Tíminn - 07.05.1972, Síða 15
Sunnudagur 7. mai 1972.
TÍMINN
15
Vilja íþrótta-
kennaraskólann
buit frá Laugarvatni
S.l. fimmtudag boöaöi stjórn
iþróttakennarafélags tslands
blaöamenn á sinn fund og kynnti
skoðanir stjórnarinnar á mál-
efnum iþróttakennaraskólans og
þvi frumvarpi um skólann, sem
Alþingi fjailar nú um.
1 greinargerð stjórnar Iþrótta-
kennarafélagsins, en formaður
stjórnarinnar er dr. Ingimar
Jónsson, segir svo:
„Rétt fyrir þinglok vorið 1971
lagði fyrrverandi menntamála-
ráðherra Gylfi Þ. Gislason fyrir
Alþingi frumvarp til laga um
Iþróttakennaraskóla Islands.
Megninefni frumv. var að breyta
skyldi skólanum, er hingað til
hefur starfað sem eins árs skóli (9
mán.) i tveggja vetra skóla.
Frumv. gerði ráð fyrir að
skólinn yrði á Laugarvatni.
íþróttakennarafélag íslands
séndi menntamálaráðherra,
Magnúsi Torfa Ólafssyni umsögn
um frumvarpið þann 21. okt. 1971.
1 umsögninni segir m.a.:
„Stjórnin dregur mjög i efa, að
þær breytingar á skólanum, er
frumvarpið gerir ráð fyrir, séu
nægjanlegar til að koma menntun
iþróttakennara í viðunandi horf
og getur því ekkki lýst yfir
stuðningi sinum við frumvarpið,
heldur telur nauðsynlegt,að itar-
leg endurskoðun á þvi fari fram
hið bráðasta og áður en það
verður tekið til umræðu á ný á
Alþingi.” Ennfremur segir: „Það
er skoðun stjórnarinnar, að við
endurskoðun á frumvarpinu beri
að athuga gaumgæfilega, hvort
ekki væri ákjósanlegra að
menntun iþróttakennara fari
fram við Kennaraháskóla Is-
lands.”
Um mánaðarmótin
janúar/febrúar lagði mennta-
málaráðherra frumvarpið, litið
eitt breytt, á ný fyrir Alþingi.
Menntamálanefnd neðri
deildar Alþingis óskaði eftir um-
sögn félagsins um frumvarpið. I
þeirri umsögn itrekaði stjórnin
fyrri afstöðu sina og rökstuddi
hana ýmsum, rökum, sem tilfærð
verða hér á eftir. Menntamála-
nefnd neðri deildar tók litið tillit
til röksemda þeirra, er fram voru
settar i umsögn félagsins um
frumvarpið, en gerði óverulegar
breytingar á þvi. Neðri deild
Alþingis hefur nú afgreitt frum-
varpið til efri deildar.
Afstaða stjórnar tþrótta-
kennarafélags Islands til frum-
varpsins og menntun iþrótta-
kennara er i stuttu máli þessi:
1. Frumvarpið gerir ekki ráð
fyrir, að menntun iþróttakennara
skuli vera á háskólastigi eins og
almennt kennaranám og t.d.
handa vinnukennaranám.
Almennt kennaranám og handa-
vinnukennaranám er nú sbr. lög
Kennaraháskóla Islands 3ja ára
nám að loknu stúdentsprófi eða
igildi þess. Frumvarpið gerir hins
vegar ráð fyrir 2ja ára iþrótta-
kennaranámi og mun minni
kröfum til undirbúnings-
menntunar. Samkv. frumv. nægir
próf með ákveðinni lágmarks-
einkunn frá framhaldsdeild gagn-
fræðaskóla og jafnvel gagnfræða-
próf (sbr.aths.meöfrumv.) til aö
hefja nám viö tþróttakennara-
skóla tslands.
Ekki fer á milli mála, að með
samþykkt frumv. er menntun
iþróttakennara sett skör lægra en
almennt kennaranám og t.d.
handavinnukennaranám og
miklu minna metin en kennara-
menntun fyrir æðri skólastig.
