Tíminn - 22.07.1972, Page 5

Tíminn - 22.07.1972, Page 5
Laugardagur 22. júli 1972 TÍMINN Opnaöi nýtt barnaheimili Coral Atkins, sem allir þekkja úr Ashton-fjölskyldunni, kom fyrir nokkru til Danmerkur, þar sem hún vigði nýtt barnaheim- ili. Hún safnar nú stöðugt pen- ingum til þess að geta sjálf stofnað barnaheimili heima i Englandi. Hér er Coral Atkin með litinn herra, sem varð á vegi hennar i Danmörku, og eru þau sérlega hrifin hvort af öðru. Laurence Harvey leikari varð vinum sinum mikið undrunar- efni, er fréttir bárust út um, að hann væri að skilja við konu sina og ganga að eiga aðra konu. Fyrir þrernur árum eignaöist Harvey dóttur með konu þeirri sem hann nú ætlar að kvænast. Heitir sú Paulene Stone, ljós- myndafyrirsæta, þritug að aldri. Þau Paulene og Harvey hittust fyrir sex árum, en Harvey hefur verið giftur konu sinni, Joan Cohn, 51 árs gamalli 1 fjögur ár. Cohn er milljóna mæringsdóttir og hefur mikil fjárráð. Sjálfur er Harvey ekki nema 43 ára. Hann segir, að Paulene hafi verið sér trú þau ár, sem þau hafa verið vinir, þrátt fyrir að þau hafi ekki geta gifzt fyrr en nú. DENNI DÆMALAÚSI „Ég ætla að fara að heiman, og ég kem ALDREI aftur, nema til þess að borða.”

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.