Tíminn - 07.05.1972, Blaðsíða 7

Tíminn - 07.05.1972, Blaðsíða 7
Sunnudagur 7. mai 1972. TÍMINN 7 Þegar ringdi járni — A eistnesku eynni Saar- emaa i Eystrasalti finnast svo að segja allar gerðir af sprengi- gigjum eftir loftsteina, sem þekkjast. Eistneskur jarðfræð- ingur, Age Aaloe, hefur með viðtækum rannsóknum fundið skýringu á fyrirbærinu. Fyrir um það bil 3000 árum sprakk risaloftsteinn úr járni i and- rúmsloftinu yfir eynni. Gizkað er á,að loftsteinninn hafi vegið um 1000 tonn og við spreng- inguna féllu brotin úr honum eins og járnskúr yfir eyna, svo að jarðvegurinn tættist upp og gigarnir mynduðust. Járnstykkin voru mjög stór. Hin stærstu, sem menn hafa fundið örugg merki um, hafa skollið á jörðinni með ægihraða og myndað rörlaga sprengigigi, næstum 120 metra i þvermál. Munið þið eftir Bettinu? Bettinu tókst aldrei að verða þriðja kona Ali Khans, eins og allt benti til að hún yrði. Hún var eitt sinn eitthvert vinsælasta módel heimsins, en lagði starf sitt á hilluna fyrir ástina á Ali Khan. 1 fimm ár var hún stöðugt i nærveru þessa væntanlega leiðtoga Múhameðstrúar- manna, og-hún sat við hlið hans, þegar hann lenti i bil- slysinu i Paris, þar sem hann lét lifið. Það var fyrir tólf árum. Nokkrum minútum, áður en Ali Khan dó, vaknaði hann til meðvitundar, og hvislaði, er Bettina lifandi! Hún lifði, þótt undarlegt megi virðast, þvi betta var ægilegur árekstur. I dag er Bettina 47 ára gömul og einn er hún mjög glæsileg kona. Hún hefur ekki getað gleymt Ali Khan. Ég elska hann enn, og mun gera það svo 'lengi sem ég lifi. Sé til lif eftir þetta lif, segir hún ennfremur, þá mun ég einnig elska hann í þvi. Það var sjaldan hugsað um Ali Khan sem son æðsta manns múhamðestriiarmanna, oftar var hans getið i sambandi við konu sina Ritu Hayworth. Lifnaður Ali Khan varð til þess að faðir hans ákvað, að Karim Aga Khan skyldi erfa forystu- hlutverkið. Leiðir þeirra Ali og Bettinu lágu saman, þegar Ali var enn kvæntur Ritu Hayworth. Bettina hafði verið fengin til þess að sýna þeim tizkufatnað i Paris, en hjónin komu tveimur klukkustundum og seint. Bettina varð ofsareið, og hundskammaði Ali og Ritu og sagði, að þótt fólk væri auðugt hefði það alls engan rétt til þess að virða ekki tima vinnandi fólks sem skyldi. Ali varð undrandi, enda átti hann ekki sliku að venjast. 1 afsökunarskyni sendi hann Bettinu tí tylttir rosa. Það var ekki fyrr en tveimur árum siðar, sem þau hittust á ný, og þá voru þau Ali og Rita skilin. Ali og Bettina urðu óaðskiljan- leg, þó með þeim fyrirvara, að austurlenzkir hættir Ali kröfðust þess, að hann væri ekki við eina fjölina felldur, en alltaf snéri hann aftur til Bettinu. Bettina hefur aldrei getað gleymt elskhuga sinum. Lengst af dvelur hún i húsi sinu á Sardiniu, en bregður sér þó stöku sinnum til Parisar, þar sem hún nýtur hins ljúfa lifs með Paolo Vassalo, forstjóra næturklúbbsins Number ONF. Danadrottning tii Sovétrikjanna. Pravda birti nýlega frétt þess efnis, að formaður sovézku sendinefndarinnar, sem nú er i opinberri heimsókn i Dan- mörku, ritari Æðsta ráðs SSSR, M. Georgadze, hafi afhent drottningu Danmerkur boð N. Podgornis, forseta Æðsta ráðs SSSR, um að heimsækja Sovét- rikin. Drottningin þá boðið með þökkum. * Gasafmæli i Túrkmenistan Fimm ár eru liðin um þessar mundir siðan fyrst var farið að vinna gas úr jörðu i sovétlýð- veldinu Túrkmenistan i Mið- Asiu. Nú koma um 50 milljónir rúmmetra gass úr borholunum austur þar á