Tíminn - 25.06.1972, Blaðsíða 13
121
TÍMINN
Sunnudagur 25. júní 1972
Sunnudagur 25. júnl í972
TÍMINN
13
^BÞSVEINN EGILSSON %
FORD HÚSINU SKEIFUNN117 SÍMI 85100
UMBOÐSMENN UTI A LANDI: V
AKRANES: BERGUR ARNBJORNSSON *
BOlUNGARVlK: BERNODUS HALLDORSSON V
SIGLUFJORÐUR: GESTUR FANNDAL V
VESTM EYJAR SIGURGEIR JÓNASSON
SUÐURNES KRISTJAN GUÐLAUGSSON — SlMI 1804 KEFLAVIK
VIÐGERÐARÞJONUSTA:
AKRANES; BlLAMIÐSTOÐIN
VÉLSMIÐJA BOLUNGARVlKUR
VESTM.EYJAR: BlLAVER
Guðmundur Ingi Kristjánsson:
|
I
|
i
i
A Samvinnudegi
1972
Flutt á hátíðarsamkomu
i Háskólabiói á miðvikudaginn
Sprotinn
Hann stóð, við Þverá með hamingjusprota við hlið
i hita þess erfiða dags, þegar mest er að vinna.
1 spurningum efans sprotinn veitti honum lið,
og sprotinn var hans, — og þó var hann allra hinna.
Þeir stóðu þar allir, stæltir og sólbitnir menn,
og studdust við sprotann í nýju, framandi verki.
Svo stigu þeir fram til sóknar allir i senn.
Og samvinna þeirra var sprotans endurskinsmerki.
Þar lögðu þeir upp. Og leiðin var stundum þung
og löngum harðsótt um ókönnuð verzlunarsvæði.
En sigurfluga þeirra er alltaf ung,
þótt uppruninn sé i fornum vefaraþræði.
Og Þverá, hún rann i elfu hins ókomna dags
með iðandi flaum, en stundum lukta með svelli.
Og þannig var ferill þess baráttubræðralags,
sem batt sinar tryggðir i samband á Yztafelli.
Þar heilluðu naumast nokkur munaðarföng
hjá nauðsynjum brýnum undir lágreistum súðum.
En timarnir breytast, og leiðin er orðin löng
að ljósum og viðum og auðugum kaupfélagsbúðum.
Sé maðurinn heill, eru stefnan og störfin lik,
og sterkur var sprotinn i samvinnu liðinna daga,
Og brautin frá Þverá um byggðir og staði er slik,
hún blasir nú við sem almenn hamingjusaga.
Brýning
Enn stendur þú við Þverá,
þar sem hugsjónir streyma:
Hvað verður flestum til hags?
Ómar þér fyrir eyrum,
iðar þér fyrir sjónum
elfur hins ókomna dags.
Heyrir þú mannkynið hrópa:
Hvað verður oss til bjargar?
Samhjálp og samvinnan ein.
Standi maður með manni,
mannist fjölskylda heimsins
verður braut hennar bein.
Sér þú íslendings örlög?
Er ekki regnbogafáninn
allra hjálmur og hlif?
Fylgist mannúð og fræðsla,
færir hagvöxtur öllum
farsælla, fegurra lif.
Fiskur er dreginn úr djúpi.
Drýpur smjör af stráum.
Malar Grótti gull.
Af þeim allsherjar föngum
undir samvinnuskipan
hvers manns hönd verður full.
Réttu úr bakinu.bróðir,
brostu glaðlega, systir:
Þetta samband er þitt.
Þar græðir einn með öðrum,
eins i list og i menntum
hafi hver maður sitt.
Hér er nú hönd min gömul.
Hönd þin er ung og viljug
haldi merkinu hátt.
Þegar samvinnan þarfnast,
þá er óhætt að leggja
undir hvað sem þú átt.
§
I
I
CORTINA ER NÚ AFTUR
FYRIRLIGGJANDI í GERÐUNUM: ”L - ”XL og ”GT
k__________________________
CORTINAN HEFUR TEKIÐ FORUSTUNA
Eftir gagngerar endurbætur er
CORTINAN nú aftur mest seldi
bíllinn t Englandi.
Rúmgóður lúxusbíll með aksturseiginleika
sportbíisins.
CORTINA ER BÍLL FRAMTlÐARINNAR
1972
KYNNIÐ YÐUR KOSTI
FORD' CORTINA
SYNINGARBÍLAR
A STAÐNUM
I'annij' lcit frú Maó út, er hún var fremst f flokki f menningarbylting-
unni — fyrirmynd þjóöarinnar.
