Tíminn - 07.05.1972, Síða 14
14
TÍMINN
Sunnudagur 7. mai 1972.
ar ofanundir og ljósin slökkt, fór
ég að velta þessu öllu saman fyrir
mér. Já, vonlitið var það, en ekki
ómögulegt. Og það var ég sem
varð að reyna að gera eitthvað
henni til hjálpar.
Ég svaf frameftir næsta
morgun, og Lindsay færði mér
morgunverðinn i rúmið. Hvorug
okkar talaði orð um hennar mál-
efni. Það var næstum eins og hún
iðraðist eftir þvi að hafa trúað
mér fyrir svo miklu.
Steinhljóð var i öllu húsinu
þegar ég kom niður. Jónatan og
Maeve voru farin til Lundúna
fyrir löngu. Stella hafði fariö með
börnin i skólann. Chris og Fleur
voru einhversstaðar úti, en frú
Blaney og Lindsay fann ég i eld-
húsinu.
Frú Blaney brosti til min. — Ég
vona að þú hafir sofið vel á divan-
inum?
— Já takk, næstum þvi of vel.
Lindsay hefði ált að vekja mig
fyrr.
— F'rú Blaney hló glaðlega. —•
Hún hafði skipun um að lofa þér
að sofa. Þú hefur starfað mikið
undanfarið.
— Fkki meira en Lindsay,
sagði ég blátt áfram.
Frú Blaney brosti enn. — En
Lindsay getur ekki án þess verið,
satt min kæra?
— Já, hún mun reynast ein-
slaklega góð og farsæl húsmóðir,
sagði ég með nokkurri áherzlu.
t>að varð þögn, og frú Blaney fór
að tala um annað.
Fr það nokkuð sérstakt, sem
þig langar i til kvöldverðar, Kay?
Ég vcrð ekki hér til kvöld-
verðar, l'rú Blaney. Ég verð að
fara til Lundúna i dag.
Æ, Kay, það var synd. A ég
að skilja þetta svo að Jónatan
komi ekki heldur til kvöldverðar?
— Nei, alls ekki, sagði ég frem-
ur kuldalega. llún fékk þetta til
að lita út eins og Jónatan væri
brúða — ef ég ekki léki mér að
honum, þá vildi hún fá leyl'i til
þess. Ég skal hringja hann upp i
Lundúnum, sagði ég. — Ég verð
að hilla umboðsmann minn i dag
hann er vist búinn að útvega
mér hlutverk.
Fleur og Chris komu nú inn i
eldhúsið. Það leit út fyrir að þau
helðu orðið ósammála, kinnar
Fleurs sjúklega rauðar. og munn-
svipur Chris ærið hörkulegur.
Fleur gekk lil móður sinnar og
faðmaði hana að sér. — Chris er
alveg óþolandi hann segist fara
til borgarinnar núna strax fyrir
hádegi.
l>að eru vissir hlutir, sem
ekki geta beðið til mánudags,
flýtti Chris sér að segja. — Ég var
lengur i Ameriku en ég ætlaði —
vegna dóttur yðar, frú Blaney.
Hann brosti bliðlega til Fleur.
Hún bránaði strax og svaraði
honum geislandi brosi.
— Hann segir þetta allt svo satt
og fallega, sagöi Fleur. — Ég er
búin að fyrirgefa honum.
Frú Blaney sagði dálitið von-
svikin: — Æ, min kæru, fjöl-
skyldan er ekki fyrr sameinuð, en
þið tvistrizt öll sitt i hvora áttina.
Kay er að fara frá okkur, og nú þú
og Chris, Fleur.
— Mamma, ég ætla ekkert að
fara, sagði Fleur, Við höfum svo
margt að spjalla um, og Chris
kemur aftur til kvöldverðar, ekki
satt Chris?
- Ég vona það. Ef mér seinkar
hringi ég.
— Við skulum taka til mat
handa þér, Chris, sagði frú
Blaney glaðlega. 011 óánægja var
rokin á braut.
Chris snéri sér að mér. Hvenær
leggur þú af stað, Kay? Get ég
ekið þér?
— Ég verð tilbúin eftir tiu
minútur, svaraði ég.
Þegar við ókum af stað frá
Fairfield, var eins og létt væri af
mér þungu fargi. Nú fannst mér
ég vera frjáls og hamingjusöm.
