Fréttablaðið - 23.03.2004, Síða 8
SKIPULAGSMÁL „Skipulagsvinna er
að fara í gang að nýju og alls óráð-
ið hvað gert verður við grjót-
námuna,“ segir Árni Þór Sigurðs-
son, borgarfulltrúi Vinstri
grænna, en vinnslu úr grjót-
námunni í Geldinganesi hefur ver-
ið hætt. Eftir stendur stórt sár
sem margir telja að fylla verði
upp í áður en lengra verður haldið.
„Það þarf einhvers staðar að fá
efni til gatnagerðar og annarra
framkvæmda hér í höfuðborginni
og ef það er ekki tekið þarna þá
þarf að taka það annars staðar.
Væntanlega verður það rætt inn-
an skipulagshópsins hvað verður
en það er ekki loku fyrir það skot-
ið að þarna verði grjótnám síðar
þó því sé lokið núna.“
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarfulltrúi Samfylkingar,
bendir á að svæði sem áður voru
notuð undir námur af þessum toga
séu hluti af borgarhverfinu í dag.
„Það eru mörg dæmi um að slíkt
komi ágætlega út og það stendur
einmitt til að hefja framkvæmdir
í gömlu grjótnámunni fyrir neðan
Stýrimannaskólann í Reykjavík.
Það þarf ekki að vera að slík
svæði séu alls ónothæf heldur
þvert á móti geta þau nýst ákaf-
lega vel ef vel er að verki staðið.“
„Það er útilokað mál af minni
hálfu að þarna verði tekið meira
efni en þegar hefur verið gert,“
segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins. „Með þeirri aðgerð væri R-
listinn að gefa borgarbúum langt
nef að mínu viti og einfaldlega
kemur ekki til greina. Þarna á að
rísa byggð á næstu árum og það
verður að horfa til framtíðar. Það
er víða hægt að verða borginni úti
um grjót og möl og þarf ekki að
gerast þarna á þessum stað. Nóg
er af stöðum þar sem minna fer
fyrir slíku jarðraski og það er al-
veg loku fyrir það skotið að tæma
eigi meira en þegar hefur verið
gert. Nóg er að gert nú þegar.“
albert@frettabladid.is
8 23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Hver bjó til lagarammann?
„Íslenska réttar- og dómskerfið er
skrípaleikur, botnlausar geðþótta-
ákvarðanir. Það er undarlegt að í
okkar litla landi skuli réttlætið bara
vera til fyrir suma en á hinn bóginn
þakkar maður fyrir að vera ekki
„séra Jóns megin“ í þeim bransa.“
Árni Johnsen, Morgunblaðið 22. mars.
Fermt fyrir þrjár millur í
Grafarvogi
„Þetta deilist náttúrulega á fjóra
presta og svo tekur skatturinn sitt
þannig að það verður ekki mjög mik-
ið eftir.“
Séra Vigfús Þór Árnason, Fréttablaðið 22. mars.
Reykjavík nútímans
„Ég var ekki með nein fíkniefni og
hef aldrei komið nálægt þeim. Síðan
tekur fyrsti lögregluþjónninn mig inn
í eldhús og segir mér að fara úr bux-
unum. Svo þurfti hann endilega að
sjá á mér typpið og rassinn.“
Oddur Friðriksson um innrás sjö lögreglumanna
á heimili hans, DV 22. mars.
Orðrétt
Kyssast til góðrar heilsu og velfarnaðar bæjarins:
Kossaflens á Balí
BALÍ, AP Prestarnir í þorpinu Den-
pasar á indónesísku eynni Balí
skvettu vatni á tugi ungmenna
til að fá þau til að hætta miklu
kossaflensi sem þau stóðu í á
einu torga bæjarins. Skvettun-
um var þó vel tekið af ungmenn-
unum enda hluti af rúmlega ald-
argamalli hefð bæjarbúa.
Einu sinni á ári hópast ein-
hleyp ungmenni saman og kyss-
ast ótt og títt. Þorpsbúar segja
siðinn til þess fallinn að tryggja
góða heilsu þátttakenda og komi
að auki í veg fyrir að ógæfa
dynji yfir sveitarfélaginu.
Alls tóku um 70 ungmenni
þátt í kossaflensinu í gær en
fyrst var efnt til þess síðla á
nítjándu öld.
