Tíminn - 07.05.1972, Síða 3
Sunnudagur 7. mal 1972.
TÍMINN
3
SUMARMÁLABRÉF
FRÁ STYKKISHÓLMI
Ekki er hægt að segja annað, en
að Stykkishólmsbúar hafi haft
það gott þennan vetur sem nú er
að kveðja. Hann var mjög mildur
frá áramótum en nokkuð storma-
samur með köflum. Ishroði hefur
aldrei sést í fjöru, og jörð oftast
verið klakalaus.
Gróður fór að sjást i janúar i
feitum eyjum og túnum og fölnaði
hann aldrei að fullu, þótt nokkuð
kaldara væri siðustu vikurnar.
Svona hlýr vetur hefur ekki kom-
ið hér siðan 1964, enda var hann
með eindæmum góður. Þá var
kominn svo mikill gróður i góðar
eyjar hér, i miðjum marz, að út-
göngufé beit eingöngu nýgræðing,
og hefur slíkt varla gerst áður á
þessarr-öld.
Þess er þó rétt að geta i sam-
bandi við liðinn vetur, að sunnu-
daginn 12. desember hlóð niður
miklum snjó og um kvöldið brast
á norðan stórhrið. Fé Stykkis-
hólmsbænda var þá flest i úteyj-
um og hrakti það og fennti viða.
Er það mjög fátitt i Breiða-
fjarðareyjum. Var verið að leita
að týndu fé i fönn næstu daga, og
fannst sumt ekki fyrr en eftir viku
og þá fyrir aðstoð góðs minka-
hunds, sem Bergsveinn Gestsson
frá Hrappsey á, fimm kindur
höfðu þá farist,flestar fyrir það að
sjór hafði fallið undir þær i fönn-
inni.
Atvinna var mjög jöfn og góð
allan veturinn. Það er ekki langt
siðan að vetrarvinnan hér byggð-
ist svo til eingöngu á útgerð og
fiskverkun, og ef vertið brást eða
var léleg var strax um atvinnu-
leysi að ræða.Nú hafa aflabrögð
að visu verið sæmileg en þó nokk-
uð misjöfn, en hitt ræður þó
meiru, að nú byggist atvinnulifið
á miklu breiðari grundvelli. Hér
hefur verið að þróast siðustu ár
visir að nokkrum iðnaði. Hér eru
nú starfandi tvö trésmiöaverk-
stæði, tvær skipasmiðastöðvar
vélsmiðja, húsgagnagerð, tvö bif-
reiðaverkst., rörsteypa og múr-
húðun. Þetta eru að visu ekki stór
fyrirtæki, þau stærstu eru með
um f jörutiu menn og svo allt niður
i tvo hjá þeim smæstu, en i þeim
öllum munu að jafnaði vinna 120-
130 manns og það er stór hluti af
vinnuafli kauptúnsins. Enda er
oftast skortur á fólki i fiskverk-
unarstöðvunum, sem stafar að
nokkru af þvi hve vinna er stopul.
Þá eru hér i byggingu tvö stór-
hýsi á okkar mælikvarða, og hef-
ur veriðunnið i þeim báðum i vet-
ur, annað er félagsheimili og
hótel, en hitt skipasmiðahús.
Félagsheimilið er þriggja hæða
bygging auk jallara, á neðstu hæð
sem er 900 fermetrar er gert ráð
fyrir veitinga og samkonusölum
og eldhúsi, en á efri hæðunum 28
gestaherbergjum, i kjallara er
ibúö fyrir húsvörð. Varla er hægt
að ætla.að húsið geti tekið til
starfa fyrr en að ári liðnu.
Skpasmíðahúsið, sem Skipa-
smiðastöðin Skipavik h.f. er að
byggja við dráttarbrautina i
Skipavik, er nú að verða fokhelt.
