Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 33
33ÞRIÐJUDAGUR 23. mars 2004 Kannt þú skyndihjálp? M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 • Opin virka daga kl. 12-14 • www.redcross.is/kopavogur Kópavogsdeild Rauða kross Íslands heldur námskeið í almennri skyndihjálp mánudaginn 29. mars kl. 18.00- 22.15 í Hamraborg 11, 2. hæð. Á námskeiðinu læra þátttakendur grundvallaratriði í skyndihjálp og endurlífgun. Markmiðið er að þátt- takendur verði hæfir til að veita fyrstu hjálp á slysstað. • Námskeiðsgjald: 4.900 kr. • Skráning í síma 554 6626 eða með tölvupósti á kopavogur@redcross.is eigi síðar en 26. mars. Pizza 67 • Austurveri S. 8006767 Opið alla daga 16-22 BESTU PIZZURNAR, BESTA VERÐIÐ AÐEINS 2 DAGAR EFTIR 16“ PIZZA með 2 áleggstegundum Aðeins 699 kr. PIZZU PARTY Leeds tók á móti Manchester City: Viduka með sigurmarkið FÓTBOLTI Leeds vann Manchester City 2-1 á heimavelli sínum Elland Road í botnslag ensku úrvalsdeild- arinnar í gær. Stephen McPhail kom Leeds yfir með góðu marki beint úr aukaspurnu á 22. mínútu en Frakk- inn Nicolas Anelka jafnaði metin fyrir City rétt fyrir lok fyrri hálfleiks með hnitmiðuðu skoti. Þetta var tuttugasta mark kappans á leiktíðinni. Ástralinn Mark Viduka skoraði sigurmark heima- manna úr vítaspyrnu á 74. mínútu eftir að brotið hafði verið á Alan Smith. Með sigrinum komst Leeds úr botnsætinu á kostnað Wolves og eygir enn von um að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni. Árni Gaut- ur Arason sat á varamannabekk City í leiknum. ■ Frábær stemning í Stykkishólmi Deildarmeistarar Snæfells standa með pálmann í höndunum fyrir þriðju viðureign sína gegn Njarðvík í undanúrslitum Intersport-deildar karla á fimmtudag eftir sigra í fyrstu tveimur leikjunum. KÖRFUBOLTI Snæfell getur tryggt sér sæti í úrslitunum með sigri á heimavelli sínum í Stykkishólmi. Það yrði heldur betur saga til næsta bæjar því margfaldir Ís- landsmeistarar Njarðvíkur eru ekki vanir að detta úr keppni 3-0 á móti liði sem hefur enga reynslu í úrslitakeppni. Báður Eyþórsson, þjálfari Snæfells, segir að sigur liðsins gegn Njarðvík í Ljónagryfjunni á sunnudag og hafi ekki komið sér sérstaklega á óvart því hann fari í alla leiki til að vinna. „En að fara til Njarðvíkur og reyna að spila vel er mjög erfitt. Við vorum langtímum saman ekki að spila vel og þó að varnarleikurinn hafi verið ágætur þá var leikurinn hjá okkur enginn toppleikur. En við spiluðum svakalega vel síðustu 13-14 mínúturnar í leiknum,“ sagði Bárður í spjalli við Frétta- blaðið. Að sögn Bárðar eru lærisvein- ar hans vel niðri á jörðinni fyrir viðureignina á fimmtudag. „Ég er búinn að segja það í allan vetur að menn eru mjög einbeittir. Við höf- um alveg gífurlegan vilja. Þetta eru ungir strákar og þeir virðast ennþá hafa það sem til þarf til að leggja á sig til að vinna.“ Hann er síður en svo smeykur við Njarð- víkinga þrátt fyrir hefð þeirra og reynslu í úrslitakeppninni. „Við erum búnir að vinna þá í þremur leikjum í röð bæði í deild og úr- slitakeppni. Við eigum heimaleik næst og við mætum ákveðnir og ætlum að klára einvígið í þeim leik.