Fréttablaðið - 16.03.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
ÞRIÐJUDAGUR
MATARÆÐI ÍSLENDINGA Mann-
eldisfélag Íslands stendur fyrir málþingi
um mataræði Íslendinga. Rætt verður um
nýjar ráðleggingar Lýðheilsustöðvar sem
byggja á nýlegri könnun Manneldisráðs á
neysluvenjum Íslendinga ásamt erlend-
um rannsóknum. Málþingið verðu í Nor-
ræna húsinu og hefst klukkan 20.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
LÍTIÐ EITT KÓLNANDI á landinu
næstu daga og víða næturfrost einkum
norðan til. Bjart með köflum vestanlands
og þar með í borginni. Úrkoma suðaustan
til. Sjá síðu 6.
16. mars 2004 – 75. tölublað – 4. árgangur
● fiðlutónleikar í salnum
Theresa Bokany:
▲
SÍÐA 26
Spilar eins og
djöfullinn sjálfur
● tónlistarveisla í heimabænum
200.000 naglbítar:
▲
SÍÐA 30
Flytja svið til
Akureyrar
● á naglaásetningum
Rósa Björk Hauksdóttir:
▲
SÍÐA 16
Keppir á heims-
meistaramóti
● sparibaukar ● skattframtöl
Ingólfur Hrafnkell Ingólfsson:
▲
SÍÐA 18
Betra að borga
á eindaga
STUNGIÐ UNDAN Læri, hryggir og
frampartar að verðmæti um 115 milljónir
króna voru flutt á brott í skjóli nætur eftir
að Ferskar afurðir ehf. komust í þrot, segja
sjónarvottar. Sjá síðu 2
HÆKKAR ÁFRAM Búist er við því að
nýtt lánsfyrirkomulag Íbúðalánasjóðs geti
stuðlað að verðhækkun á húsnæðis-
markaðinum. Sjá síðu 6
ÓTTI VIÐ HRYÐJUVERK Evrópskir
stjórnmálamenn kalla eftir samráði um
hertar varnir gegn hryðjuverkum. Dósent í
stjórnmálafræði segir að íslensk stjórnvöld
þurfi að hafa varann á. Sjá síðu 8–10
MILLJÓNIR GUFA UPP Orkuveitan
og Landsvirkjun tapa að minnsta kosti sex
hundruð milljónum á rekstri Tetra Íslands
og til stendur að setja hundrað milljónir í
viðbót í reksturinn. Sjá síðu 12–13
FORSETAEMBÆTTIÐ Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands segist
hafa hugleitt það í nokkur skipti
eftir áskoranir, að beita því valdi
að vísa málum til þjóðaratkvæðis.
„Ég hef komist að þeirri niður-
stöðu að ekki væri efnisgrundvöll-
ur til þess að beita þessu valdi. Ég
sannfærðist um það í kosningun-
um 1996 að þetta stjórnarskrár-
ákvæði um málskotsréttinn er
mjög vakandi í hugum þjóðarinn-
ar.“ Hann bætti því við að ákvæð-
ið væri eitt það dýrmætasta í ís-
lenskri stjórnskipan. „Fólkið í
landinu telur það þann öryggis-
ventil og þá tryggingu sem mikil-
vægt sé að sé virk.“
Ólafur Ragnar sagðist virða
þessi sjónarmið. Hann sagði í
sjálfu sér í lagi að umræða um
breytta stöðu forsetans í stjórn-
skipuninni færi fram. Margt
megi ræða í þeim efnum. Mikil-
vægt sé að umræðan byggðist á
réttum upplýsingum og réttum
sögulegum grunni. Hann segist
vilja taka virkan þátt í slíkri
umræðu.
„Það kemur margt til álita
þar. Ekki bara að skýra stjórnar-
skrána á þann veg að draga úr
valdi forsetans. Það getur líka
komið til greina að styrkja stöðu
forsetaembættisins,“ segir
Ólafur Ragnar. Sjá nánar bls. 4
fjármál o.fl.
LÉTTKLÆDDIR Í BLÍÐUNNI Það var sannkallað vor í lofti í höfuðborginni í gær. Þessir íslensku karlmenn voru ekki lengi að skella sér
á stuttermaboli enda fór hitinn alla leið í 7,4 gráður í gær.
LÖGREGLUMÁL Ríkissaksóknari hefur
gert lögreglunni að rannsaka andlát
barns á Landspítal-
anum í nóvember
árið 2002 sem rekja
má til lækna-
mistaka. Sjúkrahús-
ið hefur þegar viður-
kennt bótaskyldu í
málinu.