Ilver skyldi trúa þvi, að eiginkona Maós for-
manns, átrúnaðargoðs allrar þjóðarinnar, ætti sér
mislita fortið? Sannleikurinn er sá, að hún hóf
frama sinn sem reviusöngkona undir nafninu
,,Bláa eplið”. Þá olli hún mikilli hneykslun.
Litil og grannvaxin kona á
miðjum aldri situr og hlustar á
La Traviata af stereópiötu. Hún
vefur milli fingra sér hálsfesti úr
ósviknum perlum. Hún er mikið
máluð um augun bláum augn-
skugga, og varaliturinn fer vel
við blómvöndinn, sem hún er ný-
búin að sækja út i garðinn. Um-
hverfis i stofunni eru hlutir, sem
safnað hefur veriö um árabil,
húsgögn i fiðrildastil og drekar,
málaðir á silki. Konan er bros-
mild, og hún er sérfræðingur við
að búa til veizlumat.
Hver skyldi þetta svo vera? Fin
dama i Paris, Lundúnum eða
New York? Nei, konan, sem
herna er lýst, er frú Sjang Sing
(Grænt fljót), eiginkona hins
mikla Maó Tse-Tungs. Þvi auð-
vitað stendur kona að baki honum
eins og öðrum mikilmennum.
Varla höfum við gert okkur
þessa hugmynd um hana.
Undirsátar hennar þekkja
heldur alls ekki þessa hlið
hennar. Hún hefur nefnilega alla
tið verið einstaklega dugleg að
leika tvö hlutverk i einu — annað
falið umheiminum, en hitt opin-
bert. f þvi siðara er hún graf-
alvarleg á svip, ómáluð meðöllu
og ber gjarnan ósmekklega der-
húfu.
Umheimurinn hefur raunar séð
allt of litið af frú Maó. Fyrir
menningarbyltinguna höfðu
meira að segja fæstir hugmynd
um, að formaðurinn ætti yfirleitt
konu. Andstætt við frú Sjang Kæ-
sjék, mikla persónu, sem talaði
máli lands sins viða um heim,
hefur frú Maó haldið sig i skugga
manns sins. Yfirleitt hefur ekki
borið mikið á konum i Kina hinu
nýja. Þrátt fyrir það er ekki vert
að ganga út frá þvi sem visu, að
Sjang Sing sé viðkvæmt kirsu-
berjablóm, sem auðmjúkt beygir
sig i duftið fyrir hinum milka
yfirboðara sinum. Þannig er það
ekki lengur i Kina.
Frúin ákveður
Sjang Sing hefur bein i hinu
fallega nefi sinu, og hún hefur
alltaf verið sá aðilinn, sem ræður,
hans Maós formanns
hvar skápurinn á að átSnda, og
ekki bara heima fyrir. Allir, sem
þekkja Maó-fjölskylduna vita, að
frúin hefur mikil áhrif á mann
sinn og er trúnaðarmaður hans i
einu og öllu. Fyrir hefur komið,
að hún blandar sér fullmikið i
málin. Tvö ár eru.siðan Maó lýsti
yfir eftirfarandi: Vér höfum ráð-
lagt lifsförunauti vorum að fara
sér hægt um skeið. Þá hafði
Sjang Sing ofgert sér á öllu til
standinu i kring um menningar-
byltinguna.
—Bull og þvaður, sagði frúin og
flýtti sér að birtast opinberlega á
ný við hina miklu októberher-
sýningu i Peking.
Hin vanalegu hátiðahöld i til-
efni októberbyltingarinnar i
fyrrahaust voru óvenju sviplitil.
Heimurinn beindi athyglinni að
Kina, og spurt var, hvernig
myndi nú fara fyrir aðal-
manneskjunum og meðal þeirra
frú Maó. Myndi hún missa tök sin
á þjóðinni?
Góður kunningi frúarinnar,
sem nú býr i Paris, hefur sagt, að
Sjang Sing þurfi ekkert að óttast.
Hún sé sjálfri sér nóg, örugg og
óhrædd. Meira að segja sé hún
svo sterk, að henni hafi tekizt að
breyta venjum Maós. Hann sé
hættur að drekka hrisgrjóna-
brennivin og reykja.
Úr leikhúsinu
Svo vill til, að áðurnefndur
kunningi frú Maós er fyrrverandi
eiginmaður hennar. Þá hét frúin
La Ping, sem þýðir ,,bláa eplið”
og dansaði i leikhúsum Sjanghai,
syngjandi „Nei, kysstu mig ekki á
munninn”.
Það var árið 1933, sem sagan
um bláa eplið hófst. Að tjalda-
baki stóð ungur maður, ást-
fanginn upp fyrir bæði eyru.
Hann varð siðar fyrri maður
hennar.
—Við vorum svo ástfangin,
segir hann. Það stóð þar til ég
komst að þvi, að hún hafði aðeins
giftzt mér i von um frama.