Að áliti stjórnar tþrótta-
kennarafélagsins er þessi stefna
frumv. ekki aðeins i mótsögn við
mikilvægi likamsuppeldi
og iþrótta fyrir isienzku þjóðina
heldur háskaleg, þar sem hún
býður þeirri hættú heim að ó-
heppileg viðhorf skapist til
iþróttakennara og iþróttakennslu
og iþrótta yfirleitt.
Auk þess bendir stjórnin á, aö
samþykktfrumvhlýtur að hafa þá
afleiðingu I för með sér, að
iþróttakennarar njóti ekki sömu
launakjara og aðrir kennarar við
sömu skólastofnun.
2. Samkv. frumv. veitir próf frá
tþróttakennaraskóla Islands
aðeins réttindi til Iþróttakennslu,
sem þýðir að hrofið er frá þeirri
stefnu, sem mótuð var með lögum
nr. 16, 12,marz 1947 um menntun
kennara, en þar er kveðið á um,að
kennarar i sérgrein skuli hafa al
menn kennararéttindi.
Þvi verður varla á móti mælt,
að æskilegt væri, ekki sizt með
tilliti til þarfa minni skóla úti á
landsbyggðinni, að Iþrótta-
kennarar hefðu einnig réttindi til
kennslu i öðrum kennslugreinum.
3. Frumvarpið gerir ráð fyrir að
bundið verði i lögum að tþrótta-
kennaraskóli tslands skuli stað-
settur á Laugarvatni. Að dómi
stjórnar tþróttakennarafélagsins
er útilokað, að menntun iþrótta-
kennaraskóla Islands komist i
viðundandi horf i náinni framtiö,
ef hún á að fara fram að Laugar-
vatni. Að Laugarvatni er aðstaða
fyrir starfsemi skólans alsendis
ófullnægjandi núogtil þess að hún
verði viðunandi þarf að reisa
a.m.k. stórt Iþróttahús, sundlaug,
leikvelli, kennsluhúsnæði,
kennaraíbúðir, stærri heimavist
og fl. Með tilliti til fjárveitinga
skólans fram til þessa, má telja
fullvist, að seint gangi að reisa
slikar byggingar er kosta munu
rikissjóð tugi milljóna króna. Aö
auki má benda á, aö rekstur
Iþróttakennaraskólans er rikis-
sjöði mjög dýr. Arið 1970 var
kostnaður við rekstur skólans
tæpar 70 þús. kr á nemanda. Til
samanburðar má geta þess að
kostnaður við rekstur Mennta-
skólans á Akureyri var kr. 35 þús.
á nemanda árið 1970.
Stjorn íþróttakennarafélagsins
bendir einnig á, að staðsetning
skólans að Laugarvatni hefur i
för með sér, að iþróttakennara-
efni geta tæplega notið hand-
leiðslu sérmenntaðra iþrótta-
kennara- og þjálfara, sem völ er á
hér á landi i hinum ýmsu iþrótta-
greinum.
Að siðustu bendir stjórn
tþróttakennarafélagsins á, að
staðsetning skólans að Laugar-
vatni torveldi mjög, að menntun
iþróttakennara sé jafnan i nánum
og lifrænum tengslum við iþrótta-
starfsemina i landinu og að
Laugarvatni sé þess tæplega
kostur að kynna iþróttakennara-
efnum starfsemi iþróttafélaga,
þjálfun iþróttamannna, skipu-
lagningu iþróttamóta- og
sýninga.
Það er álit stjórnar tþrótta-
kennarafélagsins, að þessi rök
gegn frumv. séu það þung á
metunum að taka verði tillit til
þeirra. Stjórnin er þeirrar
skoðunar, að samþykkt frum-
varpsins seinki þvi um of að
menntun iþróttak.komist ivið-
unandi horf og hvetur til þess, að
menntun iþróttakennara verði
tekin til itarlegrar yfirvegunar.
t þessu sambandi vill stjórnin
undirstrika þýðingu likams-
uppeldis og iþrótta fyrir iselnzka
menningu. tþróttir eru snar
þáttur i lifi þjóðarinnar og i sam-
skiptum hennar við aðrar þjóðir.
