Tíminn - 09.07.1972, Qupperneq 21
Sunnudagur 9. júli 1972
TÍMINN
21
Ragnhildur
Fulltrúaþing Sambands ísl. barnakennara:
Fimm daga skólavika mun
komast á innan tíðar
22. fulltrúaþing Sambands isl.
barnakennara, sem haldið var i
Reykjavik 3. - 5. þ.m., gerði itar-
legar samþykktir i skóla- og upp-
eldismálum og launa og kjara-
málum barnakennara. Hér fara á
eftir helztu samþykktir þingsins.
Skóla- og uppeldismál
Fulltrúaþingið lýsti ánægju
sinniyfir því, að menntamálaráð-
herra hefur skipaö nefnd til að
endurskoða frumvarp til laga um
grunnskóla og lagði jafnframt
áherzlu á, að frumvarpið hljóti
afgreiðslu á næsta Alþingi. bá
var stjórn sambandsins falið að
kalla saman ráöstefnu, er frum-
varpið verður lagt fram endur-
skoðað.
Þingið lagöi áherzlu á að endur-
skoða þyrfti reglur, sem gilda um
hámarksfjölda nemenda i
bekkjardeild, og taldi, að hann
megi ekki fara yfir 24 nemendur,
en fari siðan lækkandi, ef
bekkjardeildir eru skipaðar
nemendum af fleiri aldurs-
flokkum en einum.
Þingið fól stjórn sambandsins
að vinna markvisst að þvi að
stundaskrá nemenda verði sam-
felld. Stefnt verði að þvi að allir
framhaldsskólar landsins verði
einsetnir, og unnið að þvi i
áföngum að barnaskólarnir verði
það einnig.
Þingið skoraði á menntamála-
ráðherra að láta nú þegar fara
fram athugun á þörf skólanna á
öðru starfsfólki en kennurum.
Vakin var athygli á óviðunandi
ástandi, sem rikir viða i skólum
landsins hvað snertir aðbúnað
nemenda og kennara. Skoraði
þingið á stjórnvöld aö hefja nú
þegar áætlanagerð um skóla-
byggingar starfsmannahald og
tækjabúnað.
Þingið benti á, að mörg rök
hniga að þvi, að 5 daga skólavika
muni komast á hér á landi innan
tiðar. 1 þessu sambandi taldi
þingið að varast bæri að leggja of
margar kennslustundir daglega á
nemendur, og ennfremur mundi 5
daga skólavika hafa i för með sér
kröfur um aukið húsrými
skólanna.
Þingið fagnaði þeirri stefnu,
sem mörkuð var um menntun
kennara með löggjöfinni um
Kennaraháskóla Islands. Þingiö
harmaöi þann drátt, sem oröið
hefur á framkvæmdum við
byggingu skólahúsnæðis fyrir
skólann og skoraði á Alþingi og
rikisstjórn að búa svo vel að þeim
stofnunum, er mennta kennar*
með mannafla, bókakosti
húsrými og öörum tækjum, svo aö
þær geti rækt hlutverk sitt i sam-
ræmi við gildandi lög og kröfur
timans. Lagði þingið áherzlu á aö
efla bæri Rannsóknarstofnun
uppeldismála við Kennarahá-
skóla Islands.
Þingið taldi, að afmarka bæri
hlutverk Æfinga- og tilraunaskóla
Kennaraháskóla Islands að þvi er
varðar æ f ingakenns1u ,
rannsókna- og tilraunastarf og
skólanum verði séð fyrir nægi-
legum fjölda sérfróðra manna,
svo að hann geti rækt það
fjölþætta hlutverk, sem honum er
ætlað.
Launa - og kjaramál
Taldi þingið að nýjungar og
éndurbætur i kennsluháttum
grundvallist á starfi
kennarans,þvi bæri að
leggja áherzlu á viðbótar- og
endurmenntun kennara, lita bæri
á kennslustarfið sem heils árs
starf og miða kjör kennara við
það.
bingið benti á, að verði
kennurum ekki unnt að helga sig
kennarastarfinu einvörðungu, sé
þess ekki að vænta, að
málum verði annaö en hjal eitt.
annað en hjal eitt.
