Tíminn - 27.06.1972, Qupperneq 8
8
TÍMINN
Þriöjudagur 27. júni 1972
„KÆRA
MANNÆTAN
MÍN”
- er nafnið sem Spasskí kallar
Fischer.
Frá blaðamannafundi með
Spasskí í gær
Blaöamannafundurinn meö Spasskí var meö fjölmennari fundum af slíku tagi, er haldnir hafa veriö
hérlendis. Ileimsmeistarinn er fyrir miöju, viö hliö hans er túlkurinn, sovézkur sendiráösritari og til
hægri er Nei, sovézkur stórmeistari.
OV—Reykjavik.
Hvekktur skákáhugamaður
kom að máli við fréttamann
Timans á sunnudaginn og spuröi
hvort ekki væri búiö að sverta
Kobert Fischer, skákmeistara,
nóg i augum tslendinga. Atti hann
við frétt blaðsins á sunnudag, þar
sem þeirri spurningu var varpaö
Iram, hvort Fischer myndi
nokkuö koma i gærmorgun, eins
og fyrirhugað var.
()g spurningin reyndist á
rökum reist, Fischer kom ekki og
er varla búizt viö honum fyrren á
l'immtudagsmorgun héöan af, en
þær upplýsingar fengum við hjá
Guðmundi G. Þórarinssyni,
Á Landsfundi Kvenréttinda-
félags tslands, sem haldinn var
að Ilallveigarstöðum 19. — 22.
júni, var staðfest sú breyting á
lögum félagsins, sem áöur haföi
veriösamþykktá aðalfundi þess i
Reykjavik, að karlmenn geta nú
oröiö félagar i Kvenréttinda-
félagi islands.
Forsetafrúin Halldóra Ingólfs-
dóttir Kldjárn var viöstödd setn-
ingarfund landsfundarins, en hún
var verndari fundarins.
Aðalmál fundarins var: Hlut-
verk konunnar i mótun þjóðfélags
framtiöarinnar. P'lutt voru fjögur
framsöguerindi. Ragnhildur
Helgadóttir, alþingismaður,
talaði um Konun a og stjórn-
málin, Sigurbjörg Aðalsteins-
dóttir, bankamaður, um Konuna
i atvinnulifinu, Margrét
Margeirsdóttir, félagsráðgjafi,
um Uppeldismál og Sigurlaug
Arnadóttir, húsmóðir um Viðhorf
dreifbýliskonunnar. Þess var sér-
staklega óskað, að rætt væri á
fundinum um áfengi’svanda-
málið, og var það gert.
Fundarstörfum var þann veg
háttað, að öllum fundarkonum
OÓ-Reykjavik.
Lögreglurannsókn fer nú fram i
Kópavogi i máli piltsins, sem
grunaður er um að hafa útvegað
hass i Danmörku og sent það
kunningjum sinum á Islandi. Var
pilturinn handtekinn i Danmörku,
þar sem hann hefur búiö undan-
farna mánuði, og sendur til
forseta SSl i gærmorgun.
Heimsmeistarinn i skák, Boris
Spasski, hélt fund með
fréttamönnum á Hótel Sögu i
gærmorgun og var hann þar
spurður álits á þessari siðustu
,,rós” áskorandans. — Fischer
hlýtur að hafa einhverja gilda
ástæðu lyrir þvi, svaraði heims-
meistarinn. — Bezt er að hann
svari þessari spurningu sjálfur.
Fg ákvað fyrir mig, að koma
timanlega til að venjast
aðstæðum, og ég treysti mér ekki
til að segja neitt um, hvort þessi
seinkun getur haft einhver sálræn
áfhrif á Fischer, hvaö þá likam-
leg, vegna loftslags og þess
var skift i umræðuhópa, sem
siðan liigðu niðurstöður sinar
fyrir fundijin til umræðna og af-
greiðslu. Ymsar ályktanir voru
JK—Egilsstöðum
F'erðafélag Fljótsdalshéraðs,
Ferðafílagið á Húsavik og
Ferðafélag Vopnafjarðar efndu
til feröar i Kverkfjöll um siðustu
helgi. t þessari ferð tók þátt 70
manna hópur, og var gengið frá
íslands s.l. fimmtudag.
Var pilturinn, sem er 21 árs, úr-
skurðaður i allt að 30 daga gæzlu-
varðhald . Ásmundur Guð-
mundsson, rannsóknarlögreglu-
maður i Kópavogi, sagði i gær, að
málið lægi ekki alveg á hreinu, en
dómsrannsókn hefst sennilega i
dag.
háttar.
