Tíminn - 07.05.1972, Síða 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 7. mai 1972.
Umsjón: Einar Björgvin
lan Gilling með lifrar-
bólgu í 7.9 millj. húsi
lan (áilling fyrir utan nýja húsiA. — llann ætlar nú að hvilast i tvo
mánuði.
h>ær miklu tekjur, sem það hef-
ur i för með sér að vera söngvari i
brezku hljómsveitinni Deep
Purple, ásamt þeim rúmlega
fjóru krónum,sem sá söngvari fær
i hvert sinn,sem eintak af „Jesus
Christ-Superstar”selst, hafa gert
Ian Gilling kleift að festa kaup á
húsi i útjaðri London.
1 langan tima hef óg litið ver-
ið heima, en þaö var þó ágætt með
fjöldanum af þægilegum atburð-
um. En svo varð ég veikur af lifr-
arbólgu, og læknirinn hefur skip-
að mér að taka mér tveggja mán-
aða hvild, segir Ian.
Kyrir húsið greiddi Ian Gilling
7,9 milljónir isl. króna — og hann
telur, að hið 275 fermetra hús sé
þeirra peninga virði.
MANDALA” VERÐUR
AÐ VERA GÓÐ
Gunnar Pórðarson
Sainkvæmt þeim upplýsing-
um, sem cg hcf fengið, vcrður
hin nýja LP-plata Trúbrots,
„Mandala”, komin i hljóm-
plötuverzlanir um 20. mai
næst komandi. Nokkur spenna
rikir um útkomu þessarar
plötu, þar sem margir telja,
að hún sanni hvar Trúbrot er
statt þessa stundina.
Trúbrot hefur nú undanfarið
leikiö talsvert á opinberum
stöðum, bæði hér i Reykjavik
og annars staðar. Hljómsveit-
in hefur hlotið misjafna dóma,
flesta neikvæða fyrir hana.
Hins vegar er það ekki stimp-
ill á gæði hljómsveitarinnar,
þar sem hún fór þegar að spila
á opinberum stöðum, þegar
þeir félagar i henni komu frá
Kaupmannahöfn, eftir mikla
vinnu við gerð LP-plötunnar.
Ef platan er góð, á Trúbrot
enn mikið undir sér.
I þessu sambandi sakar ekki
að taka fram, að ég er þeirrar
skoðunar, að Trúbrot hefði
ekki átt að byrja þegar að
spila á opinberum stöðum, eft-
ir aö vinnan við LP-plötuna
var að baki. Þeir Trúbrots-
félagar hefðu átt að gefa sér
einhvern tima til æfinga fyrir
tónlistarflutning á skemmti-
stöðum, áður en þeir fóru á
staðina.
Völd Náttúru hafa alls ekki
verið skert með hingaðkomu
Trúbrots aftur, og Svanfriður
sækir enn á. Það er þvi mikið i
húfi fyrir Trúbrot. LP-plata
hljómsveitarinnar verður að
vera góð, eigi hljómsveitin að
halda stöðu sinni.
Hér er kominn
Óttar Felix
- og hefur sitthvað að segja
Ekki alls fyrir löngu kom sá
maður hingað til lands, sem
lengi hefur verið beðið eftir,
„leiðandi kúltúrhetja” ungu
kynslóðarinnar á Fróni.
Maður, sem um árabil hefur
blásið þreki i brjóst sam-
ferðarmanna sinna — þreki til
að standa á rétti nýrra við-
horfa og nýs gildismats — og
hefur öðrum fremur rutt úr
vegi ihaldssömum skoðunum
og kafaldshugsunarhætti.-
Hér er komin Frónverji
framtiðarinnar, Óttar Felix
Hauksson.
— Heimferðin gekk vel fram
að tollskoðun, segir Óttar, —
en þá gerðu rikisstarfsmenn
svo öfluga leit að „hug-
vikkunarefnum”, að ég missti
af öllum bilferðum i bæinn.
— Nú hefur þú dvalizt i
Kaupmannahöfn um tima,
Óttar Felix, hvernig finnst þér
að vera kominn heim?
— Mér finnst ánægjulegt að
vera kominn heim. Ég finn
ætið til velliðunarkenndar
þegar ég sný aftur heim til
vina minna og föðurlands eftir
langar fjarvistir.
— Hvað er nú efst á baugi i
Kaupmannahöfn?
