þórö-
ur Tómasson safnvörður á Skóg-
um hefði rannsakað hann að
undanförnu og unnið gott starf við
það. Aftur á móti væri kirkju-
garðurinn forvitnilegur fyrir
mannfræðinga, þvi að grafirnar
væru heillegar og þar margt að
athuga fyrir þá.
HEFUR SAFNAÐ 150 SPARIBAUK-
UM VÍÐSVEGAR AÐÁ4 MÁNUÐUM
Þessi börn fara með aðalhlutverkin 1 ævintýrinu um „Gömlu skóna”.
Eins og sjá má á myndinni, bera börnin það ekki með sér, að þau eru
óvanir leikarar. En þau heita: Gunnar Þór Þórðarson, Hrannar Björn
Arnarson, Guðrún Margrét Hannesdóttir, Kristján Valdimarsson og
Sigmundur Halldórsson. (Timamynd—Gunnar).
Fjölbreytt
skemmtun
Fóstrufélagsins
i
dag
ÞÓ—Reykjavik.
Fóstrufélag Islands gengst
fyrir barnaskemmtun i Austur-
bæjarbiói n.k. laugardag 15. april
kl. 15. Fóstrur og börn af barna-
heimilum borgarinnar sjá um öll
skemmtiatriði, sem eru mjög
fjölþætt.
Ekki verða fluttir færri en þrir
stuttir leikkaflar, og nefnast þeir
Kiðlingurinn, sem kunni að telja,
Bangsarnir þrir og stuttur leik-
þáttur veröur um Gömlu skóna.
Þá munu börn sýna hringleiki og
syngja fjölbreytta söngva, og
lesin verður saga.
Skemmtun þessi er aðallega
ætluð börnum á aldrinum 3—7
ára. Aðgöngumiðar eru seldir á
barnaheimilum, og kosta þeir 75
krónur.
ÞÓ—Reykjavik.
Sigurjðn Gunnarsson heitir
hann og hann hefur safnað spari-
baukum frá hinum ýmsu banka-
stofnunum viðsvegar um heim
siðan um jól. Nú mun hann hafa
eignast milli 140 og 150 bauka
hvaðanæva af úr heiminum.
Sigurjón vinnur á póstskrifstof-
unni i Landsbankanum i Austur-
Vikurútgáfan hefur sent frá sér
bókina Indversk heimspeki eftir
Gunnar Dal. A árunum 1951-1953
dvaldi höfundurinn i Indlandi og
kynntj sér indverska heimspeki.
Þegar hann kom heim skrifaði
hann bókina Rödd Indlands, sem
túlkað kjarna indverskrar heim-
speki á einfaldan og alþýðlegan
hátt. Bókinni var mjög vel tekið
og seldist hún upp á skömmum
tima. Um sama efni skrifaði höf-
undur sex smárit, er komu út i
litlu uppl. og eru löngu ófáanleg.
Sú bók, sem nú kemur út undir
nafninu Indversk heimspeki er að
stræti, og þar inni eru flestir
baukarnir geymdir.
Hann sagði okkur, að hann
hefði fengið hugmyndina frá
Astraliu núna fyrir jólin, er
Landsbankanum barst bréf
þaðan um að senda sér spari-
bauk. 1 Ástraliu mun það vera al-
gengt að fólk safni sparibaukum,
og Sigurjón veit um einn mann
Ný bók:
nokkru leyti endurútgáfa hinna
fyrrnefndu bóka.
Indversk heimspeki er ákaflega
forvitnileg og aðgengileg bók öll-
um þeim, sem vilja fræðast um
rök tilverunnar, eins og þau eru
túlkuð i hinum indversku heim-
spekikerfum.
Bókin skiptist i þessa kafla auk
inngangs:
Rig Veda, Upanishad, Kenning-
in um fortilveru og annað lif,
Karma-heimspekin, Ljós Asiu,
Hvað er Nirvana?, Hávamál Ind-
lands, Sex indversk heimspeki-
þar, sem á um 900 bauka.
Aðspurður sagði Sigurjón, að
baukarnir, sem hann hefði eign-
ast væru viðsvegar úr heiminum
eins og t.d. frá Japan, Hong Kong
og S-Afriku. Hann hefur skrifaö
viðkomandi bönkum, og jafnan
fengið baukana að vörmu spori,
ef bankarnir hafa á annað borð
haft sparibauka á boðstólnum.
kerfi, Nayaya-heimspekin,
Vaisesika-heimspekin, Samhya-
heimspekin, Yoga-heimspekin,
Yoga-Sútra, Mimamsa-heim-
spekin, Vedanta-heimspekin.
Ýtarlegar orðskýringar eru aft-
ast i bókinni yfir öll erlend heim-
spekihugtök, sem i bókinni er að
finna.
