Fréttablaðið


Fréttablaðið - 23.03.2004, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 23.03.2004, Qupperneq 16
16 23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR ■ Ameríka BURT MEÐ KJARNORKUVOPNIN Þýskir grænfriðungar efndu í gær til mót- mæla gegn kjarnorkuvopnum fyrir framan þýska sendiráðið í Berlín. Með eftirlíkingu af Frelsisstyttunni og kjarnorkuvopnum auk korts af Bandaríkjunum kröfðust þeir þess að þjóðir heims eyddu kjarnorku- vopnum sínum. NEW YORK, AP Verslunarkeðjan Wal Mart er stærsta fyrirtæki heims á Fortune 500 listanum yfir stærstu fyrirtæki heims. Þetta er þriðja árið í röð sem félagið er efst á þessum lista. Sölutekjur fyrirtæk- isins námu 259 milljörðum Banda- ríkjadala í fyrra sem jafngildir ríflega átján þúsund milljörðum íslenskra króna. Olíurisinn Exxon Mobil er í öðru sæti á listanum og klífur upp fyrir General Motors sem er í þriðja sæti. Annar bílaframleið- andi, Ford, er í fjórða sæti og General Electric er í fmmta sæti. Olíufyrirtækin Chevron Texaco og ConocoPhillips komu næst á eftir og Citigroup bankinn var í áttunda sæti. Næstu tvö fyr- irtæki voru IBM og Insurer American International Group. Exxon er hins vegar það fyrir- tæki sem skilaði mestum hagnaði í fyrra. Hann nam 21,5 milljörðum Bandaríkjadala samanborið við riflega níu milljarða hjá Wal Mart. Þetta er í fimmtugasta sinn sem tímaritið Fortune birtir lista yfir stærstu fyrirtæki heims. Fé- lagið sem var í efsta sæti á fyrsta listanum árið 1995 var General Motors, sem nú er í þriðja sæti. ■ RÁÐHERRABÓK „Haft var að leiðar- ljósi við val á kaflahöfundum að þeir þekktu vel til umfjöllunar- efnisins og væru líklegir til að vera bærilega skrifandi,“ segir Ólafur Teitur Guðnason, ritstjóri bókarinnar Forsætisráðherrar Ís- lands. Bókin verður gefin út á frá- farardegi Davíðs Oddssonar úr forsætisráðherrastól 15. septem- ber í tilefni 100 ára afmæli heima- stjórnar. Ríkissjóður mun bera kostnað af verkinu, sem talinn er nema 8 milljónum. Kaflahöfundar munu fá greiddar um 100 þúsund krónur hver og fá þrjá mánuði til að skrifa 10-16 blaðsíður um hvern hinna 24 forsætisráðherra eða ráðherra Íslands frá upphafi. Samkvæmt Ólafi Teiti er tilgang- urinn að draga fram á einum stað heildstæða mynd af þessum for- ystumönnum, bakgrunni þeirra og hugsjónum, einkennum þeirra sem stjórnmálamanna og helstu viðfangsefnum þeirra. Aðspurður hvers vegna ein- ungis fjórar konur hefðu valist til skrifanna segir hann að á meðal þeirra höfunda sem ekki gátu annað verkinu hafi kynjahlutfall- ið verið jafnara. „Konur voru þriðjungur þeirra sem ekki gátu skrifað og má lesa viðleitni rit- nefndarinnar út úr því að ef tek- inn er listi allra sem talað var við er kynjahlutfallið jafnara,“ segir Ólafur Teitur. Í ritnefnd sitja Júlíus Hafstein, formaður, Haraldur Ólafsson pró- fessor, Ingólfur Margeirsson blaðamaður, Jakob F. Ásgeirsson rithöfundur og Sigurður Líndal prófessor. ■ LÖGREGLUSTJÓRI REKINN Lög- reglustjórinn í Belgrad, höfuð- borg Serbíu, var rekinn úr starfi fyrir að koma ekki í veg fyrir að kveikt væri í mosku múslima í óeirðum í síðustu viku. Óeirðirn- ar í Belgrad brutust út eftir mannskæðar óeirðir í Kosovo þar sem fjöldi Serba lagði á flótta undan Kosovo-Albönum sem eru múslimar. NJÓSNURUM VIKIÐ ÚR LANDI Eistnesk stjórnvöld hafa rekið tvo starfsmenn rússneska sendi- ráðsins úr landi fyrir meintar njósnir. Yfirvöld í Eystrasalts- ríkjunum hafa áhyggjur af aukn- um njósnum Rússa samfara aðild ríkjanna að ESB og NATO. Lithá- ar ráku þrjá meinta njósnara Rússa úr landi í síðasta mánuði. Selfoss: Innbrot og slagsmál LÖGREGLUMÁL Annríki var hjá lög- reglunni á Selfossi um helgina en alls var tilkynnt um fimm innbrot í bíla víðs vegar um Árnessýslu, innbrot í verslunarhúsnæði og slagsmál. Rúður voru brotnar í fjórum bílum á bílasölu á Selfossi og ein- um bíl við Litlu kaffistofuna und- ir morgun. Geislaspilurum, verk- færum og GPS-tæki var stolið úr bílunum. Slagsmál komu upp á skemmti- staðnum Pakkhúsinu og þurfti lögreglan að stilla til friðar. Enn fremur var brotist inn í Dekkjalagerinn og þaðan stolið dekkjum. Ekki er enn vitað hve mikið var tekið. Auk þess voru tveir teknir vegna ölvunaraksturs og einn vegna gruns um neyslu fíkniefna. Jafnframt var einn bílstjóri stöðv- aður