— Otul barátta mennta-
manna og annarra þjóðfélags-
legra þenkjandi manna gegn ■
yfirvofandi hættu á inngöngu
Dana i Efnahagsbandalag
Evrópu, og má segja,að þar sé
danska þjóðin betur á verði
gegn auðvaldinu en við Frón-
verjar — og einkennast dag-
blaðaleiðarar og fjöldafundir
þar af hatrömmum deilum um
jákvæði og neikvæði EBE.
— Hvað finnst þér mest
skorta þar um hér á landi?
— öfluga upplýsingaþjón-
ustu, sem vinstri menntamenn
ættu að koma á hið fyrsta,
opna skrifstofu og gefa út
upplýsingabæklinga um eðli
og tilgangs Efnahagsbanda-
lagsins.
— Er aukaaðild tslands að
Efnahagsbandalaginu rétt-
lætanleg?
— Þar sem Rómarsáttmál-
inn felur ekki i sér úrgöngu-
heimild, hvorki fyrir fullgilda-
né aukaaðild, er innganga
landsins i bandalagið bein
ógnun við lýðræðislegt hag-
kerfi.
— Nú hefur þú, Óttar Felix,
dvalizt erlendis i tæpt ár sam-
fleytt. Hverjar voru þær
breytingar, sem þér bar fyrst
fyrir augu hingaðkominn
aftur?
— Þær óheillavænlegu
brautir, sem áberandi hluti
islenzks æskufólks stefnir inn
á — sá hluti æskufólks, sem ég
vona að sé minni hluti, en fær
tveggja ef ekki þriggja tima
þáttt i sterkasta fjölmiðlunar-
tæki þjóðarinnar, sjónvarpinu
til að útbreiða að nýju þá firru,
að baráttán fyrir betri heimi
sé fólgin i upphafningu ofur-
mennisins, i þessu tilfelli trúin
á „ofurmennið” Jesú Krist og
hráar kenningar bibliunnar.
Ætti fólk þetta hið skjótasta, i
krafti æsku sinnar, að snúa sér
að áþreifanlegri baráttu fyrir
hamingjusamari og lifvæn-
legri afkomu einstaklingsins.
Nú var tekið upp heldur
léttara hjal. Óttar Felix var
spurður að þvi, hvort hann
teldi islenzku popphljóm-
sveitirnar góðar miðað við
hljómsveitir frænda okkar i
Danaveldi.
— Ég tel, að islenzkir hljóm-
listamenn standi Dönum ekki
að baki, en þó finnst mér hæst
borguðu dönsku hljómsveitir-
nar ná mun betur saman en
þær hæst borguðu islenzku,
enda er það ekki nema eðli-
legt, þar sem dönsku hljóm-
sveitirnar hafa mun betri upp
vaxtarskilyrði i fjölmennara
þjóðfélagi.
— Hvað hefur þú að segja
um poppheiminn hér?
— Á þvi ári, sem ég hef verið
erlendis, hefur tónlistarmönn-
um farið mikið fram, en þvi
miður hefur mér ekki tekizt
að heyra i þeim öllum. Ég var
viðstaddur á lokadegi upptöku
Trúbrots á nýjustu LP-plötu
hljómsveitarinnar,
„Mandala”, og varð satt að
segja stórhrifinn. Mér finnst
platan skemmtileg framför
frá „Lifun”, meiri andstæður i
tónlistinni, betra form og lit-
rikari — og hefði 'ég gaman af,
ef hljómsveitin hlyti fljótlega
þá alþjóðlegu viðurkenningu,
sem hún á skilda, þvi að
félagarnir i Trúbroti eru
heiðárlegir listamann.
r
HEY-
SKAP-
INN
Robert Plant söngvari Led
Zeppelin er nú að hugsa um að
eyöa þessu sumri á rólegan hátt á
sveitabæ sinum og hjálpa til við
uppskeruna og önnur störf, sem
vinna þarf þar á bænum. Hjá ná-
grönnum sinum hefur hann lært
að aka dráttarvél — og siðan hef-
ur verið sagt að talsvert bónda
efni sé i Róbert.
— t marga mánuði hafði ég
ekki séð konu mina ogson, svo að
einungis fyrir þá sök er ágætt að
vera heima, vera i umhverfi, sem
ekki minnir neitt á skemmtana-
iðnaðinn. Ég vil ekki einu sinni
hengja gullplötur Led Zeppelin
upp á veggi sem minjagripi —
mér finnst þær viðbjóðslegar og
algjört skrum.
Robert Plant — liklega orðinn þreyttur i „bransanum”
ROBERT PLANT I