Tíminn - 12.08.1972, Page 6
6
TÍMINN
Laugardagur 12. ágúst 1972
Ircna Krogius, Hclga Nci, Larissa Spasskaja og Aksana Geller við komuna til Keflavikur I fyrrinótt Timamynd. Gunnar
Larissa Framh.afbls. 1
tefl a sagði Krogius stórmeistari,
maður hennar, — hún hefur
nokkrum sinnum mátað mig.
Þegar Helga Nei sagðist ekki
tefla skák, var Ivo Nei hinsvegar
fljótur að skjóta því inn i sam-
talið, að það væri fyllilega nóg, að
einn i fjölskyldunni tefldi.
Konurnar fjórar frá Sovet-
rikjunum og fylgdarlið þeirra
stóðu stutt við i Keflavik. Þegar
túlkur Timans spurði Larissu
fyrir utan bifreiðina, sem flutti
hana til Reykjavikur, hvort hún
vissi, að maður hennar hefði farið
á sveitaball, tók hár og herða-
breiður sendiráðsmaður um axlir
hans og vék honum til hliðar, áður
en Larissu vannst timi til svars og
innan skamms ók allur hópurinn
af stað.
Larissa, Irena, Aksana og
Helga búa i sovézka sendiráðinu
meðan á dvöl þeirra hér stendur.
Spasski og stórmeistararnir,
aðstoðarmenn hans, búa hins-
vegar á Hótel Sögu, sem kunnugt
er. Við áttum tal við Krogius eftir
hádegið i dag, og sagði hann, að
fundum Larissu og Bóris Spasski
hefði borið saman. Við spurðum,
hvort þau hefði hitzt þegar i nótt.
— Spyrjið Larissu! Spyrjið Bóris!
svaraði Nikolai Krogius hlæjandi.
Kfiim Gellcr og Aksana
Ivo Nci fagnar konu sinni Ilcigu
Nikolaj Kr.ogius hcilsar konu sinni Irenu á flugvellinum
Nixon skipar nýjan
sendiherra í Reykjavík
KJ—Reykjavík
Tilkynnt var
i Washington i
Frederick Irving
dag, að Nixon Bandarikjaforseti
hcl'ði skipað Krcderick Irving
scndihcrra Bandarikjanna á ts-
landi, en ckki er ákvcðið, hvenær
liann tckur við störfum hér á
landi.
Irving er 51 árs að aldri og
hefur starfað i bandarisku utan-
rikisþjónustunni frá þvi 1951.
Hann lagði stund á stjórnmála-
fræði og hagfræði á háskólaárum
sinum, og er með MA-gráðu i hinu
siðarnefnda. Eftir eins árs starf i
utanrikisráðuneytinu i Washing-
ton lá leið þeirra Irving-hjóna til
Vinarborgar, og eftir tveggja ára
dvöl þar héldu þau aftur til
Bandarikjanna. Árið 1960 var Irv-
ing skipaður viðskiptafulltrúi i
Wellington á Nýja-Sjálandi, árið
1965 yfirmaður Evrópudeildar
bandariska utanrikisráðuneytis-
ins, og árið 1969 varð hann aðstoð-
arráðherra i menningarmála-
deild utanrikisráðuneytisins.
Kona Irvings er Dorothy Jean,
og eiga þau þrjú börn, sem öll eru
uppkomin.
„Frúin fer með nokkra
kassa af efni til hannyrða”
Arni Stefánsson og Halla Guðmundsdóttir
fóru til ársdvalar á Hveravöllum í gær
KJ—Reykjavfk
í gær fóru þau hjónin Ilalla
Guðmundsdóttir og Arni
Stcfánsson, kennari úr Kópa-
vogi, inn á Hveravelli, en þau
liafa verið ráðin til að annast
veðurathuganir þar næstu 12
mánuði. Taka þau við af þeim
Ilauki Agústssyni og Ilildu
Torfadóttur, sem scnn hafa
dvalizt um árs skcið á llvcra-
völlum, þar sem upp imdir eitt
hundrað kflómetrar eru til
byggða og snjór og ófærð
kcmur i veg fyrir að hægt sé
að fara eftir vegaslóðum
mcstan hluta ársins.
— Satt að segja hefur
konan min haft feikilegan
áhuga á að við dveldumst i eitt
ár á Hveravöllum við veður-
athuganir, og ég hef reyndar
lika haft mikinn áhuga á þvi,
sagði Árni Stefánsson i viðtali
við Timann i gærmorgun, rétt
áður en þau hjónin kvöddu
fólkið á Veðurstofunni — fólkið
sem mun koma þeim upp-
lýsingum, sem frá Hvera-
völlum berast, áleiðis til
almennings i landinu, og vinna
auk þess úr þessum upp-
lýsingum, svo að úr verði
visindalegur. fróðleikur.
— Við höfum ekki getað sótt
um þessi störf fyrr en nú i
sumar, þegar það var auglýst,
og eftir mjög stranga læknis-
skoðun, vorum við ráðin til
ársdvalar, sagði Arni enn-
fremur. Við höfum verið á
námskeiði á Veðurstofunni og
fengið þar allgóðan undir-
búning fyrir dvöl okkar á
Hveravöllum, og einnig munu
þau Haukur og Hilda vera með
okkur nokkra fyrstu dagana
og þjálfa okkur enn frekar i
veðurathugunarstörfunum.
