Fréttablaðið - 23.03.2004, Qupperneq 2
2 23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
„Nei - en klukkan tifar.“
Helgi Laxdal er formaður Vélstjórafélags Íslands.
Hann náði ekki kjöri í stjórn Sparisjóðs vélstjóra
og er ósáttur. Þegar forsætisráðherra var ósáttur
við KB banka tók hann sparifé sitt út.
Spurningdagsins
Helgi, ertu búinn að taka út spariféð?
■ Baldvin Þorsteinsson
LÖGREGLUMÁL „Ég hafði eitthvað á
tilfinningunni, að þetta myndi
enda með skelfingu. Svo gerðist
það og það var áfall númer tvö, að
heyra um þessi ósköp í fjölmiðl-
um, sem áttu aldrei að gerast og
hefði verið hægt að komast hjá.“
Þetta segir Páll Heimir Einars-
son, guðfræðingur og starfsmað-
ur á barna- og unglingageðdeild
Landspítala, um þá slæmu
reynslu þegar hann komst að því
hver stóð á bak við orðsendingar á
netinu þess efnis að viðkomandi
vildi gjarnan hitta
unga pilta. Ein-
staklingurinn sem
um ræðir er nú til
rannsóknar hjá
lögreglunni í
Reykjavík fyrir
kynferðisleg sam-
neyti við að
minnsta kosti einn
pilt, fimmtán ára
gamlan. Maðurinn
hefur þjónað sem
afleysingaprestur
á landsbyggðinni.
„Mér leið það
illa, þegar ég
komst að því hver
þetta var, að ég
gat ekki geymt það með mér,“
sagði Páll Heimir. „Ég ræddi því
málið við mann sem var starfandi
prestur þá.“
Vinur Páls Heimis fór upphaf-
lega að spjalla við manninn á net-
inu. Maðurinn talaði yfirlætislega
og var þá að grennslast fyrir um
hugsanleg sambönd við unga
pilta. Hann kallaði sig þá „Hjalta.“
Páll Heimir og vinur hans ákváðu
að grennslast nánar fyrir um
þennan mann, því þeir töldu að
hann væri að ljúga til nafns. Páll
Heimir hafði samband við mann-
inn í gegnum tölvu, kvaðst vera 19
ára piltur og væri til í að hitta
hann. Stefnumótið var ákveðið á
mánudagskvöldi við Laugardals-
laugina. Maðurinn kvaðst vera á
bláum jeppa af tiltekinni gerð.
Páll Heimir mætti á staðinn, í roki
og rigningu í janúar 2003, sá bíl-
inn og fletti upp skráningarnúm-
erinu.
„Þá sá ég hver þetta var,“ sagði
hann. „Þetta voru upplýsingar
sem mér þóttu ekki góðar. En
fyrir mér var þetta einungis gift-
ur maður sem var í skápnum og
var að bögglast með þessa kyn-
hneigð sína í hjónabandinu. Mér
kom ekki til hugar að þetta gæti
flokkast undir barnaníðingsskap.
Þá hefði ég gengið lengra í við-
brögðum mínum. En miðað við að-
stæður sá ég ekki að ég gæti gert
meira en ég gerði þá. Eftir á að
hyggja hefði ég ef til vill átt að
biðja prestinn sem ég leitaði til að
ræða við manninn eða leita til
biskupsstofu.“
Páll Heimir sendi manninum
strax sms-skilaboð og kvaðst vita
nákvæmlega hver hann væri.
Hann fékk aðeins „?“ til baka. Páll
Heimir kvaðst hafa bent mannin-
um nokkrum sinnum á með sms-
skilaboðum að ræða við einhvern
um vanda sinn. Það hefði verið í
apríl 2003. Lengra hefðu sam-
skipti þeirra ekki náð.
jss@frettabladid.is
MADRÍD, AP Spænska lögreglan hef-
ur handtekið fjóra menn til viðbót-
ar við þá tíu sem voru þegar í haldi
í tengslum við rannsókn á hryðju-
verkunum í Madríd fyrr í mánuð-
inum.
Þrír mannanna búa í Lavapies-
hverfi þar sem Jamal Zougam, sá
sem grunsemdir beinast helst að,
rak farsímaverslun. Fjórði maður-
inn býr annars staðar í Madríd.
Utanríkisráðherrar aðildar-
ríkja Evrópusambandsins hótuðu
þeim ríkjum sem draga fæturna í
baráttunni gegn hryðjuverkum
efnahagsþvingunum. Þeir segja að
baráttan gegn hryðjuverkum verði
hluti af öllum viðræðum Evrópu-
sambandsins við önnur ríki og
kunni að leiða til þess að dregið
verði úr viðskiptum og efnahags-
aðstoð.
Evrópusambandið hefur stöðv-
að viðræður um fríverslun við
Íran þar til kjarnorkuáætlun
þeirra liggur ljós fyrir og hefur
sett þau skilyrði fyrir viðskipta-
samningi og efnahagsaðstoð við
Sýrland að þeir skrifi undir sátt-
mála um aðgerðir gegn hryðju-
verkum.
Enn var daufheyrst við tillögu
Belgíu og Austurríkis um að koma
upp evrópskri leyniþjónustu. Bret-
ar og Frakkar vilja ekki deila við-
kvæmum upplýsingum með öllum
25 aðildarríkjum ESB og fleiri
lýstu áhyggjum af því að
skrifræði og upplýsingaleki
Hafrahvammsgljúfur:
Vinna við
varnir hafin
KÁRAHNJÚKAR Vinna er hafin við
varnarbúnað í Hafrahvamms-
gljúfri við Kárahnjúka þar sem
banaslys varð aðfaranótt 14. mars
síðastliðinn.
