Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 13
13ÞRIÐJUDAGUR 23. mars 2004 UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS Hlíðasmára 9 - Kópavogi GRUNNNÁM Í BÓKHALDI Helstu námsgreinar: Villt þú læra bókhald og tölvubókhald? 108 kennslustunda hagnýtt og hnitmiðað nám fyrir þá sem vilja læra bókhald frá grunni til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum. Námið hentar einnig einstaklingum með sjálfstæðan atvinnurekstur og þeim sem eru að hefja rekstur og vilja geta fært bókhaldið sitt sjálfir. Virðisaukaskattur - reglur, skil og öll meðferð vsk. Tölvubókhald í Navision - rauhæf verkefni með fylgiskjölum Verslunarreikningur - það helsta sem notað er við skrifstofustörf Undirstaða bókhalds - mikið um verklegar æfingar Þetta er síðasta bókhaldsnámskeiðið á þessari önn. Kennt er virka daga frá 8:15-12:15 Námskeiðið byrjar 13. apríl.       AHMED YASSIN 1929/1938 Fæddur í Ashkelon, sem er nú hluti Ísraels. Fæðingarvottorð segir hann fæddan 1929 en sjálf- ur sagðist hann fæddur 1938. 1948 Flýr ásamt fjölskyldu sinni til Gaza, sem þá er egypskt landsvæði, eft- ir stríð sem hófst við stofnun Ísra- elsríkis. Getur sér nafn sem kenn- ari og trúarleiðtogi. 1987 Stofnar Hamas-samtökin fljótlega eftir að uppreisn Palestínumanna gegn Ísrael hefst. 1989 Ísraelar banna starfsemi Hamas. Yassin er fangelsaður ásamt um 200 félögum sínum. 1997 Sleppt í skiptum fyrir tvo ísraelska njósnara sem voru handteknir eft- ir tilræði við annan leiðtoga Ham- as. 2003 Særist lítillega þegar Ísraelar varpa sprengju á hús sem hann er í. 2004 Fellur í tilræði Ísraelshers. HAMAS-SAMTÖKIN Ahmed Yassin stofnaði Hamas- samtökin árið 1987, skömmu eftir upphaf fyrri uppreisnar Palestínu- manna gegn Ísraelum. Markmið þeirra er tortíming Ísraelsríkis og stofnun palestínsks ríkis í þess stað. Samtökin hafa ráðist gegn ísraelsk- um hermönnum, landnemum á Gaza og Vesturbakkanum og óbreyttum borgurum innan landa- mæra Ísraels. Stuðningur við sam- tökin hefur aukist síðustu ár. Hann er mestur á Gaza-svæðinu þar sem aðstæður Palestínumanna eru erf- iðastar. Félagslegri uppbyggingu Hamas meðal Palestínumanna og harðri baráttu gegn Ísraelum hefur verið vel tekið. „Orð fá ekki lýst þeirri reiði og því hatri sem býr í brjóstum okkar,“ sagði Ismail Haniyeh, náinn sam- starfsmaður Yassins. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær að Yassin væri höfuðpaur hryðjuverkamanna og að hann hefði lagt á ráðin um árásir sem hefðu kostað hundruð Ísraela lífið. „Stríð- inu gegn hryðjuverkum er ekki lok- ið og það heldur áfram dag frá degi, alls staðar,“ sagði Sharon. Ísraelar hafa ekki áður ráðið jafn áberandi forystumann Palest- ínuaraba af dögum. Embættismenn sem standa nærri Yasser Arafat sögðu hann nú óttast að sjálfur væri hann næstur á lista Ísraela yfir þá sem ráða ætti af dögum. Brotið gegn alþjóðalögum Fjölmargar Evrópu- og Araba- þjóðir fordæmdu verknaðinn og Ion Iliescu Rúmeníuforseti frestaði op- inberri heimsókn sinni til Ísraels vegna fjöldamótmæla í kjölfar vígs- ins á Yassin. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins sögðu að með víginu hefðu Ísraelar brotið gegn alþjóðalögum. Javier Solana, utan- ríkismálastjóri Evrópusambands- ins, sagði þetta „mjög, mjög slæmar fréttir fyrir friðarferlið“. „Bandaríkin hvetja alla sem að málinu koma til að fara gætilega og halda aftur af sér,“ sagði Lou Fintor, talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins. Bandarískir og ísraelskir embættismenn tóku fram að þeir fyrrnefndu hefðu ekki fengið upplýsingar um árásina á Yassin fyrir fram. Hosni Mubarak Egyptalandsfor- seti, sem hefur beitt sér fyrir sátt- um milli Palestínustjórnar og Ham- as, sagði árásina villimannlega og gaf ekki mikið fyrir möguleika frið- arferlis við þessar aðstæður. Ingólfur Shahin, sem hefur verið á ferli á Vesturbakkanum, segir fólk sem hann hefur rætt við mjög reitt og líta svo á að um pólitíska árás sé að ræða. „Það er spurning hvort þessi árás var gerð til að koma í veg fyrir árásir eða kynda undir við- brögð Palestínumanna svo Ísraelar geti haldið árásarstefnu sinni áfram,“ segir Ingólfur og hefur eft- ir fólki að það líti svo á að Ísraelar hafi aðeins lagt í að ráða Yassin af dögum að fengnu leyfi Bandaríkja- stjórnar. „Hér í Palestínu er sjeik Yassin talinn vera andlegur leiðtogi frelsissamtaka en ekki hryðju- verkasamtaka.“ „Ég hef tekið eftir því að her- námið og kúgunin hefur aðeins leitt af sér ofbeldi. Ég held að öll þessi útgöngubönn og það sem er að ger- ast á Gaza verði frekar til þess að fólk velji sér róttækari leiðir,“ segir Ingólfur. brynjolfur@frettabladid.is Virðisaukaskattur á lyfjum: 780 milljónir í ríkissjóð LYFJASKATTUR Áætlaðar tekjur rík- issjóðs af virðisaukaskatti á lyfj- um námu um 780 milljónum króna á árinu 2002. Þetta kom fram í svari fjármálaráðherra við fyrir- spurn Jóns Kr. Óskarssonar, vara- þingmanns Samfylkingarinnar. Virðisaukaskattur á lyfjum er nú 24,5% hér á landi. Í svari ráð- herra kemur fram að ef skattur- inn yrði fjórtán prósent myndu árstekjur af lyfjasölu lækka niður í um 440 milljónir króna. Það þýð- ir um 340 milljóna tekjutap fyrir ríkissjóð. Ef skatthlutfallið yrði sjö prósent myndu árstekjurnar aðeins nema um 220 milljónum króna. ■ VÍGINU MÓTMÆLT Vígi Yassins var mótmælt víða á Gaza og Vesturbakkanum. Á mörgum stöðum var kveikt í hjólbörðum þannig að svartur reykur lagðist yfir stór svæði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.