Tíminn - 11.07.1972, Síða 7
Þriðjudagur II. júli 1972
TÍMINN
7
900 þúsund hefja
háskólanam
Skólaárinu í Soyetrikjunum er
lokið, og fyrir þá áem útskrifast
úr 10. bekk þýðir það,að mið-
skólanáminu er lokið. Nú
streyma inntökubeiðnir til
háskóla og annarra æðri skóla.
Alls verða 900 þúsund nýir
stúdentar teknir inn i skólana.
Þess er einungis krafizt, að
umsækjendur hafi þá hæfileika
er til þarf, og reynt er að
komast eftir þvi meö inntöku-
prófum og samanburði árs-
einkunna frá, skólunum. Rikið
veitir námsfolkinu styrki og öll
kennsla er ókeypis. Alls eru
nemendur við 812 háskóla og
aðrar æðri menntastofnanir i
Sovetrikjunum um 4.6 milljónir
að tölu.
Vildi glettast við konu
sina
Bulgarska blaðið Anteni i Sofiu
skýrpi frá þvi, að maður að
nafni Venkov heföi allt i einu
fengið þá flugu i höfuðuð, að rétt
væri að glettast svolitið við konu
sina. Hann ætlaðiaöláta lita svo
út, sem hann hefði hengt sig i
stofunni heima hjá sér, en
bandið hafði hann bundið
þannig, aö það hérpti ekki að
hálsinum, svo hann var sprell-
lifandi. þóttekki væri gott að sjá
það i fljótu bragði. Nú fór svo,
að kona Venkovs kom ekki fyrst
aö manni sinum hangandi,
Stuttbuxur bannaðar
Feröafólk sækir æ meira suö-
ur á bóginn, og nú liggur ferða-
mannastraumurinn til Tunis,
segir i dönsku vikublaöi. Þang-
aö fara stúlkur gjarnan i stutt-
buxum, og jafnvel bikini, en
slikt þykir vart sæmandi þar i
landi vegna trúarskoöana og
þjóöhátta. Algjörlega er bann-
að, að konur gangi inn i moskur
i þessum klæönaöi, og i tilefni af
þvi hefur enska feguröardrott-
ingin Yvonne Ormes látið
mynda sig i slá, sem er mjög
hentug til þess að bregða yfir sig
rétt á meðan gengið er inn i
moskurnar eöa aöra staði, þar
sem stuttbuxurnar sæma ekki.
Hér sjáið þið drottninguna i
stuttbuxunum, og svo þar sem
hún er að setja slána yfir sig og
að lokum sýnir hún ykkur
hvernig hún litur út i slánni.
Endurbætt Iljusinþota
Talsmaður sovézka flug-
félagsins Aeroflot hefur skýrt
fréttastofnunum svo frá, aö hin
nýja IL-62M, sem er ný
endurbætt útgáfa hinnar frægu
Iljusinþotu, verði tekin i notkun
á flugleiðunum Moskva-Tokio
og Moskva-New York og fleiri
löngum alþjóðlegum flugleið-
um. Flughraði þotunnar verður
um 900 km á klukkustund. Betri
hreyflar og aukinn eldsneytis-
forði gefa þotunni um 700 km
meira flugþol heldur en eldri
gerðir hafa, þannig aö þessi
nýja gerð þotunnar getur flogið i
einum áfanga sem svarar fjórð-
ungi af ummáli jarðar um mið-
baug. Með ýmsum breytingum
á innréttingu þotunnar verður
þægilegt rúm fyrir 200 farþega.
segja viö tveimur i viðbót. Þeg-
ar eiginkonan, Hanna, hefur
lokið námi, en hún leggur stund
á barnauppeldismál, hefur Paw
i hyggju að fara sjálfur i skóla
og læra það sama.