Það er skoðun stjórnar tþrótta-
kennarafélagsins að ef stefna eigi
að framförum á sviði likamsupp-
eldis og iþrótta hér á landi verði
menntun iþróttakennara aö
grundvallast á vísindalegri
þekkingu og vera i samræmi við
nútimaleg iþróttafræði.
Að dómi stjórnarinnar veröur
slik menntun aðeins tryggð með
þvi, að hún fari fram á háskóla-
stigi. Stjórnin telur þvi eölilegt.að
athugun fari fram á þvi, hvort
Kennaraháskóli tslands geti tekiö
aö sér menntun iþróttakennara
og bendir i þvi sambandi á,að á
næsta vetri eigi að endurskoða lög
Kennaraháskólans.”
Aðförín að íþróttakennara-
skólanum að Laugarvatni
ákta
Þaö var Cató hinn gamli,
sem endaði ræður sinar með
þvi að leggja til, að Karþagó
yrði lögð i rúst. Gekk honum
heldur treglega að afla kenn-
ingu sinni fylgis i senatinu i
Róm, og rann mikið vatn til
sjávar, áður en Karþagó var
öll.
Enn þann dag i dag eru til
menn, sem taka Cató karlinn
sér til fyrirmyndar, og hér á
Islandi hefur hann eignazt
lærisveina, sem nota kenningu
hans óspart. Er nú hafin
skipulögð aðför að Iþrótta-
kennaraskóla tslands að
Laugarvatni — sbr. frétt hér
til hliðar á siðunni — undir for-
ustu dr. Ingimars Jónssonar,
formanns lþróttakennara-
félags tslands, og stjórnar
hans. Takmarkið virðist að
leggja Iþróttakennaraskólann
að Laugarvatni i rúst, en i
staöinn skulirísa öflug iþrótta-
deild innan Kennaraháskól-
ans, þar sem tryggt verði, að
nemendur fái staðgóða og
raunhæfa iþróttakennslu, en
það er álit núverandi forustu
manna tþróttakennarafélags-
ins, aö tþróttakennaraskólinn
á Laugarvatni sé allsendist
ófær um að gegna skyldum
sinum, og frumvarp það til
laga, sem nú er i meðförum
Alþingis, um breytingar á
skólanum, gangi allt of
skammt.
Ekki er hægt að neita þvi, að
i fljótu bragði virðist margt af
þvi, sem dr. Ingimar og félag-
ar hans, hafa til málanna að
leggja, orka sannfærandi,
og efast ég ekki um, að þeim
gengur gott eitt til. En það vill
oft verða þannig, þegar mönn-
um hleypur kapp i kinn, að
þeim yfirsést margt, og fyrir
kemur, að tilgangurinn er lát-
inn helga meðalið.
Eins og kunnugt er, hefur
staðið til alllengi að gera
breytingar á tþróttakennara-
skólanum, m.a. að lengja
námið um helming, og auk
þess ýmsar aðrar breytingar,
m.a. með strangari inntöku-
skilyrðum i skólann en verið
hefur. Ég held, að allir sann-
gjarnir menn, sem fylgzt hafa
með málefnum skólans, geri
sér grein fyrir, að þessar
breytingar séu ekki endanleg-
ar, heldur aðeins skref eða
áfangi i þeirri viðlei-tni að gera
skólann nýtizkulegri og hæfari
til að gegna hlutverki sinu.
Hefur núverandi skólastjóri,
Arni Guðmundsson, barizt
lengi fyrir umbótum á skólan-
um, en ávallt talað fyrir dauf-
um eyrum, þar til nú, að unnið
er að þvi á Alþingi að fá vissar
breytingar i gegn. En að
halda, að þar með hafi skólinn
fengið eitthvert eilifðarform,
er alger misskilningur, þvi aö
sömu lögmál gilda um
Iþróttakennaraskólann og
aðra skóla, að hann þarf stöð-
ugt að vera i endurskoðun.
