Tíminn - 27.06.1972, Síða 1

Tíminn - 27.06.1972, Síða 1
| IGNISI ÞVOTTAVtLAR RAFIÐJAN — VESTURGOTU 11 19294 RAFTORG V/AUSTURVOLL 26660 Boris Spasski, heims- mcistarinn i manntaflslist, hélt fund meö fréttamönnum i gærmorgun. Svaraði hann þar góðfúslega spurningum fréttamanna, innlendra og erlendra, og tók alla ,,með trompi", með ljúfmennsku sinni og aðlaðandi fram- komu. Sagði hann þar, að ekki vildi hann ganga jafn langt og Fischer, esm segist nota 98% af orku sinni i skák, — ég nota aðeins 97%, sagöi heimsmeistarinn! Sjá grein um fundinn á blaðsiðu 8. Skatt- skráin kemur 15. júlí SB— Reykjavik Stefnt er að þvi,að skattskráin komi út 15. júli, að sögn Bergs Guðnasonar hjá Skattstofunni. Samkvæmt lögum á skattskráin að koma út fyrir 20. júni ár hvert, en að þessu sinni sótti skattstofan um frest og fékk hann til 1. ágúst. Þó aö skattstofan komi skránni frá sér fyrir 15. júli, er ekki alveg vist, að almenningur sjái hana strax, þvi að Skýrsluvélar rikis- ins taka hana til meöferðar og þar sem nú þarf að mata vélarnar eft- ir nýju kerfi, geta orðið tafir þar. ÚRANUSI SIGLT TIL ÞÝZKALANDS OÓ—Reykjavik Vestur-þýzki togarinn Úranus, sem kviknaði i sunnan Vest- mannaeyja, er nú á leið til heimahafnar sinnar, Bremer- haven. Togarinn var dreginn til Eyja, þar sem hann var at- hugaður. Kom i ljós, að hann var ekki eins mikið skemmdur og álitið var i fyrstu. Vélarnar reyndust alveg óskemmdar og sömuleiðis siglingatæki. Helmingur áhafnar- innar er farinn utan flugleiðis, en hinir sigla skipinu til Þýzka- lands. 141. tölublað — Þriðjudagur 27. júni 1972 — 56. árgangur. ýæli- skápar 3Q/ict«q/Wáltt/t A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarstræti 23 Símar 18395 & 86500 Fischer fellst ekki á að dómararnir séu skákmenn - segir fulltrúi hans Fred Kramer, sem kom til Islands í gær. Fischer hafði aldrei sjálfur ákveðið að koma til landsins í gærmorgun ÓV—Ileykjavik Þrátt fyrir að Bobby Fischei liafi ekki komiö hingaö tii lands i gærmorgun, eins og búizt hafði vcrið við, kom hér engu að siðui fulltrúi hans, Mr. Fred Kramer. sem er fyrrverandi forseti skák- sambands Bandarikjanna. Fói hann í gær meö Guömundi G. Þórarinssyni um Rcykjavík og skoðaði Laugardaishöllina, svitu Fischers á Loftleiðum, DAS-húsið og fieira, sem Fishcer hefur gerl kröfu til að hafa hér viö hendina Fréttamaöur Timans ræddi við Kramer i gærkveldi sem þá hafði nýlokið við að tala við Fischer i Bandarikjunum. — Ég er hér til að kanna ýmislegt af þvi, sem Fischer hefur áhuga á, sagði Kramer. — Má þar nefna hibýli hans, persónulegar ráðstafanir, leikstaðinn sjálfan, aðstöðu áhorf enda, Ijósbúnaðinn sérstaklega — hann lætur sig ljósaútbúnaðinn miklu skipta —, loftlæstingu, hljómburð, loftmengun, hávaða og fleira. — Hvenær var ákveðið að þér kæmuö hér? — Fyrir nokkrum mánuðum. — En hvers vegna kom Fischer ekki, eins og áður hafði veriö sagt frá? — 0, fólk spyr mikið um þetta, en staðreyndin er sú, að þessi dagsetning var aldrei ákveöin af honum sjálfum, heldur ,skipu- leggjendum einvigisins, sem gerðu þaðfyrir nokkrum mánuð- um, er samningar voru i deigl- unni. Þegar svo kom aö þeim degi, er Fischer skyldi hafalagt af stað samkvæmt þeim áætlunum, féll það ekki við hans eigin áætl- anir. — En það var ekki ákveöið af Fischer fyrr en á laugardaginn, ekki rétt? — Nei, þvi var aðeins haldið leyndu. Nokkrir blaðamenn biðu hans bæði i New York og hér, haldandi aö hann hefði gefið út þessa yfirlýsingu til þess eins að koma óséður. Sjáið þértil, hann er réttlætanlega á móti þvi að veröa sifellt fyrir ágangi blaða- manna og ljósmyndara, sem stöðugt hópast um hann. Fischer er undir miklu taugaálagi, hann er að undirbúa sig fyrir mikil- væga keppni, vill ekki þurfa að móðga fólk, svo ég held aö hann verði kominn hér áöur en nokkur veit af. — Hann kemur sem sé á morg- un (þriðjudag)? — Ef þér haldið áfram aðspyrja mig, þá tala ég af mér... Hann verður örugglega kominn hingaö fyrir 2. júli... vona ég. Ég veit ekki meir, ég get ekki sagt meira. — En hann kemur? — Já, að er ýmislegt, sem enn á eftir að ganga frá. Þér getið sann- færzt eftir að þér hafiö séö hann ganga niður landganginn úr flug- vélinni. „Rigning eins og í Reykjavík” á Akureyri Snjóhögl í frysti í Þingeyjarsýslu Norðlendingum finnst þetta hafa veriö undarlegur júni- ■nánuöur, að minnsta kosti þcim. sem búa um miðbik þcss. Þeir telja sig varla muna svo votviðrasaman júni, og enn frekari nýlunda er að i fyrradag duttu niður haglél á þrem stöðum i Laxárdal i Þingcyjarsýslu, öll siðari hluta dags, en þó ekki sam- timis. 1 Eyjafirði hafa votviðrin verið svo mikil, að það er lik- ast þvi, er þar getur verið á haustin, þegar úrkomusamt er, og stundum hefur verið slik haugarigning, til dæmis i gær og fyrradag, ,,að engu er lik- ara en Eyjafjörður hafi verið fluttur suður á land”, segja menn fyrir norðan og tæpa á Reykjavik, þvi arga rigning- arbæli. Venjulega þurrkar til baga í júni Alla jafna er júnimánuður mjög þurrviörasamur i Eyja- firði, oft svo, að það bagar sprettu stórlega. Nú er grasiö lagzt i legu á túnum og liggur undir skemmdum, þvi að menn urðu að hætta að slá, þótt sláttur væri viða byrjað- ur, áður en þessi siöasta rigningarhrota hófst. — Það hefur stundum veriö rétt hægt að skjótast i næsta hús, án þess að verða hundvot- ur, sagði Erlingur Daviðsson, þegar við töluðum við hann. Högl geymd i frysti i Kasthvammi Haglélin þrjú, sem duttu niður i Laxárdal, eru sögð ein- dæminiminni þess fólks, sem þar er. Svo mikið kvaö að þeim, að sums staðar varð al- hvitt, en annars staðar gránaði. Eitt þessara élja kom niður i Kasthvammi og þar i grennd. Þar gránaði jafnvel kafsprott- ið túnið, en varð hvitt þar sem gróðurlaust var. Fólk þar horfði forviða á þetta fyrir- bæri, en svo hljóp einhver til og safnaði haglkornum á disk, sem settur var i frysti, svo að sjá mætti stundu lengur, hversu stór þau voru. j.h. Ætluðu til Hafnar fyr- ir falskar dvísanir Oó—Reykjavik. Maður kom á afgreiösiu Flug- félags islands s.l. sunnudags- kvöld og