Tíminn - 21.07.1972, Page 20
Hátíðin að
Húsafelli
ÓV-Reykjavík
Sumarhátiðin i Húsafeili verður
haldin um verzlunarmannahelg-
ina eins og venjulega i ár dagana
4.-7. ágúst, sömu helgi og Vest-
manneyingar halda Þjóðhátið
sina, þannig að líkast tii skemmta
islendingar sér rækilega þá helgi.
En i Húsafelli er fólki gert skylt
að skemmta sér án áfengis, öðru-
visi er ekki hægt að halda slika
hátið, sögðu forráðamenn
hátiðarinnar og Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar (UMSB) á
fundi með fréttamönnum i gær.
Þetta er i 6. skipti, sem UMSB sér
algjörlega um þessa hátið og hef-
ur áfengisneyzla fariðhraðminnk-
andi i gegnum árin, til dæmis var
ákaflega litið um hana i fyrra og
þvi ekki ástæða til að búast við
sliku nú. Talsmenn sambandsins,
þeir Vilhjálmur Einarson, form.
UMSB, og Hjörtur Þórarinsson,
skólastjóri á Kleppjárnsreykjum,
sem hefur verið mótsstjóri á
undanförnum mótum og verður
það einnig i sumar, sögöust fullt
eins geta búist við 20.000 manns á
Sumarhátiðina en þó vildu þeir
engu spá.
t'tför Vilhjálms Þór, fyrrum utanrikisráðherra, var gerð frá Dómkirkjunni i gær. Hér sjást félagar úr
Frimúrarareglunni bera kistuna úrkirkju. Fremst t.h. er Magnús Thorlacius, þá Vilhjálmur Jónsson,
siðan Svanbjörn Frimannsson og aftast Asgeir Magnússon. Fremst t.v. er Viglundur Möller, þá sr. Þor-
steinn Jóhannesson, síðan Elias Halldórsson og aftast Þórður Gunnarsson. (Timamynd GVA)
FERÐAGETRAUNIN RÚNG
ÓV-Reykjavfk
I einu dagblaðanna i gær
birtist getraunaauglýsing.
Ferðaskrifstofa nokkur bauð
20 daga dvöl i einkaibúð við
ströndina á Majorku, gæti ein-
hver lesandi leyst getraunina,
sem var i þvi fólgin, aö finna
19oröútúrramma,sem i voru
256 bókstafir. Mátti lesa úr
þeim á ýmsa vegu og þegar
við á Timanum höfum eytt
dágóðum tima i þessa get-
raun, komumst við að þeirri
niðurstöðu, að tvö orðanna
væri ekki hægt að lesa úr
rammanum.
Viö höfðum samband við
auglýsingastofuna, sem um
auglýsinguna sá, og fengum
þar staöfestingu á grun okkar.
Verður þvi ný auglýsing birt.
ÞJÖNflR STRÖNDUÐU
FRAMHALD AF RAF-
VIRKJADEILUNNI
Klp-Reykjavik, fimmtudag.
1 gær var haldin sáttafundur
með framreiöslumönnum og veit-
ingamönnum, en eins og kunnugt
er hafa framreiðslumenn boðað
vinnustöðvun frá og með sunnu-
dagsnótt.
Sáttafundurinn hófst kl. 17,00 og
stóð i 11 tima, en ekkert sam-
komulag náðist. Strandaði allt á
kröfu framreiðslumanna um 50
þúsund króna kauptryggingu á
mánuði, en það er megin krafa
þeirra i þessari deilu. Aftur á
móti náðist samkomulag um
nokkur smáatriði. Annar fundur
hefur verið boðaður hjá sáttar-
semjara kl. 16,00 á morgun.
Rafvirkjadeilan virðist ekki
enn með öllu úr sögunni. 1 gær-
kvöldi barst blaðinu svolátandi
fréttatilkynning frá Vinnuveit-
endasambandi Islands:
Vinnuveitendasamband Islands
hefir i dag f.h. félagsmanna
sinna, Félags löggiltra rafverk-
taka og Landssambands isl. raf-
verktaka mótmælt samþykkt Fé-
lags islenzkra rafvirkja um að
vinna ekki að nýlögnum eöa
meiriháttar breytingum á lögn-
um, nema i ákvæðisvinnu sem
broti á nýgerðum samningum.
Bréf Vinnuveitendasambands
Islands til Félags islenzkra raf-
virkja er svohljóðandi:
,,Vér höfum I dag móttekið
heiðrað bréf yðar til vor dags. 19.
júli s.l. þar sem þér tilkynnið oss,
að á fundi i félagi yðar höldnum
sama dag hafi verið samþykkt
,,að félagsmönnum F.Í.R. sé
óheimilt að vinna að nýlögnum
eöa meiriháttar breytingum á
lögnum, nema skv. ákvæðisverð-
skrá, þar sem þvi verður tækni-
lega viö komið”.
