Tíminn - 11.05.1972, Page 11
Fimmtudagur 11. mai 1972
TÍMINN
11
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Næturfundur um íþróttakennaraskólann
Alf-Reykjavik — í —
fyrrakvöld efndi stjórn
íþróttakennarafélags
íslands til fundar að
Hótel Esju um málefni
íþróttakennaraskólans.
Var fundurinn mjög fjöl-
sóttur, en á annað
hundrað iþrótta-
kennarar sóttu fundinn,
sem stóð fram á nótt, en
honum lauk ekki fyrr en
á öðrum timanum.
Á fundinum var einkum rætt
um staðsetningu Iþróttakennara-
skólans, hvort heldur hann ætti að
vera i Reykjavík eða að Laugar
vatni. Flestir þeirra, sem töluðu, M
mæltu með þvi, að skólinn yrði að
Laugarvatni, en helzti talsmaður
þess, að skólinn verði fluttur til
Reykjavikur, var dr. Ingimar
Jónsson, formaður Iþrótta-
kennarafélagsins.
Meðal þeirra sem töluðu á
fundinum, var Ragnar Arnals,
formaður menntamálanefndar
efri deildar Alþingis. Lýsti hann
þeirr. skoðun sinni, að skólinn
ætti að vera að Laugarvatni og
kvaðst hann mundu beita sér
fyrir því, að frumvarp það,
um Iþróttakennaraskólann, sem
neðri deild hefur þegar sam-
þykkt, verði að lögum á þessu
þingi.
Annar alþingismaður, sem
mætti á fundinum, Ellert
Schram, kvaðst ekki hafa
sannfærzt um það, að skólanum
væri betur fyrir komið i Reykja-
vik en að Laugarvatni.
Meðal gesta á fundinum i gær
voru m.a. Arni Guðmundsson,
skólastjóri Iþr.óttakennara-
skólans, og Þorsteinn Einarsson,
iþróttafulltrúi rikisins.
Engin merki
um hauskúpur
- þegar íslendingarnir slóguí
Fyrir síðustu helgi kom heim
frá Skotlandi 88 manna hópur
islenzkra golfáhugamanna, sem
dvalizt hafði i East Lothian i 9
daga. Þar var ieikið golf á einum
átta völlum, sem voru hver
öðrum betri, enda eru á þessum
slóðum einhverjir mestu og beztu
golfvellir i heiminum.
Ferðin var farin á vegum
Flugfélags Islands, og var þetta
þriðja ferðin, sem félagið stendur
fyrir á þessar slóðir. Ekki mun
þessi ferð hafa gefið hinum tveim
fyrri neitt eftir, enda var keppzt
við að gera öllum til hæfis. Veður-
guðirnir voru þó ekki nógu hlið-
hollir þessum hóp. Að visu var
alltaf hlýtt i veðri, en eina þrjá
daga var nokkur vindur, og hann
er litt vinsæll meðal þeirra, sem
leika golf.
Einn dagur var þó öllum öðrum
betri, en það var þriðjudagurinn.
Þá fór fram keppni um hinn
vandaða Ferðabikar FI, sem
keppt er um i þessum ferðum.
Þegar keppnin fór fram, var
glaða sólskin og hiti yfir 20 stig.
Leikið var á North Berwick East
Links, sem er 18 holu völlur, 6100
yardar á lengd og hefur par 69.
Þessi völlur var upphaflega
gerður árið 1894 og er mjög góður
og skemmtilegur, eins og reyndar
flestir vellir þarna i nágrenninu.
A þessum velli fannst fyrir all
löngu beinagrind af einhverjum
fornaldarmanni, og ekki alls fyrir
löngu kom það fyrir, að maður,
sem var að slá upp úr sandgryf ju,
sló bæði bolta sinn og hauskúpu
upp á flötina úr sandinum.
Ekki kom neitt af slfku upp úr
gryfjunum, sem tslendingarnir
slógu úr i sinni keppni — enda
fagurlega slegið af mörgum, sem
voru orðnir vanir þvi að lenda i
sandgryfjum. 1 keppninni tóku
þátt á milli 70 og 80 keppendur,
þar af einar 15 konur og tveir ung-
lingar. Aðalkeppnin var um
Ferðabikarinn, en hann var
veittur fyrir sigur með forgjöf.
Þá voru veitt verðlaun án for-
gjafar, og svo verðlaun i kvenna-
flokki.
Orslit i keppninni með forgjöf
urðu þau, að Gunnar Þorleifsson,
GR, sigraði á 63 höggum nettó. I
2. og 3. sæti urðu þeir jafnir, Vil-
hjálmur Arnason, GR, og Þor-
varður Arinbjarnarson, GS, á 65
höggum nettó, en Vilhjálmur
sigraði i aukakeppninni.