keypti far til Kaup- mannahafnar og ætlaði að fara með áætlunarflugvélinni i gær- morgun. Er þetta tæpast i frá- sögur færandi, nema fyrir þaö, að skömmu siðar koni annar maður á afgreiösluna og bað .lika um far til Kaupmannahafnar. Þegar hann ætlaði aö greiöa fyrir fariö sá afgrciðslumaðurinn, að hann var með saina tékkheftið i höndunum, sem hinn maöurinn var nýbúinn að skrifa tékka úr upp á :I0 þús. kr, sem greiðslu fyrir sitt far. En mennirnir skrifuðu sitt hvort nafnið undir. Siðarkomni maðurinn fékk ekki afhentan farseðil og flýtti hann sér á brott, en lögreglunni var gert viðvart. Um kvöldið náði lögreglan i þann mann, sem siðar kom með tékkheftið á afgreiðsluna. En hann var með i sinum fórum far- seðilinn, sem hinn keypti skömmu áður og borgaði með falskri ávisun. Siðar var hinn maðurinn hand- tekinn og kom i ljós, að þeir höfðu stolið ávisanaheftinu af þriðja að- ila, og voru búnir að taka út tvær ávisanir, juk þeirrar, sem far- seðillinn var greiddur með. Varla þarf að taka fram, að hvorugur mannanna fór til Kaup- mannahafnar i gærmorgun. Um hvað þarf að semja fyrir utan það, sem þegar hefur verið gengið frá? — Well, dómararnir ættu til dæmis að vera leikmenn, ekki skákmenn, þvi dómari getur ver- ið undir álagi og orðið fyrir áhrif- um. Fischer er mjög haröur á sinni meiningu hvaö þetta snertir. Ef til vill skiptir þetta ekki miklu máli — Fischer hefur að visu ekki gert athugasemd við þetta fyrr — en þessi mál eru óleyst. Aður. hafði veriö ákveöið, að dómarar yrðu þeir Guðmundúi Arnlaugsson og þýzki stórmeist- arinn Lothar Schmidt. — Er Fischer ekki að reyna að hafa hærri fjárupphæð út úr mót- inu með þessum aðgerðum sin- um? — Nei, hann fær nóg — held ég. — Þegar þér rædduð viö Fisch- er áðan, þá hafiö þér sennilega lýst öllu fyrir honum. Virtist hann ánægður? — Hann reiknar auðvitað með þvi að vel sé að honum búið og hér er allt fyrsta flokks, það bezta sem fæst. Ég er viss um, að hann hefur ekkert viö það að athuga. Honum féll vel viö hótelherberg- ið, sem hann notaöi er hann var hér i febrúar og húsið (DAS-hús- ið) er mjög fallegt. Veðrið er gott og fólkið er vingjarnlegt. — Var hann sammála yður um það? Þetta er þaö sem ég sagði hói- um, ég reyndi ekki aö þröngva neinum skoðunum upp á hann, maður gerir þaö ekki með náunga eins og Fischer. Að lokum sagði Kramer . að hann yrði að likindum hér á landi þar til einviginu lyki en auk hans yrðu tveir aðrir, sem ekki væri búið að ákveða. Þó væri vist, að það yrði ekki Edmondson, fors. Bandariska skaksambandsins. Og enn viljum við setja fram spurningu varðandi komu Roberts James Fischer til Is- lands: Kemur hann i dag? TÍMAMENN FENGU TVENN VERÐLAUN Hin árlega golfkeppni iþróttafréttaritara fór fram s.l. föstudag. Þar stóðu Timamenn sig með ágætum, fengu 1. og 4. mann. KLP vann SAAB-bikarinn til eignar og SOS fék verðiaun i sinni fyrstu goifkeppni. Nánar. um þetta stórmót, sem fram fór út á Seltjarnar- nesi á bls 16.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.