Þá taldi þingið, að mat á
ábyrgö kennarans hafi hingað til
verið ranglátt og óraunsætt, á
þessu þurfi aö verða breyting.
Þá lagið þingið áherzlu á eftir
talin atriði:
1. að sömu- laun verði greidd
kennurum, sem kenna á skyldu-
námsstigi, hafi þeir sömu undir-
búningsmenntun.
2. að kennsluskylda barna-
kennara verði lækkuð i 30 st á
viku.
3. að almenn kennaramenntun
verði metin jöfn til launa, án til-
lits til hvenær henni var lokið.
4. að kjör stundakennara veröi
stórbætt.
5. að allir kennarar geti með þvi
að sækja opinber námskeiö,
4 fœreyskir
myndlistarmenn
sýna oliumálverk og grafik i sýningar-
sal Norræna Hússins 9.-16. júli n.k.
Sýningin verður opin daglega kl. 15-20.
LISTAFÉLAG FÖROYA
NORRÆNA
HUSIO
heima eða erlendis, hækkað um
launaflokka.
6. aö kennurum og skólastjórum
strjálbýlisins verði greiddar
staðaruppbætur.
7. aö erindisbréf kennara og
skólastjóra verði endurskoöað og
sérstakt tillit tekið til aöstæðna i
heimavistarskólum.
8. að hver skóli hafi heimild til að
fastráöa í allar þær stöður,
sem hann á rétt til og námskrá
krefst.
Þingiö mótmælti einhliða
túlkun fjármálaráðuneytisins á
ýmsum kjaraatriðum varðandi
kjör barnakennara, sem það
siðan sendir öllum skólastjórum
og reikningshöldurum skólanna.
Taldi þingið ófært aö hefja skóla
að nýju með hausti, hafi þá ekki
verið gengið frá þessum vafa-
atriðum á eðlilegum samnings-
grundvelli.
Stjórn sambandsins var faliö aö
láta fara fram rannsókn á kjörum
kennarastéttarinnar, eins og þau
eru nú og gera samanburð á
raungildi launa stéttarinnar og
annarra kjara samfara viðmiðun
við aðrar stéttir. Jafnframt lagði
þingið áherzlu á þörfina fyrir
hagstofnun launþegasam-
takanna.
Þingið mótmælti siöasta dómi
Kjaradóms, en þakkaöi forystu-
mönnum BSRB fyrir skelegga
afstöðu þeirra i málinu.
Þingið taldi, að sérsambönd
opinberra starfsmanna ættu aö fá
frjálsan rétt til samninga við
rikisvaldið og sveitarfélög fyrir
umbjóöendur sina.
Þingiö fól stjórn sambandsins
að vinna áfram aö könnun á þvi,
að Samband islenzkra barna-
kennara og Landssamband fram-
haldsskólakennara myndi eitt
nýtt kennarasamband, kynna
málið vandlega meöal félags-
manna og kanna siðan afstööu
þeirra með allsherjaratkvæöa-
greiðslu.
ÓDÝRI
MARKAÐURINN
Herra sumarjakkar kr. 2650/-
Herra frakkar kr. 3180/-
Herra buxur kr. 1100/-
Drengjabuxur kr. 800/-
LITLISKÓGUR
Snorrabraut 22 simi 25644.
Jón Grétar Sigurðsson |
héraðsdómslögmaöur
Skólavörðustig 12
Simi 18783
COMB
landbúnaðarvagn
meö færigólfi —
Fjölþættar veitingar. Vörur fyrir
ferðafólk i úrvaii. Benzin og oiiur.
— Þvottaplan.
Leggjum áherzlu á fijóta og góða
afgreiðslu i nýju og fallegu húsi.
Verið velkomin.
VEITINGASKALINN BRÚ,
Hrútafiröi.
reuu
menn
Grænfóðursvagn — Mykju-
dreifari — flutningsvagn.
Fljótvirkur losunarbúnaður
— Burðarþol 3000 til 5000 kg
— Leitið upplýsinga i síma
81500.