Tíminn - 27.06.1972, Blaðsíða 20
McGovern með
1509 kjörmenn
NTB—Washington
George McGovern sagði i gær,
að hann hefði þegar tryggt sér
tilskilinn kjörmannafjölda til að
ná útnefningu ,sem forsetaefni
demókrata á landsþinginu, sem
hefst 10, júli. Tilskilinn fjöldi er
1509, en samkvæmt útreikningum
McGoverns hefur hann 1510 1/2.
McGovern skýrði frá þessu
eftir að honum höfðu borizt upp ■
lýsingar um að hann fengi 96 3/4
atkvæði frá svörtum kjör-
mönnum á landsþinginu. Áður en
svertingjarnir tilkynnntu þetta,
hafði New York Times reiknað, út
að McGovern vantaði 130 atkvæði
á tilskilinn fjölda. Bæði það blað
og fleiri og flestir sérfrææingar
eru þó þeirrar skoðunar, að
McGovern muni tryggja sér 1509
kjörmenn fyrir landsþingiö.
Hvalveioibann
10 ár til
NTB—London
Mjög umdeild tillaga um að
lianna allar hvalveiðar i 1(1 ár,
verður liigð fram á fundi alþjóða
hvalveiðinefndarinnar, en hann
hófst i l.ondon i gær. Kulltrúar 14
rikja, þeirra á meðal islands,
sitja fundinn.
Þaðeru Bandarikin, sem leggja
fram tillöguna um hvalveiöi-
bannið fram, en þar i landi eru
ekki hvalveiðar einungis
bannaðar, heldur er lika bannað
aö flytja inn hvalafurðir.
Margir sérfræðingar eru
þeirrar skoðunar, að margar
hvaltegundir séu að deyja út, þar
á meðal bláhvalurinn, sem hel'ur
verið friðaður i mörg ár.
Fulltrúar i hvalveiðinefndinni
segja, að þó að svo fari, að
hvalveiðar verði bannaðar, muni
tvær mestu hvalveiðiþjóðir heims
tæplega virða bannið, en þau eru
Japan og Sovétrlkin. Arangurinn
yrði sá, að öllum fyndist þeir lika
mega veiða hval og slikt myndi
hafa hinar hörmulegustu
afleiðingar fyrir hvalastofnana.
Hópur fólks, sem kallar sig
,,Vini jarðarinnar” hel'ur hal't sig
umræðu
mikið i l'rammi i sambandi við
fundinn. llópurinn segir, að veiði-
mennirnir fari i kring um ákvarð-
anir nefndarinnar og veiði meira
en leyfilegt sé. Há séu ýmis lönd,
sem ekki eru i nefndinni, mikil
hvalveiðilönd, t.d. Chile.
Liindin, sem þátt taka i
fundinum eru Noregur, ísland,
Argentina, Astralia, Kanada
Danmörk, Frakkland, Japan,
Mexikó, Panama, Suður-Afrika,
Sovétrikin, Bretland
122 lík
NTB—New York.
Til þessa liafa lundi/.t 122 lik á
flóðasvæðunum á austurströnd
Bandarikjanna. Flóðin náðu til
fiinm rikja og varð Pcnnyslvania
verst úti. Að niinnsta kosti 250
þúsund inanns liafa orðið að yfir-
gefa heiinili sina og Nixon forseti
lýsti ii in helgina yfir neyðar-
ástandi á iillu sva'ðinu.
McGovcrn i hópi aðdácnda á kosningafundi
Þriðjudagur 2 7. júni 1972
Svart: Rcykjavik: Torfi
Stefánsson og Kristján Guð-
mundsson.
ABCDEFGH
Hvitt: Akureyri: Sveinbjörn
Sigurðssonog Hólmgrimur
Heiðreksson.
31. Icikur Akureyringa: Dd3-
dS +
Flóðin í Bandaríkjunum:
fundin, 250 þús. heimilislausir
Hað var fellibylurinn Agnes og
mikil úrkoma i kjölfar hans, sem
orsakaði hamfarirnar. Veðrið
hefur nú gengið niður, en enn
rignir þó talsvert.