Mikill fjöldi fréttamanna,
flestra erlendra, var á fundinum i
gærmorgun og ljósmyndararnir
mynduðu svo ört, að smellir
þeirra nálguðust að vera stöðugt
suð. Meö Spasski á fundinum
voru þeir Guðmundur G.
Þórarinsson, Friðrik Ólafsson,
Krogius, aðstoðarmaður hans,
Nei og Geller, stórmeistarar og
aðstoðarmenn hans og sovezkur
sendiráðsirtari, sem túlkaði fyrir
heimsmeistarann. Spasski
svaraði öllum spurningum greið-
lega en byrjaði yfirleitt á þvi að
segja, að erfitt væri að segja
nokkuð um það........
samþykktar, og verða þær siðar
sendar viðkomandi aðilum.
Fundinn sátu 60 konur viða að
af landinu.
innréttingum og búnaði i nýjum
skála Ferðafélags tslands i
Kverkfjöllum. Þá var skálinn
vigður og honum gefið nafn.
Heitir hann Sigurðarskáli eftir
Sigurði Egilssyni frá Laxamýri,
fyrrverandi formanni Ferða-
félags Húsavikur, sem nú er ný-
látinn. Björn H. Jónsson sóknar-
prestur á Húsavik vigði skálann
og gaf honum nafn. Skálinn er
opinn öllum til afnota. Hann
rúmar með góðu móti 50-60
manns. Húsið er hæð og ris, 50
fermetrar, mjög vel búið og hið
vistlegasta.
Vegalengd að skálanum frá
Möðrudal er 105 km og leiðin auð-
veld fyrir fjórhjóladrifsbila, 5-6
tima akstur með viðkomu i
Hvannalindum.
Einnig var i þessari ferð lokið
við að stika leiðina. Um þrir
kilómetrar eru frá skálanum og
að Kverkjökli, og þvi stutt að fara
til að skoða þau undur, sam
Kverkfjöll hafa að bjóða ferða-
manninum.
Á fundinum kom fram, að
Spasski hefur enn ekki séð
Laugardalshöllina, en hann segist
þó ekki reikna með, að hún valdi
sér nokkrum vonbrigðum, þar
væri allt áreiðanlega samkvæmt
óskum Fischers. Hann sagðist
vera ánægður með Reykjavik og
lika vel hér. Fyrir fundinn i gær-
morgun lék hann tennis við börn
og unglinga i porti Hagaskólans,
og segist hann reyna að viðhalda
likamlegri þjálfun sinni hér, helzt
með þvi að ganga og hlaupa.
Einnig tefldi hann dálitið.
Þeirri spurningu var varpað
fram, að þar sem Fischer hefði
farið fram á, að 25 gráðu (C) hiti
væri i Höllinni og Spasski 21
gráðu, hvernig ætti þá að fara að
þvi að leysa það vandamál.
Spasski brosti og sagðist ekki
beinlinis hafa farið fram á þann
ákveðan hita. — En ef það væri,
sagði hann, — þá væri sennilega
einfaldast að leggja saman
tölurnar tvær og deilda siðan i
þær með tveimur. Þannig
fengjum við út rétt hitastig.
Spasski lýsti yfir hrifningu
sinni á Fischer sem persónu og
skákmanni. — Mér finnst hann
dasamlegur.
Vitnað var i gamalt viðtal við
heimsmeistarann, þar sem hann
sagði, að sér þætti vænt um
Fischer. Hversu langt næði sú
væntumþykja?
Spasski sagði þetta rétt eftir sér
haft en tilfinningar hans gagnvart
Fischer kæmu ekki þessu einvigi
við. Engu vildi hann spá um
úrslit, möguleikar væru á þrenns
konar úrslitum og þyrfti væntan-
lega ekkert að skýra það nánar.
Hann var spurður hvort hann
væri sammála Fischer, sem
segðist vera mesti skakmaður i
heimi og svaraði Spasski: — Ég
skal ræða það að keppni lokinni.
Töluverðar deilur hefur sú til-
högun FIDE, alþjóöaskáksam-
bandsins, valdið, að láta heims-
meistar, anum nægja 12 vinninga
til sigurs, en áskorandanum 121/2
Spasski var spurður álits á
þessu: Ég held að þessi regla sé
fyrst og fremst hefð, svaraði
Spasski, — en ég held lika, að
erfitt sé að finna réttlátari lausn á
þessu vandamáli.
