Fréttablaðið - 08.03.2004, Qupperneq 18
Jörgen Douglas Carlsson, skipamiðlari í
Gautaborg, lést 25. febrúar.
Hannes Ágúst Hjartarson lést 2. mars.
13.30 Halldóra Ólafsdóttir verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 8. mars.
13.30 Sunna Þórsdóttir verður jarðsung-
in frá Fríkirkjunni mánudaginn 8.
mars.
13.30 Halldór Helgason, Krummahólum
10, verður jarðsunginn frá Fella-
og Hólakirkju mánudaginn 8.
mars.
18 8. mars 2004 MÁNUDAGUR
■ Andlát
■ Jarðarfarir
■ Afmæli
Fyrstu bandarísku landgöngu-liðarnir sem búnir voru til
bardaga stigu á land í Suður-Ví-
etnam á þessum degi fyrir 39
árum síðan. Á ferðinni var 3.500
manna herlið sem var meðal
annars ætlað að tryggja öryggi
bandarískrar flotastöðvar og
leysa um leið af suður-ví-
etnamska hermenn sem þurfti
að nota í bardaga.
Fyrstu landgönguliðarnir
sem komu til landsins voru í
fullum herklæðum og báru M-16
vélbyssur. Þeim var tekið fagn-
andi af vegfarendum, suður-ví-
etnömskum herforingjum, ví-
etnömskum stúlkum með
blómsveiga og fjórum banda-
rískum hermönnum sem báru
borða sem á stóð: „Velkomnir,
hugrökku landgönguliðar.“
Suður-víetnömsk hernaðaryf-
irvöld sem voru fengin til að
biðja Bandaríkjamenn opinber-
lega um liðstyrk höfðu þó farið
þess á leit að hermönunum yrði
komið eins hljóðlega inn í landið
og frekast væri unnt. Þessi
beiðni var virt að vettugi og
fagnaðarlætin voru mikil en
þetta var upphaf einnar blóðug-
ustu og skelfilegustu hernaðar-
aðgerðar Bandaríkjamanna í
framandi landi. ■
Hver?
Ég er lögmaður, femínisti, náttúruvernd-
arsinni, útivistarfrík og sveitakona með
brennandi áhuga á mannréttindum.
Hvar?
Ég er stödd í vinnunni, sem er Mandat
lögmannsstofa.
Hvaðan?
Ég rek ættir mínar til Strandamanna og
Norðlendinga. Ég er fædd á Selfossi og
alin upp í Laugarási í Biskupstungum.
Hvað?
Það tók okkur tæp fjögur ár að láta
verða að veruleika að sameina konur í
lögmannsstétt í eitt félag. Helmingur
kvenna í lögmannsstéttinni mætti á
stofnfund Félags kvenna í lögmennsku,
sem var miklu meira en við bjuggumst
við. Þarna er kominn kraftur sem við
getum virkjað til að efla hlut kvenna í
þessari stétt.
Hvernig?
Við ætlum okkur að verða sýnilegri. Hug-
myndin er að mynda tengslanet og efla
félagsandann, meðal annars með því að
halda keilumót. Þá eru uppi hugmyndir um
að standa fyrir umræðum um hagsmuna-
mál kvenna í lögmannsstétt.
Hvers vegna?
Lögmannsstéttin er klassísk karlastétt.
Hingað til höfum við ekki fengið kon-
urnar sem útskrifast úr lagadeild í þessa
stétt þangað sem konur eiga jafn mikið
erindi og karlar. Við viljum ýta á eftir
þessari þróun og stuðla að því að jöfn-
unin í stéttinni verði að veruleika.
Hvenær?
Frá og með deginum í dag og hættum
ekki fyrr en ætlunarverki okkar er náð.
Þetta er þarft framtíðarverk, ekki síst fyrir
dætur okkar karla og kvenna í lög-
mannsstéttinni.
SIF KONRÁÐSDÓTTIR
Nýkjörinn formaður Félags kvenna
í lögmennsku.
Fyrrverandi skipverjar á Guð-bjarti ÍS 16 hafa ákveðið að
koma saman á Ísafirði þann 3.
apríl til að minnast þess að 30 ár
eru liðin frá því að togarinn kom
til landsins. Þá spillir ekki fyrir
að þessi tímamót skuli eiga sér
stað í aðdraganda forsetakosn-
inga en áhöfnin á Guðbjarti var
áhrifavaldur á sínum tíma þar
sem hún sendi Vigdísi Finnboga-
dóttur skeyti og skoraði á hana
að bjóða sig fram.
„Nafn Vigdísar var ekki kom-
ið í umræðuna þá og hún hefur
staðfest það sjálf að áskorunin
frá áhöfninni á Guðbjarti varð
til þess að hún tók af skarið og
bauð sig fram,“ segir Guðmund-
ur Kristjánsson, hafnarstjóri
Ísafjarðarhafnar og fyrrverandi
skipverji á Guðbjarti. „Þetta
kom nú bara til af almennum
áhuga okkar á því að lyfta for-
setaembættinu á femínískan
stall og stuðla að jafnrétti. Vig-
dís hefur sagt okkur að henni
hafi fundist það mikilvægt að fá
áskorun frá sjómönnum, af öll-
um, þar sem hún var starfandi
leikhússtjóri. Þarna gerði hún
sér grein fyrir því hversu víð-
tækan stuðning hún átti.“
Guðmundur segir að fyrrum
skipverjar muni fara í gamal-
kunnar stellingar og leggjast
undir feld í Tjöruhúsinu á Ísa-
firði til að ákveða við hvern af
þeim frambjóðendum, sem gefa
kost á sér, þeir muni lýsa yfir
stuðningi við og fagna síðan nið-
urstöðunni yfir kvöldverði á
Hótel Ísafirði. Þá útilokar Guð-
mundur ekki að áhöfnin muni
beita sér fyrir öðru framboði
öflugrar konu.