1 athugasemdum sinum um
frumvarpið lætur stjórn
tþróttakennarafélagsins i Ijós
áhyggjur af þvi, að námið
skuli aöeins vera tveggja ára
nám á meðan almennt kenn-
aranám og handvinnu-
kennaranám sé þrjú ár, auk
þess, sem minni kröfur séu
gerðar um inntökuskilyrði i
tþróttakennaraskólann. Með
þessu sé menntun iþrótta-
kennara sett skör lægra en
annað kennaranám.
Ekki virðist stjórn Iþrótta-
kennararfélagsins hafa kynnt
sér frumvarpið nægilega vel,
hvað þetta atriði áhrærir, þvi
að i frumvarpinu er gert ráð
fyrir, að nemendur taki að sér
störf hjá iþróttahreyfingunni á
milli ára (þ.e. sumarið eftir
fyrra árið) og skoðast þau
störf sem liður i náminu. Með
þessu er námið á þriðja ár.
Það er svo annað mál, að
sjálfsagt er að lengja námið
frekar, en hæpið er að taka of
stórt stökk i einu. Hins vegar
ber hiklaust að stefna að þvi,
að lengja námið t.d. i þrjú eða
fjögur ár, innan fárra ára.
Um inntökuskilyrðin er það
að segja, að i frumvarpinu eru
þau hert, og er greinilega
stefnt að þvi, að i framtiðinni
verði stúdentspróf gert að inn-
tökuskilyrði.
t öðrum lið athugasemdar
stjórnar tþróttakennara-
félagsins er sagt, að með
frumvarpinu sé horfið frá
þeirri stefnu, að kennarar i
sérgreinum skuli hafa almenn
kennararéttindi.
Vitandi eða óafvitandi geng-
ur stjórn tþróttakennara-
félagsins framhjá þeirri stað-
reynd, aö ráð er fyrir þvi gert i
frumvarpinu, aö nemendur
tþróttakennaraskólans hafa
möguleika á að verða sér út
um almenn kennararéttindi
meö eins árs setu i Kennarahá
skólanum eftir að námi i
tþróttakennaraskólanum lýk-
ur. Þetta er mjög veigamikið
atriði.
1 þriðja lið athugasemdar
stjórnar tþróttakennara-
fél. er talið útilokað að hafa
skólann aö Laugarvatni, þvi
að núverandi aðstaða sé ónóg
og dýrt sé að reisa mannvirki
að Laugarvatni. Mér er spurn,
er eitthvað miklu dýrara að
reisa iþróttamannvirki á
Laugarvatni en i Reykjavik?
Þarf ekki alveg eins að reisa
þessi mannvirki i Reykjavik,
eða telur, stjórn tþrótta-
kennarafélagsins, að þau séu
fyrir hendi?
Einnig væri fróðlegt að fá
svör við þvi, hvernig stjórn
tþróttakennarafélagsins hefur
farið að þvi að reikna það út,
að kostnaður við nemenda á
tþróttakennaraskólanum á
Laugarvatni hafi verið 70 þús-
und krónur á meðan kostnaður
viö menntaskólanema á Akur-
eyrieraðeins 35 þúsund krón-
ur.
Það villsvo til, að ég hef um
margra ára skeið fylgzt með
málefnum skólans og veit, að
fyrrgreinda talan er alröng,
og sennilega hefur stjórn
tþróttakennarafélagsins failið
i þá gildru að taka með i
reikninginn kostnað við
iþróttamannvirkin á Laugar-
vatni, t.d. reksturinn á
iþróttahúsinu, sem notað er af
öllum nemendum hinna
mörgu skóla aö Laugarvatni,
og jafnframt kostnað við
rekstur iþróttavallanna, sem
ekki einungis eru notaðir af
nemendum tþróttakennara-
skólans heldur og af sumar-
búðaunglingum á vegum tSt.
