Tíminn - 09.07.1972, Blaðsíða 19
Sunnudagur 9. júli 1972
TÍMINN
19
Umsjón Alfreð Þorsteinsson
Spá Tímans um unglingalandskeppnina:
Danir sigra, en bar-
áttan verðnr hörð
Lára Sveinsdóttir — nær hún ÓL-Iágmarkinu?
ÖE—Reykjavík.
Fyrsta grein siðari dagsins i
unglingalandskeppni Dana og
íslendinga var islenzk, þ.e. 400 m
grindahlaup. Borgþór Magnússon
sigrar og Vilmundur Vilhjálms-
son veróur annar, er okkar spá.
Að visu eiga Danirnar betri tima
en Vilmundur, en við blásum á
það og spáum Vilmundi öðru
sæti,8:2 fyrir ísland, samanlagt
02:50, og munurinn hefur
minnkað mjög
Aftur syrtir i álinn i stangar-
stökkinu, en þar er óhætt að bóka
tvöfaldan danskan sigur, 8:3,
samanlagt 70:59 fyrir Dani.
Spjótkastið verður afar tvisýnt.
Óskar Jakobsson er meö bezta
árangurinn, en hann hefur aðeins
einu sinni kastað yfir 60 m i
keppni, og það væri ósanngjarnt
að ætla honum sigur yfir
dönskum. Viðspáum Óskari öðru
sæti og Eliasi Sveinssyni 3ja 6:5
fyrir Dani, 76:64 samanlagt.
Sleggjukastið má telja vonlitiö,
og við spáum tvöföldum dönskum
sigri, 8:3, og samanlagt 84:67.
Barátta ættti að verða mikil i
1500 m hlaupinu, og nú ætlum við
að vera mjög bjartsýnir og spá
Agústi sigri 6:5 fyrir ísl. og 89:73
samanlagt fyrir Dani.
Heldur vænkast útlitið i
þrfstökkinu. Friðrik Þór hefur að
visu verið meiddur, en við
vonum, að hann sé búinn að ná
sér og spáum honum sigri og
Helga þriðja sæti, 7:4 fyrir fsland
og 93:80 samanlagt.
200 m hlaupið verður ein af
þessum spennandi greinum,
sem allt getur gerzt i. Við spáum
Vilmundi öðru sæti og Hannesi
fjórða, 7:4 fyrir Dani og 100:84
samanlagt. Næsta grein,
2000 m hindrunarhlaup, verður
ójöfn, Danir nærri öruggir um
tvöfaldan sigur, (8:3 og 108:87
samanlagt.
Loks er komið að siðustu grein-
inni, 4x400m boðhlaupi, og við
klikkjum út með að spá isl. sigri,
5:3 Og samanlagt sigra Danir i
unglingalandskeppninni skv.
okkar spá með 111 stigum gegn
92, sem er mjög þokkaleg útkoma
gegn hinu sterka danska lands-
liði.
Stúlknakeppnin verðu ekki eins
jöfn, í fyrstu greininni á þriðju-
dag hástökki gæti þó orðiö allhörð
keppni. Danska stúlkan Aasted,
sem stokkið hefur 1,70 m. er
sigurstrangleg, en vonandi veitir
Lára henni harða keppni, viö
spáum Láru öðru sæti og Kristinu
fjórða 7:4 fyrir Dani, samanlagt
55:33 eftir fyrstu grein siöari
dags.
Við verðum einnig bjartsýn i
annari grein siðari dags, kúlu-
varpinu og spáum Guðrúnu
Ingólfsdóttur ööru sæti og Gunn-
þórunni fjóröa, 7:4 fyrir Dani og
62:37 samanlagt.
Við væntum hörkukeppni i 1500
m. hlaupi og spáum Ragnhildi
Pálsdóttur sigri og 6:5 fyrir
tsland, samanlagt 67:43.
Ein spennandi grein i viöbót
verður 100 m. hlaupið, viö spáum
Láru öðru sæti og Sigrúnu þriðja,
6:5 fyrir Dani og 73:48 saman
lagt. Dönsku stúlkurnar vinna
4x100 m- boðhlaupið og 5:3 eru
stigin og samanlagt sigra þær
dönsku með 78 st. gegn 51.
Skammlaus útkoma að okkar
dómi.
1500 m. hlaup:
Ragnhildur Pálsdóttir Isl. 4:57,7
min.
Anna Haraldsdóttir, Isl. 5:22,9
min.
Loa Olafsson, Danm.
Hanne Rothhausen, Danm.
100 m. hlaup:
Tone Kyhn, Danm. 12,3 sek.
Lisbeth Nielsen, Dan, 12,5
Lára Sveinsdóttir, tsl. 12,6
Sigrún Sveinsdóttir, tsl. 12,6
4x100 m. boöhlaup:
Engir timar.
Varamenn:
Asa Halldórsdóttir
Magnús Geir Einarsson
Skúli Arnarson
Fyrirliði unglinga: Agúst
Asgeirss.
Fyrirliði stúlkna: Lára Sveinsd.
Liðsstjóri: Sigurður Helgason.
SÍÐARI DAGUR:
Unglingar.
400 m. grindahl.
Borgþór Magnúss. tsl. 55,6 sek.
Vilmundur Vilhjálmss., 57,7 sek.
Finn Visnek, Danm., 56,7 sek
Lars Ingemann, Danm., 57,2 sek.