Hann gætir barna
Þessi mynd er ekki af venju-
legum föður, sem gefur sér tima
til þess að fylgjast með leik
barna sinna, þegar hann loks *
kemur heim úr vinnunni að
kvöldi dags, heldur er þetta
ungur maðui; sem hefur ákveðið
að taka að sér börn og gæta
þeirra heima hjá sér, eins og
fjölmargar konur gera nú i at-
vinnuskvni . Þetta er 24 ára
gamall Dani, Paw Juel Wither,
sem á heima i Odense i Dan-
mörku og hefur hann nú hlotið
viðurkenningu yfirvalda og
hann má taka börn til dagvist-
unar heim til sin. Hann á einn
son, Martin, sem er hálfs árs, en
auk hans gætir hann fjögurra
annarra barna á aldrinum
tveggja til sex ára. Paw var
málari að iðn, en siðar for hann
að starfa að félagsmálum, og nú
hefur hann sem sagt ákveðið að
helga sig barnagæzlunni. Lengi
vel var það kona hans, sem sat
heima og gætti barna, já og
hafði meira að segja tvö dag-
vistunarbörn, en svo ákvað kon-
an að hefja skólanám á nýjan
leik, og þá kom að þvi að Paw á-
kvað að taka að sér að gæta
barnanna og bætti meira að
heldur var það nágranni þeirra.
Honum varð svo mikið um, að
sjá^að vinur hans gafði hengt
sig, að það leiö yfir hann á stund
inni, og hann féll i gólfið.
Venkov klifraði niður til þess að
hjálpa nágranna sinum en fórst
þá svo óhönduglega, að hann
datt og rotaðist. Að lokum kom
frúin, og við að sjá mennina tvo
liggjandi á stofugólfinu, hálf-
dauða, brá henni svo,að hún féll
einnig i ómeginn. Anteni segir,
að nú séu hjúin öll á sjúkrahúsi,
og séu nokkuð farin að hressast,
og liklega reynir Venkov ekki að
leika á konu sina á næstunni, úr
þvi svona óhönduglega tókst til i
þetta skipti.
Útivistar- og iþrótta-
svæði við Moskvu
A næstu árum mun landslagið
á bakka Moskvufljóts I vestur
jaðri sovézku höfuðborgarinnar
breyta um svip vegna þess, aö
þar hefur verið skipulagt við-
áttumikið tilbúið fjallalandslag.
Svæöi þetta verður eitt af
fjórum iþróttasvæöum, sem
gert er ráö fyrir i aöalskipulagi
að vexti borgarinnar næstu 15-20
árin. öll svæðin fjögur verða
innan bogarmarkanna. Ekki
verður leyft að byggja á
svæðum þessum aðrar
byggingar en þær, sem tilheyra
iþróttamannvirkjunum, sem
þarna hafa verið skipulögð.
Meðal mannvirkja, sem þarna
á að gera, eru skiðabrautir,
bæði fyrir svig og stórsvig,
skuröur, sem ætlaður er fyrir
róðrarkeppni. Hluta af ánni
veröur breytt i svæöi fyrir þá
sem leggja stund á froskköfun.
Þá verða skipulagðar stuttar
ferðir með gömlum rússneskum
segibátum. Loks má nefna, að
útbúinn verður sérstakur
garður fyrir börn i formi yfir-
litskorts yfir öll Sovétrikin.
Ömurlegur endir
Skirnarathöfnin var að hefjast
og allir voru himinn lifandi
glaðir. Þarna voru foreldrarnir
skyldmennin öll, mikill fjöldi
vina, stoltur guðfaðir og þetta
var i Salonika i Grikklandi. En
svo heyrðist guöfaðirinn allt i
einu nefna nafn en ekki það
nafn, sem fyrirfram hafði veriö
ákveðið, að barnið skyldi heita,
og allt breyttist i einu vetfangi.
Guðfaðirinn endaði á sjúkra-
húsi, og reyndist við athugun
mjög mikið meiddur. Svona
getur þaö farið, þegar
foreldrarnir fá ekki vilja sinum
framgengt þar suður eða austur
frá.
— Ef þér spyrjiö mig,
hvernig hann eigi að snúa, þá er
það alveg sama. Þér verið alltaf
ferlegar með hann.
0
— Jæja, ætlarðu að viðurkenna
að hafa tekið sultukrukkuna?
I r—« \ — Eg er búinn að reyna allt, en ég
/ / \\ \ oet ómöeuleea komið tannkrem-
get ómögulega komið tannkrem-
inu i túpuna aftur.
DENNI
DÆMALAÚSI
,,Ertu að æfa þig, og ég sem hélt
að þú værir svona voðalega
veikur.”