Tíminn - 11.07.1972, Qupperneq 7

Tíminn - 11.07.1972, Qupperneq 7
Þriðjudagur II. júli 1972 TÍMINN 7 900 þúsund hefja háskólanam Skólaárinu í Soyetrikjunum er lokið, og fyrir þá áem útskrifast úr 10. bekk þýðir það,að mið- skólanáminu er lokið. Nú streyma inntökubeiðnir til háskóla og annarra æðri skóla. Alls verða 900 þúsund nýir stúdentar teknir inn i skólana. Þess er einungis krafizt, að umsækjendur hafi þá hæfileika er til þarf, og reynt er að komast eftir þvi meö inntöku- prófum og samanburði árs- einkunna frá, skólunum. Rikið veitir námsfolkinu styrki og öll kennsla er ókeypis. Alls eru nemendur við 812 háskóla og aðrar æðri menntastofnanir i Sovetrikjunum um 4.6 milljónir að tölu. Vildi glettast við konu sina Bulgarska blaðið Anteni i Sofiu skýrpi frá þvi, að maður að nafni Venkov heföi allt i einu fengið þá flugu i höfuðuð, að rétt væri að glettast svolitið við konu sina. Hann ætlaðiaöláta lita svo út, sem hann hefði hengt sig i stofunni heima hjá sér, en bandið hafði hann bundið þannig, aö það hérpti ekki að hálsinum, svo hann var sprell- lifandi. þóttekki væri gott að sjá það i fljótu bragði. Nú fór svo, að kona Venkovs kom ekki fyrst aö manni sinum hangandi, Stuttbuxur bannaðar Feröafólk sækir æ meira suö- ur á bóginn, og nú liggur ferða- mannastraumurinn til Tunis, segir i dönsku vikublaöi. Þang- aö fara stúlkur gjarnan i stutt- buxum, og jafnvel bikini, en slikt þykir vart sæmandi þar i landi vegna trúarskoöana og þjóöhátta. Algjörlega er bann- að, að konur gangi inn i moskur i þessum klæönaöi, og i tilefni af þvi hefur enska feguröardrott- ingin Yvonne Ormes látið mynda sig i slá, sem er mjög hentug til þess að bregða yfir sig rétt á meðan gengið er inn i moskurnar eöa aöra staði, þar sem stuttbuxurnar sæma ekki. Hér sjáið þið drottninguna i stuttbuxunum, og svo þar sem hún er að setja slána yfir sig og að lokum sýnir hún ykkur hvernig hún litur út i slánni. Endurbætt Iljusinþota Talsmaður sovézka flug- félagsins Aeroflot hefur skýrt fréttastofnunum svo frá, aö hin nýja IL-62M, sem er ný endurbætt útgáfa hinnar frægu Iljusinþotu, verði tekin i notkun á flugleiðunum Moskva-Tokio og Moskva-New York og fleiri löngum alþjóðlegum flugleið- um. Flughraði þotunnar verður um 900 km á klukkustund. Betri hreyflar og aukinn eldsneytis- forði gefa þotunni um 700 km meira flugþol heldur en eldri gerðir hafa, þannig aö þessi nýja gerð þotunnar getur flogið i einum áfanga sem svarar fjórð- ungi af ummáli jarðar um mið- baug. Með ýmsum breytingum á innréttingu þotunnar verður þægilegt rúm fyrir 200 farþega. segja viö tveimur i viðbót. Þeg- ar eiginkonan, Hanna, hefur lokið námi, en hún leggur stund á barnauppeldismál, hefur Paw i hyggju að fara sjálfur i skóla og læra það sama. Hann gætir barna Þessi mynd er ekki af venju- legum föður, sem gefur sér tima til þess að fylgjast með leik barna sinna, þegar hann loks * kemur heim úr vinnunni að kvöldi dags, heldur er þetta ungur maðui; sem hefur ákveðið að taka að sér börn og gæta þeirra heima hjá sér, eins og fjölmargar konur gera nú i at- vinnuskvni . Þetta er 24 ára gamall Dani, Paw Juel Wither, sem á