Tíminn - 25.05.1972, Síða 16
16 TÍMINN Fimmtudagur 25. mai 1972.
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Okkur barsl nýlcga þessi skemmtilega mynd af italska há-
slökkvaranum Frminio Azzaro, en hann er Italskur meistari.
Azzo komst i úrslit á FM i Helsingfors i fyrrasumar, en tókst illa
upp i úrslitakeppninni. Hann þurfti að stökkva 2,12 m til aft kom-
ast i úrslitakeppnina og þaft gerfti hann, en i úrslitunum stökk
liann afteins 2,05 in og varft 17. i röðinni. Hann æfir af krafti fyrir
Munchen-leikana eins og fleiri og hyggst komast á verðlauna-
pallinn. Ilcr cr Azzaro aft stökkva yfir 2,18 m.
Góð fararstjórn, þrátt
fyrir leiðindaatburð
Það verður ekki annað
sagt, en för islenzka lands-
liðsins í knattspyrnu hafi
tekizt vel, og er það ekki
sizt að þaka mjög góðri
fararstjórn, en aðalfarar-
stjóri i ferðinni var Albert
Guðmundsson, formaður
KSi. Ásamt honum voru í
fararstjórn Jens Sumar-
liðason og Hreggviður
Jónsson, úr stjórn KSi, og
auk þess Hafsteinn Guð-
mundsson landsliðsein-
valdur, og Duncan
McDowell, þjálfari.
Að vísu get ég ekki dæmt um
þann leiðindaatburð, sem eitt
dagblaðanna skýrir frá i gær, og
átti aö eiga sér stað i flugvél
k’lugfélags tslands á Lundúna-
flugvelli, þar sem ég flaug ekki
með sömu vél. Um það fjalla
aðrir aðilar. En það er sérstök
ástæöa til að hrósa farar-
stjórninni fyrir röggsamlega
stjórn/sem án efa átti sinn þátt i
góðri frammistöðu islenzku
landsliðspiltanna i landleikjunum
gegn Belgiumönnum.
I BrCíssel var búið á Hotel
Plaza, sem er gamalt og virðulegt
hótel. t>ar var öll framkoma
piltanna til fyrirmyndar svo og
utan hótelsins. Fararstjdrarnir
voru ávallt til reiðu og fylgdust
vel með piltunum. Alger reglu-
semi rikti, og piltarnir neyttu
ekki áfengis i allri ferðinni, nema
hvað þeir voru leystir út með bjór
eftir siðari landsleikinn og
drukku hann á leiðinni til
hótclsins i áætlunarbilnum. Það
getur varla talizt synd eftir góða
frammistöðu.
Það er mjög áriðandi i ferðum
eins og þessari, að til fararinnar
veljist góðir fararstjórar, sem
eru piltunum til fyrirmyndar. t
mörgum ferðum til útlanda með
iþróttahópum, hef ég orðið var
Englendingar urðu fyrir enn
einu áfallinu á knattspyrnu-
sviðinu, þegar þeir töpuðu fyrir
Norður-trum 0:1 á Wembley i
fyrrakvöld i keppni brezku lands-
liðanna.
Eina mark ieiksins skoraði
fyrirliði norður-irska lands-
liðsins, Terry O’Neill i fyrri hálf-
leik,en eftir það sótti enska lands-
liðið, eins og það raunar gerði
allan leikinn, mjög stift, án þess
að ná þvi að skora.
Alf Ramsey, enski landsliðsein-
valdurinn hefur orðið fyrir mikilli
við hið gagnstæða, þvi miður.
Þess vegna er ánægjulegt að geta
skýrt frá,þegar vel tekst til, eins
og i þessari för. -alf
gagnrýni i enskum fjöl-
miðlum vegna lélegrar frammi-
stöðu enska landsliðsins undan-
farið. Hafa verið uppi háværar
raddir um, að hann þyrfti að
yngja liðið upp. t þessum leik
varð Ramsey að nokkru leyti við
kröfunum. Til að mynda lék
enginn af heimsmeisturunum frá
1966 með liðinu.
Þetta er i annað sinn á 49 árum,
sem Norður-lrum tekst að sigra
Englendinga. Rikir að vonum
mikill fögnuður á Norður-lrlandi
vegna sigursins.
Alf Ramscy, til hægri, og Helmund Schön einvaldur v-þýzkrar knatt-
spyrnu. Schön horffti á báða landleiki tslands og Belgiu, enda eiga
Vestur-Þjóðverjar aft mæta Belgiumönnum i undanúrslitum -Evrópu-
keppni landsliða innan skamms.
