Tíminn - 27.06.1972, Síða 16
16 TÍMINN Þriðjudagur 27. júni 1972
ooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooo
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
o
TIMAMEM IMU
TVE.W VERBLAUN
Hin árlega keppni ibrótta-
fréttaritara i golfi, fór fram á
velli Golfklúbbs Ness á Sel-
tjarnarnesi s.l. föstudag.
Heldur var veöur slæmt fyrir
svona stórmót, og þar sem
þessi stelt manna er fremur
kulvis mætti ekki nema rétt
helmingur þeirra, sem boðaðir
voru.
Þeir, sem mættu skiptu sér i
tvo hópa. Þeir vanari fóru á
undan, en hinir óvönu á eftir.
Þeir vönu voru þeir Kjartan L.
Pálsson (-klp- Timanum) Jón
Birgir Pétursson (Jbp-Visir)
og Atli Steinarsson (Ast-
Morgunblaðinu) og háðu þeir
mikla og haröa keppni, sem
stóð frá fyrstu holu til þeirrar
siðustu, en leiknar voru 9
holur. Eftir 8 holur voru þeir
Kjartan og Jón jafnir, en Atli
tveim höggum á eftir þeim.
Var þvi mikill spenningur,
þegar kapparnir slógu siðustu
holuna, og báru höggin þess
merki. Kjartan fór hana á 4
höggum/Atli á 5 höggum en
Jón á 6 höggum, með þvi tókst
Kjartani að sigra i keppninni.
Ekki voru tölurnar merki-
legar, þvi þeir léku allir á yfir
50 höggum.
Kjartan á 51, Jón á 53 og Atli
á 54.
Hinir óvanir notuðu fleiri
högg i sinar 9 holur.
Þar varð fyrstur Sigmundur
Ó. Steinarsson, (SOS-
Timanum), sem lék á 69
höggum. Er það góður
árangur hjá honum, þvi þetta
var hans fyrsta golfkeppni.
Fékk hann fyrir þennan
árangur 4. verðlaun. A eftir
honum komu þeir Sigtryggur
Sigtryggsson (SS-Alþýðublað-
inu) á 85 höggum og Bjarn-
leifur Bjarnleifsson (B.B.
ljósmyndari Visis) á 87
höggum, en af þeim fór hann
með 21 högg i mikilli sand-
gryfju, sem þvældist fyrir
honum á leiðinni.
Með sigri i þessu móti, vann
Kjartan til eignar bikar þann,
sem SAAB-umboðið á Islandi,
Sveinn Björnsson & c/o gaf
fyrir þrem árum, en það er
Kjartan.L. Pálsson (til hægri) sést hérna meö bikarinn, sem hann vann til eignar. Meö honum á
myndinni, er Sigmundur Ó. Steinarsson, sem hlaut fjórðu verölaun.
stór og glæsilegur bikar.
Kjartan tók fyrst þátt i þessari
keppni fyrir fjórum árum og
varð þá langsiðastur. Þá tók
hann sig til við að æfa, og
hefur siöan sigrað kollega sina
i þrjú ár'i röð. Til þess að svo
yrði, varð hann að æfa, og
hefur þvi drjúgur timi hans
farið til þeirra hluta. Fyrir
(Tímamynd Róbert)
það afhenti SAAB-umboðið
eiginkonu hans vandað gullúr,
svo hún gæti fylgzt betur með
þeim tima, sem hann fer með
i þessar æfingar og golfið.
DOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOQOOOOOOOOOOOOO
Sovétmenn unnn Vestur-
Þjóðverja í karlagreinnm
Heimsmet og mörg landsmet sett
Aðaliþróttaviðburður
helgarinnar erlendis var lands-
keppni Sovétrikjanna og Vestur-
Þjóðverja i Augsburg i V. Þýzka-
landi. Sovétmenn unnu i karla-
greinum með 235stigum gegn 196
og i kvennagreinum unnu Vestur
Þjóðverjar með 139 stigum gegn
117. Þrir kepptu i grein frá hvorri
þjóð.
Faina Melnik, Sovét setti nýtt
heimsmet i kringlukasti kvenna,
kastaði 65,48 m. og bætti eigið met
um 6 sentimetra.
Mörg landsmet voru sett i
keppninni, m.a. varpaði Bratsjni-
kov kúlu 20,54 m.,sem er sovézkt
met. Wolfermann setti vestur-
þýzkt met i spjótkasti kastaöi
86,80 m. Lusis sigraði, kastaöi
89,38 m., sem er bezti árangur i
heiminum i ár. Letzerich setti
v.þýzkt met i 10 km. hlaupi á
28:14,4 min., en Sjarafeditonov,
Sovét sigraði.hljóp á 28:06.0 min.