Tjónið er talið nema um 2
milljöðrum dollara. Rikin
Flórida, Pennsylvania, Virginia,
New York og Maryland voru um
helgina lýst neyðarastandssvæði.
en það þýðir, að rikið mun hjálpa
þeim, sem orðið hafa fyrir- tjóni.
og hafnar eru bólusetningar a
fólki, til að koma i veg fyrir, að
sjúkdómar brjótist út. Rauði
krossinn, heimavarnaliðið og
deildir úr hernum flytja nauö-
synjar til hinna heimilislausu.
Vegir eru viða ónýtir, svo að
þyrlur verða að varpa vistunum
niður.
Fólk varð að yfirgefa marga
smábæi i Pennsylvaniu i flýti, er
smálækir tóku að vaxa og verða
að stórfljótunru 1 Wilkers-Barre
tóst öllum 65 þusund ibúunum að
komast i burtu rétt áður en flóð-
bylgjan skall yfir. Flestir þeirra,
sem farizt hafa, drukknuðu, en
nokkrir létust, þó, er hús þeirra
hrundu yfir þá.
„Hér getur maður loks andað!”
- sagði drottning listdansara, Dame Margot Fonteyn, í viðtali við fréttamann
Tímans. Fyrri sýning hennar verður í Þjóðleikhúsinu í kvöld
ÓV—-Reykjavik
Listdansgagnrýnendur
ljúga engu um geislandi per-
sónuleika Dame Margot
Fonteyn, ókrýndrar drottn-
ingar ballettkvenna. Um það
sannfærðist fréttamaður
Tiinans, sem I gær ræddi við
hana er hún leit á sviðið i L>-
jóðleikhúsinu og valdi
undirlag á gólfið.
G*OLFlt>kJ.
Margot Fonteyn, sem
dansar i fyrra skiptið hér i
kvöld (siðari sýningin er
annað kvöld), tók þvi af stakri
ljúfmennsku að svara
nokkrum spurningum. Sagðist
hún vera mjög hrifin af land-
inu,
—Sérstaklega þótti mér
ævintýralegt að fljúga inn yfir
i morgun, sagði hún, —og sjá
hvernig sjórinn, landið og
fjöllin og hrein og tær dags-
birtan blandaðist i skinandi
fagra heildarmynd. Andrúms-
loftiö hér er ótrúlega tært, hér
getur maður loks andað. Og
bjart allan sólarhringinn...
Dame Margot átti ekki nógu
sterkt orö til að lýsa hrifningu
sinni.
—Eruð þér hræddar um, að
þér getið ekki sofið i dagsbirt-
unni?
Alls ekki, svaraði hún og
brosti elskulega.
—Ég er þegar búin að sofa
töluvert!
—Hver urðu fyrstu viðbrögð
yðar þegar þér voruð beðnar
að dansa hér á landi?
—Mér þótti það mjög
skemmtilegt. Ég á marga vini
i Konunglega danska ballett-
inum og þeir hafa oft sagt mér
Irá lslandi og þakklátum og
góðum áheyrendum hér. Ég
hlakka þvi mikið til að dansa
hér, jafnvei þótt ég geti ekki
dansað nema hluta úr þeim
ballettum, sem ég er vön að
dansa. Yfirleitt dansa ég með
heilum ballettflokkum, en hér
er aðeins með mér tiltölulega
litill hópur. En það er mjög
gott fólk, sérlega góðir dans-
arar — örugglega með þeim
beztu.
—Þar sem uppselt er á
báðar sýningar yðar, haldið
þér, að möguleiki sé á, að þér
komið hingað aftur innan
tiðar?
