Tíminn - 11.07.1972, Síða 15
TtMlNN
Umsjón Alfreð Þorsteinsson
Hér sést aðdragandinn af stangarskoti Guðgeirs. Ilann kcmst inn fyrir með þvi að leika á Baldvin Elías-
son, (sjá efri mynd) — leikur siðan á Magnús Guðmundsson markvörð, kemst einn inn fyrir og stendur
fyrir opnu marki (sjá neðri mynd) —skot hans lenti I stönginniog út-. Sigurður Indriðason (4) náði þá að
spyrna knettinum frá. (Timamyndir'ltóbert).
Þegar 3 min. eru til leiksloka
skora svo KR-ingar annað mark
sitt i leiknum. Sigurður Indriða-
son, fékk knöttinn óvaldaður inn i
vitateig og átti ekki i erfiðleikum
að senda hann i netið. Lauk leikn-
Formaður KSI, Albert Guð-
mundsson, hélt til Zurich i Sviss
i gærmorgun, þar sem hann mun
vera viðstaddur, þegar dregið
verður þar i Evrópumótunum
þremur i knattspyrnu. Dregið
veröur á miðvikudaginn. og fáum
viðþáaðvita gegn,hvaða liðum
Vikingurf Keflavik og Vestmann-
um með sigri KR 2:0 og má segja
að það hafi verið ósanngjörn úr-
slit eftir gang leiksins.
Vikingsliðið var mjög óheppið
að tapa þessum leik og má það
segja um leikmennina, að þeir
eyjar hafa dregist i 1. umf.
Verður fróðlegt að vita hvort
Keflvikingar, verða einsheppnir
með lið i ár, eins og undanfarin
ár. Eins og menn muna, þá hafa
þeir dregist gegn enskum liðum i
siöustu tvö skipti, Everton og
Totterham.
geta sjálfum sér um kennt — ef
þeir geta ekki skorað úr þeim
marktækifærunum, sem þeir
fengu, þá geta þeir ekki skorað
mörk — og fer maður nú að skilja
af hverju þeir hafa ekki skorað
mörk i átta siðustu leiknum sin-
um. Beztu menn liðsins voru
Stefán Halldórsson, Guðgeir
Leifsson, Jóhannes Bárðarson,
Bjarni Gunnarsson og Magnús
Þorvaldsson.
KR-liðið, sem er ný komið úr
æfingarbúðum i Danmörku, náði
aldrei að sýna þá knattspyrnu,
sem liðið getur leikið. Beztu menn
liðsins voru Baldvin Eliasson,
Magnús Guðmundsson og Atli
Héðinsson.
Góðurdomari var Guðjón Finn-
bogason. SOS
Hafsteinn hefnr valið sautján
leikmenn fyrir landsleikinn
gegn Færevjum
Hafsteinn Guðmundsson,
„einvaldur” hefur valið eftirtalda
leikmenn til að leika gegn Fær-
eyjum annaö kvöld á Laugardals-
vellinum:
Sigurður Dagsson Val
Þorbergur Atlason - Fram
Ólafur Sigurvinsson IBV
Ástráður Gunnarsson IBK
Gisli Torfason ÍBK
Einar Gunnarsson IBK
Guðni Kjartansson IBK
Þröstur Stefánsson IA
Marteinn Geirsson Fram
Ásgeir Eliasson Fram
GuðgeirLeifsson Viking
Eyleifur Hafsteinsson 1A
Teitur Þórðarson 1A
Ásgeir Sigurvinsson ÍBV
TómasPálsson IBV
Ingi B. Albertsson Val
Kristinn Jörundsson Fram
Hermann Gunnarsson, verður
ekki með vegna meiðsla og Elm-
ar Geirsson, er út i V-Þýzkalandi.
Þaö vekur athygli.að þrir nýir
ieikmenn eru komnir i landsliðs-
hópinn. það eru þeir, Ástráður,
Gisli og Kristinn. I blaðinu á
morgun verður nánar rætt um
valið á liðinu og birtum við þá
nöfnin á leikmönnum Færeyja.
Randy Matson komst ekki
í bandaríska OL-liðið
Olympiumeistarinn frá
Mexikó 1 !)68, Randy Matson,
USA komst ckki i bandariska
olympiuliöið, en úrtökumótið
fór fram i Eugene, Oregon um
helgina. Woods sigraði með
21,27 m kasti, annaft var
Feuerbacb með 20,33 m þriðji
Brian Oldfield með 20,68 m.
Heimsmethafinn kastaði 20,57
m en það dugði ekki til að
komast til Munchen.
Jim Tyun sigraði i 1500 m
hlaupi á 3:41,5 min. Wottle
varð annar á 3:42,3 og þriðji
Wheeler á 3:42,4. Robinson
sigraði í iangstökki með 8,04
annar varð Williams með 8,02
og þriðji Carrington með 8,02
RICKY BRUCH
KEPPIR í KVÖLD
Danir hafa nokkra yfirburði í unglingakeppninni
Danir höfðu nokkra yfirburði i
landskeppninni i frjálsum
iþróttum á Laugardalsvellinum i
gærkvöldi. I keppni unglinga
unnu Islendingar sigur i þremur
greinum, Ágúst Asgeirsson
sigraði i 800 m. hlaupi á 1:56.2
Borgþór Magnússon i 110 m.
grindahl. á 15.0 og Friðrik Þór
Óskarsson í langstökki,stökk 6,92
I kvöld kl. 8 heldur keppnin
áfram og þá keppir heimsmet-
hafinn i kringlukasti, Sviinn
Ricky Bruch, en hann er væntan-
legur til landsins siðdegis i dag.
