Fréttablaðið - 23.03.2004, Side 10
KÖNNUN Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, er umdeildastur ís-
lenskra stjórnmálamanna sam-
kvæmt skoðanakönnun Frétta-
blaðsins. Þegar spurt var: „Til
hvaða stjórnmálamanns berð þú
mest traust um þessar mundir?“
nefndu 37,4% aðspurðra nafn for-
sætisráðherra. Örlítið færri, eða
36,7%, nefndu nafn Davíðs Odds-
sonar þegar
spurt var til
hvers viðkom-
andi bæri
minnst traust.
Karlar, einkum í
þéttbýli, eru
áberandi fleiri í
hópi þeirra sem
segjast treysta
Davíð best en að
öðru leyti er
ekki merkjan-
legur munur á
afstöðu manna.
Þeir sem
koma næstir á
eftir Davíð hvað
traust varðar
eru Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs með 13% at-
kvæða, Halldór Ásgrímsson, utan-
ríkisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, með 9,7% og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, varafor-
maður Samfylkingarinnar, með
6,3%. Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar, nýtur
trausts 3,9% og Geir H. Haarde
fjármálaráðherra og Jóhanna Sig-
urðardóttir njóta trausts 3,2% að-
spurðra. Tveir ráðherrar í ríkis-
stjórninni, þau Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra og Siv Frið-
leifsdóttir umhverfisráðherra, ná
ekki inn á topp 20 listann hvað
traust varðar og tveir ráðherrar,
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra og Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra ná alls ekki inn
á listann.
Þegar spurt var: „Til hvaða
stjórnmálamanns berð þú minnst
traust um þessar mundir?“ nefndu
flestir Davíð Oddsson, eða 36,7%.
Næst koma Össur Skarphéðinsson
með 12,8%, Halldór Ásgrímsson
með 7,9%, Steingrímur J. Sigfús-
son með 4,6% og Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur nefndu 4,2%.
Árni Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra og Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra voru aldrei nefnd þegar
spurt var um minnst traust til
stjórnmálamanna.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs nýtur mests
trausts ef niðurstöður beggja
spurninga eru reiknaðar saman,
hlýtur 40 stig. Næstur honum kem-
ur Davíð Oddsson forsætisráð-
herra með 15 stig, Geir H. Haarde
fjármálaráðherra með 13 stig og
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir deila fjórða sætinu með 11
stig hvort.
Össur Skarphéðinsson, formað-
ur Samfylkingarinnar, vermir hins
vegar botnsætið með 37 stig í mín-
us. Umhverfisráðherrann Siv Frið-
leifsdóttir er nokkru ofar með 15
stig í mínus og Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra, Sturla Böðv-
arsson samgönguráðherra og
Magnús Þór Hafsteinsson, formað-
ur þingflokks Frjálslyndra, eru all-
ir með 13 mínusstig. Við botn list-
ans eru einnig Mörður Árnason,
Samfylkingunni, Gunnar Örlygs-
son, Frjálslyndum og sjálfstæðis-
þingmennirnir Sigurður Kári
Kristjánsson, Pétur Blöndal og
þingforsetinn Halldór Blöndal.
the@frettabladid.is
10 23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
■ Írak
VILJA FORSETANN AFTUR
Stuðningsmenn Roh Moo-hyun, forseta
Suður-Kóreu, efndu til mótmæla í gær
gegn vantraustsályktun þingsins á hendur
honum. Staðfesti stjórnlagadómstóll van-
traustið verður forsetanum vikið úr emb-
ætti.
Landsbankinn um Seðlabanka:
Byggir á úreltum hagtölum
EFNAHAGSMÁL „Það vekur furðu að
Seðlabankinn skuli velja að gefa
út Peningamál tveimur dögum
áður en tölur Hagstofunnar um
landsframleiðslu á 4. ársfjórð-
ungi lágu fyrir,“ segir greining-
ardeild Landsbankans. Spá
Seðlabankans fyrir árið 2003
hljóðaði upp á 2,75 prósenta
vöxt landsframleiðslunnar. Upp-
gjör Hagstofunnar sýndi hins
vegar fjögurra prósenta vöxt.
„Mat bankans á framleiðslu-
spennu í hagkerfinu, undirliggj-
andi verðbólgu og nauðsynleg-
um hagstjórnaraðgerðum hlýtur
að vera úrelt nú þegar,“ segir
greiningardeild Landsbankans.
Greiningardeildin tekur und-
ir það með Seðlabankanum að
hagstjórn sé vandasöm við nú-
verandi efnahagsaðstæður.
Ótímabær vaxtahækkun geti
þrengt að atvinnulífinu og vald-
ið framleiðslutapi og atvinnu-
leysi. Bregðist bankinn of seint
við geti þurft að grípa til harka-
legri aðgerða en ella. Því sé mik-
ilvægt að nýjustu og bestu upp-
lýsingar séu lagðar til grund-
vallar greiningar hverju sinni.
Landsbankinn telur að Seðla-
bankinn ætti að ákveða útgáfu-
dagsetningar sínar með hliðsjón
af birtingu mikilvægra hag-
talna. ■
Í gæsluvarðhaldi:
Ekki á
sakaskrá
FÍKNIEFNI Kona sem nú situr í
gæsluvarðhaldi vegna fíkniefna-
máls sem kom upp á Selfossi á
föstudag hefur ekki komið áður
við sögu lögreglu. Leitað var í
nokkrum húsum vegna málsins og
fundust 15 grömm af hassi og um
fjögur grömm af amfetamíni auk
tóla og tækja til fíkniefnaneyslu.
