Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 15
■ Útlönd 15ÞRIÐJUDAGUR 23. mars 2004 KAUPMANNAHÖFN, AP Almenningur í Danmörku leitar sífellt meira með mál sín til einkaspæjara, að því er fram kemur í Jyllands Posten. Samkvæmt upplýsingum frá einkaspæjurunum sjálfum kvartar fólk yfir því að lögreglan megi ekki vera að því að sinna málum þess, þar sem allt gangi út á hryðjuverk og eftirlit þeim tengt. „Þegar lögreglan er ekki til staðar fyrir fólk er eðlilegt að það leiti til okkar. Það er samt eitthvað skrýtið við þjóðfélag sem þarf spæjara til að ganga í verk lögreglunnar,“ segir John Jensen einkaspæjari. Yfirmaður lögreglunnar í Kaupmannahöfn, Per Larsen, viðurkennir að þetta sé þróunin, en hefur áhyggjur af ástandinu. Einkaspæjarar eyðileggja oft sönnunargögn og gera jafnvel meira ógagn en gagn,“ segir hann. ■ STJÓRNLAGADÓMSTÓLL Í SUÐUR- AFRÍKU Thabo Mbeki, forseti Suður-Afríku, opnaði í gær stjórnlagadómstól í byggingunni þar sem Nelson Mandela var vistaður sem fangi í áratugi. Bretar notuðu bygginguna einnig til þess að halda Mahatma Gandhi föngnum á árunum 1908 til 1913. Mbeki sagði viðeigandi að byggingin væri notuð sem höf- uðstöðvar dómstólsins. TYRKIR SETJA SKILYRÐI Tyrk- nesk stjórnvöld vilja að Evrópu- sambandið veiti undanþágu í málefnum Kýpur þegar eyjan verður hluti Evrópusambandsins 1. maí næstkomandi. Tyrkir vilja að ákveðinni tvískiptingu verði viðhaldið milli tyrkneska og gríska hluta eynnar en gríski meirihlutinn vill að hlutarnir verði sameinaðir að fullu. Aðspurður hvenær forsetanum beri að beita þessu valdi sínu fyrst hann gerði það ekki í jafn stórum málum og Kárahnjúka- málinu og öryrkjamálinu segir Steingrímur J.: „Menn hafa auðvitað nefnt að fyrst forsetinn ákvað að beita þessu valdi sínu ekki þegar Ísland gekk í Atlantshafsbandalagið, sem var gríðarlega stórt mál, þá er auðvitað vandséð við hvaða að- stæður hann gerir það.“ Steingrímur J. segir að nýta verði þá umræðu sem nú sé farin af stað til þess að skýra þessi mál. Reyndar eigi sérstök nefnd að fara yfir þá kafla stjórnarskrár- innar sem kveði á um þessi rétt- indi forsetans og það sé gott. „Það mætti setja inn nýtt ákvæði sem opnar virkan mögu- leika á þjóðaratkvæðagreiðslu eftir almennum leiðum. Ef það yrði gert þá mætti jafnvel ákvæð- ið um forsetann hverfa út úr lög- unum.“ Galið að gagnrýna forsetann Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands, segir að síðari dómur Hæstaréttar í ör- yrkjamálinu staðfesti að forseti Íslands hafi gert rétt í því að hug- leiða beitingu málskotsréttarins. „Auk lögleysunnar sem við blasti var yfirgnæfandi meiri- hluti þjóðarinnar mjög andsnú- inn áframhaldandi bolabrögðum ríkisstjórnarinnar,“ segir Garðar. „Í ljósi alls þessa, og þeirra laga sem lögbrjótarnir höfðu áður fengið forsetann til að staðfesta, væri galið að gagnrýna hann fyr- ir að hafa tekið erindi okkar til alvarlegrar umhugsunar. Þótt ekki hafi komið til beitingar málsskotsréttarins er nauðsyn- legt að þingmeirihlutinn hverju sinni viti að bráðræðislegum hugdettum og yfirgangi kann hvenær sem er að verða skotið til þjóðarinnar.“ Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, vildi ekki tjá sig um hugmyndir forsetans og benti á að Ingibjörg Pálma- dóttir hefði verið heilbrigðisráð- herra þegar öryrkjamálið stóð sem hæst. Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingaráðherra, segir eðlilegt að forsetinn hafi velt öryrkja- málinu fyrir sér. „Mér finnst afar eðlilegt að forseti vor hugsi sig tvisvar um eins og meginþorri þjóðarinnar í stórum málum sem snerta marga í þjóðfélaginu,“ segir Ingibjörg. „Aðalatriðið er hvað hann svo gerir að vel íhuguðu máli. Það hafa fleiri forsetar þurft að velta málum sem þessum fyrir sér enda væri dapurt að hafa forseta sem hugsaði lítið sem ekkert um þjóðmálin og velti ekki upp öllum hliðum þeirra mála sem þegnar hans eru ósammála um.“ albert@frettabladid.is trausti@frettabladid.is Í desember árið 2000 dæmdiHæstiréttur að Trygginga- stofnun hefði verið óheimilt að skerða tekjutryggingu öryrkja í hjúskap vegna tekna maka. Taldi dómurinn að með því væri ríkið að brjóta á stjórnarskrár- bundnum rétti fólks til félags- legrar aðstoðar. Dómurinn var mjög umtalaður og setti ríkis- stjórnin á fót nefnd lögfræð- inga til að ákvarða viðbrögð. Nefndin lagði til ný lög um mál- ið og urðu heiftarlegar umræð- ur á Alþingi. Lögin voru sam- þykkt í janúar 2001, en sam- kvæmt þeim átti að skerða tekjutryggingu maka á ákveðnu tímabili að uppfylltum ákveðn- um skilyrðum. Málið fór aftur fyrir dómstóla og í október árið 2003 dæmdi Hæstiréttur að skerðingin bryti gegn eignar- rétti í stjórnarskrá. Öryrkjamálið í hnotskurn Miklar deilur urðu þegarLandsvirkjun sótti um leyfi til að reisa virkjun við Kára- hnjúka. Umhverfissinnar mót- mæltu áformunum með þeim rökum helstum að verið væri að sökkva óspilltri náttúru undir lón. Fylgjendur virkjunarinnar bendu á mikilvægi hennar fyrir þjóðarhag og uppbyggingu at- vinnulífs á Austurlandi. Í apríl árið 2002 veitti Alþingi Lands- virkjun leyfi til að reisa virkjun- ina. Þriðji hver þingmaður sem greiddi atkvæði í málinu sá ástæðu til að gera grein fyrir at- kvæði sínu. Alls greiddu 44 þing- menn atkvæði með frumvarpi iðnaðarráðherra en níu þing- menn greiddu atkvæði gegn því. Kárahnjúkamálið í hnotskurn Almenningur í Danmörku: Fleiri leita til einkaspæjara

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.