1 rauninni varaði hjónabandið
aðeins þar til Bláa eplið lét niður
i töskurnar. Hún var nefnilega
orðin ástfangin af öðrum manni.
Eiginmaðurinn hótaði sjálfs-
morði, en það hafði engin áhrif.
Nú er Sjang Sing 58 ára, en
vöxtur hennar er e.nn eins og
ungrar stúlku, og vangasvipur
hennar er einstaklega fagur. Hún
var 23 ára, þegar Maó leit hana
augum i fyrsta sinn árið 1935 og
ákvað að hafa hana hjá sér alla
ævi. Þannig varð það.
Bláa eplið var á leikferðalagi i
Jennan-héraði, en þar höfðu þá
kommúnistasveitir Maós leitað
hælis undan Sjang-Kæ-sék, sem
sett hafði milljónir til höfuðs
Maó.
Bláa eplið söng og dansaði fyrir
hermennina og strax fyrsta
kvöldið fór Maó með haria
„heim” i hellinn, sem hann
dvaldist i þessa erfiðu daga.
i skugga Maós
Ógurlegt hneyksli! Sá, sem
fremur hjúskaparbrot i Kina, á
það á hættu að verða dæmdur i
nauðungarvinnu. En Maó tók
ósköpunum með mestu rósemi.
—Hann hefur átt herskara af
vinkonum, segir fyrrverandi
eiginmaðurinn. Konur hafa alltaf
verið eins og mý á mykjuskán i
kring um hann. Milli hjónabanda
sinna hefur hann iðulega haft
nokkrar i takinu i einu. Þegar
hann hitti Bláa eplið, var hann i
þriðja Jijónabandi sinu. Hann
kvæntist i fyrsta sinn, er hann var
aðeins 15 ára. Þá yfirgaf hann
konu sina á meðan brúðkaups-
gestirnir nutu veizlumatarins.
önnur kona Maós lézt 1926, en sú
þriðja þokaði sér hávaðalaust út
af sviðinu, þegar Maó tilkynnti,
að hann væri orðinn ástfanginn
af Bláa eplinu.
Þau gátu ekki gifztfyrr en 1937,
og Bláa eplið skipti um nafn.
Heimili eignuðust þau ekki fyrr
en 1949 eftir borgarastyrjöld,
heimsstyrjöld og siðan aðra
borgarastyrjöld, sem lyktaði með
sigri Maós. Loks gat hann sezt að
i höfuðborginni með konu sinni.
Siðar eignuðust þau dóttur, Fú-
Sji.
Heimili þeirra er litt áberandi
hús með gulu þaki og stórum
blómagarði. Að húsabaki er
sundlaugin, þar sem Maó iðkar
eftirlætisiþrótt sina — baksund.
Þar er einnig garðstofa sú, sem
frúin sýnir kvikmyndir sinar i, og
þar teflir hún lika skák við bónda
sinn.
Stofur hússins sjálfs eru nota-
legar. Þar er mikið ljóðasafn,
sem frúin á og les mikið. Auk þess
á hún mikið hljómplötusafn.
Þarna safnast menn utan um for-
manninn, og framtið Kina er rök-
rædd. Frúin ber fram te og hlust-
ar af athygli, en segir fátt.
Sterkari en Maó
Undirokuð eins og konurnar i
hinu gamla Kina? Nei, langt þvi
frá. Hún hefur sem sagt mikil
áhrif á mann sinn og allar
ákvarðanir hans. Auk þess hefur
hún sinar eigin hugmyndir um
hlutina. Til dæmiskom húnþvitil
leiðar, að allir leikarar klæddust
einkennisbúningum.
Hún varð þó að láta sér lynda
að standa i skugga Maós. Fjórtán
sinnum reyndi hún að komast i
miðnefnd kommúnistaflokksins
og það tókst 1966.
Ef til vill hefur Sjang Sing alltaf
verið sterkari helmingurinn. Hún
hefur verið nánasti ráðgjafi
Maós rödd véfréttarinnar” að
baki hinum mörgu orðum hans.
Kinverskur málsháttur segir:
—Til þess að sigra óvininn, þarf
að ráðast á hjarta hans. And-
stæðingar Maós munu eflast, þeg-
ar stjarna konu hans lækkar á
lofti — ef sá dagur kemur þá
nokkurn tima.
Ekki þarf að óttast, að frú Maó
verði i nokkrum vandræðum i
ellinni.
Hún mun halda áfram að tefla
skák, hlýða á tónlist, lesa ljóð og
búa til mat. Liklega mun hún
einnig hafa nægan tima til að láta
sér leiðast. (þýttSB)
Maó og frú. Hún er nú 58 ára, en vöxturinn er hinn sami og fyrir 40 árum, er hún var dansmær.