í 400 hlaupi kvenna setti Rita
Wilden nýtt vestur-þýzkt met,
hljóp á 51,9 sek.
Metin eru nú upptalin, en mörg
góö afrek voru unnin i öðrum
greinum. Borzow sigraði i 100 og
200 m. á 10,3 sek. og 20,7.
Bondartsjuk, Sovét kastaði
sleggju 75,76 m. sem er bezti
árangur i heiminum i ár. Sovét-
menn unnu þrefaldan sigur i
hástökki, Sapka stökk 2,24 m.
bezti árangur i heiminum i ár,
Abramov, 2,20 og Tarmakn,
einnig 2,20 m. Ivanov, Sovét
sigraði i 800 m á 1:47,9 min. Karl
Honz, V.Þýzkalandi i 400 m á 45,7
sek., en Schloeske varð annar á
46,6 sek. V.Þjóðverjar áttu og
þriðja mann Hermann á 46,9 sek.
Heidi Rosendahl, V.Þýzkalandi
sigraði i tveimur greinum, 200 m
hlaupi á 23,4, sek. og i langstökki
6,53 m. Bessonov, Sovét sigraði i
þristökki 16,61, m. en Sanajev,
heimsmethafinn varð annar með
16,54 m. Kuusemea, Sovét kastaöi
kringlu lengst eða 62,72 m. en
Heinz-Neue 61,14, m.
Frábær frjálsíþrótta-
afrek nnnin í Finnlandi
Góðnr áranpr væntanlegra ísiandsfara
Bandarisku frjalsiþrótta-
mennirnir, sem þátt taka i
afmælismóti FRÍ, 10. til 13. júli
kepptu i Finnlandi um helgina.
Roger Colglazier varð annar i 400
m. hlaupi á 46,8 sek. og Bob
Richards jr. varð 3ji i stangar-
stökki ásamt Lag erkvist frá
Sviþjóð, báðir stukku 5 metra.
Kjell Isaksson, Sviþjóð, heims-
methafinn sigraöi, stökk 5,40 m.
og Kalliomæki, Finnlandi varð
annar með 5,20.
Þetta mót, sem fram fór i
Saarajærvi, tókst að öðru leyti
vel. Komar frá Póllandi setti t.d.
pólsktmetikúluvarpi 20,92 m. Þá
vann Kantanen, Finnlandi 3000
m. hindrun á hinum frábæra tima
8:29,6 min. Ari Salin sigraði i
400m grindahlaupi á 50,9 sek.
Jukola, Finnl.i 200 m á 21.2 sek. og
Pæiværinta, Finnl. i 5000 m á
13:53.0 min.
A ööru móti sigraöi Kinnunen
Finnl. i spjótkastipkastaði 85,50m.
A þvi móti kastaði Bo Grahn
kúlu 19.05 m. en hann keppir á
Afmælismóti FRl i næsta mánuði.
Net á a-þýska meistaramótinn
Jochen Sachse setti austur-
þýzkt met i sleggjukasti á a-
þýzka meistaramótinu i Erfurt,
kastaði 74,76 m. Stolle kastaði*
spjóti 86 metra og Stefan Junge
stökk 2,21 m. I hástökki.
Deiter Fromm hljóp 800 m. á
hinum frábæra tima 1:46,4 min.
Dhremel stökk 16,70 m. i þristökki
Christian Rudolph hljðþ 400 m
grind á 50,5 sek.
íslendinpr þjálfar landslið Færejinga
í knattspyrnn
islendingur hefur vcrið ráðinn
þjálfari landsliðs Færeyinga i
knattspyrnu i sumar. Þessi
islendingur er Sölvi Óskarsson,
sem þjálfaöi 1. deildarlið Breiða-
bliks i fyrra, með góöum árangri,
kom liðinu t.d. i úrslit i Bikar-
keppninni.
Sölvi lagði land undir fót i vor
og hélt til Færeyja, þar sem hann
geröist þjálfari hjá 1. deildarliði
Klakksvikur. Hann hefur nú
komið liðinu i efstasæti i færeysku
1. deildinni og meö þvi getið sér
gott orð sem þjálfari i Faéreyjum.