Annars varð röð efstu manna
þessi:
Gunnar Þorleifsson, GR 80-17 = 63
Vilhjálmur Arnason, GR 82-17 = 65
Þorvarður Arinbj.GR 86-21 = 65
Guðmund. Ófeigs. GR 86-19 = 67
Guðmund. Þórarinss.GV 79-l1 = 68
Bezta árangri náði Þorbjörn
Kjærbo, GS, en hann lék völlinn á
76 höggum, sem er aðeins 7 yfir
par. Hann hefur lægstu forgjöf
allra tslendinga eða 2, og kom þvi
inn á 74 höggum nettó. Hann var
þrem höggum betri en næstu
menn, sem voru þeir Pétur
Antonsson, GS, og Vestmannaey-
ingurinn Guðmundur Þórarins-
son (Týrsi), sem léku á 79 högg-
um. A eftir þeim kom svo sjálf
kempan Gunnar Þorleifsson á 80
Islandsmeistararnir
gegn Skotum í kvöld
í kvöld, fimmtudagskvöld, leika íslandsmeistarar Keflavlkur,
gegn skozka l.deildar liðinu Morton. Fer leikurinn fram á
Laugardalsvellinum og hefst kl. 20. Verður fróðlegt að vita,
hvernig tslandsmeisturunum vegnar gegn þessu skozka liði.
A myndinni að ofan sjást Skotarnir „hreinsa” frá marki, en
Hermann Gunnarson er i fremstu vigllnu hjá íslenzka liðinu.
(Tímamynd Gunnar.)
Sárabót
fyrir
Fram
Knattspyrnumönnum Fram
hefur bætzt góður liðsmaður frá
Selfossi. Einn af beztu leik-
mönnum Selfoss, Gylfi Gislason,
mun leika með Fram í sumar, en
hann mun dvelja í Reykjavik
a.m.k. fram til haustsins. Gylfi er
iþróttakennari að mennt, og er
óráðið hvort hann fer til Selfoss i
haust.
Eins og kunnugt er, hefur Fram
misst marga leikmenn út á land.
Þykir Frömurum það nokkur
sárabót að fá Gylfa i staðinn.
Tjarnarboðhlaup KR
er á sunnudag
Tjarnarboðhlaup KR fer fram
nk. sunnudag, en keppt er i 10
manna sveitum eins og áður.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að tilkynna þátttöku sina
til Olfars Teitssonar i sima 18000
i siðasta lagi föstud. I2.mai. I
fyrra sigraði sveit KR i hlaupinu.
Ford-keppninni
lýkur í dag
Útsláttarkeppninni á vegum
F’ord, lýkur i dag, en i henni tóku
þátt eitt þúsund drengir á
aldrinum 8 til 13 ára —• Tiu stiga-
hæstu drengirnir i hverjum
aldursflokki keppa til úrslita og
verður úrslitakeppnin á Laugar-
dalsvellinum á laugardag kl.
15.00 — Þá mun hinn heimskunni
knattspyrnumaður Bobby
Charlton frá Manchester United
afhenda verðlaun, en þrir efstu
drengirnir i hverjum aldursflokki
fá verðlaunabikara, en allir þeir,
sem keppa til úrsiita fá minja-
gripi, svo sem áritaða mynd af
Bobby Charlton, sérstakt
heiöursskjal og búningatösku.
Bobby Charlton er væntanlegur
hingað til lands siðdegis á föstu-
dag, og hann heldur utan aftur á
sunnudag.
Mót í dag
A fimmtudaginn
(uppstigningardag) fer fram 18
holu höggleikur hjá GR, og hefst
keppnin kl. 13.30. A sama tima fer
fram keppni um Nessbjölluna hjá
GN á Seltjarnarnesi.
Ekki er okkur kunnugt um fleiri
mót þennan dag, enda hefur
okkur aðeins borizt kappleikja-
skrá sumarsins frá þessum tveim
Reykjavikurklúbbum.
Þau hlutu öll 1. verðlaun i golfkeppni Islendinga í Skotlandi i siðustu viku. Talið frá vinstri: Gunnar
Þorleifsson, sem sigraði í keppninni með forgjöf. Ágústa Guðmundsdóttir, sem sigraði I keppni kvenna
og Þorbjörn Kjærbo, sem sigraði í keppninni án forgjafar. (Timamynd — klp — )
höggum.
I kvennaflokki röðuðu frúrnar
frá Vestmannaeyjum sér i þrjú
efstu sætin. Agústa Guðmunds-
dóttir lék á 69 höggum nettó,
Sigurbjörg Guðnadóttir á 71
höggi, Jakobina Guðlaugsdóttir á
77 höggum og i 4. sæti kom Guð-
finna Sigurþórsdóttir, GS, á 81
höggi. Agústa náði bezta árangri
bæði með og án forgjafar, en hún
lék á 93höggum. -klp-