Nú var ég komin til sjálfrar min
aftur, — Kay Lausiston — ekki
aðeins stúlkan, sem Jónatan ætl-
aði að giftast. Chris ók hratt, án
þess að segja nokkuð. Hinir löngu
sterku fingur voru um stýrið, og
hann tók aldrei augun af veginum
framundan. Ég horfði á hann um
stund — hið vel lagaða höfuð með
dökka hárinu, skarpleitt niður-
andlitið og þétta litla munninn,
sem gat á snöggu andartaki
þiðnað i hlýju brosi.
Skyndiiega hemlaði Chris, og
stöðvaði bilinn á vegabrúninni.
— Attu ekki fjarskalega ann-
rikt?
— Nei — ég þarf aðeins að
heimsækja Max einhverntima
seinnipartinn. Ég þáði sigarett-
una, sem hann bauð mér, og augu
okkar mættust. Án þess að taka
augu sin frá minum, kveikti
hann i sigarettunum.
Það er nú einmitt að opnast
fyrir nér núna, Kay, að með þvi
að kvænast Fleur, hef ég i raun og
veru gil'/.t allri Blaney-fjölskyld-
unni. Likar þér sú hugsun að hið
sama hendi þig ef þú giftist
Jónatan?
Mér varð talsvert um það að
heyra allt i einu minar eigin hugs-
anir komnar i orð. Ég reyndi að
vikja mér undan spurningunni.
— Hvernig geturðu vitað þetta
eftir svo stutta viðkynningu?
— Ég fann það á sama augna-
bliki og ég setti fótinn inn fyrir
dyrnar á Fairfield. F'rú Blaney er
hreinræktuð hæsnamamma. Hún
elskar börnin sin, og sleppir þeim
ekki frá sér.
— Heldurðu að þú gangir ekki
of langt. . . .
Hann horfði fast á mig. — Get-
urðu virkilega sagt við mig með
höndina á hjartastað, Kay, að þú
sért ekki sama sinnis. Ef þú segir
,,nei” mun ég ekki trúa þér — þú
ert alltof lik mér sjálfum til þess
að hafa ekki rekið augun i þessa
augljósu staðreynd.
— Já, einmitt. Þú og ég, Kay,
erum sama manngerðin, þótt að
sjálfsögðu sé nægilega mikill
munur á okkur til þess að kunn-
ingsskapur er áhugaverður. —
Við munum alla tima standa
utanvið fjölskylduhringinn, Kay,
við verðum aldrei hluthafar þar.
Ég varð satt að segja hrædd, og
dálitið reið við hann af þvi það
var honum að kenna. Ég sneri
mér undan. — Þú færð þetta til
þess aö lita alveg hræðilega út,
sagði ég.
—• Já, það er ekkert liklegra en
að eitthvað hræðilegt geti gerzt i
þessu sambandi — en ég ætla
bara ekki láta það gerazt. Það er
þessvegna, sem ég fór til borg-
arinnar i dag. Ég ætla að finna
einhvern stað, þar sem við Fleur
getum búið. Ungkarlaibúð mina
kemur ekki til greina. Ég skal
finna nýjan stað handa okkur
strax i dag, án tillits til þess hvaö
hann kostar. F'leur álitur, að við
getum búið á Fairfield um sinn,
en ef við eigum að vera hamingu-
söm, verðum við að fara þaðan
eins fljótt og mögulegt er. Hönd
hans snerti mina. — Ef þú ert með
öllu viti, þá munt þú gera það
sama — haltu þér utanvið fjöl-
skylduhringinn. Hann hentar
sjálfsagt Stellu og Dorian, en ekki
mér — og hann mun heldur ekki
henta þér, Kay.
— Jónatan væntir þess ekki að
ég búi þar, sagði ég kuldalega. —
Ef til — vill byggjum við, og búum
á meðan i ibúðinni minni, sem
betur fer er hún nægilega stór
fyrir tvo.
— Glæsilegt, sagði Chris og
setti bilinn i gang.
Ég hafði ekki rétt góða
samvizku, þvi ég hafði hagrætt
sannleikanum. Jónatan hafði i
seinni tið verið eins og á báðum
áttum með það hvort við ættum
og gætum búiö i minni ibúð. En
hvað sem öðru leið, ætluðum við
fyrst að bregða okkur til
Ameriku, og mér fannst ég vera
nokkuð örugg um að fá mitt fram.
Þegar Chris leysti svo greinilega
frá pokanum, fann ég löngun og
reyndar þörf til þess að verja
sjálfa mig og Jónatan.