ENN EITT ÁFALL
ENGLENDINGA
8174 högg slegin í Faxakeppninni í Vestmannaeyjum
- Þeir Einar Guðnason og Öttar Yngvason notuðu fæst högg hinna 50 keppenda, 153 talsins
Eina opna golfkeppnin
sem haldin er i Vestmanna-
eyjum, fór fram um hvita-
sunnuna. I.eikið var á velli
GV i Herjólfsdal, en á honum
hafa verift gerftar miklar
lagfæringar aft undanförnu.
Hefur hann m.a. verift
lengdur efta i 2748 metra og
orðin par :15. Flatirnar á
þessum vclli eru trúlega þær
beztu sem fyrirfinnast hér á
landi, — en völlurinn er allur
liinn skemmtilegasti.
t þessari keppni, sem ber
nafnið Faxakeppni og Flug-
félag tslands gefur verðlaun
til, voru leiknar 36 holur.
Keppendur voru um 50
talsins, þar af komu einir 20
kylfingar úr landi og bjuggu
þeiri góðu yfirlæti hjá Eyjar-
skeggjum yfir helgina.
Veður var heldur leiðin-
legt til keppni báða dagana
— mikið rok — og inn i
dalnum blés úr öllum áttum.
Þrátt fyrir það léku flestir
keppendur mjög vel, t.d. fóru
þeir Einar Guðnason og
Björgvin Hólm völlinn á pari
fyrri dag keppninna. Þeir
voru efstir eftir fyrri daginn
ásamt Atla Aðalsteinssyni,
en siðari daginn komst óttar
Yngvason upp á milli þeirra
og var þá á samtals 153
höggum. Einar Guðnason
kom þá einnig inn á 153
höggum, en Atli Aðal-
seinsson, var einu höggi
verri, 154. Hann atti mögu
leika á að ná þeim á siðustu
holu, en mistókst að setja
niður eins og hálfs m. pútt.
A eftir honum komu svo þeir
Björgvin Hólm og Jón H.
Guðlaugsson á 155 höggum,
og þar á eftir unglingalands-
liðsmarkvörðurinn i knatt-
spyrnu, Ársæll Sveinsson, á
156 höggum.
A þessu sést hvað keppnin
var geysihörð, meðal efstu
manna. Það kom á óvart að
heimamenn skyldu ekki
verða i efstu sætunum án
forgjafar, en þeir röðuðu sér
i öll efstu sætin meö forgjöf,
en þar urðu úrslit þessi:
Georgc II. Tryggvason,
GV 136 högg netto
Jón II. Guðlaugsson, GV 139
högg nettó
Arsæll Sveinsson, GV 140
högg ncttó
Atli Aftalsteinsson, GV
högg netto
140
153
(Arsæll sigraði Atla i
aukakeppni um 3ju verð-
launin)
Keppnin án forgjafar veitti
stig i stigakeppni GSt til
landsliðsins og fá 10 efstu
menn sig. Þar urðu úrslitin
þessi:
Verftlaunahafarnir I Faxakeppninni I Vestmannaeyjum. Talift frá vinstri: Atli Aftatsteinsson, GV,
Einar Guönason, GR, Óttar Yngvason, GR, Arsæll Sveinsson, GV, Jón H. Guömundsson, GV og Georg
II. Tryggvason, GV. (Timamynd -klp-)
Einar Guðnason, GR
högg
Óttar Yngvason, GR153 högg
Atli Aðalsteinsson, GV 153
Jón H. Guðlaugsson, GV 155
Björgvin Hólm, GK 155
Ársæll Sveinsson, GV 156
Haraldur Júliusson, GV 158
Gunnlaugur Ragnarsson,
GR 160
Július R.Júlíusson, GK 164
Hallgrimur Júliusson, GV 167
Þeir Einar og Óttar léku
aukakeppni um l.verðlaunin
og sigraði Einar á henni á 2.
holu, en þeir urðu jafnir á
þeirri fyrstu.
Eins og fyrr segir voru um
50 keppendur i þessu móti og
slógu þeir samtals 8174 högg.
1 sambandi við þessa keppni
fór fram óopinber bæjar-
keppni milli Reykjavikur og
Vestmannaeyja. Var tekinn
bezti árangur 6 manna frá
hvorum stað á 18 holum
siðari daginn og sigruðu
Eyjamenn i þeirri viðureign
á 479 höggum gegn 495
höggum Reykvikinga.
Næsta opna golfkeppnin,
sem fer fram hér á landi,
verður um næstu helgi i
Hafnarfirði. Þá fer fram
Þotukeppni GK og verða
leiknar 36holur. Helgina þar
á eftir fer svo fram opin
keppni hjá Golfklúbb Ness og
verður þar um að ræða
flokkakeppni. -klp-