sem ekki reyndist hafa öku- réttindi. ■ LUKKUSTJARNAN Ræninginn komst á brott með skiptimynt. Rændi söluturn: Vopnaður flösku RÁN Ræningi með brotna flösku að vopni ógnaði starfsstúlku í sölu- turninum Lukkustjörnunni við Langholtsveg um klukkan ellefu á sunnudagskvöld. Hann komst undan með skiptimynt úr pen- ingakassanum. Að sögn Harðar Jóhannessonar hjá lögreglunni í Reykjavík er lýs- ing á ræningjanum nokkuð óljós. Hann var í úlpu með hettu á höfði og með gleraugu fyrir andlitinu. Hann er á aldrinum 20 til 30 ára. Ræninginn hefur ekki fundist og er málið til rannsóknar. ■ NÝR FORSETI Fyrrum íþrótta- fréttamaður bar sigurorð af fyrr- um leiðtoga uppreisnarmanna í forsetakosningunum í El Salvador. Tony Saca, sem vill efla tengsl við Bandaríkin, hlaut rúm- an helming atkvæða en helsti andstæðingur hans, Schafik Handal, fékk rúman þriðjung at- kvæða. FRIÐARGÆSLULIÐI FÉLL Fransk- ur friðargæsluliði á Haítí lét lífið þegar hann varð fyrir slysaskoti félaga síns sem var að þrífa riffil sinn. Skot hljóp úr riffli manns- ins og í friðargæsluliðann. Frakk- inn er fyrsti friðargæsluliðinn til að láta lífið en um 300 heima- menn hafa látist í átökum á Haiti. Reykjavík: Skemmdi átta bíla LÖGREGLA Maður var handtekinn í Hlíðunum í Reykjavík um klukk- an sex í gærmorgun eftir að hafa skemmt átta bíla. Hann lamdi í bílana með barefli og sparkaði. Fólk sem var snemma á ferli sá til mannsins og gerði lögreglu við- vart. Ekki er ljóst hvað manninum gekk til með látunum en hann ferðaðist sjálfur um á reiðhjóli. ■ Stærstu fyrirtæki heims: Wal Mart keðjan enn stærsta fyrirtæki í heimi MIKIL VELTA Wal Mart verslunarkeðjan seldi vörur fyrir átján þúsund milljarða íslenskra króna í fyrra og er stærsta fyrirtæki í heimi. ■ Evrópa Hannes Hafstein: Davíð Oddsson, forsætisráðherra. Björn Jónsson: Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur. Kristján Jónsson: Dr. Jón Þ. Þór, sagnfræðingur. Sigurður Eggerz: Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, prófessor. Einar Arnórsson: Dr. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor. Jón Magnússon: Sigurður Líndal, prófessor emeritus. Jón Þorláksson: Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra. Tryggvi Þórhallsson: Dr. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor. Ásgeir Ásgeirsson: Anna Ólafsdóttir Björnsson, cand. mag. Hermann Jónasson: Tryggvi Gíslason, magister. Ólafur Thors: Jakob F. Ásgeirsson, rithöfundur. Björn Þórðarson: Guðmundur Magnússon, sagnfræðingur. Stefán Jóhann Stefánsson: Ingólfur Margeirsson, blaðamaður. Steingrímur Steinþórsson: Gerður Steinþórsdóttir, cand. mag. Emil Jónsson: Helgi Skúli Kjartansson, sagnfræðingur, dósent. Bjarni Benediktsson: Dr. Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur. Jóhann Hafstein: Birgir Ísleifur Gunnarsson, Seðlabankastjóri. Ólafur Jóhannesson: Dr. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor. Geir Hallgrímsson: Jónína Michaelsdóttir, blaðamaður. Benedikt Gröndal: Guðmundur Árni Stefánsson, alþingismaður. Gunnar Thoroddsen: Dr. Jón Ormur Halldórsson, dósent. Steingrímur Hermannsson: Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri. Þorsteinn Pálsson: Steinar J. Lúðvíksson, ritstjóri. Davíð Oddsson: Styrmir Gunnarsson, ritstjóri. Hundrað þús- und á höfund Fjórar konur og tuttugu karlar rita hver sinn kaflann í sögu forsætisráð- herra Íslands. Ritnefnd reyndi eftir megni að fá fleiri konur til verksins. STYRMIR GUNNARSSON DAVÍÐ ODDSSON BJÖRN BJARNASON BIRGIR ÍSLEIFUR HANNES HÓLMSTEINN SIGRÍÐUR DÚNA SIGURÐUR LÍNDAL GUÐMUNDUR ÁRNI Brotist inn í tölvufyrirtæki: Þjófar staðn- ir að verki INNBROT Öryggisverðir Öryggismið- stöðvar Íslands stóðu þjófa að verki í tölvufyrirtæki í austurbæ Reykja- víkur um síðustu helgi. Öryggisverð- irnir gátu veitt lögreglu upplýsingar sem leiddu til handtöku þjófanna. Viðvörunarkerfi fyrirtækisins hafði farið af stað og þegar öryggis- verðirnir komu á vettvang sáu þeir menn bera þýfi út í bíl. Styggð kom að þjófunum, sem stukku upp í bílinn og óku á brott. Aksturslag þeirra var slíkt að öryggisverðirnir ákváðu að fylgja þeim ekki eftir. Þeir náðu hins vegar skráningarnúmeri bifreiðar- innar og voru þjófarnir handteknir skömmu síðar. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.