Tíminn - 18.04.1972, Qupperneq 3
Þriðjudagur 18. april 1972.
TÍMINN
3
\
Aburðarflutningar hafnir
og ganga vel
OÓ—Reykjavik.
Áburðarflutningar út um land
eru hafnir, og gengur dreifingin
vel. Meginhlutinn af Kjarna-
áburðinum er kominn á hafnir um
alltland, en á örfáum stöðum er
ekki aðstaða til að taka við
áburðinum vegna geymsluvand-
ræða. Áburður frá útlöndum til
landsins er á góðum vegi, og
standa þeir flutningar sem hæst
núna.
Hjálmar Finnsson, forstjóri
Áburðarverksmiðjunnar, sagði,
að afgreiðslan frá verksmiðjunni
i Gufunesi væri meiri núna en
undanfarin ár, og er þvi helzt að
þakka, að vegirnir eru nú i betra
ástandi.
Áburðarpantanir i ár eru aðeins
meiri heldur en salan var i fyrra.
En sú er reynslan.að það eru
alltaf margir aðilar, sem ekki
panta nægilega mikið. t fyrra var
selt kringum 65.500 tonn, en
pantanir i ár eru 66.050 tonn. En
gert er ráð fyrir að hafa svolitið
meira magn til staðar en
pöntunum nemur.
t fyrra var salan t.d. talsvert
meiri en pöntunum nam. Aætlað
er að nú verði selt kringum 24 þús
tonn af Kjarna og um 42 til 45 þús.
tonn af innfluttum áburði.
Góð aðsókn hefur verið að sýn-
ingu Þjóðhátiðarnefndar i
sýningarsal Norræna hússins, en
þar eru til sýnis tillögur i sam-
keppni nefndarinnar um merki
og veggskjöld. Sýningin er opin
virka daga kl. 5-10, á
sumardaginn fyrsta, laugardag
og sunnudag, verður sýningin
opin kl. 2-10.
Húnavakan
hefst 19. apríl
KK — Blönduósi
Hin árlega fræðslu- og
skemmtivika Ungmennasam-
bands Austur-Húnvetninga —
Húnavakan—hefst að þessu sinni
siðasta vetrardag — 19 april.öll
atriði vökunnar fara fram i
Félagsheimilinu á Blönduósi.
Búizt er við góðri aðsókn, og að
margir fagni sumri á vökunni,
enda er þar margt til
skemmtunar. Má m.a. nefna að
það verða sýnd þrjú leikrit,tvær
kvöldvökur verða með blönduðu
efni, og sumarfagnaður
Barnaskólans á Blönduósi. Auk
þess verða sýndar kvikmyndir.
Að sjálfsögðu verða dansleikir öll
kvöld vökunnur, og leikur
Hljómsveit Þorsteins Guðmunds-
sonar frá Selfossi fyrir dansinum.
Húnavökunni lýkur sunnudags-
kvöldið 23. april. 12. árgangur
ársrits ungmennasambandsins —
Húnavaka-kemur út um sumar-
málin, og verður til sölu á Húna-
vökunni.
Fílabeinsturnar
Eitt af þvi sem hefur vakizt til
umræðu á liðnum dögum er að-
ferð við að koma listinni til fólks-
ins. Þetta hefur gengíð "• mjög
erfiðlega á undanförnum árum,
og kannski alla tíð, en með tilvist
sjónvarps og annarra áhrifaríkra
fjölmiðla virðist þörfin vera
brýnni nú en oft áður fyrir per-
sónuleg kynni við listamenn og
list þeirra, en mikið skortir á, að
nægilegur áhugi stjórnaraðiia
hafi verið fyrir hendi, þegar um
slika listkynningu er að ræða.
Fyrir nokkrum árum var efnt
til „Listar um landið”, en slikt
ágætt framtak lognaðist út af,
kannski vegna þess að ekki hefur
verið rétt að því staðið. Og enn er
farið að ræða og skipuleggja list
um landið. Vonandi tekst nú að
halda lífi i framkvæmdinni, og
þeir einir setjist ekki að henni,
sem hugsa hlýtt til hennar í at-
vinnubótaskyni, heldur verði þeir
fengnir með í bland sem almenn-
ingur hefur áhuga fyrir, stjörnur
ýmiskonar, sem gera mönnum
glatt í sinni og vekja forvitni, þótt
ýmsum páfum þyki þeir ekki
þungavigtarmenn i listinni.
Ein er sú stofnun, sem hefur haft
með listflutning að gera, er virð-
ist eiga langra lifdaga auðið, þótt
ekki hafi hún farið hratt af stað.
en það er Höfundamiðstöðin, sem
starfrækt er á vegum Rithöfunda-
sambands islands, og stjórnað af
Ingólfi Kristjánssyni, sem löng-
um hefur verið mikil hjálpar-
hella, þegar þurft hefur á starfs-
kröftum að halda, bæði innan
samtaka rithöfunda og einnig i
Blaðamannafélaginu. Höfunda-
miðstöðin skipuleggur að óskum
skólastjóra ferðir rithöfunda og
skálda og bókmenntafræðinga i
framhaidsskóla landsins. Þetta
starf hefur verið unnið við vax-
andi orðstír á undanförnum ár-
um.