Hann hleypti mér út úr bilnum
utanvið ibúðina mina, og ég bauð
honum upp á drykk, en hann
hristi höfuðið og brosti.
— Þakka, ég vildi það svo
gjarnan, en það er ekki hægt i dag
— ég á það bara inni. Hann tók
hönd mina og hélt henni andar-
tak. — Gangi þér allt að óskum,
Kay, ég vona að Max hafi aðal-
hlutverk handa þér.
— Hver veit, sagði ég. — Gangi
þér svo allt að óskum i leit þinni
að ibúðinni.
Ég hringdi til Jónatans strax og
ég kom upp i ibúðina. Hann varð
alveg hissa. — Hvaða ósköp
liggur þér á. Hversvegna varstu
ekki kyrr á Fairfield til mánu-
dags, eins og um var talað.
— Max vill tala við mig um nýtt
hlutverk.
1101
Lárétt
1) F'ugl — 6) Tungumál — 10)
Nes — 11) Timi — 12)
Anganin — 15) Æsingur —
Lóðrétt
2) Gruna — 3) Svei — 4) Smá
— 5) Krakka — 7) Svik — 8)
F'ugl — 9) Bókstafi — 13)
Samfarir — 14) Rani —
ltáðning á gátu No 1100
Lárétt
1) Sviss — 6) Astkona — 10)
Te — 11) E1 — 12) Afbrots —
15) Gráti —
Lóðrétt
2) Vot — 3) Svo — 4) Bátar —'
5) Valsa — 7) Sef-8) Kór -
9) Net — 13) Ber — 14) Oft —
■BW
12 15 /V
HVELL
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
11:111
1,
SUNNUDAGUR
7. mai
8.30 Lctt morgunlög.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forustugreinum dag-
blaðanna.
9.15 Morguntónleikar.
11.00 Almennur bænadagur.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Sjór og sjávarnytjar,
14.00 Miðdegistónleikar:
Hljóðritun frá útvarpinu í
Leipzig.
15.30 Kaffitiminn. Hljómsveit
Jacques Loussiers leikur
léttar útsendingar á
klassiskum verkum.
15.50. Fréttir. Skáldsagan
„Virkisvetur” eftir Björn
Th. Björnsson.
16.55 Veöurfregnir.
17.00 Barnatfmi
18.00 Fréttir á ensku.
18.10 Stundarkorn með
Vladimir Asjkenazí.
18.30 Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 Bækur og bókmenntir.
20.00 Strengjakvai tett í G-dúr
eftir Antónin Dvorák.
20.35 „Hreiðrið”.
21.10 Haraldur Sigurðsson
píanóleikari frá Kaldaðar-
ncsi áttræður.
21.45 Ástin, vorið, ættjörðin.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.25. Fréttir i stuttii máli.
Dagskrárlok.
MÁNUDAGUR
8.mai
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Búnaðarþáttur.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Síðdegissagan: „Stúlka
i april”
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
15.15 Miðdegistónleikar.
16.15 Veðurfregnir. Létt lög.
17.00 Fréttir Tónleikar.
17.30 Saga frá Afríku:
„Njagwe” eftir Karen
Herold Olsen.
18.00 Fréttir á ensku,-
18.10 Létt lög. Tilkynn-
ingar.
19.00 Fréttir. Tilkynningar
19.30 Daglegt mál.
19Í35 Um daginn og veginn.
19.55 Mánudagslögin
20.30 iþróttalif. örn Eiðsson
20.55 Konsert fyrir pianó
21.20 islenzkt mál.
21.40 Samtímatónskáld.
22.00 Fréttir.
22.35.. Hljómplötusafnið
23.30. Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
7.mai
17.00 Endurtekið efni
Það er svo margt.
17.30 Suzanne Brenning
18.00 Helgistund
18.15 Stundin okkar
19.00 Hlé
20.00 F'réttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Á dansskónum
20.50 Á Myrkárbökkum
21.30 Maður er nefndur
22.00 Landsleikur i
knattspyrnu milli Breta og
Vestur—Þjóðverja
23.30 Dagskrárlok
MÁNUDAGUR
8. maí
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Skólahljómsveit Kópa-
vogs leikur
Stjórnandi Björn Guðjönsson.
20.50 Baráttusætið
Leikrit eftir Agnar Þórðarson
21.55 Ur sögu siðmenningar
Fræðslumyndaflokkur frá
BBC 5. þáttur.
22.45 Dagskrárlok