Auk konunnar voru fjórir
menn handteknir og hafa þeir all-
ir játað sinn þátt í málinu. Ástæða
var til að kanna hlut konunnar
frekar og var hún því úrskurðuð í
gæsluvarðhald. Þrír mannanna
hafa áður komið við sögu lög-
reglu. ■
– kominn tími til
Meint kyn-
ferðisbrot á
unglingaheimili
TVEIR FINNAR SKOTNIR Tveir
finnskir kaupsýslumenn voru
skotnir til bana í Bagdad í gær á
leið sinni á fund í íraska orku-
málaráðuneytinu. Mennirnir voru
hluti af sendinefnd sem átti að
koma upp viðskiptatengslum í
Írak. Mennirnir eru fyrstu Finn-
arnir sem láta lífið í Írak eftir
innrásina á síðasta ári.
BÍLSPRENGJA BANAR TVEIMUR
Tveir óbreyttir íraskir borgarar
létust og 25 til viðbótar særðust
þegar bílasprengja sprakk við
bækistöð bandaríska flughersins
norður af Bagdad í gær. Tilræðis-
maðurinn lét einnig lífið í árásin-
ni.
RÁÐIST Á EFTIRLITSSVEIT Banda-
rískur hermaður og íraskur túlk-
ur létu lífið í sprengjuárás í
Bagdad. Þrír hermenn til viðbót-
ar særðust en mennirnir voru all-
ir hluti af eftirlitssveit sem var á
ferli í Abu Ghraib-hverfinu í
vesturhluta borgarinnar.
RANGAR DAGSETNINGAR
Birgir Ísleifur Gunnarsson Seðlabankastjóri
kynnir útgáfu Peningamála. Greiningar-
deild Landsbankans telur að Seðlabankinn
ætti að gefa Peningamál út þegar nýjustu
hagtölur liggja fyrir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
MÓTMÆLI Í BASRA Breskir her-
menn notuðu táragas til að dreifa
um 500 mótmælendum í borginni
Basra í suðurhluta Íraks. Mót-
mælendur grýttu hermennina og
köstuðu bensínsprengjum. Mót-
mælendur voru sagðir ósáttir við
að fá ekki vinnu hjá tollheimt-
unni á staðnum.
Kjósendur treysta
Steingrími best
Formaður Vinstri grænna nýtur mests trausts samkvæmt skoðanakönnun blaðsins. Formaður
Samfylkingarinnar nýtur minnst trausts. Þrefalt fleiri segjast vantreysta honum en treysta. Davíð
Oddsson er umdeildur sem fyrr en nær jafn margir segjast treysta honum og vantreysta.
TRAUST ALMENNINGS Á
STJÓRNMÁLAMÖNNUM
MEST TRAUST
1. Davíð Oddsson 37,4%
2. Steingrímur J. Sigfússon 13,0%
3. Halldór Ásgrímsson 9,7%
4. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 6,3%
5. Össur Skarphéðinsson 3,9%
6-7. Geir H. Haarde 3,2%
6-7. Jóhanna Sigurðardóttir 3,2%
8-10. Guðni Ágústsson 2,4%
8-10. Margrét Frímannsdóttir 2,4%
8-10. Ögmundur Jónasson 2,4%
MINNST TRAUST
1. Davíð Oddsson 36,7%
2. Össur Skarphéðinsson 12,8%
3. Halldór Ásgrímsson 7,9%
4. Steingrímur J. Sigfússon 4,6%
5. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 4,2%
6. Siv Friðleifsdóttir 3,9%
7. Björn Bjarnason 3,7%
8-9. Magnús Þór Hafsteinsson 3,0%
8-9. Sturla Böðvarsson 3,0%
10. Guðni Ágústsson 2,6%
1. Steingrímur J. Sigfússon 40
2. Davíð Oddsson 15
3. Geir H. Haarde 13
4-5. Halldór Ásgrímsson 11
4-5. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 11
6-7. Jóhanna Sigurðardóttir 10
6-7. Margrét Frímannsdóttir 10
8. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 9
9. Valgerður Sverrisdóttir 8
10-11. Árni Magnússon 6
10-11. Björgvin G. Sigurðsson 6
Halldór Blöndal - 3
Pétur Blöndal - 3
Gunnar Örlygsson - 4
Sigurður Kári Kristjánsson - 5
Mörður Árnason - 8
Magnús Þór Hafsteinsson - 13
Sturla Böðvarsson - 13
Björn Bjarnason - 13
Siv Friðleifsdóttir - 15
Össur Skarphéðinsson - 37
TRAUST AÐ FRÁDREGNU VANTRAUSTI
UMDEILDUR
Davíð Oddsson forsætisráðherra er
umdeildastur íslenskra stjórnmála-
manna.
KJÓSENDUR TREYSTA
STEINGRÍMI
Formaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs nýtur mests trausts
meðal kjósenda samkvæmt skoð-
anakönnun Fréttablaðsins.
TRAUSTIÐ MISMUNANDI
Staða Össurar Skarphéðinssonar,
formanns Samfylkingarinnar, og
Ingibjargar Sóltrúnar Gísladóttur,
varaformanns flokksins, er ólík þeg-
ar kjósendur raða þeim eftir trausti.
Efstir Neðstir