Tíminn - 27.06.1972, Side 15
Þriðjudagur 27. júni 1972
TÍMINN
15
Reykjavíkurmótið í sundi:
„Aðeins” 2 íslands
met vorn sett
- Góður áranpr ynpa íólksins, en topparnir
stóðu sig yíirleitt ekki nóp vel
ET—Reykjavik
Það er auðscð. að sundiþróttin
stendur föstum fótum hér á landi
— grundvöllurinn að góðum
árangri i sundinu er þegar lagöur,
en samt er sem eitthvað
skorti...
Þátttaka i Reykjavikurmótinu,
sem fram fór i Laugardalslaug-
inni um helgina, var allgóð.
Keppendur voru flestir ungir að
árum og margir þeirra bráðefni-
legir. Þó mátti greina andlit
ýmiss gamalkunnugs sundfólks á
mótinu með aldursforsetann,
Guðmund Gislason, i broddi fylk-
ingar.
Eitt skorti þó á: Árangur topp-
fólksins var yfirleitt lélegur og
má það taka á honum stóra sin-
um, ef sigur á að nást i lands-
keppninni við lra um næstu helgi.
Þó á þetta sér sinar skýringar,
keppnin á toppinum var litil sem
engin og ýmsir gengu ekki heilir
til keppni vegna lasleika.
Þó ' voru ýmsir ljósir punktar
við mótið. Friðrik Guðmundsson
virðist nú vera að ná sér á strik
eftir öldudal i vor. Friðrik setti
glæsilegt Islandsmet i 800 m
skriðsundi og bætti fyrra met sitt
um tæpar 10 sekúndur. Með
Friðrik Guðmundsson
— Bætti islandsmet sitt um 10
sek.
Guðrún Magnúsdóttir
— Ung stjarna á uppleið.
Sigurður Ólafsson
— Reykjavikurmeistari i 200 m
skriðsundi.
áþekkum hraða i 1500 m skrið-
sundi á Friðrik að ná ÓL-lág-
marbkiuog eins verður gaman að
fylgjast með honum i 400 m skrið-
sundi i landskeppninni við tra. —
Þá náði Sigurður Ólafsson ágæt-
um árangrii 200 m skriðsundi og
eins i 800 m sundinu, þar sem
hann kom alveg óþreyttur i mark.
Sigurður er mjög efnilegur, en
mætti taka enn meira á en hann
gerðiá þessu móti. — Guðmundur
Gislason lofar góðu i fjórsundinu,
sem hann synti á ágætum tima án
nokkurrar keppni. Hið sama má
segja um Guðjón Guðmundsson i
bringusundinu. Hann skorti t.d.
aöeins 8 sekúndubrot á að ná ÓL-
lágmarki i 100 m, sem hann synti
algerlega keppnislaust. Guðjón
telst öruggur með að ná lágmörk-
unum i bringusundi i harðri
keppni. — Finnur Garðanssonvar
með hita og þar af leiðandi illa
upplagðurá mótinu. Þó setti hann
Islandsmet i 4x100 m skriðsundi
ásamt þrem félögum sinum úr
Ægi, þeim Axel Alfreðssyni, Páli
Ársælssyni og Sigurði Ól. þeir
Páll og Axel (fæddur 1957) eru
mjög efnilegir og má búast við
mikluaf þeim i frapitiðinni.
Eins og fram kom i viðtali við
Guðmund Harðarson, landsliðs-
þjálfara, hér á iþróttasiðunni i
fyrri viku, þá er einhver deyfð
rikjandi meðal fremstu sund-
kvenna okkar i dag. Þær Helga
Gunnarsdóttir og Salóme Þóris-
dóttir voru báðar nokkuð frá sinu
bezta, Helga i bringusundinu og
Salóme i baksundinu. Þá sigraði
bráðefnileg stúlka úr KR, Guðrún
Magnúsdóttir, Salóme i 100 m
skriðsundi. Guðrún, sem er 14
ára, hefur fallegan sundstil og
gæti eflaust náð mun lengra með
aukinni æfingu. Þá vöktu þær
Bára ólafsdóttir og Þórunn
Alfreðsdóttir, sú siðarnefnda að-
eins 11 ára gömul, verðskuldaða
athygli i mótinu.
Sundfélagið Ægir sigraði með
yfirburðum i stigakeppni móts-
ins. Hlaut Ægir þvi nú, eins og i
fyrra, bikar þann, sem gefinn var
til minningar um Bjarna heitinn
Benediktsson, konu hans og dótt-
ursonþeirra.
Eins og sjá má á þessari frá-
sögn, þar sem lýsingarorðinu
„efnilegur” bregður oftfyrirmeð
ýmsum blæbrigðum, þá þurfum
við engu að kviða um framtið is-
lenzkrar sundiþróttar: Ef það
unga sundfólk, sem keppti á
þessu Reykjavikurmóti, heldur
áfram æfingum með sama krafti
og nú. — Toppurinn þarf hins veg-
ar að bæta sig verulega, eigum
við að halda sömu reisn isundinu
þetta sumar, sem undanfarin ár.
urslit:
FYRRI DAGUR:
200 m bringusund karla:
1. Guðjón Guðm.ss.
1A 2:35,2 min.