Þetta er stærsta hús sem byggt
hefur verið i Stykkishólmi 24000
rúmmetrar. Þar inni eiga að geta
staðið samhliða, þrjú 100 lesta
skip með rá og reíða.
Skipasmiðatöðin afhenti elleftu
nýsmiði sina síðast liðinn skir-
dag, fimmtiu tonna bát Geir
Jónasson AR 35. Eigandi hans er
Hraðfrystihús Stokkseyrar h.f.
Hann er þriðji báturinn sem stöð-
in smiðar fyrir þann aðila og sá
fjórði hleypur af stokkunum
næstu daga. Geir Jónasson er
mjög vel búinn bátur. Allar vind-
ur eru háþrýstar og mun það vera
alger nýjung i islenzku fiskiskipi,
hægt er að stjórna togvindum
bæði frá þilfari og stjórnpalli, og
getur þvi skipstjóri séð um tog og
hífingu vörpunnar.
Bátar frá Skipavik h.f. hafa lik-
að mjög vel, enda er mikil eftir-
spurn eftir þeim. Upppantað er
hjá stöðinni til 1975. Samvinna
hefur jafnan verið milli Vél-
smiðju Kristjáns Rögnvaldssonar
s.f. og Skipavikur h.f. um bygg-
ingu bátanna, vélsmiðjan hefur
annast allt málm og járnsmiði,
niðursetningu véla og tækja.
Þrátt fyrir mikla vinnu hefur
félags og skemmtanalif verið
nokkuð hér i vetur, einkum hafa
klúbbarnir, sem virðast nú mjög i
tizku, verið starfssamir. Meðal
annars i fjársöfnun til ýmissa
nauðsynjamála. Hér eru starf-
andi Rótary, Lions og hjónaklúbb
ur. Þorrablót var haldið með
myndarbrag að venju og leik-
félagið Grimnir sýndi sjónleikinn
Pilt og Stúlku 6 sinnum við góða
aðsókn.
Helstu fyrirhugaðar fram-
kvæmdir i sumar eru endurbætur
á báðum hraðfrystihúsunum, og
lagning nýrrar vatnsveitu. Fund-
ist hefur mikiö og gott vatn upp
við Svelgsárhraun, verður það
beislað og lagt i plast pipum frá
Reykjalundi til bæjarins um 14
km leið. Aætlað er að 8-9 km klár-
ist i sumar.
Ég held. að Hólmarar séu yfir-
leitt bjartsýnir á framtiðina og
búizt við góðu sumri eftir góðan
vetur.
Fréttaritari.
Félagsheímilið.
Skipasmfðahúsið
BÆNDUR
12 ára drengur óskar
að komast á gott
heimili i sveit.
Upplýsingar i sima
31023.
TIL SÖLU
Nokkrar kýr, vor og sumarbærur. Einnig
John Deer dráttarvél með ámoksturs-
tækjum og sláttuvél.
Ennfremur gamlar vélar. Semja ber við
SIGURÐ SIGURÐSSON
STEINMÓÐARBÆ, simi um Hvolsvöll
Nýi báturinn,Geir Jónasson
Straumlo
CUT-OUT
í flestar gerðir
bifreiða
HVERGI
LÆGRAVERÐ
Skelfunnl 3e*SímI 3*33*4S
PLÖTUR - HARÐVIÐUR
- SPÓNN
SPÓNAPLÖTUR, I. fl. finnskar
GABONPLÖTUR (birki og brenni)
HAMPPLÖTUR
WIRUPLAST (plasthúð, spónaplötur)
HARÐTEX (venjul., oliusoðið og gatað)
HARÐPLAST (nýtizkulegir litir)
MAHOGNI — TEAK — ABACHI —
BRENNI — ASKUR
Allar ofangr. vörur eru geymdar i upp-
hituðum vörugeymslum.
SPÖNN (gullálmur, eik, oregon pine,
teak o.fl.)
PÁLL Þ0RGEIRSS0N & C0.
Ármúla 27 — Simi 86-100.