Þeir Flosi Hrafn Sigurðsson
veðurfræðingur og Kristján
veðurathugunarmaður, sem
var þarna ásamt konu sinni i
fimm ár, hafa haft mestan
veg og vanda af þjálfun okkar,
og þeir hafa gefið okkur mörg
góð ráð fyrir dvölina þarna i
óbyggðum.
Hvolpurinn fæddist á
kvenréttindadaginn
— Veðurathugunarstarfið á
Hveravöllum er mjög viða-
mikið, sagði Arni, þvi að auk
þess að annast almennar
veðurathuganir, þá munum
við annast snjómælingar,
norðurljósaathuganir, gróður-
athuganir i tilraunareitum, og
e.t.v. fleiri athuganir, sem
Veðurstofan kann að fela
okkur. Engar sérstakar
nýjungar verða teknar upp við
athuganirnar i vetur, en
starfið á Hveravöllum hefur
alltaf verið að aukast og verða
mikilvægara.
En þótt mikið sé starfað á
Hveravöllum allan sólar-
hringinn allan ársins hring, þá
gefast þó einstaka sinnum
tómstundir, og þau Árni og
Halla ætla að nota þessar tóm-
stundir vel. Sjónvarpið verður
ekki til að tefja fyrir þeim
þarna i nábýli við sjóðandi
hveri og bústað Eyvindar og
Höllu, þvi að skilyrði til sjón-
varpsmóttöku eru ekki sem
bezt þarna inni i miðju landi i
um 700 metra hæð yfir sjó.
Þau munu hinsvegar hafa með
sér mikið af bókum, bæði
verulegan hluta af heimilis-
bókasafninu, og svo bækur,
sem Veðurstofan útvegar,
sagði Árni. Þá eru hér á
gólfinu hjá okkur nokkrir
stæðilegir kassar af
hannyrðaefni, en frúin er
hannyrðakona. Þá má ekki
gleyma þvi, að við förum með
hvolp af collier-kyni með
okkur, en hann fæddist á kven-
réttindadaginn, 19. júni sl.,
hvað svo sem það boðar, sagði
Árni.
Árni er 34 ára, ættaður frá
Hjarðarholti i Dölum, og hefur
kennt i Kópavogi, en Halla er
33 ára og úr Reykjavik. Hún
hefur starfað á Veðurstofunni
mörg undanfarin ár.
Sonur þeirra 13 ára fer ekki
með þeim til vetursetunnar,
en hann mun dveljast i sveit i
vetur, á meðan foreldrar hans
verða á Hveravöllum, og
þegar hlustunarskilyrði verða
góð, ma búast við,að sonurinn
tali við þau um talstöðina, sem
tengir þau hjón við um-
heiminn, ásamt útvarpinu.
Fischer getur nú valið um 10 ný skákborð
KJ-Reykja vik
Ilanii Ragnar Ilaraldsson hús-
gagnasniiðameistari i Kópavogi
hefur haft nóg að gera að undan-
förnu við aö smiöa skákborð þvi
að i inorgun aflienti hann 10 ný
borð^sem nota á i Laugardalshöll-
iuiii.
Fyrst smiðaði hann borðið
mikla, sem Gunnar Magnússon
húsgagnaarkitekt teiknaði, og
var það mikil smiði, sem ljúka
þurfti á tiltölulega stuttum tima.
Næst þurfti að smiða borðið, sem
tefit er á, þvi að steinplatan féll
ekki i kramið hjá Fischer svo að
nota varð viðarborð. Ekki var allt
fengið með þvi, þar sem áskor-
andinn hafði eitt og annað út á
tréborðið að setja og vildi helzt fá
steinplötuna aftur.
Eftir miklar vangaveltur var
loks ákveðið að Ragnar smiðaði
10 skákborð úr ýmsum viðar-
tegundum, en þessar plötur má
fella i skákborðið mikla.
Ragnar sagði, i viðtali við Tim-
ann i gær, að skákborðin 10, sem
hann hefði smiðað nú siðast, væru
spónlögð með ýmsum viðar-
tegundum, en engin þeirra væri
þó islenzk. Nefndi hann tekk,
hnotu, álm, ask, palisander, ame-
riskt birki, furu og eik i þessu
sambandi. Reitirnir á þessum
borðum eru allir eins, eða tveir og
einn fjórði úr þumlungi á hvern
veg, sem er mjög nálægt þvi að
vera 5.7 sm. Þá sagði
Ragnar, að settir hefðu verið
rammar utan um borðin, sem að-
skildu sjálft skákborðið og borð-
plötuna betur en hingað til, en
snillingarnir höfðu kvartað um að
dökku reitirnir á skákborðinu
rynnu saman við plötuna.
Nú hafa þeir Spasski og Fischer
sem sagt um 10 ný skákborð að
velja, og gott ef enn ein steinplat-
an er ekki lika að verða tilbúin.
Úrskurður í
Haag á
fimmtudag?
Blaðið hcfur hlerað, aö al-
þjóðadómstóllinn i Ilaag. hafi
ákveöið að kveða upp úrskurð
sinn um lögbannskröfur Breta
viðvikjandi frestun útfærslu
fiskveiðilögsögunnar við isiand
á fimmtudag i næstu viku.