Fréttablaðið - 23.03.2004, Síða 22
Ég byrja daginn í önnum við aðkoma fólki út á Keflavíkur-
flugvöll,“ segir Einar Svein-
björnsson, veðurfræðingur og
bæjarfulltrúi í Garðabæ, sem er
39 ára í dag. „Þannig að það verð-
ur ekki morgunmatur í rúmið eins
og hefð er fyrir handa öllum í fjöl-
skyldunni. Það er alltaf farið í
bakaríið um leið og það opnar. En
væntanlega verður eitthvað gert
með fjölskyldunni um kvöldið.“
Samstarfsfélagar Einars munu
líklega ekki gleyma afmælinu
hans, því svo vill til að hann á af-
mæli á alþjóðlega veðurfræðidag-
inn. „Sumir vilja meina að þetta
séu örlögin að veðurfræðingurinn
eigi afmæli á þessum degi, en
þetta var ákveðið löngu áður en
ég fæddist og ég komst ekki að
þessari tilviljun fyrr en síðar,
þegar ég var orðinn veðurfræð-
ingur.“
Afmælisdagurinn hans tengist
veðrinu á fleiri vegu því Einar
segir að í kringum afmælisdaginn
komi fyrsti keimurinn af vori.
„Vorið er núna rétt handan við
hornið.“
Einar kann því vel að vera
kominn aftur á Veðurstofuna en
hann var um tíma aðstoðarmaður
Sivjar Friðleifsdóttur umhverfis-
ráðherra. „Það er ánægjulegt að
vera aftur farinn að líta til veðurs,
þó svo að ég hafi aldrei hætt því.
Fyrir mér er veðrið ekki bara
vinna heldur einnig áhugamál.
Þessi vinna sem ég er í núna hjá
Veðurstofunni er öðruvísi en sem
aðstoðarmaður ráðherra og meira
afmörkuð. Nú fer ég í vinnuna og
fer heim úr vinnunni á meðan ég
var allaf í vinnunni hvort sem ég
var niðri í ráðuneyti eða ekki. Það
starf gat verið mjög fjörugt og
gefandi og ég sakna ráðuneytisins
mjög.“ Einar hefur þó ekki skilið al-
veg við pólitíkina, því hann er bæj-
arfulltrúi í Garðabæ og þarf í dag
að sækja fund í bæjarráði. „Það eru
ýmsir spennandi hlutir að gerast í
skólamálum hjá okkur og við horf-
um upp á mikla uppbyggingu á
næstu árum sem býður upp á mikla
möguleika. Menn verða þó að stíga
varlega til jarðar til að láta þjónustu
mæta þörfinni þegar íbúum mun
fjölga hratt á næstu fjórum til sex
árum.“ ■
Fantomas, stórsveit MikesPatton, mun hita upp fyrir
KoRn á seinni Íslandstónleikum
sveitarinnar í Laugardalshöllinni
þann 31. maí. Forsprakki sveitar-
innar gerði það gott með Faith No
More á sínum tíma en þegar það
band lagði upp laupana sneri
Patton sér að ýmsum öðrum hugð-
arefnum og þar var Fantomas efst
á blaði.
Patton stofnaði einnig Ipecac-
útgáfuna sem gaf út fyrstu plöt-
una með sveitinni árið 1999. Með-
fram Fantomas hefur hann svo
starfað með Mr. Bungle, Toma-
hawk og gefið út sólóefni á merki
Johns Zorn, þess mikla tilrauna-
meistara. Með honum í Fantomas
eru þeir Trevor Dunn, bassaleik-
ari Mr. Bungle, Dave Lombardo,
fyrrverandi trymbill Slayer, og
síðan Buzz Osbourne, leiðtogi
Melvins, hvorki meira né minna.
Miðasala á seinni tónleika
KoRn hefst með forsölu fyrir við-
skiptavini Símans þann 1. apríl á
siminn.is og almenn miðasala
hefst í verslunum Skífunnar í
Kringlunni og Smáralind, Pennan-
um Eymundssyni á Glerártorgi,
Pennanum Akranesi og Hljóðhús-
inu á Selfossi þann 4. apríl klukk-
an 21.
Viðskiptavinir Símans munu
einir eiga þess kost að kaupa
stúkumiða á tónleikana því þeir
verða eingöngu seldir á siminn.is.
Stæðismiðar verða einnig í boði í
forsölunni á siminn.is.
Það seldist hratt upp á fyrri
tónleika KoRn og með tilkomu
Fantomas á seinni tónleikana má
búast við svipuðum hamagangi. ■
22 23. mars 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Leikstjórinn James Cameronkom, sá og sigraði með Titanic á
Óskarsverðlaunahátíðinni 1998.
Mynd hans um risaskipið ósökkv-
andi sem sökk í jómfrúarferð sinni
hafði malað gull allt árið og orðið
fyrsta kvikmyndin í sögunni til þess
að græða yfir einn milljarð Banda-
ríkjadollara í miðasölunni.
