Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 23.03.2004, Blaðsíða 6
6 23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR ■ Bandaríkin GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 70,92 0,38% Sterlingspund 130,69 0.86% Dönsk króna 11,75 0,21% Evra 87,48 0,19% Gengisvísitala krónu 121,39 0,12% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 3738 Velta 5.358 milljónir ICEX-15 2.544 0,26% Mestu viðskiptin Straumur Fjárfestingarb. hf 193.547 Landsbanki Íslands hf. 100.252 Kaupþing Búnaðarbanki hf. 97.075 Mesta hækkun Medcare Flaga 6,48% Og fjarskipti hf. 1,21% Össur hf 0,97% Mesta lækkun Hraðfrystistöð Þórshafnar hf. -14,89% Fjárfestingarfélagið Atorka hf. -2,58% AFL fjárfestingarfélag hf. -1,96% Erlendar vísitölur DJ* 10.045,3 -1,4% Nasdaq* 1.903,3 -1,9% FTSE 4.333,8 -1,9% DAX 3.729,2 -2,4% NK50 1.407,9 -0,1% S&P* 1.094,6 -1,4% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hvaða fugl er í hugum Rangæingafyrsti vorboðinn? 2Hver er forstöðumaður skíðasvæð-anna í Bláföllum og Skálafelli? 3Fáskrúðsfirðingar frumsýna í sumaróperuna Le Pays. Hver samdi óper- una? Svörin eru á bls. 38 UTANRÍKISMÁL Íslenska utanríkis- ráðuneytið ákvað að hætta ferða- málasamstarfi við Kína þegar í ljós kom að kínversk sendinefnd hefði að líkindum komið til Ís- lands á fölskum forsendum og svindlað sér inn á Schengen- svæðið eftir að hún fór af landi brott. Íslensk stjórnvöld höfðu greitt götur nefndarmanna og stuðlað að því að þeir fengju vega- bréfsáritanir sem giltu á öllu Schengen-svæðinu. Rúmlega hundrað manna sendinefnd kom hingað til lands í desember 2002 í því skyni að efla verslun og ferðalög á milli Íslands og Kína. Haldin var vörusýning í Borgarleikhúsinu en að sögn Gunnars Snorra Gunnarssonar, ráðuneytisstjóra í utanríkisráðu- neytinu, var hún mun umfangs- minni en gert hafði verið ráð fyr- ir. Skömmu eftir að sendinefndin fór af landi brott vaknaði sá grun- ur að einhverjir hefðu haldið til annarra Evrópulanda. „Við óskuð- um eftir því við kínversk stjórn- völd að fá staðfestingar á því að allir hefðu skilað sér heim en fengum engin skýr svör,“ segir Gunnar Snorri. Í kjölfarið tóku ís- lensk stjórnvöld þá ákvörðun að hætta að taka á móti stórum sendinefndum frá Kína og sýna aðgætni í samstarfi við kínverska embættismenn. Gunnar Snorri vísar því þó á bug að þetta mál hafi haft neikvæð áhrif á sam- skipti Íslands við önnur Schengen-lönd. ■ Stefnir í hundruða milljóna varnir Sveitarstjóri Mýrdalshrepps segir áætlanir hafa verið gerðar um hvernig skuli bregðast við haldi landbrot áfram. Vonir standa til að landbrotið stöðvist, þar sem sjóvarnargarður gæti kostað hundruð milljóna. LANDBROT „Áætlanir hafa verið gerðar um hvernig skuli bregðast við haldi þróunin svona áfram,“ segir Sveinn Pálsson, sveitar- stjóri Mýrdalshrepps, en landbrot hefur valdið Mýrdælingum nokkrum áhyggjum. Sveinn segir þróun landbrots- ins vera mjög hægfara. Upp úr aldamótunum 1900 hafi nokkuð verið vitað um legu strandlengj- unnar og lá hún mun ofar en hún gerir í dag. Hann segir að frá árinu 1920 sé talið að ströndin hafi færst mikið fram vegna framburðar frá Kötlu. Margir kíló- metrar bættust við landið í Kötlu- gosinu 1918 og hélst ákveðið jafn- vægi í nokkuð langan tíma þar á eftir. Sveinn segir að upp úr 1970 sé talið að landbrotið hafi hafist þó þess hafi ekki orðið vart fyrr en upp úr 1990 vegna þess hversu hæg þróunin er. „Vonast er til að eitthvert jafn- vægi náist og landbrotið hrein- lega hætti. Það gæti gerst en svo gæti landbrotið haldið áfram og er búið að gera áætlanir um að grjótverja.