Að sögn Ómar R. Valdimars-
sonar, upplýsingafulltrúa Impreg-
ilo á Íslandi, hófust framkvæmdir
við varnarbúnað mjög skömmu
eftir að slysið átti sér stað.
Eyjólfur Sæmundsson, for-
stjóri Vinnueftirlitsins, segir að
einnig hafi verið veitt leyfi til
vélavinnu á svæðinu fyrir menn
sem vinna í sérstaklega vörðum
tækjum. ■
GUNNAR ÖRLYGSSON
„Ég tel hana vera skelegga, réttvísa og fjöl-
fróða,“ segir Gunnar um flokkssystur sína
Margréti Sverrisdóttur.
Gunnar Örlygsson:
Margréti í stað
Magnúsar
STJÓRNMÁL „Það er mitt persónu-
lega mat að æskilegt væri að Mar-
grét Sverrisdóttir kæmist til frek-
ari valda í flokknum þegar fram
líða stundir,“ segir Gunnar Ör-
lygsson, þingmaður Frjálslynda
flokksins. Gunnar lét þau orð falla
í þættinum Ísland í bítið að hann
teldi æskilegt að breyting yrði á
forystu flokksins.
„Ég tel Margréti vera gædda
þeim hæfileikum sem þarf til að
vera í forystu stjórnmálaflokks.
Ég er ekki að setja út á störf Guð-
jóns Arnars en lít svo á það yrði
flokknum til framdráttar ef Mar-
grét fengi að starfa við hlið hans.
Ég tel þau tvö vera hæfust til að
stýra flokknum,“ segir Gunnar en
leggur þó áherslu á að hann sé
ekki ósáttur við störf núverandi
varaformanns Magnúsar Þórs
Hafsteinssonar. ■
SKROKKURINN DÆLDAÐUR
Skrokkur fjölveiðiskipsins Bald-
vins Þorsteinssonar dældaðist
stjórnborðsmegin í strandinu í
Meðallandsfjörum. Baldvin var
tekinn í slipp í Hareide í Noregi í
gær. Ekki er ljóst hversu miklar
skemmdirnar eru, til að sjá það
þarf að tæma tankana og fara
niður í þá. Ekki kom leki að skip-
inu þegar það strandaði. Stýri
Baldvins er bilað og gír í ólagi.
LÖGREGLUMÁL „Fagráðið mun ekki
hafa afskipti af þessu tiltekna
máli, sem slíku, þar sem barn á í
hlut,“ sagði Ólöf Ásta Faretsveit,
formaður fagráðs þjóðkirkjunn-
ar, um meðferð kynferðisafbrota,
spurð um mál afleysingaprests-
ins sem átti í meintu kynferðis-
sambandi við 15 ára pilt.
Ólöf Ásta sagði, að mál þar
sem þolandinn væri á barnsaldri,
færi beint til barnaverndar-
nefndar, en kæmi ekki til kasta
ráðsins.
„Fagráðið er skipað til að
sinna fullorðnum þolendum sem
verða fyrir kynferðislegu ofbeldi
af hálfu starfsmanna kirkjunn-
ar,“ sagði Ólöf Ásta. „Þá er hlut-
verk þess að fræða starfsmenn
kirkjunnar um mál af þessu tagi.
Ráðið getur hugsanlega komið að
þessu máli með fræðslu til þeirra
sem það snertir.“
Fagráðið var stofnað 1999,
þegar skipað var í það. Að sögn
Ólafar Ástu fóru fyrstu árin eftir
stofnun þess í að búa til starfs-
reglur og móta starfið. „Þannig
að það hafa engin mál komið til
okkar ennþá,“ sagði hún. „Við
höfum einungis sinnt fræðslu og
kynningu á starfsemi ráðsins.“
Í fagráðinu eiga sæti Elsa Þor-
kelsdóttir lögfræðingur, Kjartan
Örn Sigurbjörnsson og Ólöf Ásta
Farestveit, uppeldis- og afbrota-
fræðingur, sem er formaður
ráðsins. ■
Efnahagsþvinganir berjist ríki ekki gegn hryðjuverkum:
Fjórtán í haldi vegna
Madrídarárásanna
ÖRYGGISGÆSLA Í MADRÍD
Öryggisverðir á Atocha-járnbrautarstöðinni í
Madríd ganga framhjá konu og barni hennar.
BISKUPSSTOFA
Mál afleysingaprestsins mun ekki koma sem slíkt til fagráðs kirkjunnar um meðferð kyn-
ferðisafbrota, að sögn formanns ráðsins.
Fagráð kirkjunnar um kynferðisafbrot:
Engin afskipti af afleysingaprestinum
Fann að þetta myndi
enda með skelfingu
Prestur, sem Páll Heimir Einarsson leitaði til í febrúar 2003 þegar hann komst að því að
afleysingaprestur væri að leita sambands við drengi á netinu, gerði aldrei neitt í málinu.
Mál afleysingaprestsins eru nú til rannsóknar hjá lögreglu.
„En fyrir
mér var
þetta ein-
ungis giftur
maður sem
var í skápn-
um og var
að bögglast
með þessa
kynhneigð
sína í hjóna-
bandinu.
BARNANÍÐINGUR
Upp komst um ásælni afleysingaprestsins í unga drengi, þegar farið var að fylgjast með ákærðum barnaklámsmanni, sem Gunnleifur
Kjartansson lögreglumaður sést hér setja inn í lögreglubíl.