Nýlega var farið i bókntennta-
ferð um Húnavatnssýslur á veg-
um llöfundamiðstöðvarinnar —
að ósk skólastjóranna á svæðinu.
Höfðu þeir samráð um þetta eins
og ýmislegt annað,og fer vel á
þvi. Með i ferðinni var Erlendur
Jónsson, bókmenntafræðingur og
gagnrýnandi, og flutti hann erindi
á öllum stöðunum á undan upp-
iestri. Gerði hann sér far um að
skýra fyrir áheyrendum þróun
bókmenntanna á siðustu áratug-
um. Flutti hann sjö erindi um
þetta efni á fjórum dögum, talaði
blaðablaust uppundir klukkutíma
i senn, og nálgaðist viðfangsefnið
á ferskan hátt i hvert sinn, og
myndu fáir eftir leika. Varð þetta
hin mesta frægðarför fyrir Er-
lend og mun mál hans minnis-
stætt þeim sem hlýddu. En þvi er
þessa minnzt hér, að reynslan af
þessari ferðsýnir, að nauðsynlegt
er að hafa listfræðinga, hverrar
greinar sem er, til að kynna fyrir
fólki hver aðdragandinn er að þvi,
sem vcrið er að flytja þvi hverju
sinni. Breytingarnar eru örar og
flóknar, og þvi er skiljanlega vel
tekið, þegar fólki gefst kostur á
þvi að átta sig á mcginstraumum
og stefnum, sem skýrðar eru fyrir
þeim áreitnislaust og án hleypi-
dóma. Og það er einnig atriði, að
listfræðingarnir komi ekki brynj-
aðir i bak og fyrir með skrifaðar
ræður, þvi hér er um atriði að
ræða, sem hentar að flytja upp á
staðinn og stundina.
Sagt er að margt i þjóðlifinu
komist aldrei út fyrir borgar-
mörkin. Eflaust má finna þeirri
skoðun stað. Og þeir bókmennta-
menn, sem sitja hér i náðum,
gera alltof litið að þvi að hreyfa
sig um landið. Þeir myndu skipta
um skoðun, ef þeir færu einu sinni
og fyndu hver áhuginn er á þvi
sem þeir hafa að segja. Bók-
menntir, svo dæmi sé tekið, eru
ekki list til að iðka i filabeinsturn-
um. Þær eru of nærstæðar fólkinu
i landinu til þess. Það er þvi kom-
ið að turnfólkinu að hrista af sér
slénið og stefna sem nef vísar út á
landsbyggðina.
SK RIFSTOFUSTÚ LKU R
Fyrirtæki i Reykjavik óskar að ráða stúlk-
ur til eftirtalinna starfa:
1. Til gjaldkerastarfa og við vélabókhald.
Vélritunarkunnátta og bókhaldsþekking
nauðsynleg, ennfremur nokkur tungu-
málakunnátta.
2. Til starfa við vélritun, launaútreikning
og simavörzlu. Vélritunar- og nokkur
tungumálakunnátta áskilin.
Góð laun i boði fyrir hæfa umsækjendúr.
Tilboð er greini aldur, menntun og fyrri
störf, ásamt meðmælum, ef fyrir hendi
eru, leggist inn á afgreiðslu blaðsins,
merkt „Skrifstofustúlka 1248” fyrir 23.
april n.k.
MATSALA
Húsnæði óskast til leigu fyrir matsölu sem
næst miðborginni. Upplýsingar i sima
52464.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast i lögun lóðar við Leirubakka 18-321 Reykja-
vfk Útboðsgögn fást afhent hjá Njáli Guðmundssyni
tæknifræðingi, Huldulandi 9, gegn 500 kr. skilatryggingu
og verða tilboð opnuð á sama stað fimmtudaginn 27. apríl
kl. 5 eh.
ÚTB0Ð - GATNAGERÐ
Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum i
gatnagerð i hluta Suðurgötu i Hafnarfirði.
Verkið innifelur undirbúning undir varan-
legt slitlag, þar með endurnýjun lagna,
jarðvegsskipti o.fl. Útboðsgögn eru afhent
i skrifstofu bæjarverkfræðings, Strand-
götu 6 gegn 5 þúsund kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað miðviku-
daginn 26. april kl. 11, að viðstöddum bjóð-
endum.
Bæjarverkfræðingur.
Laust embætti,
er forseti íslands veitir
Prófessorsembætti i raforkuverkfræði i
verkfræði- og raunvisindadeild Háskóla
Islands er laust til umsóknar. Umsóknar-
frestur til 10. mai 1972.
Laun samkvæmt launakerfi starfs-
manna rikisins.
Gera verður ráð fyrir, að rannsóknar-
skyldu þeirri er starfinu fylgir, verði fyrst
um sinn fullnægt utan háskólans eftir
nánara samkomulagi.
Umsækjendur um prófessorsembætti
þetta skulu láta fylgja umsókn sinni ýtar-
lega skýrslu um visindastörf þau, er þeir
hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo
og námsferil sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið,
7. april 1972.
Svarthöföi.