“ Bárður segir að stemningin í Stykkishólmi sé í einu orði sagt frábær þessa dagana. „Það er al- veg sama hvar maður kemur, það er bara körfubolti sem kemst að. Menn ætla að fjölmenna á leikinn á fimmtudag.“ Hann segir að stuðningur bæjarbúa hafi verið ótrúlegur og til að mynda hafi 200 til 250 manns farið alla leið til Njarðvíkur til að styðja sína menn. „Stuðningsmennirnir voru okkar sjötti maður á vellinum. Þegar við vorum tuttugu stigum undir voru þeir ennþá hátt uppi og að hvetja okkur. Þeir hjálpuðu okkur alveg gríðarlega með þenn- an sigur,“ sagði hann. Snæfellingar tóku sér frí í gær til að hlaða batteríin fyrir kom- andi átök en undirbúningurinn hefst síðan á fullu í kvöld. Bárður er á því að Snæfell hafi fulla burði til að fara alla leið í keppninni. „Fyrst við erum komnir svona langt verðum við að setja stefn- una lengra. En við tökum bara einn leik fyrir í einu.“ freyr@frettabladid.is Keflavík vann Grindavík í undanúrslitum Intersport-deildarinnar: Bráðskemmtilegur leikur KÖRFUBOLTI Keflavík vann Grinda- vík 116-105 í undanúrslitum Inter- sport-deildarinnar á heimavelli Keflvíkinga í gær. Staðan í hálf- leik var 59-55 fyrir heimamenn. Keflvíkingar höfðu frumkvæðið frá fyrstu mínútu og voru alltaf skrefinu á undan. Grindvíkingar hleyptu þeim þó aldrei langt frá sér. Leikurinn var hraður og bráð- skemmtilegur. Alls voru 23 þriggja stiga körfur skoraðar og settu heimamenn 13 þeirra niður en Grindvíkingar 10. Keflvíking- ar voru heldur baráttuglaðari og tóku meðal annars 19 sóknar- fráköst í leiknum. Eftir töluverða spennu í lokin gerði Magnús Þór Gunnarsson út um leikinn með tveimur þriggja stiga körfum á síðustu mínútunni. Hann var sterkur á síðasta leikhlutanum og skoraði þá 12 stig. Með sigrinum í gær hefur Keflavík unnið 29 leiki í röð á heimavelli sínum á móti ís- lenskum liðum. Derrick Allen var stigahæstur heimamanna með 30 stig og 11 fráköst. Nick Bradford var dug- legur á öllum sviðum og skoraði 22 stig, tók 7 fráköst, átti 7 stoðsendingar, stal 4 boltum og varði 3 skot. Fannar Ólafsson skoraði 19 stig og tók átta fráköst. Hjá Grindavík var Jackie Rogers stigahæstur með 24 stig og tók sjö fráköst. Anthony Q. Jones kom næstur með 22 stig, 14 fráköst og 7 stoðsendingar. Darrel Lewis skoraði 21 stig og Helgi Jónas Guðfinnsson 17. Hann hitti úr öllum skotum sínum; fimm þriggja stiga og tveimur vítum. Þetta var annar leikur liðanna en sá fyrri endaði með sigri Grindavíkur. Staðan er því jöfn í viðureignum þeirra en þriðji leik- urinn verður á heimavelli Grind- víkinga á föstudaginn. ■ BÁRÐUR EYÞÓRSSON Ætlar að klára undanúrslitaeinvígið gegn Njarðvík á heimavelli. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M JACKIE ROGERS Jackie Rogers átti fínan leik fyrir Grindvíkinga í gær. Kappinn skoraði 24 stig og tók sjö fráköst. JÖFNUNARMARK Nicolas Anelka skorar jöfnunarmarkið gegn Leeds á Elland Road í gærkvöld. Paul Robinson, markvörður Leeds, kemur eng- um vörnum við.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.