Sigríður Rut Júl-
íusdóttir, lögmaður foreldranna,
segir að málið hafi verið kært til
lögreglunnar í nóvember á síðasta
ári. Annars vegar hafi verið farið
fram á rannsókn á því hvers
vegna dauðsfallið hafi ekki verið
tilkynnt til lögreglu af starfsfólki
sjúkrahússins líkt og lög kveði á
um. Hins vegar hafi verið farið
fram á að málið yrði rannsakað í
heild sinni. Lögregluyfirvöld hafi
ekki orðið við þeirri beiðni. Sú
ákvörðun hafi verið kærð til ríkis-
saksóknara sem hafi nú ákveðið
að lögreglan eigi að rannsaka
hvers vegna andlát barnsins hafi
ekki verið tilkynnt og tiltekna
þætti málsins í heild meðal annars
skýrslur læknisins.
Sigríður Rut segir að andlát
barnsins hafi verið rakið til
legvatnsstungu sem gerð hafi ver-
ið á móðurinni. Læknirinn hafi
stungið á bláæð í fylgjunni svo
blóð hafi komið í sprautuna. Kon-
an hafi samt sem áður verið látin
bíða á biðstofu á meðan barninu
hafi blætt út í móðurkviði. Bráða-
keisaraskurður hafi ekki verið
gerður fyrr en of seint og barnið
því látist fjórum dögum síðar.
Skömmu eftir andlát barnsins
kærðu forldrarnir starfsfólk Land-
spítalans til landlæknis. Í álitsgerð
landlæknis kemur fram að í að
minnsta kosti eina og hálfa klukku-
stund fyrir fæðingu með keisara-
skurði hafi hjartsláttarsíritinn gef-
ið til kynna versnandi líðan fóst-
urs. Það og að vitað var um að
blæðing hafði orðið inn í vatnsbelg,
ásamt minnkandi hreyfingum fóst-
urs hefði átt að leiða til skjótari
viðbragða en raun varð á.
trausti@frettabladid.is
Málskotsréttur forseta Íslands:
Hefur hugleitt þjóðar-
atkvæðagreiðslu
Lögreglu gert að
rannsaka barnslát
Ríkissaksóknari hefur ákveðið á grundvelli kæru að lögreglunni beri að rannsaka andlát barns á
Landspítalanum. Lögreglan hafði áður hafnað rannsókn.
■
Konan hafi
samt sem áður
verið látin bíða
á biðstofu á
meðan barninu
hafi blætt út í
móðurkviði.
Osama bin Laden:
Sleppur oft
en naumlega
PARÍS, AP Osama bin Laden hefur
nokkrum sinnum sloppið naum-
lega úr gildru franskra hermanna
í Afganistan sagði yfirmaður
þeirra, Henri Bentegeat hershöfð-
ingi, í útvarpsviðtali í gær. Hann
segir hermenn sína staðráðna í
því að ná bin Laden áður en árið
er úti. „Hann er táknmynd 11.
september. Hann er sannarlega
ekki alls kostar saklaus af því sem
gerðist í Madríd.“
„Landslagið í Afganistan er
mjög hentugt fyrir menn á flótta,“
sagði Bentegeat þegar hann út-
skýrði hvers vegna reyndist svo
erfitt að ná leiðtoga al-Kaída og
tók fram að hryðjuverk stöðvuð-
ust ekki þó bin Laden næðist. ■
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
MÁ ALLT EINS STYRKJA EMBÆTTIÐ
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands,
sagði á blaðamannafundi í gær, allt eins
koma til greina að styrkja foretaembættið,
en að draga úr valdi forsetans.
Haítiístjórn ósátt:
Aristide fór
til Jamaíku
HAÍTÍ, AP För Jean-Bertrand
Aristide, fyrrum forseta Haítí, til
Jamaíku hefur aukið mjög á spennu
í heimalandi hans. Stuðningsmenn
hans hyggjast efna til mótmæla og
krefjast þess að forsetinn fyrrver-
andi taki aftur við völdum. Stjórn-
völd hafa hins vegar brugðist illa
við og kallað sendiherra sinn heim
frá Jamaíku í mótmælaskyni.
Gerard Latortue, forsætisráð-
herra Haítí til bráðabirgða, sagði
stjórnvöld á Jamaíku vega að Haítí
með því að heimila Aristide að koma
til landsins áður en það skýrist hvar
hann fær hæli til frambúðar.
Aristide hefur reyndar ekki gef-
ið upp á bátinn vonina um að snúa
aftur til Haítí. „Nú læt ég mér
nægja að hlusta á þjóð mína. Því
meira sem við hlustum á fólkið því
meira þjónum við því, því meira
vitum við hvað skal gera á réttum
tímapunkti.“ ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M