Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 32
32 23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR KATTLIÐUGUR Rússinn Evgeni Plushenko sýndi leikni sína á skautasvellinu á HM í skautadansi sem fer fram í Þýskalandi. Kappinn er greini- lega kattliðugur. Listdans hvað?hvar?hvenær? 20 21 22 23 24 25 26 MARS Þriðjudagur SJÓNVARP  19.00 Meistaradeild UEFA á Sýn. Fréttaþáttur Meistaradeildar UEFA.  19.30 Meistaradeild UEFA á Sýn. Bein útsending frá fyrri leik AC Milan og Deportivo La Coruna í átta liða úrslitum.  21.40 Meistaradeild UEFA á Sýn. Útsending frá fyrri leik Porto og Lyon í átta liða úrslitum.  23.30 Olíssport á Sýn. Fjallað er um helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.  23.50 Gillette-sportpakkinn á Sýn. KÖRFUBOLTI Snæfell hef- ur unnið fjórða leik- hluta í síðustu þremur leikjum sínum í úrslitakeppni Intersport-deildarinnar í körfu- bolta með 35 stigum eða 80-45. Í þessum þremur leikjum, gegn Hamri á útivelli í 8 liða úrslitun- um og í tveimur leikjum gegn Njarðvík í undanúrslitunum hefur liðið verið undir þegar fjórði leik- hluti fer í gang en hefur síðan snúið leiknum sér í vil á lokamín- útunum. Í þessum þremur leikj- um er stigatalan 18 stig í mínus fyrir Hólmara í fyrstu þremur leikhlutunum (178-196). Snæfell hefur því falið reynsluleysi sitt einstaklega vel og hin rómaða vörn liðsins hefur aðeins fengið á sig 15 stig að meðaltali í 4. leik- hluta í síðustu þremur leikjum. ■ ■ Tala dagsins 35 Montgomerie vann Caltex-mótið: Fyrsti sigurinn í 16 mánuði GOLF Skotinn Colin Montgomerie vann sitt fyrsta mót á evrópsku PGA-mótaröðinni í golfi í 16 mánuði þegar hann bar sigur úr býtum á Caltex Masters-mótinu í Singapúr. Montgomerie kom sterkur upp á síðasta hringnum eftir að hafa verið fjórum höggum á eftir efsta manni og endaði með þriggja högga forystu. Þar með tryggði hann sér sinn 28. sigur á ferlinum. „Það er langt síðan ég vann síðast í mótaröðinni en öll ferðalögin um heiminn hafa verið biðarinnar virði,“ sagði hann. ■ Íslandsmót unglinga í borðtennis: Víkingar unnu flesta titla BORÐTENNIS Íslandsmót unglinga í borðtennis fór fram um helgina í íþróttahúsi KR við Frostaskjól. Hundrað og níu keppendur frá sjö félögum voru skráðir til leiks, sem eru nokkuð fleiri keppendur en undanfarin ár og greinlegt að borðtennisíþróttin er í mikilli sókn. KR-ingar fengu flest verð- laun en leikmenn Vikings unnu flesta Íslandsmeistaratitla. Þá vann Dímon frá Hvolsvelli sinn fyrsta meistaratitil. Í flokki drengja 16-17 ára vann Sölvi Pétursson, Víkingi, en í flokki stúlkna í sama aldurs- flokki vann Erla Ívarsdóttir, einnig úr Víkingi. ■ Rúmeninn Gheorghe Hagi: Tekur við Galatasaray FÓTBOLTI Rúmeninn Gheorghe Hagi hefur tekið við knattspyrnu- stjórastöðunni hjá tyrkneska lið- inu Galatasaray. Um tveggja ára samning er að ræða en Hagi tekur við af Fatih Terim, sem var rekinn frá félaginu fyrir skömmu. Hagi gerði garðinn frægan sem leikmaður Galatasaray á sín- um tíma og vann m.a. fjóra deild- armeistaratitla með félaginu. Auk þess vann liðið Evrópukeppni félagsliða árið 2000 með hann inn- anborðs. „Allir þekkja mig vel. Þeir vita að ég er metnaðarfullur og vil halda uppi aga,“ sagði Hagi, sem er talinn besti knattspyrnu- maður Rúmena fyrr og síðar. Hann gekk undir viðurnefninu “Maradona Karpatafjallanna” af aðdáendum sínum. ■ BARÁTTA UM PÖKKINN Frá leik Íslands og Tyrklands sem Íslendingar unnu 7-5. Bæði liðin keppa í 2. deild að ári. Vítamínsprauta fyrir íshokkífólk Íslenska landsliðið í íshokkí er komið upp í 2. deild eftir glæsilegan sigur á HM í 3. deild fyrir fullu húsi í Skautahöll Reykjavíkur. ÍSHOKKÍ Íslenska landsliðið gerði 2-2 jafntefli við Mexíkó í síðasta leik sínum á mótinu en fyrir leik- inn var ljóst að liðið væri komið upp í 2. deild. Tyrkir fylgja Íslandi upp um deild eftir að hafa lent í öðru sæti á mótinu. Viðar Garðarsson, formaður Íshokkísamband Íslands, var him- inlifandi þegar Fréttablaðið náði tali af honum í gær. „Markmiðið var að komast upp úr deildinni og þeir gerðu þetta með stæl strák- arnir og unnu gull,“ sagði Viðar. Hann vill ekki meina að mótið hafi verið auðveldara fyrir Ísland en búist var við. „Það má segja að armenska liðið hafi komið á óvart. Það var miklu veikara en búist var við. Að öðru leyti var þetta nokkuð eftir bókinni. Við vissum að lykilleikirnir fyrir okkur væru annars vegar á móti Tyrkjum og hins vegar á móti Mexíkó,“ sagði hann. Aðspurður segir Viðar að mik- il ánægja hafi verið með skipu- lagningu mótsins á meðal þátt- tökuþjóðanna auk þess sem mótið hafi fengið góða umfjöllun er- lendis, sérstaklega vestanhafs og á Bretlandseyjum vegna þátttöku Íra. Hann segir að íshokkí eigi vaxandi gengi að fagna hér á landi og árangurinn á HM hafi ekki dregið úr áhuganum. „Þetta er frábært fyrir íþróttina og vítamínsprauta fyrir allt ís- hokkífólk. Þetta er búin að vera alveg frábær vika. Íþróttin er ört vaxandi hér á landi og iðkendum er alltaf að fjölga.“ Það er skammt stórra högga á milli hjá Íshokkísambandinu því í næstu viku fer U-18 ára landslið Íslands til Ungverjalands til að verja sæti sitt í 2. deild. Eftir að landsliðið kemur heim hefst síðan Íslandsmótið í íshokkí helgina 10.- 11. apríl. Keppni á HM í 2. deild fer svo fram á næsta ári en þá verður keppt í tveimur riðlum. ■ COLIN MONTGOMERIE Fagnaði sínum fyrsta sigri á evrópsku PGA- mótaröðinni um helgina í 16 mánuði. VIÐAR GARÐARSSON Segir að árangurinn á HM eigi eftir að hafa góð áhrif á unga íshokkíiðkendur hér á landi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.