Stangarstökk:
Peter Johansen,Danm. 4,10 m
Bent Larsen, Danm. 4,11 m
Elias Sveinss. 3,60 m
Karl West, tsl., 3,20 m
Sleggjukast:
Torben Larsen, Danm., 45,91 m
PoulSteffensen,Danm., 45,02 m
Elias Sveinss. Isl.
Óskar Jakobsson, tsl.
1500 m hlaup:
NielsNygaard,Danm., 3:57,2
min,
Svend Malchau, Danm. 3:57,2min
Agúst Ásgeirsson. Isl., 4:02,0min
Einar Óskarsson, tsl., 4:11.4min
Spjótkast:
Óskar Jakobsson, Isl., 62,80 m
Elias Sveinsson, tsl.' 57.96 m
Bent Larsen, Danm. 61,88 m
Carsten Hessild, Danm, 61,78 m
Þristökk:
Friðrik Þ. Óskarss. tsl. 14,89 m
Helgi Hauksson Isl. 13,82 m
Erling Hansen, Danm., 14.05 m
Bo Jörgensen, Danm., 13,70 m
Framhald á bls. 14.
111)11 AB (iEFA BIKAR FIKIR
KVEMAKMTTSPIRNI)
Niklar líkur á að íslandsmót í kvennaknattspjrnu verði haldið í haust, sagði Albert Guðmundsson
Hér á myndinni sést afgreiðslustúlka, sem æfir og leikur knattspyrnu
hjá Breiöabliki, halda á silfurbikarnum sem Gull og Silfur, Laugarveg
35, hefur gefið KSÍ. Bikar þessi er þvi fyrsti bikarinn, sem keppt verður
um i kvennaknattspyrnu. (Timamynd Róbert)
Mikið hefur verið rætt og
ritað um kvennaknattspyrnu
að undanförnu. Eftir að
kvennalið Armanns og tA léku
forleik á undan landsleik
Islands og Danmerkur skaut
sú spurning upp kollinum,
hvenær komið yrði á móti i
knattspyrnu fyrir kvenfólkið.
Eins og flestir vita, hefur
mikið verið rætt um það
siðustu árin, að kominn væri
timi til að gera eitthvað fyrir
þær stúlkur, sem stunduðu
knattspyrnu.
Fyrir tveimur árum vann
Albert Guðmundsson, for-
maður KSt, að þvi að setja á
laggirnar mót fyrir kven-
fólkið, en hans hugmynd hefur
litinn hljómgrunn fundið hjá
öðrum forustumönnum knatt-
spyrnuhreyfingarinnar.
Þegar forráðamenn knatt-
spyrnudeildar Armanns
tilkynntu i vor að þeir myndu
senda kvennalið á öll mót, sem
haldin yrðu i sumar á vegum
KRR og KSl, var hlegið, að
þeim.
En nú er þetta ekki lengur
aðhlátursefni, þvi að eitthvað
verður að gera i málinu. Ef
það verður ekki gert fljótlega,
eigum við eftir að sjá eftir þvi
siðar meir, þvi að kvenna-
knattspyrna á ört vaxandi
vinsældum að fagna i
heiminum. T.d. hefur verið
komið á heimsmeistarakeppni
kvenna i knattspyrnu, og þess
verður ekki langt að biða, að
Evrópukeppni kvenna verði
komið á, má jafnvel búast við
að það verði á næsta ári.
Sumir segja, að kvenfólk
hafi engan áhuga á knatt-
spyrnu og að fá félög séu með
æfingar fyrir það. Það er að
visu rétt, að ekki eru mörg
félög með kvennaknattspyrnu
á dagskrá, en það er hins
vegar alveg öruggt, að félögin
fara að þjálfa upp kvennalið,
ef mót fyrir kvenfólk verða
sett á laggirnar.
Kvennaknattspyrnan á ekki
eingöngu að vera Trimm fyrir
stúlkur, sem vilja halda
linunum fallegum. Hún á að
vera keppnisiþrótt og þá fer
fyrst að vakna áhugi á knatt-
spyrnunni hjá kvenfólkinu.
Þeir sem sáu leik Armanns og
tA voru allir sammála um að
stúlkunum sem léku, heföi
farið mikið fram siðan þær
léku i innanhússmótinu i
knattspyrnu i sumar, og
sumar þeirra gefa karl-
mönnum, sem leika i yngri
flokkum félaganna, ekkert
eftir.
Það er ekki að efa, að leikur
kvennaliða Armanns og 1A um
daginn hefur opnað augu
flestra sem sáu leikinn fyrir
þvi, að nú sé kominn timi til að
fara að leggja rækt við knatt-
spyrnu kvenna. Það hafa
margir haft samband við
okkur hjá iþróttasiðu Timans
til að fá að vita, hvort ekki
verði komið á móti fyrir kven-
fólkið.
T.d. hringdi einn af
eigendum Gulls og Silfurs og
bauðst til að gefa veglegan
silfurbikar fyrir kvenfólkið
til að keppa um. Þessi bikar er
mjög fallegur og er úr silfri i
gegn. Er þetta mjög rausnar-
leg gjöf hjá eigendum Gulls og
Silfurs.
Eigendurnir afhentu
stjórn KSt þennan veglega
grip i gær, og þakkaði Albert
Guömundsson þeim kærlega
fyrir og sagði að bikarinn
mundi ýta undir stjórnina að
koma á kvennamóti strax i
haust. Hann sagðist vona, að
timann þangaö til myndu,
félögin nota til að þjálfa upp
kvennalið sin.
SOS.