„Rannveig Rist hefur þegar
verið nefnd í sambandi við for-
setaframboð og hún var nú vél-
stjóri á Guðbjarti á námsárum
sínum. Hún hefði sko örugglega
meirihluta atkvæða áhafnar-
innar. Við gerum að sjálfsögðu
ráð fyrir að hún mæti og finni
stuðninginn. Ég er viss um að
þessi tími hennar um borð í
Guðbjarti hafi vakið áhuga
hennar á mekanískum hlutum
og ég fullyrði það, hér og nú, að
hún væri ekki forstjóri Ísal og
stjórnarformaður Símans ef
hún væri ekki svona mekanísk í
hugsun. En þessi þáttur í fari
hennar tók miklum framförum
á meðan hún var í þessu skips-
plássi.“
Guðmundur segir að árshátíð-
Endurfundir
GUÐBJARTUR ÍS 16
■ Fyrrum áhafnarmeðlimir ætla að hitt-
ast á Ísafirði í apríl og fagna því að 30 ár
eru liðin frá því skipið kom til landsins.
Mannskapurinn mun einnig spá í spilin
fyrir komandi forsetakosningar en áhöfn-
in á Guðbjarti hefur verið örlagavaldur á
þeim vattvangi.
CLAIRE TREVOR
Þessi glæsilega leikkona fæddist
á þessum degi árið 1909.
8. mars
■ Þetta gerðist
1702 Anna drottning tekur við völdum í
Bretlandi eftir fráfall Vilhjálms III
konungs.
1887 Everett Horton sækir um einka-
leyfi á útdraganlegu veiðistöng-
inni.
1942 Japanskir hermenn ná Rangoon í
Burma á sitt vald
1957 Gana fær aðild að Sameinuðu
þjóðunum.
1962 Bítlarnir koma opinberlega fram í
fyrsta skipti hjá BBC í þættinum
Teenager’s Turn.
1971 Gamanleikarinn Harold Lloyd,
einn af meisturum þöglu mynd-
anna, deyr.
1971 Joe Frazier nær heimsmeistaratitl-
inum í þungaviktarhnefaleikum af
Muhammad Ali, sem hafði verið
ósigrandi fram til þess.
1990 Málflutningur hefst í Íran-Contra
réttarhöldunum yfir John Poin-
dexter, fyrrum öryggisráðgjafa
Reagans Bandaríkjaforseta.
1999 Joe DiMaggio, fyrrum hafnabolta-
hetja með New York Yankees og
fyrrverandi eiginmaður Marilyn
Monroe, deyr í Hollywood.
BANDARÍSKIR
LANDGÖNGULIÐAR
■ komu til Víetnam fullbúnir til bardaga.
8. mars
1965
Áhöfn forsetatogarans
kemur saman á ný
Flugdeild Landhelgisgæslunn-ar hefur undanfarið verið við
æfingar ásamt áhöfn björgunar-
skipsins Ásgríms S. Björnsson-
ar sem er í eigu Slysavarnarfé-
lagsins Landsbjargar. Tilgangur
æfinganna var meðal annars sá
að þjálfa Sigurð Ásgeirsson, nú-
verandi flugmann og verðandi
flugstjóra hjá flugdeild Land-
helgisgæslunnar, í aðflugi að
skipum og hífingum úr þeim.
Einar Örn Jónsson, sem er í
áhöfn björgunarskipsins, tók
nokkrar myndir af æfingunum
þar sem meðal annars má sjá
Sigurð einbeittan á svip í flug-
stjórasætinu þar sem hann naut
handleiðslu Benónýs Ásgríms-
sonar yfirflugstjóra Landhelgis-
gæslunnar. ■
Slysavarnir
LANDHELGISGÆSLAN
■ Þyrlusveitin æfði björgun úr skipum og
þjálfaði um leið verðandi flugstjóra.
Í læri hjá Benóný
SIGURÐ ÁSGEIRSSON
Einbeittur á svip á björgunaræfingu.
GUÐBJARTUR ÍS 16
Skipið kom til landsins fyrir 30 árum en hefur nú verið selt burt. Fyrrum áhafnarmeðlimir ætla að hittast á Ísafirði í byrjun apríl og halda
upp á afmæli skipsins. Þá mun hópurinn leggjast af fullri alvöru yfir komandi forsetakosningar og hugsanlega lýsa yfir stuðningi við
frambjóðanda eða skora á einhvern að gefa kost á sér. Það gerðu þeir árið 1980 þegar þeir skoruðu á Vigdísi Finnbogadóttur með
sögulegum árangri.
Landgönguliðum
fagnað í Víetnam
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
VÍETNAMSTRÍÐIÐ
Hefur verið bandarískum kvikmynda-
gerðarmönum drjúg uppspretta. Hér horf-
ist Charlie Sheen í augu við hörmungar
stríðsins í Platoon eftir Oliver Stone.
ÞYRLUSVEITIN
Æfði hífingar úr skipum með aðstoð áhafnarinnar á björgunarskipinu Ásgríms S. Björns-
sonar.
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR
Hún hafði ekki verið orðuð við forseta-
framboð þegar áhöfnin á Guðbjarti sendi
henni skeyti og skoraði á hana að fara
fram. Vigdís hefur sjálf staðfest það í sam-
tölum við áhafnarmeðlimi að áskorun
þeirra hafi riðið baggamuninn.