Indversk heimspeki er tæpar
200 blaðsiður, prentuð og
bundin i Prentsmiðjunni Hólum
h.f. Káputeikning er gerð af Aug-
lýsingastofunni h.f., Gisla B.
Björnssyni.
Þá hefur hann fengið bréf frá
irskum banka, sem fer fram á, að
fá mynd af safninu hans.
Sigurjón sagði, að hann vissi
ekki um neinn hér á landi, sem
hefði lagt þessa söfnun fyrir sig,
annan en hann. Aftur á móti væri
þetta að verða vinsæl söfnun á
Norðurlöndunum, sérstaklega i
Sviþjóð.
INDVERSK HEIMSPEKI
Margþætt kynning á
TK—Reykjavík
Vegna missagnar i
grein á baksiðu Visis á
þriðjudag undir fyrir-
sögninni „Landhelgis-
bæklingur dreginn til
baka” og fréttatilkynn-
ingar rikisstjórnarinnar
i gær til leiðréttingar á
missögnum Visis, sneri
Timinn sér til Hannesar
Jónssonar, blaðafulltrúa
rikisstjórnarinnar, og
bað hann að skýra frá
þeirri útgáfu- og kynn-
ingarstarfsemi, sem
hann hefur haft með
höndum undanfarið
meðal erlendra aðila til
upplýsingar og kynn-
ingar á stefnu íslend-
inga i landhelgismálinu,
og hvað fram undan er i
þeim efnum. Fer við-
talið við Hannes hér á
eftir:
— Hvernig gengur róðurinn i
kynningarstarfsseminni?
„Við eigum við ofurefli liðs að
etja, þar sem er upplýsinga- og
áróðursstarfsemi Breta og V-
Þjóðverja”, sagði Hannes. „Þeir
hafa mjög greiðan aðgang að
heimspressunni og hafa notað sér
það óspart. Meginmarkmið áróð-
urs þeirra virðist vera sá að
reyna að koma þvi inn hjá al-
menningi, að Island sé að brjóta
alþjóðalög með útfærslunni i 50
milur. Þennan áróður sinn
undirstrika þeir svo með þvi að
segjast stefna Islendingum og
málinu fyrir alþjóðadómstólinn i
Haag. Meö þessari áróðursað-
ferö, og einhliða efnistúlkun á
málinu að öðru leyti, reyna þeir
aö láta lita svo út sem þeir séu
þolendur óréttlætis af Islendinga
hálfu ”.
— En hefur upplýsingastarf-
semi Islendinga ekki megnað að
skapa meiri skilning á málinu?
„Ég held mér sé óhætt að segja,
að við séum i stöðugri og vaxandi
sókn aö þessu leyti. Blöð og
fréttamiölar erlendis eru að opn-
ast meira og meira fyrir okkur,
þannig að meiri sannsýni og
skilnings gætir i fréttaflutn-
ingum. Markmið okkar upplýs-
ingastarfsemi er einmitt það, að
skapa sannsýni og skilning, þvi
við höfum svo góðan málstað að
verja, að sterkustu vopnin, sem
við getum beitt, eru staöreyndir
og sannleikur málsins undan-
dráttarlaust”.
— En i hverju er upplýsinga-
starfsemin aðallega fólgin?
„Segja má að hún sé þriþætt.
Fyrst, málflutningur islenzkra
ráðherra, þingmanna og annarra
fulltrúa rikisins á ýmsum þingum
og ráðstefnum erlendis, og er
hlutur Einars Ágústssonar,
utanrikisráðherra, mjög stór i þvi
sambandi, svo sem kunnugt er,
þótt margir aðrir hafi þar einnig
gengið vasklega fram og unnið
gott starf.
„1 öðru lagi er útgáfa og dreif-
ing upplýsingarita um málið.
Þegar núverandi rikisstjórn tók
við völdum var ekkert kynningar-
rit til um þetta lifshagsmunamál
okkar. Við hófum þvi strax i ágúst
útgáfu fjölritaðra upplýsinga-
greinargerða um málið til
dreifingar á vegum sendiráðanna
og til almennra upplýsinga fyrir
erlenda fréttamenn. Gáfum viö 4
stefnu
slikar greinargerðir út á seinni
hluta siðasta árs, auk fjölritaörar
greinargerðar undir nafninu
„Fisheries Jurisdiction in
Iceland”, sem var aukin og
endurbætt og gefin út i prentuðu
formi nýlega i 3.000 eintökum. Þá
gáfum við nýlega út almennt
kynningarrit um landhelgis-
máliö, „Iceland and the Law of
the Sea” i 12 þúsund eintökum,
sem sent var ásamt bréfi til um
500blaða og fréttamiðla i 125 rikj-
um heims, öllum ræðismönnum
Islands erlendis, fjölþjóöa- og al-
þjóðastofnunum, og sendiráöum
Islands, þ.á.m. til rikisstjórna,
þingmanna, fréttamiöla og full-
trúa erlendra rikja.