Fyrir nokkru var leitað til Sölva
og honum boðið að gerast þjálfari
landsliðs Færeyja i knattspyrnu
og einnig að sjá um þrekæfingar
hjá færeyska handknattleiks-
landsliðinu. Sölvi þáði boðið og
hefur hann þjálfað landsliðin að
undanförnu.
Landslið Færeyja i knatt-
spyrnu, undir stjórn Sölva
óskarssonar, kemur hingað til
landsins i júli n.k. og mun það
leika landsleik gegn okkur. 9. júli.
Verður gaman að sjá, hvernig
strákarnir hans Sölva, standa sig
gegn sterkustu knattspyrnu-
mönnum okkar i landsleik.
Verður leikurinn, fyrsti A lands-
leikurinn, sem þjóðirnar leika sin
á milli. Þjóðirnar hafa leikið fjóra
B landsleiki i knattspyrnu áður.
SOS.
Sölvi Óskarsson.
r
Síórafrek mótanefndar KSI:
Mótanefndinni tókst að hafa
þrjá knattspyrnnleiki af reykvískum
áhorfendnm nm helgina
Mótanefnd KSÍ lét stjórn KSÍ
draga sig á asnaeyrunum um
s.l. Iielgi. Mótanefndin varð
við þeirriósk, stjórnar KSÍ, að
leikur Breiöabliks og Keflavik
i 1. deild yrði færður fram á
föstudagskvöld i staðinn fyrir
að hann átti að fara fram á
sunnudag. Snillingarnir i
Mótanefndinni, féllust strax á
ósk stjórnar KSÍ meö þeim af-
leiðingum, að það þurfti að
fresta þremur leikjum i 1, og
2. deild um helgina.
Lét nefndin leik Breiðabliks
og Keflavikur fara fram á
föstudagskvöldið á Mela-
vellinum. Eöa á sama tima og
leikur Ármanns og tsafjarðar
átti aö fara fram i 2. deild.
Þann leik gerði nefndin sér
litið fyrir og færði hann til
sunnudags. ísfirðingar, sem
einnnig áttu að leika gegn
Þrótti á laugardag, gátu ekki
komið til Reykjavikur, vegna
þess að það var ekki flugveður
frá tsafirði á laugardag. Aftur
á móti var flugveöur frá tsa-
firði á föstudag og ef leikur
Ármanns og tsafjarðarliðsins
hefði farið fram á föstudags-
kvöldið eins og áætlað var,
hefðu tsfirðingar komið til
Reykjavikur á föstudag og
leikið báða leikina, sem liðið
átti að leika i Reykjavik.
Mótanefndin kom i veg fyrir,
að leikir tsfirðinganna, færu
fram um helgina, með þvi að
færa leik Breiðbliks og Kefla-
vikur yfir á föstudagskvöld.
Þá gat leikur Vals og Vest-
manneyja ekki farið fram á
laugardag, vegna þessað ekki
var flugveður frá Eyjum eftir
hádegi. Með réttu átti nefndin
að láta leikinn fara fram á
sunnudaginn, en hún gat það
ekki, vegna þess að stjórn
KSl, var búin að fá þann dag
til afnota fyrir iandsliðs-
mennina sina úr 1. deildarlið-
unura. Stjórn KSt gat ekki séð
af fjórum landsliðsmönnum,
sem eru i liðum Vals og Vest-
manneyjg, þvi að ekki mátti
annað, en fara með sterkasta
iandsiiðið i æfingarleik á
sunnudaginn. Breiddin virðist
vera svo litil hjá islenzkum
knattspyrnumönnum, að ekki
má sjá af þessum fjórum leik-
mönnum.
Leikur Ármanns og tsa-
fjarðar, sem átti að farafram
á föstudagskvöldið, var
ákveðinn á sunnudag, eins og
fyrr segir. Þurfti þvi að fresta
leik Selfoss og Ármanns, sem
átti að fara fram á mánudags-
kvöldið, þvi að Ármannsliðið,
taldi sig ekki geta leikið tvo
leiki á tveimur dögum.
Eins og sjá má á þessum
vinnubrögðum Mótanefndar-
innar, þá er hún búin að koma
miklum ruglingi á 1. og 2.
deildarkeppnina. Þó að það
hafi ekki verið meiningin hjá
nefndinni að koma svona rugl-
ingi á leikina, á nefndin ekki
að láta stjórn KSt eyðileggja
margra mánaða vinnu, við að
raða niður leikjum, með ein-
hverjum smáleikjum, sem
þjóna engum tilgangi. SOS