—Það er einmitt verið að
reyna að koma þvi i kring nú.
en ég er hrædd um.að af þvi
geti ekki orðiö á næstunni. Það
er m jög mikiö að gera hjá mér
og ég er fullbókuð langt fram i
timann, en sjálf myndi ég svo
sannarlega ekkert hafa á móti
þvi. Hélztu erfiðleikarnir eru
þó i þvi fólgnir, að ef ég kæmi
aftur, þá yrði ég að vera með
aðra efnisskra en ég hef nú, og
til að þjálfa upp aðra slika,
þarf ég miklu meiri tima en ég
hef i rauninni. Ef ég k-rhi aftur
er ég viss um, að islenzkir
áhorfendur myndu vilja sjá
allt Svana vatnið eða
Rómeó & Júliu. en til þess
gefst þvi miður ekki timi sem
stendur.
—Þér hafið dansað mikið á
undanförnum árum með
Rudolf Nureyev. Var mögu-
leiki á, að hann kæmi með
yður hingað?
— Nei, þvi miður. Hann
dansar nú i Mexikó og er
bundinn þar i töluverðan tima,
þannig að ekki var hægt að
koma þvi við, enda erum viö
aðeins samæfð i heilum
ballettum og er það þar með
annað atriði, sem útilokaði
þann möguleika.
—Þér hafið nú i rúma þrjá
áratugi ekkert gert annað en
að dansa. Hafið þér einhverjar
fyrirætlanir á prjónunum um
að hætta. draga yöur i hlé?
Dame Margot Fonteyn hló
dátt. —Nei, alls ekki, svaraði
hún. —Annars er það skritið,
hélt hún svo áfram. —Allir
spyrja mig að þvi hvenær ég
ætli að hætta. Hverning á ég
að vita það? Ég var einmitt aö
segja þetta við Karl Musil,
mótdansara minn i morgun,
hversvegna spyrja allir að
þessu? spurði ég hann. Þetta
er eins og að spyrja fólk
hvenær þaö ætli að deyja — án
þess þó að ég sé að likja dauða
minum saman við þann dag<er
ég hætti — en ég veit ekkert
um það. Ef til vill byrja ég
fyrst að lifa þegar ég hætti að
dansa.
—Hafið þér eitthvað heyrt
um islenzkan ballett?
—Nei, eini tslendingurinn,
sem ég veit að dansar ballet er
Helgi Tómasson, sem er við
New York City Ballet en það
er orðið langt siðan ég hef séð
hann dansa.
1 sömu svifum bar að mót -
dansara Dame Margot, Karl
Musil frá Vinaróperunni, og
þar með gat hún ekki eytt
meiru af dýrmætum tima
sinum i okkur. Þau ræddu um
stund við Gunnar Bjarnason,
leikmyndateiknara Þjóðleik-
hússins um heppilegt undirlag
á gólfið og þá við Þjoðleikhús-
stjóra, Guðlaug Rosinkranz.
Siðan hófst æfing i æfingasal
leikhússins og eins verður
æfing fyrir hádegi i dag.
1 flokki samfylgdar- og sam-
starfsfólks Dame Margot
Fonteyn eru alls 33 manns.
Þar af eru fjögur danspör,
Dame Margot Fonteyn og
Karl Musil, Lydia Diaz Cruz
og Luis Fuente, sem eru aðal-
dansarar við New York City
Ballet. danspar frá óperunni i
Sar Franciscoog loks danspar
frá finnsku óperunni. 20
manna hljómsveit er með i
förinni og eru það allt ein-
leikarar við Filharmóniu-
hljómsveitina i Miami á
Florida, undir stjórn Ottario
de Rosa. Loks eru meö móðir
Dame Margot, Hilda
Hookham, og bróðurdóttir
hennar, Lavinia Hookham.
Þessi iiiynd var tekin i Þjóðleikhúsinu i gærdag, er Dame Margot Fonteyn kom þar til að litaá sviöið. A
mviidiniii eru taliðfrá vinstri: Frú Hilda Hookham, móðir Dame Margot, Guðlaugur Rósinkranz, Dame
Margot Fonteyn, Lavinia Hookham og mótdansari ..drottningarinnar”, Karl Mgsil. (Tímamynd G.E.)