Íslamskir stjórnmálamenn í
Indónesíu hafa hvatt til þess
undanfarið að kossar verði
bannaðir á almannafæri og að
þeir sem geri sig seka um þá
iðju eigi allt að fimm ára fang-
elsisdóm yfir höfði sér.
Í Denpasar veltu menn því
ekki fyrir sér hvort það væri við
hæfi að unga fólkið kysstist held-
ur hversu lengi kossaflensið ætti
að standa yfir. Niðurstaðan var
að prestarnir skvettu á ungmenn-
in eftir fimmtán sekúndur og því
einhverjir nælt sér í færri kossa
en þeir hafa viljað. ■
Voðaskot á Selfossi:
Bíða byssu-
eigandans
LÖGREGLUMÁL Eiganda skamm-
byssunnar sem voðaskot hljóp úr
og varð Ásgeiri Jónsteinssyni að
bana fyrir rúmri viku, er enn beð-
ið. Hann er á sjó en er væntanleg-
ur í land seinni part vikunnar, að
sögn Ólafs Helga Kjartanssonar,
sýslumanns á Selfossi.
Í kjölfar voðaskotsins komu
fram tilmæli lögreglunnar á Sel-
fossi um að þeir sem ættu óskráð-
ar byssur skiluðu þeim inn. Einn
skilaði byssu sem hann hafði feng-
ið úr dánarbúi. Þá hafa margir
hringt til að kynna sér skráningu á
byssum sem komið hafa úr dánar-
búi. ■
Hryðjuverkavarnir:
Sváfum ekki
á verðinum
WASHINGTON, AP „Forsetinn talaði
um al-Kaída við George Tenet,
yfirmann CIA, hann talaði um al-
Kaída við Donald Rumsfeld varn-
armálaráðherra og hann talaði um
al-Kaída við mig,“ sagði Condo-
leezza Rice, öryggisráðgjafi
George W. Bush Bandaríkjafor-
seta, þegar hún andmælti orðum
Richards Clarke um að stjórnvöld
hefðu hunsað hryðjuverkaógnir
fram til árásanna 11. september
2001.
Clarke var ráðgjafi Bush um
varnir gegn hryðjuverkum og
segir í nýrri bók sinni að ekki hafi
verið tekið mark á viðvörunum
sínum. ■
SKIPULAGÐI HRYÐJUVERK Rétt-
arhöld í máli manns sem er sak-
aður um að hafa skipulagt
sprengjuárás í Þýskalandi í
tengslum við innrásina í Írak
hefjast í maí. Maðurinn, sem er
frá Túnis, á að hafa unnið að
skipun al-Kaída hryðjuverka-
hreyfingarinnar.
TILRAUN TIL STJÓRNARMYNDUN-
AR Forsætisráðherrar Írlands og
Bretlands, Bertie Ahern og Tony
Blair, funda í dag með forystu-
mönnum þeirra flokka sem eiga
sæti á norður-írska þinginu. Gerð
verður tilraun til að leysa stjórn-
arkreppu sem er í landinu vegna
þess að tveir stærstu flokkarnir
neita að starfa saman.
UNGMENNI KYSSAST Í TUGAVÍS
Tugir einhleypra ungra bæjarbúa í Denpas-
ar á inónesísku eynni Balí tóku þátt í ár-
legu kossaflensi sem á að boða góða
heilsu og velfarnað sveitarfélagsins.
Grjótnámi hætt
í Geldinganesi
R-listinn segir óráðið hvað gert verði í Geld-
inganesi. Minnihlutinn útilokar frekara grjót-
nám og segir borgarbúum gefið langt nef.
BAK VIÐ LÁS OG SLÁ Pólskir
blaðamenn skiptust í gær á um
að dvelja í rimlabúri fyrir fram-
an þinghúsið í Varsjá. Með þessu
vildu þeir mótmæla því að rit-
stjóri lítils héraðsfréttablaðs var
dæmdur til fangelsisvistar fyrir
að neita að biðjast afsökunar á
harðorðum skrifum um embætt-
ismann.
GRJÓTNÁMAN Í GELDINGANESI
Vinnslu hefur verið hætt en menn
greinir á um hvernig haga skuli fram-
haldinu.
■ Evrópa
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T