Tíminn - 05.07.1972, Síða 1
IGNIS
FRYSTIKISTUR
RAFtÐJAN SIMI: 19294
kæli-
skápar
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Simar 18395 & 86500
Oddsskarðsgöng-
in að myndast
ÞÓ-Reykjavik
Tiöarfariö hér austan lands
hefur tafiö fyrir jarðgangagerö
hér i Oddsskarði, sagöi Einar
Sigurösson verkstjóri við ganga-
geröina, er viö ræddum viö hann.
Það sem hefur háö okkur, sagöi
Einar, er að tiöarfar hefur veriö
úrkomulaust og þar af leiöandi
hefur okkur gengið illa aö koma
öllu efni frá okkur. Viö erum samt
búnir aö sprengja munnana
Eskifjarðarmegin og eftir 10 - 14
daga ætti verkiö aö vera komið i
fullan gang. Við reiknum meö aö
geta sprengt út 5 metra á sólar-
hring, en hér vinna 24 menn ])ar
af eru 16 sem vinna á tveimur 10
tima vöktum. Einar sagði, aö
göngin yröu sprengd að mestu
leyti Eskifjaröarmegin, en þeim
megin verða þau lægri, og i jarö-
gangnagerö er vaninn að halda
upp i móti.
Reiknaö er með, aö búiö verði
að sprengja þessi 600 metra göng
fyrir jól og um leiö á aö vera búiö
aö leggja nýja vegarfyllingu út
frá göngunum. Næsta sumar á
siöan að steypa i göngin og fóðra
þau og bera ofaniburða á vegar-
fyllinguna.
Eins og fyrr segir þá veröa
Oddsskarösgöngin 600 metra
löng, og íiggja göngin um 100 m
undir gamla veginum, sem liggur
um Oddsskarö. Hæðarmismunur
verður nokkur á göngunum, og
verða þau 14 metrum hærri Norö-
fjarðarmegin.
Grettisfang þakk-
arsérei,málalok’
nokkurn hátt eigna sér eöa þakka
heiðurinn af þvi, aö Fischer féllst
loks á að koma hingaö og sagði,
aö þann hefði rétt veriö búinn aö
koma sér i samband við Fischer
og hitta hann að máli, þegar til-
boð brezka auökýfingsins barst.
,,Það leið ekki á löngu þar til
Bobby tók ákvörðun um að taka
þessu tilboöi”, sagöi Freysteinn
við fréttamann Timans, „þannig
að til minna kasta kom alls ekki.
Annars vil ég helzt ekki ræða viö
fréttamenn sem stendur.”
Með það hélt Freysteinn af staö
til Reykjavikur, en ekki sakar aö
geta þess, aö hann hefur boöið
þeim Fischer og Spasski aö renna
með sér fyrir lax, og i gærdag
höfðu þeir báöir þegiö þaö boö,
hvað sem siðar kann aö veröa.
Og þá þykir Timanum einnig
rétt að taka fram, aö mishermt
var i blaöinu i gær, aö Freysteinn
heföi fariö út á vegum Cramers
og annarra fulltrúa Fischers.
Hann fór út upp á eigin spýtur og
fyrir eigin reikning, eins og segir i
upphafi fréttarinnar.
Spasski og Fischer
báðir fúsir að tefla
Fischer heilsar Guömundi G. Þórarinssyni, áöur en hann þýtur inn í leigubilinn. (Timamynd G.E.)
ÓV-Reykiavik.
Meöal samferöamanna
Fischers til islands í gær-
morgun var Freysteinn
„Grettisfang" Þorbergs-
son, sem á sunnudaginn
hélt til New York upp á sitt
eindæmi til aö freista þess
að telja Fischer á að koma
til islands og tefla um
heimsmeistaratitilinn í
skák.