sólarhring. t lok ni- undu fimm ára áætlunarinnar árið 1975 er gert ráð fyrir, að þrefaldað verði frá þvi sem nú er það gasmagn, sem leitt er frá Túrkmenistan eftir pipulögnum til héraða i Evrópuhluta Sovét- rikjanna. Bankatölvan ruglaðist Maður nokkur i Tours i Frakklandi datt aldeilis i lukku- pottinn nýlega, þegar hann ætl- aði að taka 500 franka út úr bankareikningi sinum. Notaði hann til þess sjálfvirka vél, sem hægt er að stinga sérstöku spjaldi inn i og biðja um ákveðna upphæð, og sér þá tölva um afganginn. Allt i einu fóru peningaseðlar að streyma út úr vélinni, og hættu ekki að streyma fyrr en maðurinn hélt á 4300 frönkum. Þetta var næstum þvi niu sinnum meira, heldur en Hans Kriete. en svo hét maður- inn, hafði beðið um. Hann fór heim til sin, en þa sagði vinur hans honum, að trúlega myndi tölvan draga þetta frá innstæðu hans, svo þetta væri tæpast óvæntur hagnaður. Kriete fór þvi til lögreglunnar og skýrði fr- á þvi sem gerzt hafði. Pening- unum var skilað aftur i bank- ann, og bankastarfsmennirnir fóru að glugga i heilabú tölv- unnar. * Prinsinn vinnur í London Karl Gústaf krónprins i Sviþjóð hefur verið i London i vor, þar sem hann hefur starfað sem bankamaður hjá Hambros- bankanum i London. Hann er á sex vikna æfinganámskeiði, sem sænska verzlunarráðið stendur fyrir i samvinnu við Hambros-banka. Prinsinn lætur vel af þvi að starfa i banka, en sennilega verður þetta þó ekki framtiðaratvinna hans. Barnafatatizkan Þessar tvær litlu dömur og litli herrann hér á myndunum vildu miklu frekar taka þátt i tizkusýningu heldur en fara á barnaheimilið sitt, að þvi er sagt er. Börnin komu fram á barnafatatizkusyningu i Munchen i Þýzkalandi, en þar voru sýnd nýjustu barnafötin. Það helzta i barnafatatizkunni voru stuttar peysur, buxur með viðum skálmum, leðurjakkar og röndóttur fatnaður. A hátiðum og tyllidögum eiga börnin svo að klæðast fötum úr flaueli. Hjónin vöknuðu um miðja nótt og frúin hrópaði: — Albert, það iskrar i mús niðri i stofu. — Hvað er þetta kona. Ætlaztu til að ég fari niður og smyrji hana eða hvað? Efir miðdegisverðinn hrósaði einn af gestunum húsmóðurinn fyrir hið indæla kaffi, sem hún hafði borið á borð. — Já, maöurinn minn kom með það heim frá sjálfu kaffilandinu — Virkilega. Hugsa sér, að það að það skuli hafa haldist heitt alla leiðina. Sveinn fékk nafnlaust bréf, i hverju stóð: — eggið hálfa milljón i peningum undir annaö tré til hægri i skemmtigarðinum, annars rænum við konunni yðar. Sveinn lagði bréf undir tréð. Þar stóð: Ég á enga peninga, en ég geri ráð fyrir, að þið standið við loforðið. MacSinnep kom heilli klukku- stund of seint i vinnuna. — Hvað varstu eiginlega að gera aíian þennan tima? spurði forstjórinn. — Það var kona á járnbrautar- stöðinni, sem týndi shillingi og allt fólkið hjálpaði henni að leita. — Og hvað kom það þér við? —• Ég stóð á honum. —Þú ert greinilega nýr hérna. Ljónin i dýrasafninu voru orðin gömul og heldur illa útlitandi svo forstöðumanninum datt ekki betra ráði hug, en selja slippstöð- inni þau fyrir varðhunda. Allt gekk vel nokkrar vikur, en að þvi kom, að upp úr sauö, þegar skrif- stofustúlka hvarf. —Þarna sérðu, sagöi annað ljónið við hitt. —Þú áttir að láta kven- fólkið i friði. Við erum búin aö éta átta verkfræðinga, en enginn hefur tekið eftir þvi. DENNI DÆMALAUSI — Geturðu imyndað þér, að nokk- ur skuli vera ánægður, yfir að jólafriið er búið?

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.