Titanic átti möguleika á að slá
eitt metið enn þegar það kom að
Óskarsverðlaununum en hún var til-
nefnd til 14 verðlauna. Metið átti
Ben-Húr, sem var á sínum tíma til-
nefnd til 12 verðlauna og vann til 11.
Þar á meðal fékk Charlton Heston
styttu fyrir titilhlutverkið, Hugh
Griffith sem besti leikari í aukahlut-
verki og William Wyler fyrir leik-
stjórn, en auk þess var Ben-Húr val-
in besta myndin og fékk verðlaun
fyrir tæknibrellur og klippingu.
Titanic fékk einnig verðlaun
fyrir bestu tæknibrellur og klipp-
ingu en þar fyrir utan hirti myndin
verðlaun fyrir bestu tónlistina og
besta lagið, My Heart Will Go On.
Þá var Titanic valin besta myndin
árið 1998 og Cameron var verð-
launaður fyrir leikstjórn. Enginn
leikaranna komst þó á blað en bæði
Kate Winslet og Gloria Stuart
misstu af verðlaunum fyrir bestan
leik konu í aðal- og aukahlutverki.
Titanic jafnaði því met Ben-Húr en
það gerði síðan líka lokakafli
Hringadróttinssögu á þessu ári og
þær eru því orðnar þrjár stór-
myndirnar sem hafa landað 11 Ósk-
arsverðlaunum. ■
■ Afmæli
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og við-
skiptaráðherra er 54 ára.
Bjarni Ármannsson, bankastjóri Ís-
landsbanka, er 36 ára.
■ Brúðkaup
LOUISE STEFANÍA DJERMOUN OG
ARNALDUR HAUKUR ÓLAFSSON
Voru gefin saman í Fríkirkjunni í Reykjavík
af séra Hirti Magna Jóhannessyni þann 9.
ágúst 2003.
■ Andlát
Garðar Sigurðsson, fyrrverandi alþingis-
maður, Laugarnesvegi 89, lést föstudag-
inn 19. mars.
Guðmundur Már Brynjólfsson, Breiða-
gerði 19, Reykjavík, lést laugardaginn
20. mars.
Huginn Svan Þorbjörnsson lést þriðju-
daginn 9. mars. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey.
Magnús Þórisson, Hamragerði 26, Ak-
ureyri, lést laugardaginn 20. mars.
Magnea Kristín Friðbjörnsdóttir frá
Vopnafirði, Háteigsvegi 13, Reykjavík lést
laugardaginn 20. mars.
■ Jarðarfarir
11.00 Vilborg Þórðardóttir, Vatnsnesi,
Grímsnesi, verður jarðsungin frá
Selfosskirkju.
13.00 Edda Snorradóttir, Elisevei 13,
Sandefjord, Noregi, verður jarð-
sungin frá Sandefjord.
13.30 Bryndís Kristinsdóttir, Víði, Mos-
fellsdal, verður jarðsungin frá Bú-
staðakirkju.
13.30 Halldóra Margrét Jónsdóttir, elli-
og hjúkrunarheimilinu Seljahlíð,
áður Bólstaðarhlíð 44, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigs-
kirkju.
13.30 Ingveldur Pétursdóttir, Skelja-
tanga 1, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík.
15.00 Magðalena Kristín Bragadóttir,
Tunguseli 3, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
Afmæli
EINAR SVEINBJÖRNSSON
■ er 39 ára og byrjar daginn á að
koma fólki á Keflavíkurflugvöll.
Tónleikar
FANTOMAS
■ Hitar upp fyrir KoRn á seinni tónleik-
um sveitarinnar í Höllinni í sumar. Aðal-
sprautan í Fantomas, Mike Patton, gerði
garðinn frægan með Faith No More á
sínum tíma.
JOAN CRAWFORD
Þessi skuggalega svart/hvíta leikkona
fæddist á þessum degi árið 1908
fyrir 96 árum.
23. mars 1908
TITANIC
■ Verður önnur myndin í sögu Ósk-
arsverðlaunanna til þess að hljóta 11
verðlaun þegar myndin jafnar 39 ára met
stórmyndarinnar Ben-Húr.
23. mars
1998
MIKE PATTON
Sneri sér að Fantomas þegar
Faith No More leystist upp.
Heldur upp á alþjóða
veðurfræðidaginn
JAMES CAMERON
Lét alla hógværð lönd og leið þegar hann
tók við Óskarsverðlaununum og tók sér
orð Leonardos DiCaprio í munn þegar
hann öskraði yfir mannskapinn: „Ég er
konungur heimsins!“.
Titanic jafnar Ben-Húr
Fantomas hitar upp fyrir seinni tónleika KoRn
EINAR SVEINBJÖRNSSON
Segir ánægjulegt að vera farinn að líta aftur til veðurs og sjá að vorið sé rétt handan við hornið.
Minningarathöfn um
elskulegan föður okkar, tengdaföður og afa
SIGURJÓN GUÐJÓNSSON
sem andaðist í Svíþjóð 5. febrúar sl.
fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 26. mars kl. 14.
Fyrir hönd aðstandenda
Hrafnhildur Sigurjónsdóttir,
Kjartan Sigurjónsson,
Védís Sigurjónsdóttir.