(gestur)
2. Leiknir Jónss. Á 2:46,2 min.
3. Sig. Helgas. Æ 2:49,6 min.
100 m bringusund kvenna:
1. Helga Gunnarsd. Æ 1:25,4 min.
2. Guðrún Magnúsd.
KR 1:28,0 min.
3. Elin Haraldsd. Æ 1:32,0 min.
800 m skriösund karla:
1. Friðrik Guðm.ss.
KR (1M) 9:34,4 min.
2. Sig.Ólafss.Æ 9:50,3 min.
'3. Guðm. Gislas. Á 9:50,6 min.
1500 m skriðsund kvcnna:
1. Salóme Þórisd. Æ 21:21,9 min.
2. Bára Ólafsd. Á 21:51,2 min.
3. Hildur Kristj.d. Æ 23:11,6 min.
SÍÐARI DAGUR
400 m fjórsund kvenna:
1. Bára Ólafsd. Á 6:09,6 min.
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Frá viðbragði i 100 m bringusundi.
2. Hildur Kristj.d. Æ 6:26,8 min.
3. Elin Haraldsd. Æ 6:40,8 min.
100 m fjórsund karla:
1. Guðm. Gislas. Á 5:10,1 min.
2. Axel Alfreðss. Æ 5:29,3 min.
3. Hafþór B. Guðm.ss.
KR 5:32,1 min.
100 m baksund kvenna:
1. Salóme Þórisd. Æ l:18,4min.
2. Guðrún Halld.d. 1A 1:22,4 min.
(gestur)
3. Sigrún Sigg.d. A 1:25,8 min.
100 m baksund karla:
1. Páll Ársælss. Æ 1:11,9 min.
2. Stefán Stefánss.
UBK (gestur) 1:12,0 min.
3. Finnur Garöarss. Æl:12,9 min.
200 m bringusund kvenna:
1. Helga Gunnarsd. Æ 3:04,2 min.
2. Þórunn Alfreðsd. Æ 3:21,3 min.
3. Jóhanna Jóh.d. IA 3:23,2 min.
(gestur)
100 m bringusund karla:
1. Guðjón Guðm.ss.
1A 1:11,8 min.
(gestur)
2. Guöm. Ólafss. SH 1:15,7 min.
(gestur)
3. Sig. Helgas. Æ 1:18,0 min.
1x100 m skriðsund karla:
1. A-sveit Ægis 4:05,4 min.
2. A-sveit KR 4:22,4 min.
3. B-sveit Ægis 4:26,8 min.
Stigatala félaga:
Ægir
Ármann
KR
97 stig
41 stig
32 stig
100 m skriösund kvenna:
1. Guðrún Magnúsd.
KR 1:07,9 min.
2. Salóme Þórisd. Æ 1:09,5 min.
3. Vilborg Sverrisd.
SH (gestur) 1:12,0 min.
200 m skriðsund karla:
1. Sig. Ólafss. Æ 2:08,4 min.
2. Friðr . Guðm.ss.
KR 2:12,7 min.
3. Jóhann Garðarss. A2:25,0 min.
100 m flugsund kvenna:
1. Hildur Kristj.d. Æ 1:22,3 min.
2. Bára Ólafsd. Á 1:22,6 min.
3. Elin Haraldsd. Æ 1:24,7 min.
100 m flugsund karla:
1. Guðm. Gislas.A 1:04,7 min.
2. Hafþór B. Guðm.ss.
KR 1:08,0 min.
3. Páll Ársælss. Æ l:12,2min.
4x100 m skriðsund kvenna:
1. Sveit Ægis 5:02,1 min.
2. SveitÁrmanns 5:13,8min.
Efri myndin sýnir Guðjón Guðmundsson, sem var 8 sekúudubrotum frá
ÓL-lágmarki. Neðri myndin sýnir Helgu Gunnarsdóttur, sem var nokk-
uð frá sinu bezta i mótinu.
(Tlmamyndir Róbert)
■ ■■■■■■ I
■ ■■■■■
-■■ ■■■-■■-■ ■■■■l
Tngþrantarkeppninni lýknr í kvöld
ÖE—Reykjavik
Landskeppninni i tugþraut milli
Islendinga, Breta og Spánverja
lýkur á Laugardalsvellinum i
kvöld, en keppnin i dag kl. 17,30 á
110 m grindahalupi.
og er ungur og efnilegur tug-
þrautarmaður.
Bezti tugþrautarmaður Breta
og einn sá bezti i heimi, Gabbeu
átti að koma, en hann meiddist
skömmu fyrir lslandsförina og
gat þarafleiðandi ekki komiö.
'yrir helgi var skýrt frá þvi, að
itarnir væru aðeins tveir, en sá
ðji bættist við, heitir sá Phipps
Báðar þjóðirnar senda sina beztu
menn i þessa keppni, sem ferða-
færir eru.
_■
ÖE—Reykjavík
Aö loknum þremur greinum I
tugþrautarlandskeppni ts-
lendinga,Breta og Spánverja hafa
þeir siðastnefndu hlotið flest stig
4551, Bretar 4394 og tslendingar
4130. Fernandez, Spáni hefur flest
stig einstaklinga eða 2305, en
beztur tslendinga var Valbjörn
Þorláksson með 2110. Keppninni
lýkur f dag og hefst kl. 17,30.