“ Sveinn segir að hreinlega þyrfti að koma fyrir sjóvarnargarði eins og er víða um landið. Búið sé að marka legu hans og yrði hann á sama stað og flóðvarnargarðurinn er í dag. Ákveðin skilyrði hafa verið sett um hvenær sú framkvæmd myndi hefjast. Ímynduð lína hefur verið mörkuð og þegar bakkinn er kom- inn inn fyrir hana á tvö til þrjú hundruð metra kafla er tímabært að hefja varnaraðgerðir. Í dag er bakkinn kominn inn fyrir mörkin á tuttugu til þrjátíu metra kafla. „Það geta verið tíu ár í að skilyrð- unum verði náð en það gætu líka bara verið fimm ár. Einnig gæti landbrotið stöðvast og auðvitað vonast allir til að sú verði raunin þar sem framkvæmdir við sjó- varnargarð gætu kostað fleiri hundruð milljónir.“ hrs@frettabladid.is Íslandsbanki: Nýtt skipurit tekur gildi VIÐSKIPTI Íslandsbanki hefur kynnt nýtt skipurit. Samkvæmt því skiptist bankinn í þrjú meginsvið. Þau eru viðskiptabankasvið, undir forystu Jóns Þórissonar, fjárfest- inga- og alþjóðasvið, undir for- ystu Bjarna Ármannssonar, og Sjóvá-Almennar tryggingar undir forystu Þorgils Óttars Mathiesen. Í fréttatilkynningu frá bankan- um segir að bankaráð hafi sam- þykkt tillögur forstjóra og mark- mið þeirra sé að styrkja áherslu á heildstæða þjónustu við við- skiptavini, afmarka viðskipta- bankaþjónustu frá annarri þjón- ustu og einfalda yfirstjórn. ■ BRÝN ÞÖRF Gínea-Bissá er eitt fátækasta land í heimi og þörfin fyrir þróunaraðstoð brýn. Verkefni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna sem hleypt verður af stokkunum í dag snýr að uppbyggingu dagvistarheimila í landinu. Baugur styrkir þróunar- verkefni í Gínea-Bissá: Framlag til 65 dagheimila BARNAHJÁLP Tveggja ára þróunar- verkefni á vegum Barnahjálpar Sam- einuðu þjóðanna, UNICEF, í Gínea- Bissá verður í dag hleypt af stokkun- um. Verkefnið er styrkt af Baugi og skrifa fulltrúar UNICEF á Íslandi og forstjóri Baugs undir samning þar um í dag. Ætla má að styrkupphæðin sé ein sú mesta sem einkaaðili á Íslandi hef- ur veitt til eins þróunarverkefnis, en með peningunum verður hægt að koma upp aðstöðu og þjálfun starfs- manna í 65 dagvistarheimilum í Guinea-Bissau. Þörfin fyrir þróunaraðstoð er mik- il í Guinea-Bissau. Þetta er eitt fátæk- asta land í heimi þar sem 88% íbúa lifa á undir 70 íslenskum krónum á dag. Þar er áttunda hæsta tíðni ung- barnadauða í heiminum. Verkefni UNICEF Íslands og Baugs snýr að því að aðstoða ungbörn og fjölskyldur þeirra í strjálbýlum héruðum lands- ins. Verkefnið er skipulagt af UN- ICEF í samstarfi við opinbera aðila og félagasamtök á staðnum. ■ BÆTUR FYRIR FANGELSISVIST Bandarískur karlmaður á fimm- tugsaldri fær andvirði tæpra 200 milljóna króna í bætur fyrir að hafa verið haldið í fangelsi í fimmt- án ár fyrir glæp sem hann framdi ekki. Maðurinn var fundinn sekur um nauðgun árið 1987 en var sleppt úr fangelsi eftir að DNA-próf sýndi fram á að hann væri saklaus. – kominn tími til Játning Grétars í heild sinni Kínversk sendinefnd til Íslands á fölskum forsendum: Engin skýr svör frá kínverskum stjórnvöldum KÍNVERSKA SENDINEFNDIN Yfir eitt hundrað Kínverjar komu hingað til lands í desember 2002 í þeim tilgangi að efla verslun og ferðalög milli Íslands og Kína. Írski pósturinn: Ekki senda fleiri bréf DUBLIN, AP Írski pósturinn, An Post, fór þess í gær á leit við við- skiptavini sína að þeir sendu ekki bréf á næstunni. Pósturinn stendur í launadeilu við starfsmenn sína og hefur vik- ið 300 manns úr starfi án launa. Þetta, auk yfirvofandi verkfalla, hefur orðið til þess að auka mjög á álagið í flokkun og póstdreifingu. Til að sporna við því fór pósturinn þess á leit við almenning í Dublin og nágrenni að láta það vera að senda bréf þar til samkomulag hefði náðst við verkalýðsfélög starfsmanna póstsins. ■ SVEINN PÁLSSON SVEITARSTJÓRI MÝRDALSHREPPS Sveinn segir marga kílómetra hafa bæst við landið í Kötlugosinu 1918 og að jafnvægi hafi haldist þar til landbrot hófst upp úr 1970. ■ Vonast er til að einhvert jafn- vægi náist og landbrotið hreinlega hætti. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M 139410

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.