Heimsmeistarinn sagðist alls
ekki lita á sjálfan sig sem stjórn-
málamann, hann væri
skákmaður og sæi sjálfur engan
politiskan tilgang i einviginu. Þá
var hann spurður hvað hann
sjálfur teldi skák vera: List,
visindi eða eitthvað annað? —Ég
held, svaraði hann, — að skák sé
þetta hvorttveggja og margt
fleira. Ég held, að skák sé fyrst og
fremst leikur, en réttlátur leikur.
Ef til vill má kalla skák ,,leik
réttlætisins.”
Þegar rætt var um undirbúning
einvigisins, sagöist Spasski álita
að hann hefði tekið of langan
tima. — Ég vil einungis, sagði
hann, — að keppnin hefjist eftir
settum reglum og kæri mig ekki
um að hugsa um annað, þvi óvið-
komandi. Ekki vildi hann segja til
um, hvort málþóf Fischers kæmi
sér til góða en á heimsmeistar-
anum mátti skilja, að honum
kæmi brölt Fischers spánskt fyrir
sjónir.
Boris Spasski sagði aðsurður,
að honum þætti liklegt að Fischer
hæfi skákina á kóngbyrjun, slikt
væri væri venja hans. Hann
(Fischer) væri mjög sterkur og
rökfastur. skákmaður og hefði
honum tvimælalaust vaxið
ásmegin á undanförnum árum,
sér i lagi siðan i september 1971.
Skiljanlega hafa keppi-
nautarnir mikinn áhuga á
skákum hvors annars og geyma
þeir báðir ýmsar úrklippur i sér-
stökum bóku. Heitir bók Fischers
„Rauða ljónið” og sagði Spasski á
fundinum, að sjálfur ætti hann
bók, sem hann kallaði „Kæru
mannætuna sina”! Bætti hann þvi
við að Fischer hefði svo sannar-
lega etið nokkrar manneskjur við
skákborðið. Þá sagði heims-
meistarinn, að hann kallaði
Fischer aldrei Bobby, heldur
ævinlega Robert James, sem er
hið fulla nafn hans.!
Einn erlendu fréttamannanna
spurði Spasski hvort hann
þekktist hér á götu og hvort hann
yrði fyrir átroðningi fólks af þeim
sökum. Viðurkenndi heims-
meistarinn, að fólk hefði komið
til sin og óskað sér góðs gengis en
sér þætti það ekki miður. —
Fischer er sennilega viðkvæmari
fyrir sliku en ég, sagði hann,
—mér þykir vænt um fólk, sem
kemur til min þessara erinda.
Þess ma'geta i þessu sambandi,
að á Jónsmessu nótt kom heims-
meistarinn i heimsókn á golfvöll
Ness og fylgdist þar með Jóns-
messukeppninni svonefndu. Hafði
hann aldrei séð golf leikið áður og
skemmti hann sér hiðbezta við að
horfa á. Hljóp hann hlæjandi um
völlinn, stökk i loft upp og var
hinn kátasti. Lýsti hann hrifningu
sinni á iþróttinni og sérlega þvi þó
að hægt væri að leika hana hér
Veitti hann fólki eiginhandna-
raitanir og er haft fyrir satt, að
ein konan hafi sagt eftir stutta
viðkynningu: —Yfirleitt held ég
nú ekki með Rússum en þessi er
svo kurteis og „sjarmerandi”, að
ég óska þess aö hann vinni!
Og islenzkum kvipnum til hug-
hreystingar og uppörvunar má
geta þess, að á blaðamanna-
fundinum sagði Spasski, að sér
þættu islenzkar konur dásam-
legar!
Undir lok fundarins, neitaði
heimsmeistarinn þvi, að
ágreingur um peninga hefði ráðið
þvi að hann hefði losað sig við
aðalþjálfara sinn, Igor
Bondarévski. — Það var ein-
vörðungu út af ggreingi um skák,
að samstarfi o'kkar lauk, sagði
Boris Spasski.
Að lokum var hann spurður,
hvað honum þætti um þá
ákvörðun Fischers, að leika ekki
á laugardögum, en sú ákvörðun
stafar af trúarskoðunum
áskorandans. Spasski brosti
breitt og svaraði: — Þetta er
nokkuð góð hugmynd hjá honum.
Ef til vill tek ég sjálfur ákvörðun
um að. leika ekki á sunnu-
dögum.!
Karlmenn geta nú gengið
í Kvenréttindafélagið
Dómsrannsókn
í hassmólinu
haldið ófram
Ferðafélagsskáli
vígður í
Kverkfjöllum