Fréttamaður Timans hitti
Freystein ab máli er hann var að
stiga upp i bil á leið til Reykja-
vikur, og var heldur dauft i
honum hljóðið. Ekki vildi hann á
sagði dr. Max Euwe forseti Alþjóðaskáksambandsins
ÞÓ-Reykjavik.
Klukkan 12.45 i gær átti að
draga um lit i fyrstu einvigisskák
þeirra Boris Spasskis og Roberts
Fischers, og klukkan 5 siödegis
átti fyrsta umferðin að fara fram
i Laugardalshöllinni. Ekkert
varð þó úr þvi að Fischer kæmi til
þess að draga um litinn, og þegar
Boris Spasski var búinn aö biöa
drjúga stund eftir Fischer á Hótel
Esju i gær, gekk hann af fund-
inum i mótmælaskyni, ásamt
fylgdarliði sinu, og þótti mörgum
það ekki nema eðlilegt.
Var nú ljóst, að einvigismálið
var komið i enn eina sjálfhelduna,
og á fundi með blaðamönnum,
sem dr. Euwe hélt skömmu eftir
að Spasski yfirgaf Esju, sagði
hann, að hann væri hræddur um
að ekkert yrði úr einviginu, en
næstu stundir yrðu notaöar til
þess að reyna aö koma málinu á
rekspöl.
Max Euwe og Lothar Schmid
yfirdómari héldu annan fund með
fréttamönnum um kl. 4. i gær. Þá
sagði Euwe, að Spasski og
Fischer væru báðir fúsir að tefla
einvigið, og sagðist hann vonast
til að einvigið gæti hafizt á
morgun eða jafnvel i dag.
Euwe viðurkenndi, að Rússar
hefðu vitt sig og Fischer fyrir
gerðir sinar, en ekki væri gott að
gera öllum til hæfis i jafn erfiðu
viðfangsefni. Sagði Max Euwe,
að það, sem hefði gerzt i þessu
máli, væri ein leiðinlegasta saga
iþróttanna, og ef ekkert yrði úr
einviginu, þá yrði það mjög baga-
legtfyrir Alþjóðaskáksambandið.
A þessum blaðamannafundi af-
henti Cramer yfirlýsingu frá
bandariska skáksambandinu. 1
hennisegir: Við höfum móttekið
yfirlýsingu frá rússneska heims-
meistaranum Boris Spasski, sem
fjallar um ágreining milli kepp-
endanna. Okkur var ekki kunn-
ugt um þessi vandamál. Við
viljum fá nánari skýringu á til-
gangi þessarar yfirlýsingar, og
gera allt, sem i okkar valdi
stendur til að af þessum mikla at-
burði geti orðið.
Þar af leiöandi fara, aö okkar
eigin frumkvæði, þeir William
Lombardy og Paul Marshall lög-
fræðingur úr okkar hópi til hótels-
ins, þar sem rússneski hópurinn
dvelur. og munu þeir ræða þessi
vandamál og reyna að leiða
þennan ágreining til lykta.
Ánnað markvert gerðist ekki á
þessum fundi.
Um kvöldmatarleytið i gær-
kvöldi boðaði dr. Euwe svo til
annars fundar meö frétta-
mönnum á Hótel Loftleiðum. A
fundinn komu þeir Paul Marshall,
lögfræðingur Fischers, og
Lombarty stórmeistari. Einnig
tók Fred Cramer þar til máls.
Paul Marshall tók fyrstur til
máls og sagði nokkur orð um fund
þeirra Lombardys meö Rúss-
unum. Marshall sagði aðeins:
„Sem kunnugt er, þá eru Rússar
búnir að senda frá sér tvær harö-
orðaðar yfirlýsingar, og hafa þær
komiö okkur i uppnám og valdið
okkur undrun. En ég get sagt, að
úr þvi að Fischer er staddur á ts-
landi, hefur hann áhuga á að tefla
Framhald á bls. 19
Ahyggjufullur og óstyrKur
Fischer á Kcflavikurflugvelli i
gærmorgun.