Er auðvitað mjög auðvelt að
hækka kostnað viö hvern nem-
anda Iþróttakennaraskólans,
ef slikri reiknislist er beitt.
Um það atriði i gagnrýni
stjórnar tþróttakennara-
félagsins, að iþróttakennara-
efnin geti ekki notið hand-
leiðslu sérmenntaðra iþrótta-
kennara af þvi aö skólinn sé
staðsettur að Laugarvatni, er
það að segja, að slik gagnrýn
fellur um sjálfa sig. Nú er til
að mynda starfandi að
Laugarvatni iþróttakennari,
sem hefur knattleiki að sér-
grein, landsliðsmaður i tveim-
ur greinum og hefur staðgóða
þekkingu á hinni þriðju. Efast
ég um, að hæfari mann sé að
finna annars staðar hérlendis.
Hvers vegna ættu slikir menn
ekki að fást til starfa úti á
landi sem annars staðar?
t lokaorðum athugasemdar
stjórnar tþróttakennara-
félagsins segir, að með stað-
setningu skólans að Laugar-
vatni, sé komið i veg fyrir, að
menntun iþróttakennara sé
jafnan i nánum tengslum við
iþróttastarfsemina i landinu!
Þýðir þetla kannski, að iþrótt-
ir séu hvergi iðkaðar i landinu,
nema i Reykjavik?
Fróðlegt væri að ræða
margt fleira i greinargerð og
athugasemdum stjórnar
lþróttakennarafélagsins, en
það verður látið biða betri
tima. En það verður að segj-
ast eins og er,að ótrúlegur ein-
strengingsháttur einkennir
allan málflutning dr. Ingi-
mars og hans manna, eins
konar Cató-ismi. Til að mynda
loka þeir algerlega augunum
fyrir þeirri staðreynd, að jafn-
hliða uppbyggingu mann-
virkja við tþróttakennara-
skólann að Laugarvatni, er
verið að reisa glæsilega
iþróltamiðstöð fyrir börn og
unglinga, aðallega frá þétt-
býlissvæðinu, en með þvi fæst
lullkomin nýting á dýrum
mannvirkjum. llefur iþrótta-
forustan i landinu fagnað
þessari uppbyggingu og lekur
heilshugar þátt i henni, en hér
er átt við tSl. I annan stað vex
dr. Ingimar ogfélögum allt of
mikið I augum fjarlægöin milli
Reykjavikur og Laugarvatns.
Með batnandi vegakerfi,
steyptum og malbikuðum veg-
um, styttist leiðin, auk þess,
sem ráð er fyrir þvi gert i
frumvarpinu, að skólinn geti,
eins og hann hefur jafnan gert,
flutt sérstaka þætti starfsemi
sinnar á aðra staði. Til að
mynda hefur skiðakennsla
skólana ávallt farið fram fyrir
norðan eða vestan, a.m.k. hin
siðari ár.
Það er hægt að taka undir
með stjórn iþróttakennara-
lélagsins að gera þurfi strang-
ar kröfur til iþróttakennara-
náms. Um það held ég, að allir
séu sammála. En það er alger
misskilningur að halda, að
iþróttakennaramenntun taki
framförum með þvi aö leggja
tþróttakennaraskólann að
Laugarvatni niður og gera
hann að deild i Kennara-
háskólanum. Þvert á móti á
að slá skjaldborg um skólann
að Laugarvatni og reyna með
öllum ráðum að efla hann,
bæði með nýjum mannvirkj-
um og tækjabúnaði, auk þess,
sem gera verður eðlilegar
breytingar á námsefni hans
eftir þvi, sem kröfurnar breyt-
ast. Þannig verður iþrótta-
kennaramenntun á tslandi
bezt borgið.
—alf.
Audýs
. endur
Auglýsingar, sem eiga að koma f blaðinu á sunnudögum þurfa að
berast fyrir kl. 4 á föstudögum.
Augl.stofa Timans er f Bankastræti 7. Simar: 19523 • 18300.