„1 þriðja lagi er svo hin allt aö
þvi stöðuga móttaka á erlendum
fréttamönnum hér i Reykjavik,
- Rætt við Hannes Jónsson, blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar,
um kynningu landhelgismálsins meðal erlendra aðila
okkar í landhelgismálinu
viðtöl við þá og margvisleg aöstoð
og fyrirgréiðsla, sem leitt hefur
til stöðugt vaxandi blaðaskrifa
um okkar hlið málsins erlendis.
Þessi viðtöl hafa af eðlilegum
ástæðum mætt mest á Einari
Agústssyni, utanrfkisráöherra,
og Lúðvik Jósefssyni, sjávarút-
vegsráöhera, en I þvi sambandi
er lika rétta aö geta hins ágæta
starfs Jónasar Arnasonar, al-
þingismanns, við að kynna máliö
i viðtölum við erlenda blaðamenn
bæði heima og erlendis. Ekki má
heldur gleyma þætti Eysteins
Jónssonar, forseta Sameinaðs Al-
þingis, sem hefur hvorki sparaö
tima né fyrirhöfn til þess að taka
á móti erlendum fréttamönnum á
Alþingi og túlka fyrir þeim mál-
stað okkar. Og sama er að segja
um ýmsa forvigismenn félaga og
firma, — og sem SIS, ASl,
Eimskips, Loftleiða o.fl. o.fl. —
sem margir hverjir hafa ekki
aðeins átt viðtöl við erlenda
fréttamenn hér heima, heldur
tekið sér fyrir hendur að skrifa
félögum sinum eða viðskipta-
aðilum úti um heim til þess aö
túlka málstað okkar og senda
þeim kynningarrit okkar”.
Þá vil ég ekki sizt geta um
mikilvæga fyrirgreiöslu islenzkra
ritstjóra og blaðamanna við er-
lenda starfsbræður, sem hingað
koma til að afla upplýsinga um
landhelgismálið. Þeirra framlag
til upplýsingastarfsseminnar og
kynningu á stefnu okkar i land-
helgismálinu er ómetanlegt.
Þá er sérstök ástæða að
minnast á Ólaf Jóhannesson, for-
sætisráðherra, i þessu sambandi.
Ein upplýsingagreinargerðin er
t.d. þýðing á meginhluta hinnar
merku ræðu hans um landhelgis-
málið á Sameinuðu Alþingi 9.
nóvember s.l., og hann hefur með
vizku sinni, lögspeki, einurð og
festu verið mótandi aðilinn i sam-
bandi við allar okkar aðgerðir og
útgáfur. Auk þess hefur hann átt
fjölmörg viðtöl við erlenda frétta-
menn og sjónvarpsmenn um
landhelgismálið. Rökvisi hans,
sanngirni og festa hafa vakið
mikla athygli erlendra frétta-
manna og haft bein áhrif á, að
málstaður okkar hefur oft verið
túlkaður af meiri skilningi en
ella.
— En hvað er svo næst á
dagskrá i þessum efnum?
„Við vinnum nú af fullum krafti
að undirbúningi 10—12 minútna
sjónvarpsmyndar um máliö, sem
viö ætlum að hafa tilbúna til
dreifingar um miöjan ágúst.
Eiður Guðnason hefur umsjón
með gerð myndarinnar, en Sig-
urður Sverrir Pálsson mun
annast kvikmyndatökuna.
— Hugsið þið ykkur ekki að
bjóða heim erlendum frétta-
mönnum?
„Þetta og ýmislegt fleira er i
athugun og undirbúningi ásamt
hugmynd um að setja upp sér-
stakt kynningarprógram fyrir er-
lenda fréttamenn, sem verða
vafalitið margir hér i Reykjavik
um það leyti, sem skákeinvigiö
um heimsmeistaratitilinn fer
fram I ágústmánuöi, ef úr þvi
veröur. En mikilvægt er að stuðla
að þvi að upplýsingastarfsemin
um okkar góða málstaö hafi
keðjuverkanir, þannig að sjónar-
mið okkar komist sem viöast á
framfæri” sagði Hannes Jónsson
að lokum.
Þannig kom Hannes Jónsson teiknara Götaborgs Posten fyrir sjónir,
þegar Sviarnir áttu samtal við hann um landhelgismálið, sem birtist i
blaðinu 19. marz s.l. Undir myndinni stóð: „Island brýtur engin al-
þjóðalög þegar fiskveiðimörkin verða færð út i 50 milur”, segir Hannes
Jónsson.