Með skirskotun til þessarar
samþykktar svo og yfirlýsingar
FLRR. og LIR. i tilefni af hótun-
um samninganefndar yðar á
sáttafundi 18. þ.m. um samþykkt
tillögu, er að efni til gengið i sömu
átt og fundarsamþykkt sú, er þér
tilkynntuð oss um i áður ivitnuðu
bréfi yðar, viljum vér taka fram
að vér, f.h. allra félagsmanna
vorra mótmælum margumræddri
fundarsamþykkt yöar sem broti á
nýgerðum kjarasamningi og þvi
ólöglegri og að engu hafandi.
Skorum vér eindregið á yður að
draga framangreinda yfirlýsingu
til baka fyrir kl. 17.00 þriðjudag-
inn 25. júli n.k., svo að komist
verði hjá málaferlum og frekari
óþægindum”.
Refabú
aftur á
íslandi?
Klp-Reykjavik.
MikiII áhugi mun vera
meðal nokkurra manna, sem
eru meðeigendur i minkabú-
um hér á landi, að setja á stofn
refabú samhliða þeim.
A hinum Norðurlöndunum,
eins og t.d. i Danmörku, eru
nokkur slik bú, sem rekin eru
með minkabúunum, og hafa
þegar nokkrir islenzkir
minkabændur haldið utan til
að kynna sér rekstur þeirra.
Talið er ódýrara að ala upp
yrðlinga en minkahvolpa og
þeir fyrrnefndu gefa meir af
sér i dag en hinir. Gott verð
fæst fyrir skinnin og þeir eru
ódýrir i fæði. Er t.d. mikið
gertað þvi á búunum erlendis,
að gefa þeim afganga frá
minkunum. Taka þeir vel við
þeirri fæðu og dafna vel.
Langt er liðið siða'n refabú
hafa verið starfrækt hér á
landi, en nú er allt útlit fyrir
að sá búskapur verði tekinn
upp aftur, enda arðvænlegur
sé hann rekinn jafnhliða
minkaræktinni.
Landhelgismálið
dómtekið 1. ág.
Útvarpiö skýrði svo fra þvi i
gærkvöldi, að samkvæmt
upplýsingum Haag-dómstólsins
yröi landhelgismálið dómtekið 1.
ágút næstkomandi.
Húsi Bjarna
riddara breytt í
upprunalegt horf
OÓ-Reykjavík.
Tveir danskir arkitektar,
sem eru sérfræðingar I endur-
byggingu og varðveizlu
gamalla húsa vinna þessa dag-
ana að tcikningum og undir-
búningi frekari framkvæmda
til að koma elzta húsi i Hafn-
arfiröi í upprunalegt horf. Er
hér um að ræða húsið, sem
Bjarni Sivertsen, kaupmaður,
lét reisa upp úr aldamótunum
1800, sennilega 1803. Smiðir
munu brátt taka til starfa og
er reiknaö með aö endurbygg-
ingunni verði lokið þjóð-
hátiöaráriö 1974. Hafnar-
fjarðarbær og Þjóðminjasafn-
ið taka að jöfnu þátt i kostnaði
við breytingar og varðveizlu
hússins.
Arkitektarnir, sem vinna
undirbúningsstarfið heita
Karsten Rönnow og Gunilla
Moodysson. Rönnow kom
hingað til lands 1965 og kynnti
sér ásigkomulag nokkurra
gamalla og sögufrægra húsa
og möguleika á varðveizlu
þeirra. Kom hann hingað i
boði þáverandi þjóðminja-
varðar, dr. Kristjáns Eld-
járns.
Timinn hafði tal af arkitekt-
unum i gær. Sögðu þeir að
engum vandkvæðum væri
bundið, að gera þetta gamla
hús upp og koma þvi i það
horf, sem það var þegar það
var byggt. Sem betur fer hefur
húsiðekki verið umbyggt, þótt
smávægilegar breytingar hafi
verið gerðar á þvi, meðal
annars hefur verið skipt um
ytri klæðningu, en litið verið
átt við það að innanverðu.
Húsið er illa leikið af timans
tönn, en ekki svo, að til stór-
baga sé og ekki megi gera við
það.
Frumteikningar eru ekki til
af húsinu, en við vitum
nákvæmlega, hvernig svona
hús voru byggð. Þar sem húsið
er úr timbri er hægt að sjá
nákvæmlega hverju hefur
verið breytt. Dyr hafa verið
færðar til og fleiri smávægi-
legar breytingar gerðar, en
þær er auðvelt að laga. Þá
eru til gamlar teikningar og
ljósmyndir af húsinu svo að
þegar allt kemur til alls er
þetta ekki sérlega erfitt
verkefni.
Meiningin er að húsið verði
nokkurs konar byggðasafn, en
þó ekki þannig, að i það verði
safnað gömlum munum af öllu
tagi, heldur að hafa það eins
likt og þegar Bjarni Sivertsen
bjó i þvi og kostur er. Verið er
að safna gömlum húsgögnum
og munum, sem settir verða i
húsið. Munu bæjaryfirvöld
■ Framhald á bls. 19
Hús Bjarna SIvertsen,sem byggt var um aldamótin 1800,
Arkitektarnir Gunilla Moodysson og Karsten Rönnow vinna að teikningum að frumgerð húss Bjarna
riddara i Hafnarfirði.