Nánar verður sagt frá keppn-
inni i gærkvöldi i blaðinu á
morgun.
Albert á VEFA-fnnd
Oheppni elti Vík-
ingsliðið gegn KR
töpnðu 0:2 leik, sem þeir áttu að vinna með 4-5 marka mun
Vfkingsliðið lék enn einn leikinn
i 1. deild án þess að skora mark,
liðið mætti KR á I.augardalsvell-
inum s.l. laugardag. Óheppnin
virðist elta liðið, þvi að i fyrri
hálfleik áttu leikmenn liðsins ara-
grúa af marktækifærum, cn þeim
tókst ekki að skora, þótt þeir
stæðu fyrir opnu marki. Ef allt
hefði gengið eölilega fyrir sig hjá
liðinu. hefði það átt að hafa 4-5
mörk yfir i hálfleik. Vikingsliðið
réði iögum og lofum á vellinum i
fyrri hálfleiknum og sýndi oft
skemmtilcga knattspyrnu.
Við skulum lita nánar á fyrri
hálfleikinn og sjá hvernig
Vikingsliðið, fór með marktæki-
færin sin.
Á 18. min. átti Hafliði Pétursson
skot, sem lenti i hliðarnetinu.
Minútu siðar gefur Eirikur
Þorsteinsson góðan bolta fyrir
markið — Stefán Halldórsson,
spyrnir að marki, knötturinn fer
fram hjá Magnúsi Guðmunds-
syni, markverði KR, og fram hjá.
Það munaði ekki miklu að Hafliði
næði að spyrna knettinum i mark-
iö, en hann var aðeins of seinn.
Stuttu siðar fá Vikingar sitt bezta
marktækifæri i leiknum, Guðgeir
Leifsson, kemst einn inn fyrir,
leikur á markvörð og spyrnir að
marki — skot hans lenti i stöng og
útaftur. Varð Guðgeiri svo mikið
um þetta, að hann fórnaði hönd-
um og leit i áttina til þjálfara sins.
Eftir að hafa farið illa með
þessi tækifæri, fór að færast ró
yfir Vikingsliðið og leikurinn fer
að mestu fram á miðjunni. Það
var ekki fyrr en á 37. min. að
Vikingsliðið fer aftur að taka við
sér. Þá leikur Stefán Halldórsson
upp kantinn og gefur góða send-
ingu fyrir KR markið — Hafliði
var of seinn að notfæra sér send-
inguna og knötturinn fór aftur
fyrir endamörk. En Vikingsliðið
sótti stift siðustu min., sem eftir
voru af hálfleiknum. Á 41. min. á
Gunnar Gunnarsson skot i
dauðafæri en rétt yfir. Minútu
siðar á Hafliði skot, sem er á leið-
inni i netið, en á siðustu stundu
bjargaði varnarmaður i horn.
Stuttu siðar á Hafliði aftur skot,
sem Magnús markvörður ver. I
þvi var flautað til hálfleiks og
mátti Vikingsliðið kallast óheppið
að hafa ekki skorað 4-5 mörk i
fyrri hálfleiknum.
Vikingsliðið heldur áfram að
sækja á fyrstu min. siðari hálf-
leiks. Á 7. min. á Gunnar örn gott
skot, sem Magnús ver i horn. Upp
úr horninu á Eirikur skalla rétt
fram hjá.Á 12. min. skora svo KR-
ingar mark, sem kemur eins og
þruma úr heiðskiru lofti. Atli
Héðinsson, leikur upp kantinn og
spyrnir að marki, rétt fyrir utan
vitateigshorn. Knötturinn stefnir
að marki og engin hætta virðist
vera á ferðinni — en viti menn, —
knötturinn fer undir Diðrik ólafs-
son markvörð og i netið. Atli var
svo undrandi þegar hann sá.að
knötturinn lá i netinu fyrir aftan
Diðrik, að hann stóð fyrst i sömu
sporunum, af undrun, en svo var
eins og hann áttaði sig á hlutun-
um og fagnaði.
Við þetta mótlæti var eins og
Vikingsliðið brotnaði niður og
KR-ingar fóru að sækja. Á 25.
min. á Björn Pétursson, skot af 30
m færi sem ,small i þverslá — til
Atla sem skallaði yfir. Fimm
min. siðar komst Atli einn inn fyr-
ir Viningsvörnina, en hann skaut
rétt fram hjá. Á sömu min. komst
Ilafliði Pétursson, einnig einn inn
fyrir KR-vörnina —skot hans fór
fram hjá. Eftir það sækja Viking-
ar stift aö KR markinu, en þeim
tókst ekki að skapa sér færi.