heima i Odense i Dan- mörku og hefur hann nú hlotið viðurkenningu yfirvalda og hann má taka börn til dagvist- unar heim til sin. Hann á einn son, Martin, sem er hálfs árs, en auk hans gætir hann fjögurra annarra barna á aldrinum tveggja til sex ára. Paw var málari að iðn, en siðar for hann að starfa að félagsmálum, og nú hefur hann sem sagt ákveðið að helga sig barnagæzlunni. Lengi vel var það kona hans, sem sat heima og gætti barna, já og hafði meira að segja tvö dag- vistunarbörn, en svo ákvað kon- an að hefja skólanám á nýjan leik, og þá kom að þvi að Paw á- kvað að taka að sér að gæta barnanna og bætti meira að heldur var það nágranni þeirra. Honum varð svo mikið um, að sjá^að vinur hans gafði hengt sig, að það leiö yfir hann á stund inni, og hann féll i gólfið. Venkov klifraði niður til þess að hjálpa nágranna sinum en fórst þá svo óhönduglega, að hann datt og rotaðist. Að lokum kom frúin, og við að sjá mennina tvo liggjandi á stofugólfinu, hálf- dauða, brá henni svo,að hún féll einnig i ómeginn. Anteni segir, að nú séu hjúin öll á sjúkrahúsi, og séu nokkuð farin að hressast, og liklega reynir Venkov ekki að leika á konu sina á næstunni, úr þvi svona óhönduglega tókst til i þetta skipti. Útivistar- og iþrótta- svæði við Moskvu A næstu árum mun landslagið á bakka Moskvufljóts I vestur jaðri sovézku höfuðborgarinnar breyta um svip vegna þess, aö þar hefur verið skipulagt við- áttumikið tilbúið fjallalandslag. Svæöi þetta verður eitt af fjórum iþróttasvæöum, sem gert er ráö fyrir i aöalskipulagi að vexti borgarinnar næstu 15-20 árin. öll svæðin fjögur verða innan bogarmarkanna. Ekki verður leyft að byggja á svæðum þessum aðrar byggingar en þær, sem tilheyra iþróttamannvirkjunum, sem þarna hafa verið skipulögð. Meðal mannvirkja, sem þarna á að gera, eru skiðabrautir, bæði fyrir svig og stórsvig, skuröur, sem ætlaður er fyrir róðrarkeppni. Hluta af ánni veröur breytt i svæöi fyrir þá sem leggja stund á froskköfun. Þá verða skipulagðar stuttar ferðir með gömlum rússneskum segibátum. Loks má nefna, að útbúinn verður sérstakur garður fyrir börn i formi yfir- litskorts yfir öll Sovétrikin. Ömurlegur endir Skirnarathöfnin var að hefjast og allir voru himinn lifandi glaðir. Þarna voru foreldrarnir skyldmennin öll, mikill fjöldi vina, stoltur guðfaðir og þetta var i Salonika i Grikklandi. En svo heyrðist guöfaðirinn allt i einu nefna nafn en ekki það nafn, sem fyrirfram hafði veriö ákveðið, að barnið skyldi heita, og allt breyttist i einu vetfangi. Guðfaðirinn endaði á sjúkra- húsi, og reyndist við athugun mjög mikið meiddur. Svona getur þaö farið, þegar foreldrarnir fá ekki vilja sinum framgengt þar suður eða austur frá. — Ef þér spyrjiö mig, hvernig hann eigi að snúa, þá er það alveg sama. Þér verið alltaf ferlegar með hann. 0 — Jæja, ætlarðu að viðurkenna að hafa tekið sultukrukkuna? I r—« \ — Eg er búinn að reyna allt, en ég / / \\ \ oet ómöeuleea komið tannkrem- get ómögulega komið tannkrem- inu i túpuna aftur. DENNI DÆMALAÚSI ,,Ertu að æfa þig, og ég sem hélt að þú værir svona voðalega veikur.”

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.